NT - 12.11.1984, Blaðsíða 22
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Valsmenn betri er
á æfinguna leið
■ KR-ingarunnuÍRíúrvals-
deildinni í körfuknattleik í
gærkveldi með 73 stigum gegn
71. Leikurinn sem fór fram í
Hagaskóla á heimavelli KR
var „köflóttur1- að gæðum og
stundum mikið um mistök.
KR-ingar byrjuðu betur en
ÍR jafnaði leikinn á 8. mínútu
mest fyrir tilstilli Ragnars
Torfasonar sem skoraði 8
fyrstu stig liðs síns og var
duglegur í fráköstum.
Liðin skiptust svo á að hafa
forystuna í fyrri hálfleik og
munaði mest 4 stigum til eða
frá.
í seinni hálfleik byrjuðu {R-
ingar af miklum krafti og tóku
forystuna, 47-37 þegar 4 mín.
voru liðnar.
En þá hljóp allt í baklás hjá
liðinu og KR-ingar léku við
hvern sinn fingur, söxuðu for-
skotið í smátt á mettíma og
skoruðu 21 stig á móti aðeins 1
stigi ÍR-inga, staðan orðin 58-
48 fyrir KR.
Á þessum kafla gátu ÍR-ing-
ar ekki neitt, sérstaklega var
sóknin ráðvillt. Á meðan spil-
uðu KR-ingar hinsvegar af
skynsemi, tóku sinn tíma í
sóknina og fengu góð skot fyrir
bragðið.
En leikurinn jafnaðist aftur
og ÍR komst yfir, 69-67, eftir
vasklega framgöngu Hreins.
KR-ingar jöfnuðu og komust
yfir, ÍR jafnaði aftur 71-71 en
Guðni Guðnason besti maður
KR skoraði síðustu körfu
leiksins, 73-71.
ÍR-ingar reyndu svo að stela
boltanum á síðustu mínútunni
en árangurslaust, því KR
strákarnir héldu honum af
skynsemi.
Guðni Guðnason var bestur
KR-inga í þessum leik, skoraði
18 stig og er öryggi hans í
skotum aðdáunarvert.
Birgir Mikaelsson gerði
einnig 18, og Þorsteinn skoraði
14 stig.
Hjá ÍR var Ragnar Torfason
bestur og einnig stigahæstur
með 26 stig og fjölda frákasta.
Gylfi kom næstur með 14 og
Hreinn 8.
Dómararnir þeir Jóhann
Dagur og Bergur voru lélegir.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
KR hékk á boltanum
- og hélt sigri gegn ÍR eftir að skora 73-71 mínútu fyrir leikslok
Mánudagur 12. nóvember 1984 22
Kristinn Albertsson og Jó-
hannes Magnússon 4 hver.
Árni Guðmundsson er yfir-
burðamaður í liði Stúdenta,
skoraði 20 stig. Guðmundur
Jóhannsson skoraði 18 stig,
aðrir slakir og skoruðu sem
hér segir: Valdimar Guðlaugs-
son 12, Ragnar Bjartmars 12,
Jón lndriðason 5, Ágúst 4,
Þórir Þórisson 2, Karl 2 og
Sveinn 1.
Greinilegt var að fjarvera
Björns Leóssonar vegna slits
hans á liðböndum, sem vara
mun fram yfir áramót að lík-
indum, veikir lið Stúdenta.
Það breytir samt engu um að
þegar Kristinn Jörundsson
yfirgaf liðið féll allur grund-
völlur undan úrvalsdeildarveru
þess.
Jón Otti Ólafsson og Sigurð-
ur Valur Halldórsson dæmdu
vel.
■ Fótboltí? - Nei myndin var tekin í leik ÍS og Vals í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld.
Leikurinn var ekki alltaf burðugur eins og sjá má, en Valsmenn sýndu þó fallega kafla í lokin.
