NT - 12.11.1984, Blaðsíða 1

NT - 12.11.1984, Blaðsíða 1
„Ég er tilbúinn til að ganga til þessa leiks“ ■ Það er ekki jmálefna- legur ágreiningur sem er að baki átaka um for- mannsstöðuna í Alþýðu- flokknum - heldur virðist þar frekar tekist á um menn. NT ræddi í gær við þá Kjartan Jóhannsson og Jón Baldvin Hannibals- son, báða í framboði til embættisins, og-kom þá í ljós að þá greinir ekki á um einstaka málaflokka. Jón sagði að illa hefði gengið að koma sjónar- miðum flokks síns á fram- færi, og tók Kjartan undir það. M sagði Jón að innra starf flokksins hefði verið dauft í vetur, en nú væri að færast meira líf í það. Jóhanna Sigurðardóttir hefur boðið sig fram til varaformanns, og nýtur hún stuðnings bæði Kjart- ans og Jóns. Sjá nánar bls. 2. Niðurstöður skoðanakönnunar: Þrjú þingsæti yfir til Kvennalistans Haustrallið: NT-mynd: Gunnar öskarsson. Ömar og Eiríkur íslandsmeistarar ■ Bjarmi Sigurgarðarsson (t.h.) og Eiríkur Friðriksson (t.v.) unnu Haustrall Hjól- barðahallarinnar sem fram fór í gær. Voru þeir tæpri mínútu á undan Ómari og Jóni Ragnarssonum, í þriðja sæti voru aðrir bræður, Birg- ir og Hreinn Vagnssynir. Þetta var síðasta rall ársins og réðust úrslit í íslands- meistarakeppninni þannig að sigurvegari ökumanna varð Ömar Ragnarsson en aðstoðarökumanna Eiríkur Friðriksson. Halldór Úlfars- son er þá í öðru sæti þrátt fyrir fjarveru í þessu ralli-og þriðji er Birgir Bragason. Aðeins 8 bílar af 20 luku 250 km langri keppninni sem fram fór víðs vegar um Reykjanes. Engin meirihátt- ar óhöpp eða tafir spilltu ánægju ökumanna eða áhorfenda í blíðskaparveðri. A A Framsóknarflokkur- inn vinnur einmg á ■ Samkvæmt skoðanakönnun, sem NT hefur látið framkvæma, myndu Samtök um kvennalista og Framsóknarflokkurinn vinná mikið fylgi, ef efnt væri til kosninga nú. Alþýðuflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðubandaiagið myndu hins vegar tapa fylgi, sé miðað við úrslit síðustu alþingiskosninga, en staða Bandalags Jlafnaðarmanna væri svo til óbreytt. Heildarniðurstöður könnun- Skoðanakönnun sem þessi er arinnar eru sem hér segir, en langt frá því að vera gallalaus, nánari tölur verða gefnar upp í NT á morgun: Alþýðuflokkur 6,2%, Fram- sóknarflokkur 16,3%, Banda- lag Jafnaðarmanna 4,8%, Sjálf- stæðisflokkur 26,2%, Alþýðu- bandalag 9%, Samtök um kvennalista 6,5%, Flokkur mannsins 0,2%, óákveðnir 24% og 6,8% neituðu að svara. Sé aðeins miðað við þá, sem tóku afstöðu, lítur dæmið þann- ig út (í sviga eru úrslit alþingis- kosninganna í fyrra): Alþýðuflokkur 8,9% (11,7) Framsóknarflokkur 23,6% (19) BandalagJafnaðarmanna7% (7,3) Sjálfstæðisflokkur37,8% (39,2) Alþýðubandalag 13% (17,3) Samt. um kvennal. 