NT - 30.11.1984, Blaðsíða 2
Föstudagur 30. nóvember 1984 2
Þrjár nýjar
flugstöðvar
á 3 mánuðum
■ Nýjar flugstöðvar hafa litið
dagsins Ijós á nokkrum stöðum
á landinu. Flugstöðin á Þingeyri
var tekin í notkun við hátíðlega
athöfn í fyrradag eins og greint
var frá í NT í gær og um miðjan
desember verður sams konar
flugstöð vígð á Patreksfirði.
Stykkishólmsflugstöðin fylgir
svo fast á eftir og er áætlað að
hún verði tekin í notkun í janúar
á næsta ári.
Flugstöðvar þessar eru hann-
aðar sem einingasmíði og
smíðaðar á verkstæði Flugmála-
stjórnar í Reykjavík. Arkitekt
er Benjamín Magnússon en
driffjöðrin og hugntyndasmið-
urinn á bak við þessar eininga-
stöðvar er Pétur Einarsson flug-
málastjóri.
Að sögn Péturs verður á
næsta ári ráðist í að setja upp
flugstöðvarbyggingar á Vopna-
firði, Neskaupstað, Blönduósi
og Sauðárkróki, en eins og þeir
vita, sem til þekkja, er öll
aðstaða fyrir farþega á þessum
stöðum mjög bágborin og því
brýnt að mæta þeirri þörf sem
skapast nteð vaxandi flugi til
þessara staða.
Frá slysstað í Hamrahlíð í gærkvöldi.
NT-mynd Sverrir
Fullorðin kona fyrir bíl í Hamrahlíð:
Liggur þungt hald-
in á gjörgæsludeild
■ Fullorðin kona liggur þungt
haldin á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans, eftir að hún varð fyrir
bifreið í Hamrahlíð á móts við
Stigahlíð, laust eftir níu í gær-
kvöldi.
Ekki tókst að afla frekari
upplýsinga um tildrög slyssins
áður en blaðið fór í prentun, en
að sögn vakthafandi læknis á
gjörgæsludeild var líðan kon-
unnar eftir atvikum undir mið-
nætti.
Mikil hálka er nú á götum
höfuðborgarinnar og má telja
víst að þar sé hluta skýringar-
innar að leita. Bifreiðin sem
konan varð fyrrir er af Trabant-
gerð.
Alþingi í gærkvöldi:
Álsamningurinn
varð að lögum
■ Alþingi íslendinga staðfesti
í gærkvöldi nýgerðan samning
milli ríkisstjórnarinnar og Alu-
suisse unt raforkuverð til ál-
bræðslunnar í Straumsvík og
fleira. 23 þingmenn greiddu
samningnum atkvæði, en 12.
voru á inóti. Einn þingmaður
sat hjá við atkvæðagreiðsluna
og fjórir voru fjarverandi.
Þingmenn stjórnarflokkanna
sögðu allir já, nema Magdalega
Sigurðardóttir, varaþingmaður
Framsóknarflokksins. Hún
gerði grein fyrir atkvæði sínu og
sagðist ekki hafa haft nægilegan
tíma til að kynna sér samninginn
til þess að geta tekið efnislega
afstöðu til hans.
Áður en til atkvæðagreiðsl-
unnar kom, fóru fram útvarps-
umræður um álmálið og kom
þar fátt á óvart.
Seðlabankinn:
Gefur 440
milljónir
■ Seðlabankinn hefurákveðið
að endurgreiða 440 milljónir
króna af endurseldum útflutn-
ingslánum og fá lántakendur
greitt í hlutfalii við vaxtagreiðsl-
ur á síðari hluta ársins. Lán
þessi eru tengd gengi sérstakra
dráttarréttinda og er gengisfell-
ingin á dögunum
ástæða endurgreiðslunnar, svo
lán þessi verði ekki óhagstæðari
innlendum afurðalánum.
TF-SIF:
Megas-inn-
lendur orkugjafi
■ Fyrirnokkrumdögumbirt-
ist í erlendum fréttum NT
grein undir fyrirsögninni
„Sparðaorka", þar sem sagði
frá nýsjálenskum vísinda-
manni sem hafði reiknað út að
metangas í kindaspörðum sem
ein kind gefur af sér daglega
nægi til að aka vörubifreið 40
kílómetra.
Það er að leita langt yfir
skammt að fara til Nýja-Sjá-
lands eftir þessum hugmynd-
um, að því er Dropar hafa
sannfrétt. í innanhúss frétta-
blaði Orkustofnunar frá því í
mars árið 1981 er nefnilega
stutt grein frá hópi vísinda-
manna sem nefnist „Samstarfs-
hópur um birtu og yl“. Þar
segir m.a.:
„( hinni miklu orkumála-
umræðu undanfarandi mánaða
hefur megasi alltof lítill gaum-
ur verið gefinn. Megasi má
skipta í tvennt, náttúrulegt
megas og iðnaðarmegas. Nátt-
úrulegt megas er mun orkurík-
ara en það síðarnefnda en
mjög erfitt er að beisla það.
