NT


NT - 09.11.1984, Síða 13

NT - 09.11.1984, Síða 13
El' Sjónvarp sunnudag kl. 21.40: Nú kveðjum við Marco Polo ■ Sunnudagskvöldið kl. 21.40 verður sýndur í sjón- varpinu lokaþáttur ítalska framhaldsmyndaflokksins um Marco Polo. Það er fjórði þáttur, en sjónvarpsáhorfend- ur hafa undanfarin sunnudags- kvöld dvalist í Asíu í meira en klukkustund með Marco Polo og mönnum hans við hirðveisl- ur, bardaga og ævintýri. Leikarinn Ken Marshall í aðal- hlutverki vann sér mikla frægð með leik sínum í þessum þáttum. Leikstjóri er Giulino Montaldo. Þýðandi er Þor- steinn Helgason. ■ Leikarinn Ken Marshall í hlutverki sínu í Marco Polo Sjónvarp laugardag kl. 19.25: Bróðir minn Ljónshjarta 2. þáttur um bræðurna Karl og Jónatan ■ Nú fáum við að sjá 2. þátt af fimm í sænska myndaflokknum eftir sögu Astrid Lindgren: Bróðir minn Ljónshjarta. Söguna þekkja margir, bæði af bókinni sem komið hefur út á íslensku í þýðingu Þorleifs Haukssonar, og útvarpslestri, en bókin var lesin fyrir nokkrum árum í útvarpinu. Sagan segir frá drengum Karli, sem finnur Jónatan, eldri bróður sinn, að loknu þessu jarðlífi á öðru tilverustigi, sem um margt minnir á miðaldaheim riddarasagna. Aðalhlutverk leika Staffan Götestam og Lars Söderdahl, en leikstjóri er Olle Hellbom. Þýðandi er Jóhanna Jóhannsdóttir. ■ Bræðurnir Karl og Jónatan hittast „hinum megin“ Útvarp laugardag kl. 21.45: Síðasti einvaldurinn - aðsinnia.m. ■ í sumar hafa verið vikulega á dagskrá útvarps þættir sem nefndir hafa verið Einvaldur í einn dag. í hverjum þætti hefur einhver einstaklingur greint frá því, hvernig hann myndi beita valdi sínu, ef hann fengi að vera einvaldur í einn dag og hafa þar vafalaust komið fram margar góðar og áhugaverðar hugmyndir - sumar jafnvel til eftirbreytni. Umsjón með þátt- unum hefur Áslaug Ragnars haft. í kvöld kl. 21.45 er síðasti þátturinn, að sinni a.m.k. og að þessu sinni er það Guðný Guðmundsdóttir, sem lýsir því fyrir hlustendum, hvernig k. hún myndi stjórna, ef hún væri einráð í einn dag. Guðný er eigin atvinnurek- andi. Hún rekur lítið fyrirtæki, sem flytur inn heilsuvörur fyrir húðina. Þann atvinnurekstur hefur hún þó ekki stundað lengi, en eftir 22ja ára húsmóð- urstarf og nám í Öldungadeild- inni jafnframt síðustu árin, sem lauk með stúdentsprófi, skellti hún sér út í viðskipti, enda börnin þá uppkomin. En þó að starfsdagur Guðn- ýjar hafi oft verið langur, hefur hún sinnt fleiru. Hún hefur mikið starfað að félagsmálum, síðustu árin aðallega í tengsl- um við BPW (Business and Professional Women), en sá félagsskapur er alþjóðlegur, starfar í 70 löndum. Hér á landi er einn klúbbur starfandi og er hann ekki nema 5 ára, en BPW á sér þó langa sögu, t.d. er bandaríska alríkissamband- ið stofnað 1911. í BPW eru nú starfandi þúsundir kvenna. „Og svo er ég líka kvennalista- kona, hef starfað þar mikið,“ segir Guðný. En þó að Guðný hafi komið víða við hefur hún látið alveg undir höfuð leggjast að leggja stund á tónlistarnám. „Ég spila bara á grammófón," segir hún, en ókunnugir eiga það til að rugla henni saman við nöfnu ■ Guðný Guðmundsdóttir er vön að skipuleggja sinn dýr- mæta tíma vel og hrinda hlut- unum í framkvæmd. Það eru vafalaust hæflleikar, sem kæmu einvaldi vel. NT-«y»4.