NT - 12.11.1984, Blaðsíða 2
Rán með
ofbeldi
■ í fyrrakvöld réðust þrír unglingar inn í
tvo söluturna nálægt miðbæ Reykjavíkur og
rændu þar vörum með beitingu ofbeldis
gagnvart starfsfólki. Ekki er talið að hér hafi
verið um vörur fyrir umtalsverðar upphæðir
að ræða. En að sögn lögreglu er hér engu að
síður um alvarlegt mál að ræða þegar bcitt
er aðferðum sem sífellt færist í vöxt að
notaðar séu upp á síðkastið.
Málið er í rannsókn en þegar síðast
fréttist voru bófarnir enn ófundnir.
BILVANGURsf
L I 1 ! i I .
HOFÐABAKKA-9 IB4 REYKJAVIK- SIMI 687300
M M
Mánudagur 12. nóvember 1984
Stefnumörkunin hefur
ekki verið nógu skýr
- róttækar breytingar á fræðslustarfi ef ég verð kos-
inn formaður Alþýðuflokksins segir Jón Baldvin
„Svo getur farið að Alþýðu-
flokkurinn haldi ekki velli í
pólitíkinni," sagði Jón Baldvin
Hannibalsson í gær er hann
tilkynnti fréttamönnum fram-
boð sitt til formannsembættis í
Alþýðuflokknum.
„Eg hef nú ekki trú á að svo
fari,“ sagði Kjartan Jóhanns-
son, formaður flokksins, að-
spurður um ummæli Jóns. „Það
hefur lengi verið lenska í blöð-
um að halda því fram að flokk-
urinn sé að hverfa, en það hefur
sýnt sig að hann eflist er á móti
blæs.“
Jón lagði fram, á fundi með
blaðamönnum, atriði sem hann
myndi leggja áherslu á ef hann
næði kjöri. Meðal þess sem þar
kemur fram er að flokkurinn
hasli sér völl sem sameiningar-
og forystuafl jafnaðarmanna,
skipi sér vinstra megin við mið-
línu íslenskra stjórnmála, vísi á
bug kenningum um forystuhlut-
verk Alþýðubandalagsins og
taki af öll tvímæli um að flokk-
urinn sé ekki gamaldags kerfis-
flokkur heldur róttækur um-
bótaflokkur.
„Ég geri engar athugasemdir
við þetta. Þetta er af sama toga
og ég hef haldið fram á liðnum
misserum,“ sagði Kjartan er
hann var spurður um þessi atr-
iði.
Aðspurður um hvort flokkur-
inn sé líklegri til að bæta upp
fylgistap, með sig í formanns-
sætinu, sagði Jón: „Það er nátt-
úrlega mat hvers og eins. Eg
færi ekki í þetta nema ég hefði
trú á því.“
„Vitaskuld er það svo að
menn leggja mismunandi mat á
menn og málefni. En það er
flokksþingsins að gera dæmið
upp. Jón Baldvin metur það svo
að framboð hans sé flokknum
til gagns en margir þeir sem við
mig hafa rætt telja það farsælla
að flokkurinn snúi sér að öðrum
meira aðkallandi verkefnum,"
sagði Kjartan.
Jón íagði á það áherslu á
fundinum í gær að stefnu-
mörkun Alþýðuflokksins hefði
ekki verið nægilega afdráttar-
laus og ekki komið nógu vel til
fólksins. Hann sagðist, ef kos-
inn yrði, beita sér fyrir rót-
■ Jón Baldvin Hannibalsson.
I formannskjöri Alþýðuflokks-
ins. NT mynd Róbert
tækum breytingum á útgáfu- og
fræðslustarfsemi. Hann tiltók
stofnun Útgáfumiðstöðvar, sem
hefði með útgáfu Alþýðublaðs-
ins að gera og smárita um af-
mörkuð viðfangsefni og jafnvel
videospóla.
Kjartan sagði þessa hugmynd
ekki nýja: „Ég kannast við
þetta.“ Kjartan sagði að mikinn
undirbúning þyrfti til slíks verk-
et'nis.
Þá eru þeir Jón og Kjartan
báðir sammála um að leita sam-
vinnu við Bandalag Jafnaðar-
manna og hafa opna möguleika á
sameiningu þessara tveggja
stjórnmálahreyfinga.
Þess má geta að lokum að
faðir Jóns, Hannibal Valdimars-
son var kosinn formaður Al-
þýðuflokksins fyrir 32 árum, en
féll í formannskjöri fyrir 30
árum, 1954.
Ráðist á
lögreglu
■ Ráðist varáóeinkenn-
isklæddan lögregluþjón
þar sem hann var á gangi
um miðbæ Reykjavíkur í
fyrrakvöld. Unglingar
voru að verki og voru þrír
settir í fangageymslur
vegna þessa.
Málavextir voru þeir að
tveir unglingar undu sér
að manninum og báðu
hann um tóbak. Þegar
hann svaraði því til að
hann ætti það ekki til,
réðust drengirnir á hann
og hugðust hafa hann
undir. En með snarræði
lögregluþjónsins og hjálp
manna sem bar að tókst
að yfirbuga unglingana og
var lögreglan fljótt komin
á staðinn. Þegar svo hún
var að eiga við piltana
kom að bifreið og út úr
henni sté ódrukkinn mað-
ur sem hugðist beita lög-
regluna ofbeldi til þess að
losa félaga sína úr prís-
undinni. Fljótlega tókst að
yfirbuga hann og voru allir
færðir í Síðumúlafangelsi.
i/egna mjög hagstæöra samninga
bjóöum viö nú nokkrar Opel
Ascona bifreiöir á lækkuöu veröi.
375.330-
Nauðgun við
Klúbbinn
■ Árás var gerð á unga stúlku utan við
veitingahúsið Klúbbinn í fyrrinótt og henni
nauðgað. Stúlkan bar kennsl á manninn og
samkvæmt þeim upplýsingum sem NT fékk
hjá RLR í gær stóðu þá yfir yfirheyrslur yfir
manninum inni í Síðumúlafangelsi. Hann
mun hafa haft í hótunum við stúlkuna,
lemstrað hana og stefnt lífi hennar í hættu
með tilraun til kyrkingar. Atburðurinn átti
sér stað í skúmaskoti utan við veitingastað-
inn. Málið er í rannsókn.
Brotist inn í kaupfélag:
...kemur
mér ekki
áóvart
- segir sýslumaðurinn
■ Brotist var inn í Kaupfélag Hér-
aðsbúa á Seyðisfirði um helgina og
og stolið einum eða tveim lítrum af
kók. Rúða í framhlið hússins var
brotin. Fjöldi innbrota hefur verið
framinn í húsið á undanfömum ámm
en aðeins eitt þeirra er upplýst. J>á
var um meiriháttar peningastuld að
ræða en innbrotið núna er talið
minniháttar. í september mánuði
var brotist inn og haft þaðan á brott
verulegt magn af hljómflutnings- og
útvarpstækjum. Mál það er óupp-
lýst.
„Þetta kemur mér ekkert á óvart,
þó ég hafi nú ekki frétt af þessu
ennþá," sagði Sigurður Helgason
sýslumaður í samtali við NT í gær
þegar hann var inntur eftir þessum
atburðum. „Kaupfélagið stendur
útúr byggð og er enginn vandi að
fara þarna inn og út. Við höfum gert
okkar tillögur um úrbætur með
þjófavarnakerfi en því hefur ekki
verið sinnt.“