Það myndast þegar sauðfé
leysir vind (prumpar). Getur
það gerst bæði í húsi og á
víðavangi. Iðnaðarmegas er
unnið úr sauðataði og rýrir það
síst áburðargildi taðsins þótt
gasið sé numið brott. Það er
því að leita langt yfir skammt
að gera sér gyllivonir um mó-
gröft og surtarbrand þegar
óbeisluð orkan streymir undan
dindlunum dag og nótt. Við
erum sannfærð um, að í fram-
tíðinni verður það MEGAS
sem beitir birtu og yl inn á
hvert heimili í landinu."
Hvað er svo verið að tala um
að íslendingar séu eftirbátar
annarra þjóða í grunnrann-
sóknum á sviði vísinda og auð-
lindanýtingar.
NT rekur
herinn
■ Herstöðvaandstæðingar
héldu nú á dögunum Lands-
ráðstefnu þar sem margt bar á
góma. Um kvöldið var svo
mikil gleði á vegum sömu sam-
taka þar sem menn lyftu glasi,
tóku lagið og gerðu sér ýmis-
legt til gamans.
Athygli vakti á þessarri
ágætu samkomu að félagar í
blaðamannafélaginu voru fjór-
ir og allir af sama blaðinu.
Ekki þó af Þjóðviljanum eins
og sumir kynnu að halda. Nei,
hér voru mættir nýbakaðir
blaðamenn hins nýja blaðs,
NT. Á æðstu stöðum velta
menn nú fyrir sér hvað sé á
ferðinni. Hvort framsóknar-
menn ætla sér það sæti sem
trotskýistar og maóistar hafa
deilt með sér undanfarin ár,
nú eða þá að liðsmenn þeirra
síðarnefndu hafi tekið völdin
á því blaði þar sem Framsókn
réði áður.
En von bráðar skýrast línur
því tveimur úr blaðamannafé-
laginu hlotnaðist það hnoss að
komast í miðnefnd. Og auðvit-
að eru þeir af NT.
Þumalputtaregla
fyrir bíla-
eigendur
■ Þennan rakst Dropateljari
á í Ólsaranum, blaði þeirra
Ólafsvíkinga, en þar í sveit
virðast bílstjórar eiga í ein-
hverjum erfiðleikum með að
koma bílum sínum klakklaust
í bílskúr. Ólsarinn kann ráð
við þessu en það er eftirfar-
andi:
„Ef þú hefur orðið fyrir því,
að aka helst til langt inn í
bílskúrinn og reka framstuðar-
ann í vegginn, þá er til gott ráð
við því. Festu gúmmíbolta í
bandi upp í loft í bílskúrnum á
þeim stað, að þegar þú ert
kominn hæfilega langt inn slá-
ist hann í framrúðuna."
Einfaldara getur það ekki
verið, eða þannig, og er þessu
ráði Ólafsvíkinga komið á
framfæri við landslýð, hér
með!
Einn tankur
en þrjú ffélög
■ Ólafur Björnsson, alþýðu-
flokksútgerðamaður í Kefla-
vík var einn þeirra sem kom í
pontu LÍÚ þegar olíufélögin
voru tekin á beinið. Hann
ræddi þar hagkvæmni olíu-
verslunarinnar eins og hún er
núna, og sagði meðal annars:
Á Raufarhöfn er bara einn
tankur og einn afgreiðslumað-
ur og svo þegar hann hefur
afgreitt olíuna þá spyr hann
bara, hjá hverjum skiptir þú
og dregur síðan upp nótubók
þess félags. Og hvers vegna er
þetta ekki víðar svo í þessum
litlu plássum í staðinn fyrir að
vera kannski með þrjá tanka
og þrjá afgreiðslumenn á ein-
um stað.
Annars minnir mig að Vil-
hjálmur (hjá Esso) hafi sagt að
þetta borgaði sig illa á Raufar-
höfn, - ég skil þetta ekki!
Þannig mæltist þeim aldna
heiðursmanni Ólafi Björnssyni
útgerðarmanni. En olíufélögin
voru ekki af baki dottin. Ind-
riði Pálsson frá Shell sagði það
rangt að þrjár nótubækur væru
Fyrsta
sjúkra-
flugið
■ í fyrrakvöld fékk hin
nýja þyrla landhelgisgæsl-
unnar, TF-SIF, að spreyta
sig í sjúkraflugi í fyrsta
sinn. Þyrlan var send eftir
hjartasjúklingi að Felli í
Árneshreppi á Ströndum,
og lagði hún af stað um kl.
