NT - 30.11.1984, Page 5
Föstudagur 30. nóvember 1984
Landseti Thorsara við Haffjarðará:
Fer í nýja húsið
í stað útburðar
■ Gamla og nýja húsið á Höfða í Hnappadalssýslu. Sigurður bóndi er nú iluttur inn í nýja húsið
þrátt fyrir fyrirmæli landsdrottins um að það megi hann alls ekki gera. Enn hefur útburði Sigurðar ekki
verið vísað til hæstaréttar. Nr-mynd: Gnðni.
Má ekki stíga fæti þar inn segja eigendur
■ Að Höfða í Hnappadals-
sýslu er bóndinn, Sigurður
Oddsson að koma sér fyrir í
nýju íbúðarhúsi þrátt fyrir fyrir-
mæli jarðareigenda, Thors R.
Thors þess efnis að hann megi
ekki stíga fæti þar inn. Fvrir
skemmstu lét Sigurður taka út
húsbygginguna á því stigi sem
jarðareigandi skildi við hana
þegar hann hætti framkvæmd-
um á síðasta vetri. Úttektina
sendi hann Thor og hefur síðan
unnið að því að klára húsið á
eigin reikning. Thor hefur nú
látið tlytja honum þau boð að
inn í hið nýja íbúðarhús megi
hann ekki stíga fæti sínum.
Sigurður kveðst virða það að
vettugi.
Eins og fram hefur komið í
NT er forsaga þessa máls sú að
Thor hefur nú frá áramótum
reynt að koma Sigurði af jörð-
inni. Sigurður hafði þá sagt
byggingarbréf þeirra Thors ógilt
vegna vanefnda þess síðar-
nefnda á ákvæðum bréfsins.
Þessu mótmælir landeigandi og
telur auk þess að með uppsögn
byggingarbréfsins hafi bóndinn
fyrirgert rétti sínum til frekari
búsetu á jörðinni. í sumar féll
dómur í héraðsrétti þar sem
kröfu Thors um útburð Siguröar
af jörðinni var synjað. Jón
Steinar Gunnlaugsson lögmað-
ur Thors vildi ekki tjá sig um
það við NT hvort málinu yrði
vísað til hæstaréttar en þaö
hefur ekki verið gert enn.
Þær vanefndir sem Sigurður
taldi á ákvæðum byggingarbréfs
jarðarinnar voru að Thor hefði
ekki lokið við íbúðarhússbygg-
inguna fyrir áramót 1984. Áður
hafði Thor synjað Sigurði uni
leyfi til þess að byggja sjálfur á
jörðinni. Núverandi hýbýli eru
heilsuspillandi og allsendis ófor-
svaranlegur mannabústaður.
Samtök um kvennalista á Austurlandi:
Framhaldsfund*
ur í Valaskjálf
■ Samtök um kvennalista hafa verið stofn-
uð í hverju kjördæmi landsins að undan-
förnu og um síðustu helgi voru haldnir
stofnfundir í Vík í Myrdal og á Egilsstöðum.
Mikið fjölmenni var á fundinum á Egils-
stöðum þar sem kom fram að konur telja
mikla þörf á að þeirra sjónarmið og reynslu-
heimur fái notið sín á sviði þjóðmálaum-
ræðunnar. Sökum slæmrar færðar á Austurl-
andi um sl. helgi verður áframhaldandi starf
rætt á félagsfundi laugardaginn 1. des. n.k.
í Valaskjálf á Egilsstöðum og eru ailar
konur boðnar velkomnar á þann fund.
Jólasveinatríóið
bíður spennt
■ Samningar munu nú hafa tekist í jóla-
sveinaríkinu, og hafa þeir því lagt nótt við
dag að ljúka við jólagjafirnar og bíða nú
óþreyjufullir jólanna að eigin sögn.