9,4% (5,5) Sé miðað við að skipting þing- sæta yrði í réttu hlutfalli við atkvæðamagn, myndu Samtök um kvennalista bæta við sig 3 þingsætum við þau þrjú, sem þau hafa nú þegar. Þessi þing- sæti kæmu frá Alþýðuflokknum og tvö frá Alþýðubandalaginu. Aðrir flökkar hefðu óbreyttan þingstyrk. Samkvæmt könnuninni virð- ist sem Samtök um kvennalista taki aðallega fylgi frá Alþýðu- flokknum og Alþýðubandalag- inu, en Framsókn frá bæði vinstri og hægri. Við þessa skoðanakönnun var farið nákvæmlega eftir þeim aðferðum, sem DV hefur notað við sínar kannanir. Úrtakið var 600 manns .valið algjörlega til- viljunarkennt út úr símaskránni en þó þannig að 300 koma úr þéttbýli og 300 úr dreifbýli. í hvorum hópnum var skiptingin jöfn milli kynja. Þcssi aðferð er sú sama og DV hefur gefið upp varðandi sínar kannanir. en það þótti rétt að hanna hana eftir DV til að geta borið niður- stöður saman. Enda þótt DV kannanirnar og þar af leiðandi þessi einnig, séu ekki gallalaus- ar, gefa þær þó góða mynd af þeim hreyfingum, sem eiga sér stað í þjóðfélaginu á hverjum tíma og verða því að teljast mikilvægur þáttur í upplýsinga- streyminu. í NT á morgun verður fjallað nánar um könnunina og niður- stöður hennar. Þar mun t.d. koma fram, að 87% af fylgi kvennalistans kemur frá konum og að fylgistap Sjálfstæðis- flokksins er eingöngu á höfuð- borgarsvæðinu, svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánar leiðara og NT á morgun. Neskaupstaður: Þrjár slasast - ökumaður grunaður um ölvun. Slapp í belti ■ Þrjárkonur voruflutt- ar á sjúkrahúsið f Nes- kaupstað í fyrrinótt eftir bílveltu á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. öku- maður er grunaður um ölvun. Hún var með bíl- belti og fékk að fara heim eftir minniháttar aðgerð en farþegarnir báðir liggja ■ á sjúkrahúsinu með alvar- leg bakmeiðsii. Að sögn lögreglu er ekki talið að ástand vegarins, sem er olíuborinn, hafi verið slæmt, en lítilsháttar hrím var. Bifreiðin, sem er fólks- bifreið af gerðinni Dai- hatsu Charade, er talin ónýt. Skákí Eyjum -Helgiog Ásgeir unnu ■ 26. helgarskákmóti tíma- ritsins Skák lauk í gær í Vest- mannaeyjum. Sigurvegarar voru þeir Helgi Ólafsson og Ásgeir Þór Árnason, sem deildu 1. sæti, báðir með 6 vinninga. í 3. til 6. sæti voru þeir Jón L. Árnason, Guðmundur Sigur- jónsson, Guðmundur Halldórs- son og JóaHálfdánarson, hver um sig með 5V4 vinning. Alls voru keppendur 44 og tefldar voru 7 umferðir. Þetta var í annað sinn sem helgarskákmót er haldið í Vest- mannaeyjum, og er það fyrsti staðurinn þar sem mótið er endurtekið á. Fyrst var helgar- skákmót í Eyjum 1980. Skákstjóri var Jóhann Þórir Jónsson, en Taflfélag Vest- mannaeyja sá um framkvæmd mótsins í samvinnu við Jóhann. Rán, árás og nauðgun - flóðgátt- ir opnast ■ „Mð er eins og flóðgáttir hafi opnast eftir verkfallið“, sagði lögregluvarðstjóri í Reykjavík í samtali við NT í gær en óvenjumik- ill drykkjuskapur hefur verið síðastliðnar helgar. Mnnig var helg- in núna með versta móti og yar meðal annarra afbrota sem minni eru, framin ein nauðgun, árás á gangandi vegfar- anda og tvö rán með beitingu ofbeldis. Annasamt var hjá lög- reglu og hafði lögreglan afskipti af fjölda ölvaðs fólks. Fangageymslur. voru fullar ínótt. Sjá nánar fréttir á bls. 2.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.