21.30 frá Reykjavík.
Þyrlan var komin aftur
til Reykjavíkur um kl. 1 í
nótt og hafði hún þá haft
stutta viðkomu á Akranesi
vegna éljagangs.
Flugstjóri á þyrlunni var
Páll Halldórsson, flug-
maður var Benóný Ás-
grímsson og stýrimaður
Sigurður Steinar.
á Raufarhöfn . Hún væri líka
sameiginleg og auk þess væru
alls ekki alls staðar þrír tankar
í öðrum smáplássum í landinu.
Sumsstaðar væru þeir bara
tveir!
Glænýr hér
en gamall þar
■ Eins og sagt var frá í NT
nú fyrir skemmstu þá voru
fjörugar umræður um olíu-
verslunina á íslandi á LÍÚ
þingi. Þar kom meðal annars
upp í pontu Hjálmar Gunnars-
son frá Þorlákshöfn. „Hér
borgum við fyrir einn líter af
olíu eitt kíló af fiski eða þá
þrjú kíló af síld. En í Englandi,
þar fékk ég 7 lítra af olíu fyrir
1 kíló af hálfsmánaðargömlum
fiski, meðan hérþarfglænýjan
fisk fyrir miklu minna magn."
Undir dúndrandi hlátra-
sköllum lauk Hjálmar svo
ræðu sinni á því að skammast
út í olíufélögin fyrir að útgerð-
in þurfi „að borga sama verð
fyrir olíuna og þeir sem eru að
leika sér á skellinöðrum eða
jarðýtum í torfærum uppi um
fjöll."
Hagstæður í
verkfallinu
■ Volkswagen-bifreiðin er talin gerónýt eftir bílvcltuna á Reykjavíkur-
vegi í gærkvöldi. Meöal þeirra sem á horfa eru nokkur ungmennanna
sem VOru með í bílnum. NT-mynd: Sverrir
Bílvelta í Hafnarfirði:
Engin slys á fólki
■ Verkfallið í október hefur
haft mikil áhrif á út- og innflutn-
ing landsmanna, samkvæmt
skýrslum Hagstofunnar. Inn-
flutningurinn í mánuðinum nam
aðeins rúmum 500 milljónum
króna, eða einungis um 22% af
því sem flutt var inn í næsta
mánuði á undan. Með útflutn-
inginn hefur mönnum tekist
heldur betur, en hann nam 683
milljónum króna, sent er um
þriðjungur útflutningsins í sept-
ember. Vöruskiptajöfnuðurinn
varð því jákvæður um 183 millj-
ónir í októbermánuði.
■ Fjögur ungmenni sluppu
með skrekkinn á tíunda tíman-
unt í gær er Volkswagen Golf
bifrcið rann til í hálku og valt á
hliðina fyrir framan Reykjavík-
urveg nr. 74 í Hafnarfírði.
Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði er bifreiðin gjörónýt en
orsakir slyssins niunu vera of
hraður akstur miðað við erfiðar
aðstæður. Mikil hálka er á veg-
um á höfuðborgarsvæðinu og
ættu því ökumenn að gæta að
sér og haga akstri eftir því.
Lánamál námsmanna:
Menntamála-
ráðuneytið ætlar
að standa við
skuldbindingar
sínar
■ „Það er ekkert vafamál
að menntamálaráðuneytið
kcmur til með að beita sér
fyrir því að fjárveiting til
Lánasjóðs íslcnskra náms-
manna verði aukin. Það er
heldur enginn vafi á því að
það vcröur staðið við skuld-
bindingar gagnvart 1. árs-
ncnium'' sagði Inga Jóna
Þórðardóttir, í menntamála-
ráðuneytinu, við blm. NT í
kjölfar fréttar sem birtist í
blaöinu á laugardag um Ijár-
veitingar til LIN.
„Það cr alröng túlkun
Jónasar Guömundssonar, í
þessari frétt á laugardaginn,
að sjóðurinn muni ekki upp-
fylla skyldur sínar gagnvart
fyrsta árs nemum, enda mun
menntamálaráöuncytið
berjast fyrir því að sjóðurinn
fái það fjármagn sem honum
ber lögum samkvæmt,"
bætti hún við.
Inga Jóna gat þess að sú
fjárveiting scm gert er ráð
fyrir á fjárl. sé ekki í fullu
samræmi viö lögin um LÍN
en hins vcgar séu fjárlögin
ekki frágcngin í meðförum
þingsins. Auk þess er beöið
eftir tölum frá LÍN um fjölg-
un nema o.fl. svo ekki cr
vitað enn hvort þær forsend-
ur sem settar voru fyrir þcss-
ari fjárveitingu standast cða
ckki.
Vöruskiptajöfnuðurinn