NT-mynd Róbert
Knattspyrnu- -
úrslit:
Ítalía:
Urslit í 1. deild:
Cremonese-Verona
Fiorentina-Ascoli
Intor-Juventus
Napoli-Avellino
Roma-Lazio
Sampdoria-Como
Torino-Milano . ......
Udinese-Atalanta
Staða efstu liða:
Verona 8 6 2 0
Torino
Sampdoria
Inter Milanó
Milanó
Fiorentina
Avellino
Belgía
Uralit:
Gent-Beveren
St. Niklaas-Lokeren
FC Brugge-Anderlecht
FC Liege-Mechelen
Beerschot-Waregem
Kortrijk-Lierse
Seraing-CS Brugge ...
Racing Jet-Ántwerpen
Staða efstu liða:
Anderlecht 13 9 0 4 43-12 22
2-1
0-0
0-0
7-0
1- 3
M,
3-0
2- 2
13 8 3 2 26-16 18
13 6 1 6 28-12 18
13 6 3 4 19-18 16
13 6 4 3 31-20 15
13 6 4 3 20-22 15
Waregem
FC Liege
FC Brugge
Gantoise
Lokeron
Holland:
Úrslit í 1. deild:
MVU-Sparta
Zwolle-Ajax
PSV-F. Sittard
Feyenoord-Groningen
NAC-Utrecht
Twente-Excelsior
Volendam-Don Bosch
Roda-Ga Eagles
Haarlem-AZ '67
Staða efstu liða:
Ajax
PSV
Feyenoord
Groningen
Volendam
Den Bosch
11 9 2 0 33-13 20
12 7 6 0 33-11 19
11 7 2 2 32-16 16
12 5 4 3 25-17 14
12 5 4 3 17-19 14
11 4 5 2 14- 7 13
■ Kristján Rafnsson hefur betur í baráttu við ÍR-ing. Sömu sögu má segja um lið Kristjáns KR,
í leiknum gegn IR.
Blak:
HK komið á
beina braut
- sigraði ÍS 3-2 í hörkuleik - Breiðablik
vann ÍS eftir að hafa tapað hrinu 15-0
í kvennaf lokki -
■ HK náði mikilvægum sigri
á einum aðalkeppinauta sinna
í 1. deildinni í blaki í gær, er
liðið vann ÍS í hörkuleik í
íþróttahúsi Hagaskóla 3-2.
Leikurinn var 92. mínútna
langur, og miklar sviptingar.
Þróttur vann Víking 3-1 í 1.
deild karla á laugardag. f
kvennablakinu vann Breiða-
blik ÍS í miklum sveifluleik 3-2
eftir að hafa tapað fyrstu hrin-
unni 0-15! Þá vann Víkingur
sinn fyrsta sigur í 1. deild
kvenna, vann Þrótt 3-1, og ÍS
vann Þrótt 3-0 í gær.
HK náði sigri í fyrstu hrinu
gegn ÍS 15-12 eftir að hafa
verið undir 1-8. ÍS sneri taflinu
við í annarri hrinu, vann 15-13
eftir að hafa verið undir allan
tímann, og síðan þriðju hrin-
una örugglega 15-6. Þá tók HK
við sér á ný, vann fjórðu hrinu
15-9 og staðan 2-2. í fjórðu
hrinu náði HK að stilla hávörn
sína, og fimmta hrina varð enn
betri hávarnarhrina hjá liðinu,
15-8. Þorvarður Sigfússon var
sterkastur Stúdenta í leiknum,
en liðið leið nokkuð fyrir meiðsli
Indriða Arnórssonar sem ekki
lék með, og fjarveru Stefáns,
að sögn Friðberts Traustason-
ar þjálfara eftir leikinn. Leikur
HK var sveiflukenndur, en góð
hávarnartilþrif Hreins Þorkels-
sonar og Ástvaldar Arthúrs-
sonar glöddu augað í lokin,
svo og þrumuskellir Ástvaldar.