Ár»i Bjana sína, konsertmeistara Sinfón- íuhljómsveitar íslands. Það verður vafalítið fróðlegt að heyra hugmyndir þessarar atorkukonu um hvernig hún færi að, ef hún fengi öllu að ráða í einn dag. Föstudagur 9. nóvember 1984 J3 Útvarp sunnudag kl. 10.25: Einar Karl Haraldsson: „Þeir sem leggjast í Sturlungu bíða þess aldrei bætur“ ■ í fyrravetur skemmti Einar Karl Haraldsson útvarpshlust- endum með því að fjalla um Njálu frá ýmsum sjónarhorn- um. Nú er röðin kornin að Sturlungu, og hefst ný þáttaröð um hana í útvarpinu á sunnu- dagsmorgun kl. 10.25. „Þetta er hugsað fyrst og fremst sem framhald af þessari tilraun, að viðhalda spjalli manna á meðal um okkar bók- menntir frá gamalli tíð, bæði íslendingasögur og samtíma- bókmenntir á 13. öld,“ segir Einar Karl, „og Sturlunga, eða sú bók sem kallast Sturlunga, safnrit, er dálítið erfið yfir- lestrar. En hins vegar þeir, sem komast inn í þann heim, verða mjög hugfangnir af honum, og þetta er endalaust viðfangsefni. Menn fara að velta fyrir sér sögunni, þessari miklu átakasögu og endalok- um þjóðveldisins og átökum manna af persónulegum tengslum. Menn, sem hafa lagst í Sturlungu, hafa ekki beðið þess bætur. Það má líka líta á þessa bók sem kennslubók í stjórnmála- fræði, hvort sem það er góð lesning eða ekki! Um þetta ætla ég að fá menn til að spjalla. Ég á von á að þetta verði bæði bókmenntaspjall og um sagnfræði og persónur. Þá ætla ég að láta hlustendur og það, sem ég verð vísari á meðan ég er að vinna þessa þætti, ráða dálítið ferðinni, þannig að þetta verði ekki nein einstefna af minni hálfu, held- ur endurspegli þannig það sem menn hafa áhuga á að ræða um Sturlunga og Sturlungu. Ég rek þetta eins og áður sem ■ Einar Karl Haraldsson fréttamaður en ekki sem vís- indamaður." Einar Karl kvaðst hafa orðið var við mikil og góð viðbrögð við Njáluþáttunum í fyrra. Það hefði verið góður hlustenda- hópur, sem fylgdist með þeim. „Ég held að sá hópur sé afar fjölbreyttur, sem betur fer. Það er ekki hægt að segja að það sé nein ein manntegund eða stétt, sem hefur áhuga á þessum hlutum. Og áhuginn á þessum bók- menntum er alls ekki dauður. að vísu mælir maður ekki, hvað þetta er almennt. En þeir, sem komnir eru á bragðið, þeir víkja ekki af þessum slóðum. Ef þeir einu sinni komast á sporið, þá halda þeir sig á þessari slóð,“ segir Einar Karl. Laugardagur 10. nóvemnber 7.00yeöurfregnir. Fréttir. Bæn.Tón- leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Halla Kjartansdóttir talar 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón- leikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). Óskalög sjúk- linga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla. Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Her- mann Gunnarsson. 14.00 Hér og nú Fréttaskýringaþáttur i vikulokin. 15.15 Úr blöndukútnum Sverrir Páll Erlendsson (RÚVAK) 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 íslenskt mál Jón Aöalsteinn Jónsson sér um þáttinn. 17.10 Ungversk tónlist - 1. þáttur Umsjón: Gunnsteinn Ólafsson. Lesari með honum: Áslaug Thor- lacius. 17.55 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 „Úthverft brim um allan sjó“ Stefán Jónsson flytur frásöguþátt. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón Sveinsson. Gunnar Stefánsson les þýðingu Freysteins Gunnarsson (2). 