Jólasveinatríóið, þau Grýla, Gáttþefur
og Gluggagæir hafa drifið sig til borgarinnar
og vilja nú fara að hitta alla krakkana sem
hinir jólasveinarnir hafa gortað sig af að
þekkja. Bíða þau nú í ofvæni eftir að komast á
jólaskemmtanirnar og þeir sem hafa áhuga
á að fá þau í heimsókn geta hringt í síma
621126 eða 20050 milii kl. 17-19 daglega.
Ritgerðasamkeppni um íslenskan iðnað:
Skilafrestur lengdur
■ Skilafrestur í ritgerðasamkeppni sem
Landsamband iðnaðarmanna efnir til meðal
skólafólks hefur verið framlengdur til 15.
febrúar næstkomandi. Ástæðan er BSRB
verkfallið sem setti skólastarf mikið úr
skorðum en áður hafði skilafrestur verið
ákveðinn 1. desember.
Ritgerðarsamkeppnin hefur þegar verið
kynnt með upplýsingabæklingi í grunn- og
framhaldsskólum. Verðlaun verða 25,15 og
10 þúsund krónur og er þátttaka heimil
nemendum á öllum skólastigum frá grunn-
skóla til háskóla. Við mat á ritsmíðum
verður svo tekið tillit til aldurs og menntun-
ar.
Metvertíð á Patró!
Frá fréttaritara NT á Patreksfírði:
■ Afli Patreksfjarðarbáta hefur verið
mjög góður að undanförnu en nú róa þrír
línubátar frá staðnum. Afli í róðri hefur
verið að meðaltali 10 lestir af slægðum fiski.
Þessi haustvertíð ætlar að verða með þeim
betri í áraraðir.
Reyndar hófust róðrar um einum mánuði
seinna en venjulega þar sem kvóti bátanna
var að mestu búinn í vor. Togarinn Sigurey
hefur verið í slipp að undanförnu, en fer
væntanlega til veiða í byrjun desember.
Tveir Patreksfjarðarbátar hafa ekki landað
síðan snemma í vor. Annar er Patrekur sem
hefur verið á rækjuveiðum og vinnur aflann
um borð til útflutnings. Hefur hann aflað vel
að undanförnu. Þá hefur Jón Þórðarson
einnig verið á rækjuveiðum og landað á
‘ísafirði en hann er nú í söluferð með ísfisk
til Englands.
Þá er slátrun lokið í sláturhúsi Kaupfélags
Vestur-Barðstrendinga. Meðalfallþungi
dilka reyndist vera 16,48 kg. Það er kílói
þyngra en meðalfallþungi í Eyjafirðinum og
tveimur og hálfu þyngra en sunnanlands.
Fallþungi er þó um allt land með mesta móti
í ár.
í dag, föstudaginn 30. nóvember, opnum við nýja matvöru-
verslun KRON að Furugrund 3, Kópavogi.
Hið glæsilega nýja verslunarhús er hannað með áherslu á
að allur aðbúnaður sé sem bestur - að vel fari um
viðskiptavini, starfsfólk og fjölbreytta matvöru.
Um leið og við bjóðum ykkur velkomin í þessa nýju verslun
vonum við að hún eigi eftir að þjóna ykkur vel og lengi.
M Rúmgott og vel skipulagt húsnæði________________
M Glæsilegt kjöt- og fiskborð_____________________
M Allar mjólkurvörur í kæliskápum_________________
M 2 djúpfrystar fullir af matvælum________________
M Avaxta- og grænmetisborð_________________________
M Greið aðkeyrsla_________________________________
M Malbikuð bílastæði með hitalögnum
Opnunartími: 9-18 mánudaga til fimmtudaga
9-20 föstudaga
9-16 laugardaga
Við bjóðum sérlega
fiagstætt kynningarverð
á fjölda vörutegunda
vegna opnunarinnar
FURUGRUND3
KÓPAVOGI
AUGLVSINGAPJONUSTAN