NT - 30.11.1984, Blaðsíða 10

NT - 30.11.1984, Blaðsíða 10
„Aerobics“-leikfimi - íþrótt fyrir alla ■ Aerobics-leikfimin hefur farið sigurför um heiminn, og segja talsmenn hennar að „þær æfingar séu eitt mest alhliða form líkamlegrar þjálfunar". í Sovétríkjunum er þetta æf- ingakerfi þekkt sem hljóðfalls- íþróttir, og á sér þar langa sögu, að sögn blaðamanns hjá APN. Þar segir að þegar á þriðja áratugnum hafi Stúdíó hinnar frægu Isadóru Duncan sýnt rytmíska dansa. íþróttafrömuðir þar í landi hæla mjög aerobics-æfingum, og segja að diskóhljóðfallið sé í samræmi við hjartsláttinn meðan á æfingu stendur, eða 120-130 slög á mínútu. Þessi hraði slagæðarinnar er góður fyrir fólk, sem er að gera líkamsæfingar, þá þreytist það síður. En þeir í Sovét eru ekki eins hrifnir af diskó-lögunum og af hljóðfallinu, og segja að fim- leikahópar eigi að reyna að finna þjóðleg lög sem falli að aerobic-æfingunum. Þeir segj- ast skipta æfingatímanum í þrjá hluta: Upphitun, æfingar, og hvíldaræfingar. Barnaleik- fimi á auðvitað að bera svip- mót af leikjum, og æfingar fyrir eldra fólk verða að vera undir ströngu eftirliti. Síðan koma yfirlýsingar eldra fólks, sem telja sig hafa haft gott af aerobic-æfingum. Ivan Kljuev, 83ja ára, segir að blóðþrýstingur sinn hafi orðið eðlilegur þegar hann fór að stunda leikfimina og 67 ára húsmóðir segir að æfingarnar hafi orðið sér æskugjafi og hún hafi eignast marga vini í leikfiminni. ^IMEI^IMIMIMMMIMIMIMMIMIEIMIMIMEMI^ISW Hún er ríkasta gjafvaxta stúlka heims og hennar heitasta ósk er að eignast barn! ■ Hún er sögð ríkasta stúlka heims. Og enginn getur neitað því að hún er falleg líka! Nabila heitir hún, en það merkir „hin eðla“. Og faðir hennar umgengst hana einmitt eins og fágaðan eðalstein. Fað- ir hennar er enginn annar en saudi-arabíski milljarðamær- ingurinn Adnan Kashoggi, sem ekki veit aura sinna tal og munar ekki um að leysa út konur sínar við skilnað með óhemju fjárhæðum, það sér ekki högg á vatni. En Nabila, sem er 22ja ára að aldri, er ekki bara rík, hún er líka vel menntuð í dýrunt skólum í Englandi og Sviss. Æskudraumur Nabila var að ráða yfir ríki, sem teygði sig um allan heim, og sá draumur hefur nú ræst, að vísu með dyggri og kærleiksríkri hjálp pabba. Hún er nú titluð sem forstjóri alþjóðafyrirtækis í eigu hans. Demanta, safíra, rúbína og sntaragða á hún í stórum haugum. Fötin sín kaupir hún í dýrustu tískuhús- um Parísar, Rómar, Flórens og New York. Tómstundum eyðir hún við sundlaugina við villuna sína í Cannes. En heinta fyrir, í Saudi-Ar- abíu. virðist hún setja upp aðra mynd. Þar lýsir hún því hógværlega yfir, að sín heitasta ósk sé að eignast barn! Og það gerir hún sem kunnugt er varla upp á eigin spýtur! ■ Fimleikaflokkur kvenna, seni Irina stjórnar, „Heilsuræktar- rannsóknarstöð ríkisins“ lætur fylgjast með heilsufari þátttakenda, en skýrslurnar á svo að nota til að sýna hollustu fímleikanna. ■ Fimleikasérfræðingurinn Irina Golubeva er sjálf glæsilegur fulltrúi fyrir þá kenningu, að aerobic-leikfimin fegri líkamann og efli hreysti. ■ Milljarðamæringurinn og vopnasalinn Adnan Kashoggi er aldrci stoltari en þegar hann getur sýnt sig í fylgd með einkadótturinni Nabila, íklæddri dýrum loðfeldum og skartgripum. Karl- menn geta líka gifst til fjár! ■ Nabila á þegar allt sem fæst fyrir peninga. Nú er hennar heitasta ósk að eignast barn, en hún hefur ekki enn fundið föður að því. 30. nóvember 1984 10

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.