Þróttarar voru mun sterkari
á svellinu en Víkingar. Þrátt
fyrir það var Þróttarliðið enn
halt vegna mikilla meiðsla
fastamanna, en þrátt fyrir
nokkurn kraft virðist sálfræðin
vera í molum hjá Víkingi.
Enginn skar sig úr hjá hvorugu
liði. Úrslit í hrinum voru 15-4,
15-10, 12-15 og 15-8.
Það voru miklar sviptingar í
leik Breiðabliks og IS í
kvennadeildinni. ÍS gekk allt í
haginn í fyrstu hrinu, og vann
hana 15-0. Breiðablik náði sér
á strik í annarri hrinu og vann
15-12, og þriðju hrinu 15-8. Þá
fór ÍS-vélin aftur í gang og
vann 15-3, en gekk ekki lengur
því Breiðablik vann síðustu
hrinuna 15-4. Greinilegt er að
þessi lið munu tvö berjast um
meistaratitilinn, því Þróttur
nær sér enn ekki á strik. Og
Breiðablik vann fyrsta slag,
þrír eru eftir.
Leikur Víkings og Þróttar í
kvennadeildinni var mikið
taugastríð, einkum Þróttar-
megin, því leikurinn átti sam-
kvæmt líkindafræðinni að vera
þeim unninn. Svo varð ekki,
með sterkar uppgjafir að aðal-
vopni vann Víkingur 15-10,
10-5, 15-7 og 15-9. Til ham-
ingju með fyrsta sigurinn Vík-
ingar.
IS var áberandi sterkara
gegn Þrótti í gær. ÍS hafði
yfirburði á öllum sviðum, fyrir
ofanogneðan net og baráttan
var líka þeirra. Úrslit 15-11,
15-5 og 15-7.
Stórsigur ÍBK
■ Keflvíkingar rót-
burstuðu Laugdæli í 1.
deildinni í körfuknattleik
í gærdag. Leikurinn fór
fram í Keflavík og endaði
með 112 stigum gegn 45
ÍBK í hag. Staðan í hálf-
leik var Æ-19.
Guðjón Skúlason skor-
aði 35 stig og Jón Kr. 26
fyrir IBK en Sigurður
Kristinsson 8, var hæstur
Laugdæla.
■ Það var ekki örgrannt um
að menn grunaði hvemig
leikur Vals og Stúdenta mundi
fara, er liðin mættust í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsi Seljaskóla í
gærkvöld. Og úrslitin urðu eft-
ir bókinni, og útkoman Iðdega
ansi góð æfing fyrir Val, enda
var liðið farið að sýna fallega
og snilldarlega takta undir
lokin. Punkturinn yfír i-ið var
svo þriggja stiga karfa Jóns
Steingrímssonar þremur sek-
á Þórvannbáða
I ■ Þór vann báða leiki
I sína gegn Reyni frá Sand-
I gerði í 1. deild karla íj
I körfuknattleik á Akur-,
I eyri um helgina. Úrslit á
I föstudag voru 94-82, og á
I laugardag 98-90.
úndum fyrir leikslok, og stíga-
taflan sýndi 109-75.
Stúdentar komust einu sinni,
yfir í leiknum, 6-4. Síðan dró
sundur. Staðan var 42-35 í
hálfleik, einungis 7 stig, en
bilið breikkaði í síðari hálfleik
þegar Valsemnn fóru að vera
öruggari og vel sniðin hraða-
upphlaup og leikfléttur gengu:
upp. Góður kafli í upphafi
háifleiksins skilaði tölunni 65-
41, síðan má nefna 71-52, 81-
57, 92-63, 101-70 og lokatöl-
una, 109-75.
Jón Steingrímsson var besti
maður leiksins. Hann skoraði
alls 30 stig fyrir Val og varðist
vel. Tómas Holton var og
góður, skoraði 17 stigoghvíldi
talsvert. Aðrirstigamenn Vals:
Leifur Gústafsson 13, Torfi
Magnússon 12, Kristján Ágústs-
'son 11, Páll Arnar 10, Björn
jZoéga, Magnús Ásmundsson,