20.20 Ameríkumaður í París Hljóm- sveitarsvíta eftir Georges Gershwin. Hátiðarhljómsveit Lundúna leikur; Stanley Black stj. 20.40 Austfjarðarrútan með við- komu á Eskifirði. Umsjón: Hildur Torfadóttir. 21.15 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni Jónsson. 21.45 Einvaldur í einn dag Umsjón: Áslaug Ragnars 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Uglan hennar Mínervu Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 23.15 Létt sígild tónlist 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 24.00 Naeturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 11. nóvember 8.00 Morgunandakt Séra Jón Eín- arsson flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Léttt morgunlög Þjóðlög frá Grikklandi, Póllandi og (talíu sung- in og leikin. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar a. Preludí- um og fúga i g-moll eftir Johann Sebastian Bach. Michel Capuis leikur á orgel. b. Sinfóniskar etýður op. 13 eftir Robert Schumann. Jean-Paul Sévilla leikur á píanó. c. Gitarkonsert í a-dúr op. 72 eftir Salvador Bacarisse. Narciso Yep- es leikur með Sinfóníuhljómsveit spænska útvarpsins; Pdón Alonso stj. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Umsjón: Einar Karl Haraldsson. 11.00 Messa í Laugarneskirkju á kristniboðsdegi. Séra Kjartan Jónsson predikar, séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Organleikari: Sigríður Jónsdóttir. Einsöngur: Elín Sigurvinsdóttir. Hádegistónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Glefsur úr stjórnmálasögu í samantekt Sigríðar Ingvarsdóttur. Þátturinn fjallar um Skúla Thor- oddsen. Umsjón: Sigríður Ingvars- dóttir og Sigríður Eyþórsdóttir. 14.30 Miðdegistónleikar Konsert í C-dúr fyrir píanó, fiðlu, selló og hljómsveit op. 56 eftir Ludwig van Beethoven. Kyung-Wha Chung leikur á fiðlu, Myung-Wha Chung á selló Myung-Whun Chung leikur á píanó og stjórnar Sinfóníuhljóm- sveit útvarpsins í Baden-Baden. (Hljóðritun frá tónleikum 16. mars sl.) 15.10 Með bros á vör Svavar Gests velur og kynnir efni úr gömlum spurninga- og skemmtiþáttum út- varpsins. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um vfsindi og fræði. Vísindi og sjálfstæði þjóðar. Halldór Guð- jónsson kennslustjóri flytur sunnu- dagserindi. 17.00 Tónleikar Suk-kammersveit- arinnar. Josef Suk stjórnar og leikur einleik á fiðlu ásamt Miroslav Kosina. a. Konsert fyrir 2 fiðlur og strengjasveit í a-moll op. 38 eftir Anton Vivaldi. b. Konsert í G-dúr fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Johann Baptist Vanhal. c. Serenaða fyrir strengjasveit í Es-dúr op. 6 eftir Josef Suk. 18.00 Það var og... Út um hvippinn og hvappinn með Þráni Bertels- syni. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Eftirfréttir. Umsjón:Bernharð- ur Guðmundsson. 19.50 „Gegnum frostmúrinn", ljóð„ eftir Kristínu Bjarnadóttur. Höfundur les. 20.00 Um okkur. Jón Gústafsson stjórnar blönduðum þætti fyrir unglinga. 21.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.40 að tafli. Stjórnandi: Jón Þ. Þór. 22.00 Tónlist. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Galdrar og galdramenn. Har- aldur I. Haraldsson. (RÚVAK). 23.05 Djasssaga. JónMúliÁrnason. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sunnudagur 11. nóvember 13:30-18:00 S-2 (sunnudagsþátt- ur). Tónlist, getraun, gestir og létt spjall. 20 vinsælustu lög vikunnar leikin. Stjórnendur: Páll Þorsteins- son og Ásgeir Tómasson. Laugardagur 10. nóvember 24:00-0:50 Listapopp. Endurtekinn þáttur frá Rás 1. Stjórnandi: Gunn- ar Salvarsson. 00:50-03:00 Næturvaktin. Stjórn- andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. (Rásir 1 og 2 samtengdar kl 24:00 og heyrist þá í Rás 2 um allt land.) Laugardagur 10. nóvember 16.00 Hildur. Annar þáttur Endur- sýning. Dönskunámskeið í tíu þáttum. 16..30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Enska knattspyrnan. 19.25 Bróðir minn Ljónshjarta. Annar þáttur. Sænskur framhalds- myndaflokkur f fimm þáttum, gerð- ur eftir samnefndri sögu eftir Astrid Lindgren. Þýðandi Jóhanna Jó- hannsdóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 f sæiureit Nýr flokkur - Fyrsti þáttur. Breskur gamanmynda- flokkur í sjö þáttum. Aðalhlutverk: Richard Driers og Felicity Kendall. John Good hefur fengi sig fullsadd- an á starfi sínu, lífsgæðakapp- hlaupinu og amstri borgarlffsins. Hann ákveður að söðla um, sitja heima og rækta garðinn sinn ásamt eiginkonunni. Þýðandi Jóh- anna Þráinsdóttir. 21.05 Hellsað upp á fólk. Þörður í Haga. Fyrsti þátturinn i röð stuttra viðtalsþátta sem Sjónvarpið lætur gera, en f þeim er heilsað upp á konur og karla viðsvegar um land. I þessum þætti er staldra við í túnfæti hjá Þórði bónda Runólfs- syni i Haga í Skorradal, en um hann orti Þorsteinn skáld Valdi- marsson kvæði sem heitir einmitt Þórður i Haga. Á veturna er Hagi eina byggða bólið f innanverðum dalnum og Þórður oft einangraður vikum saman. Þótt hann sé að nálgast nirætt er Þórður sprækur eins og unglamb og lætur einver- una ekkert á sig fá. Umsjón: Ómar Ragnarsson. Myndataka: Ómar Magnússon. Hljóð Sverrir Kr. Bjarnarson. 21.35 Kagemusha. Japönsk verð- launamynd frá æ1980. Höf. og leikstjóri Akira Kurosawa. Aðal- hlutverk: Tatsuya Nakadai, Tsu- tomu Yamazaki og Kenichi Hagiw- ara. Myndin gerist í Japan á 16. öld en þá bjuggu Japanir við léns- skipulag herstjóra og innanlands- ófrið. Dæmdum þjófi er bjargað frá henginu svo að hann geti tekið að sér hlutverk deyjandi herstjóra sem hann líkist mjög. Þýðandi Jónas Hallgrímsson. Sunnudagur 11. nóvember 16.00 Sunnudagshugvekja. 16.10 Óperutónleikar í Vínar- borg. Tólf óperusöngvarar frá ýmsum löndum, sem hluískarpast- ir urðu í alþjóðlegri söngkeppni, flytja aríur úr þekktum óperum og taka við verðlaunum. Sínfóniu- hljómsveit austurríska útvarpsins leikur, Heinrich Bender stjórnar. Kynnir er Peter Rapp. Þýðandi Veturtiði Guðnason. (Evróvision - Austurríska sjónvarpið). 18.00 Stundin okkar. Umsjónar- menn eru Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Valdimar Leifsson. 18.50 Hlé. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Sjónvarp næstu viku. Um- sjónarmaður Magnús Bjarnfreðs- son. 20.55 Glugginn. Þáttur um listir, menningarmál og fleira. Umsjón- armaður Sveinbjörn I. Baldvins- son. 21.40 Marco Polo. Lokaþáttur. It- alskur framhaldsmyndaflokkur í fjórum þáttum. Þýðandi Þorsteinn Helgason. 00.10 Dagskráriok.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.