NT - 09.11.1984, Blaðsíða 25
ÍTTT Fóstudagur 9. nóvember 1984 25
LlL Útlönd
Suður-Afríka fagnar
endurkjöri Reagans
- en blökkumenn harma það
Jóhannesarborg-Reuter
■ MIG-21 þotur flugu í sinni fyrstu mynd árið 1956 og eru nú einhverjar vinsælustu orrrustuþotur í heiminum. Samkvæmt breska
varnarmálaritinu Jane‘s hafa nú meira en þrjátíu ríki heimsins MIG-þotur, þar á meðal Kúba. Nú hafa þessar vinsælu þotur valdið miklum
taugatitringi á milli Bandaríkjanna og Nicaragua. _ sí«p*.polfoto
Nicaragua:
Bandarískar þotur
rjúfa hljóðmúrinn
Sovéska flutningaskipið komið í höfn
Managua, Washington-Reuter.
■ Af skeyti sem P.W. Botha,
forseti Suður-Afríku, sendi
Reagan forseta á sigurdegi hans
mátti greinilega ráða að Suður-
Afríkustjórn er himinlifandi
Hollendingar:
Sam-
þykkja
launa-
lækkun
Hague-Reuter
■ Opinberir starfsmenn
í Hollandi hafa samþykkt
smávægilega launalækkun
gegn því að vinnuvikan
verði stytt úr 40 stundum
niður í 38 stundir.
Hollenska ríkið mun
spara um 1,9 milljarða
gyllina á ári (yfir 20 mill-
jarða ísl. kr.) í launa-
greiðslur til um 700.000
starfsmanna sinna vegna
þessara launalækkana.
Margir aðrir starfshópar í
Hollandi hafa samþykkt
svipaðar launalækkanir
samhliða styttingu vinnu-
vikunnar sem hefur lengi
verið baráttumál verka-
lýðshreyfingarinnar.
Markmiðið með þessum
samningum er m.a. að
skapa ný atvinnutækifæri
fyrir atvinnuleysingja í
Holiandi sem nú erU um
18% allra vinnufærra
manna. Hluti af vinnu-
tímastyttingunni verður
bættur með því að ráða
24.000 nýja starfsmenn
auk þess sem gert er ráð
fyrir nokkurri framleiðni-
aukningu.
með stóran kosningasigur Reag-
ans.
„Megi sterk forysta þín stuðla
að friði og framförum jafnt í
Suður-Afríku sem annars staðar
og verja rétt smárra þjóða til að
láta heyra í sér á heimsvett-
vangi. Megi forysta þín reka á
flótta alþjóðlegar sveitir hryðju-
verkamanna og greiða tilraun-
um marxista til að skapa ringul-
reið banahöggið. Megi sam-
skipti okkar fara stöðugt batn-
andi á grundvelli gagnkvæmrar
virðingar og trausts.“
Suður-Afríkustjórn býst við
því að breyta ekki stefnu sinni í
þessum heimshluta. Reagan tel-
ur að leita eigi lausnar mála í
S-Afríku með uppbyggilegum
samskiptum við Pretóríu, sem
leiði til tilslakana, andstætt
þeirri stefnu flestra þjóða að
eiga ekki samskipti við S-Af-
ríku.
Talsmenn svartra andstöðu-
hópa í Suður-Afríku hörmuðu
hins vegar endurkjör Reagans
og sögðu að það myndi þýða
enn meira harðræði fyrir svarta
meirihlutann í landinu. „Stefna
Bandaríkjanna leiðir til þess
eins að aðskilnaðarstefnan lifir
lengur,“ sagði einn blökku-
mannaleiðtogi.
■ Sálfræðistríðið milli Sandin-
istastjórnarinnar í Nicaragua og
Rcaganstjórnarinnar í Was-
hington stigmagnaðist enn í
gær. Þá heyrðust háværar drun-
ur í höfuðborginni Managua og
er talið nokkuð víst að þar hafi
verið á ferðinni bandarískar
herþotur sem rufu hljóðmúrinn.
Mikil skelfing greip um sig víða
í Managua, enda hefur fólki í
Nicaragua verið sagt að vera
viðbúið innrás Bandaríkja-
manna.
Pentagon, bandaríska varn-
armálaráðuneytið, neitaði í gær
ásökunum Sandinista um að
bandarískar flugvélar og skip
hefðu rofið loft- og landhelgi
Nicaragua. Það vísaði einnig á
bug þeim fréttum Nicaragua-
stjórnar að loftvarnabyssur
hefðu skotið á bandaríska flug-
vél um fimm mílur undan Cor-
intohöfn.
Þar liggur nú sovéskt flutn-
ingaskip, sem Bandaríkjamenn
telja hugsanlegt að hafi flutt
sovéskar orrustuþotur af gerð-
inni MIG til Nicaragua. Þessu
hafa Nicaraguamenn neitað og
segja þetta yfirskio Bandaríkja-
manna til að rækta jarðveginn
fyrir innrás í Nicaragua.
Bandarísk yfirvöld segjast
fylgjast grannt með sovéska
skipinu, en treystá sér ekki til
að fullyrða að um borð í því séu
MlG-þotur. Hins vegar hafa
þau gefið í skyn að ef Nicaragua-
eignist MIG-þotur muni Banda-
ríkin líta á það sem ögrun við
nágrannaríki.
