NT - 30.11.1984, Qupperneq 4
■ Eysteinn Jónsson og Vilhjálmur Hjálmarsson á svölum Hótel Borgar, en þaðan er talið að Jóhannes
á Borg hafi séð breska flotann sigla inn á Reykjavíkurhöfn árið 1940. í baksýn er Alþingishúsið og
Austurvöllur, baksvið flestra þeirra atburða sem bókin Eysteinn í baráttu og starfi, greinir frá.
NT-mynd: Sverrir
Eysteinn Jónsson í
baráttu og starfi
■ Eysteinn í baráttu og starfi,
annar hluti ævisögu Eysteins
Jónssonar fyrrum ráðherra, er
komin út hjá bókaforlaginu
Vöku. Það er Vilhjálmur
Hjálmarsson fyrrum þingmaður
sem skráir.
í þessari bók er fjallað um
tímabilið um og eftir síðari
heimsstyrjöldina. Sagt er frá
stofnun lýðveldisins, uppgjöri í
Framsóknarflokknum í lok
formannstíðar Jónasar frá
Hriflu, Keflavíkursamningum
og fleiri málum, m.a. er
skyggnst bak við tjöldin meðan
á stormasömum stjórnarmynd-
unarviðræöum stóð á eftirstíðs-
árunum.
Vilhjálmur Hjálmarsson hef-
ur valið þá leið við skrásetningu
ævisögu Eysteins að vinna úr
skrifuðum heimildum og
„krefja síðan Eystein sagna um
hvernig hann lítur á ýmsa al-
burði nú 35 árum seinna" eins
og Vilhjálmur orðaði það á
fundi með fréttamönnum.
Helstu heimildir Vilhjálms
eru gjörðabækur Framsóknar-
flokksins, minnisblöð Eysteins
frá ýmsum tímum, dagblöð og
fleiri samtímaheimildir.
Regnboginn:
Rússarnir koma
og sýna okkur kvikmyndir
■ Sovésk kvikmyndavika
hefst í Regnboganum á morgun,
1. desember, með frumsýningu
á myndinni Önnu Pavlovu, sem
gerð er af leikstjóranum Emil
Lotianu. Myndin segir frá Önnu
Pavlovu, sem var ein frægasta
ballerína heimsins í upphafi
þessarar aldar. Þetta er þó
meira en ævisaga, því að Lot-
ianu gerði kvikmynd um lista-
mann og manneskju, sem var
honum mjög nátengd í anda.
Aðalhlutverkið er í höndum
Galínu Beljaevu.
Annar frægur leikstjóri á
einnig mynd á kvikmyndavik-
unni. Hann heitir Gleb Panfil-
ov, og er mynd hans Vassa gerð
eftir hinu sígilda leikriti Gorkís
Vassa Zheleznova. Atburðirn-
ir, sem sagt er frá gerast árið
1913, skömmu áður en hið borg-
aralega kerfi í Rússlandi riðlað-
ist. Vassa, 42 ára gömul kona,
vill reyna að bjarga mannorði
tveggja dætra sinna og reynir að
múta dómara, sem fer með mál
manns hennar, drykkfellds
spilagosa, sem leggur lag sitt við
stúlkur undir lögaldri.
Fjórar aðrar myndir verða
sýndar á kvikmyndavikunni.
Grimmilegur mansöngur heitir
mynd eftir leikstjórann Eldar
Rajazanov og er hún gerð eftir
leikriti þekkts 19. aldar leik-
skálds. Óskastundin er eftir
Júlí Raizman, einn elsta leik-
stjóra Sovétríkjanna. Aðalhlut-
verkið í þeirri mynd er leikið af
Veru Alentovu, sem íslendingar
þekkja úr myndinni Moskva
trúir ekki á tár, sem sýnd var í
sjónvarpinu fyrir nokkru. Pjotr
Todorovskí er stjórnandi mynd-
arinnar Stríðssaga og gerist í
síðari heimsstyrjöldinni og
síðar, á 6. áratugnum. Loks
verður svo sýnd myndin Snúið
heim úr geimnum eftir úkraín-
ska leikstjórann A. Súríns.
Sovéska kvikmyndavikan
hefst á morgun, eins og áður
sagði, og lýkur henni 7. desem-
ber.
■ Galína Beljaeva í hlutverki
Önnu Pavlovu í samnefndri
kvikmynd, sem verður frum-
sýnd í Regnboganum á morgun,
laugardag.
Seðill I orgelsjóð:
Fjársöfnun til
orgelkaupa í
Hallgrímskirkju
■ Frá afhjúpun minnisvarðans um séra Stefán Eggertsson.
Lengst til vinstri sóknarapresturinn séra Gunnlaugur Garðars-
son, Nanna Magnúsdóttir sem flutti ávarp, Guðrún Sigurðar-
dóttir ekkja séra Stefáns, börn þeirra, Sigrún og Eggert og
starfsmaður flugmálastjórnar. NT-mvnd: svenír
■ „Það tók ekki nema 3 mínútur að selja þúsund kökur af
laufabrauði á basarnum í fyrra - ég tók tímann, sagði Dóra
Guðbjartsdóttir sem við sjáum hér innan við kökusöluborðið. Má
glöggt sjá á myndinni, sem tekin var á jólabasar 1983, að þar var
mikil ös eftir opnunina.