Otti mun hafa gripið um sig
meðal hinna 30 þúsund íbúa
Corintohafnar, en þeir voru
fluttir á brott fyrir rúmu ári
síðan þegar skæruliðar, sem
studdir eru af Bandaríkjastjórn,
réðust á bæinn. Þá kviknaði í
eldsneytisgeymum og brunnu
milljónir lítra af eldsneyti.
■ Sikkar minnast fæðingardags Guru Nanaks, höfundar trúarbragða þeirra, í flóttamannabúðum í
Nýju Delhi sem settar voru upp til að forða þeim undan limlestingum í miklum óeirðum undanfarinna
daga. Símamynd-POLFOTO
Glímt um topp-
stöður í banda-
ríska þinginu
Helms formaður utanríkisnefndarinnar?
Sikkar minnast
frelsara síns
Ró færist yfir Indverja
■ Sikkar á Indlandi minntust í
gær fæðingardags Guru Nanaks
sem var upphafsmaður trúar
þeirra. Miklar öryggisráðstafan-
ir voru viðhafðar til að koma í
veg fyrir átök milli hindúa og
sikka þar sem margir hindúar
kenna sikkum um morðið á
Indiru Gandhi.
Lífið á Indlandi er smám
saman að færast í upprunalegt
horf eftir miklar óeirðir undan-
farinna daga þar sem að minnsta
kosti eitt þúsund manns létu
lífið. Flest fórnarlömb óeirð-
anna eru sikkar sem margir
neyddust til að flýja í sérstakar
flóttamannabúðir.
Mikill matvælaskortur varð
um tíma vegna óeirðanna og
verð á matvælum reis upp úr
öllu valdi. Að minnsta kosti
3000 farartæki voru eyðilögð
eða skemmd og 5000 vörubíl-
stjórar yfirgáfu bíla sína þegar
óeirðirnar stóðu sem hæst. Nú
er matvælaverð hins vegar farið
að lækka nokkuð aftur eftir að
ríkisstjórnin skipulagði mat-
vælaflutninga til borga þar sem
fæðuskortur var hvað mestur.
Indverjar segja að næg mat-
væli séu til í landinu, aðeins
þurfi að skipuleggja flutninga
með þau á milli svæða. Nokk-
urrar bjartsýni gætti í Indlandi
um að jafnvægi og friður myndi
haldast á næstunni í innanlands-
málum og svo virðist sem hinn
nýi leiðtogi landsins, Rajiv
Gandhi hafi áunnið sér nokkuð
traust.
■ Sikkar í Nýju Delhi hafa lifað við þröngan kost að undanfömu
þar sem þeim hefur verið þjappað saman matarlitlum í flóttamanna-
búðum þar sem heilbrígðisaðstaða hefúr veríð í lágmarki. Sikkamir
hafa samt reynt að halda sér hreinum eins og sést á þessari mynd
þar sem móðir er að þvo dóttur sinni. símamynd-POLFOTO
Washington-Reuter
■ Nú er það farið að skýrast
ögn hverjir muni gegna helstu
áhrifastöðum í bandaríska þing-
inu eftir kosningarnar á þriðju-
daginn. í kosningunum unnu
demókratar tvö sæti í Öldunga-
deildinni, en em í minnihluta
47-53. í fulltrúadeildinni unnu
repúblikanar tólf sæti, en eru
enn í miklum minnihluta.
Howard Baker, forseti Öld-
ungadeildarinnar og náinn sam-
starfsmaður Reagans bauð sig
ekki fram í þetta sinn og mun
hyggja sér til hreyfings í forseta-
kosningunum 1984. Líklegur,
eftirmaður hans er talinn Ric-
hard Lugar, þingmaður frá Indi-
ana.
Önnur valdamikil staða er á j
lausu, formannsembætti utan-
ríkismálanefndar þingsins. Við I
hana er orðaður Jesse Helms, |
sem háði baráttu upp á líf og
dauða fyrir þingsætinu í fylki
sínu Norður-Karólínu. Hann er
af mörgum talinn hægrisinn-
aðasti þingmaðurinn í Öldunga-!
deildinni. Að vísu hafði Helms
lofað kjósendum sínum að sitja
áfram sem formaður landbún-
aðarnefndar þingsins, en líklegt I
þykir þó að hann gangi á bak
þeim orðum sínum þegar feitari
staða er í boði. Charles Percy,
fyrrum formaður nefndarinnar,
tapaði sæti st'nu í Illinois.
Barry Goldwater, ákafur
íhaldsmaður og fallkandídat úr
forsetakosningum, er talinn
líklegastur til að verða formað-
ur þingnefndar sem fer með
málefni hersins. Hann myndi
þá láta af formennsku nefndar
sem fer með leyniþjónustumál.
Goldwater er 74 ára og hefur
sagst ætla að láta af þing-
mennsku árið 1986.
Kosningar
í Færeyjum
Þórshöfn-Reuter
■ Þingkosningar fóru
fram í Færeyjum í gær. 16
flokkar tóku þátt í kosn-
ingunum og á kjörskrá
voru um 29.000 manns.
Efnahagsdeilur settu
mikinn svip á kosninga-
baráttu enda skulda Fær-
eyingar um þrjá milljarða
danskra króna, sem er um
60% af þjóðartekjum
þeirra. Úrslit höfðu ekki
komið úr kosningunum
þegar NT fór í prentun í
nótt.