Jólabasar Félags framsóknarkvenna:
Basar, hlutavelta
og flóamarkaður
■ „Seðill í orgelsjóð" er kjör-
orð söfnunar sem fimm einstakl-
ingar, Sigurbjörn Einarsson
biskup, Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður, Knut Ödegárd
forstjóri, Ingólfur Guðbrands-
son forstjóri og Salome Þorkels-
dóttir alþingismaður, gangast
fyrir og er markmið söfnunar-
innar að sameina íslensku þjóð-
ina um að gefa Hallgrímskirkju
orgel sem henni hæfir.
Framkvæmd söfnunarinnar
er með nýstárlegu sniði: Áhuga-
menn skora Itver á annan um
framlag að upphæð kr. 1000 eða
meira, og er söfnunin þannig
keðjuverkandi. Frumkvöðlar
söfnunarinnar hófu leikinn með
því að leggja fram sitt framlag
og skoruðu síðan hver um sig á
tvo eða fleiri að gera slíkt hið
sama. Nöfn gefenda verða birt
vikulega í blöðum, og síðan
innfærð í sérstaka bók sem varð-
veitt verður í Hallgrímskirkju.
Á blaðamannafundi sem for-
svarsmenn söfnunarinnar
héldu, kom fram að samdóma
álit sérfræðinga er að Hallgríms-
kirkju hæfi orgel með u.þ.b. 70
raddir, en það eru stærstu orgel
sem smíðuð eru um þessar
mundir. Slíkt orgel myndi hafa
4 hjómborð og pedal, yfir 5000
pípur og væir lengsta pípan yfir
10 metrar. Þetta yrði langstær-
sta orgel á landsins og til saman-
burðar má geta að stærsta orgel
á íslandi nú er í Akureyrar-
kirkju og hefur rúmlega 40
raddir og 3 hljómborð.
Gert er ráð fyrir að Hallgrírrs-,
kirkja verðifullfrágengininnan
tveggja ára og vonir standa til
að þetta orgel veðri tilbúið þá.
Ekki hefur verið ákveðið hvaða
orgelsmiður verður fyrir valinu
en tilboð hafa borist víða að.
Afgreiðslufrestur orgels af þess-
ari stærð er um 2-3 ár og kostn-
aður við smíði þess varla undir
15 milljónum króna miðað við
núgildandi verðlag.
Á fundinum kom fram að nú
er ekkert orgel til í landinu sem
fullnægir kröfum um túlkun
stærri og flóknari verka sem
samin hafa verið fyrir kirkjuorg-
el. Því geta íslenskir orgel-
leikarar ekki notið sín sem
skyldi og fremstu snillingum
erlendum í þeirri grein verður
ekki boðið hingað til tónleik-
ahalds.
Því þurfi Hallgrímskirkja í
Reykjavík að eignast orgel sem
geti bætt að fullu úr þessari
vöntun, enda sé hún reist með
það í huga meðal annars að
styrkja samband listar og
kirkju.
Þeir sem vilja leggja sitt af
mörkum í söfnunina „Seðill í
orgelsjóð" geta lagt framlag sitt
á gíróreikning nr. 19008 í
Lándsbanka Islands og færir
greiðandinn nöfn þeirra sem
tekið hafa áskorun hans inn á
gíróseðilinn ásamt heimilisföng-
um og símanúmeri. Skrifstofa
sjóðsins í Hallgrímskirkju verð-
ur opin á virkum dögum kl.
13.00 til 17.00, sími 10745.
Framiögum má einnig koma
beint þangað.
Leiðrétting
■ Þau leiðinlegu mistök urðu
í grein í NT í gær um afhjúpun
minnisvarða um séra Stefán
Eggertsson, sóknarprest á
Þingeyri, að nöfn brengluðust
á tveim stöðum. Var talað um
séra Eggert, sem á að vera séra
Stefán og sonur hans var
nefndur Stefán, en á að vera
Eggert. Biðst blaðið velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Þá skal þess getið að Stein-
þór Sigurðsson listmálari
hannaði minnisvarðann, Þröst-
ur Marseiíusson á ísafirði ann-
aðist smíðina og Gunnar Frið-
finnsson á Þingeyri setti hann
upp.
■ Flestir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi á jólabasar
Félags framsóknarkvenna í
Reykjavík sem að þessu sinni
verður haldinn laugardaginn 1.
des. n.k. í kjallaranum á Rauð-
arárstíg 18 í Reykjavík.
Að sögn félagskvenna verður
þar boðið upp á mikið af prjón-
lesi og sængurfatnaði ásamt ljúf-
fengum kökum og laufabrauði,
sem fjölmargar félagskonur
hafa að undanförnu keppst við
að skera út og baka. Laufa-
brauðið hefur um árabil verið
það lang vinsælasta sem boðið
er upp á á basarnum - selst
venjulega upp á fyrstu mínútun-
um. Einnig verða sælgætispokar
til sölu.
Þá verður líka flóamarkaður
á staðnum þar sem hægt verður
að kaupa ýmsa nytsama hluti
fyrir lítið verð. Hlutavelta þar
sem allir fá eitthvað en enginn
núll, og enn má nefna happ-
drætti með góðum vinningum.
Basarinn hefst kl. 14.00 og
verður opinn a.m.k. til kl. 17.00
iaugardaginn 1. des sem fyrr
segir.
Þá fjármuni sem félagið aflar
með þessum hætti segja félags-
konur m.a. renna til ýmisskonar
góðgerðarstarfsemi.
Einnig þurfi félagið peninga
til að borga aðild að hinum
ýmsu kvenfélagssamböndum
sem það starfar með og jafn-
framt styrki það starfsemi Fram-
sóknarflokksins.
■ Frumkvöðlar söfnunarinnar „Seðill í orgelsjóð" á fundi með blaðamönnum. NT-mynd: Svenir.