NT - 30.11.1984, Side 12
Föstudagur 30. nóvember 1984 12
'í i L ,1
■ Séra Jón Skagan rifjar upp
minningar frá því þegar ísland
varö fullvalda ríki.
ástandið heldur slæmt hjá
okkur hérna heima. Það
var hver hrellingin búin að
ganga yfir okkur eftir aðra,
Kötlugosið og spánska
veikin.
En það var feiknargleði,
ég hef aldrei lifað ánægju-
legri stund en þegar íslenski
fáninn var kominn að hún
og fluttar voru ræður. Þessu
lauk með því að hin fölu
andlit eftir pestina fengu
roðann á ný. Menn föðm-
uðust og kysstust jafnvel
þó að þeir hefðu aldrei sést
áður, stemmningin var svo
mikil. Það lifnaði svo mikið
yfir fólkinu yfir því að frels-
ið var fengið, sem var búið
að berjast svo mikið fyrir
og var svo lengi þráð. Þetta
var algerlega ógleyman-
legur dagur,“ segir séra Jón
Skagan, sem ber síður en
svo merki þess að vera
orðinn „forngripur“!
„Ættum við
ekki öll að
hlaupa ofan
á Báruball?"
■ „Reykjavíkerperla“heitir
þáttur í sjónvarpinu kl. 21.10
á laugardagskvöldið. Þetta er
leik- og lestrardagskrá með
söngvum um lífið í höfuð-
staðnum á þriðja áratug aldar-
innar. Vitnað er í ýmsar sam-
tímaheimildir, Ijóð flutt og
sungnir söngvar úr revíum og
leiksýningum.
Stefán Baldursson tók sam-
an og er leikstjóri, en tónlistar-
umsjón og undirleik annast
Jóhann G. Jóhannsson.
Flytjendur þessa þáttar eru
nemendur efsta bekkjar í
Leiklistarskóla íslands. Upp-
töku stjórnaði Elín Þóra Frið-
finnsdóttir. Við báðum Elínu
Þóru að segja okkur svolítið
frá þessum sjónvarpsþætti.
Elín Þóra sagði, að nemendur
Leiklistarskólans hefðu flutt
þessi atriði í Norræna húsinu
tvisvar sinnum í vor.
„Við hjá sjónvarpinu tókum
þessa dagskrá upp í sumar, í
ágúst. Efnið er yfirleitt gamalt
og sumir söngvarnir eru úr
gömlum revíum, svo sem
Báruballið. Það var sýnt smá
sýnishorn úr því þegar
dagskrá vikunnar var kynnt
síðast. Þá sungu flytjendur
m.a. mjög vinsælt lag frá því í
■ Elín Þóra Friðfinnsdóttir
stjórnaði upptökunni.
(niynd úr Sjónv.)
gamla daga: Ættum við ekki
öll að hlaupa ofan á Báru-
ball?!“
Útvarp laugardag kl. 20.50:
„Ógleymanlegur dagur“
- séra Jón Skagan segir frá 1. des. 1918
■ Á morgun laugardag-
inn 1. desember, er þess
minnst að 66 ár eru liðin frá
því ísland varð fullvalda
ríki með ýmsum dagskrár-
liðuni. Stúdentar hafa
löngum helgað sér þennan
dag og verður svo einnig
núna. Þar má nefna stúd-
entamessu sem útvarpað
verður kl. 11, og kl. 14
hefst hátíðardagskrá á
þeirra vegum í Félagsstofn-
un stúdenta, sem hefur
hlotið nafnið Frelsi, jöfn-
uður og réttlæti.
Kl. 20.50 flytur séra Jón
Skagan svo minningarsínar
frá 1. desember 1918, deg-
inum þegar ísland var lýst
fullvalda ríki.
„Já, þeir voru að biðja
mig um þetta. Ég er nefni-
lega elstur presta í dag og
ég er orðinn forngripur,
svo að þess vegna hafa þeir
áhuga á að láta mig segja
eitthvað frá þessu,“ segir
séra Jón, en hann er fæddur
1897 og því 87 ára gamall.
____________________________
Á þessum tíma bjó séra
Jón hjá séra Bjarna Jóns-
syni í Lækjargötu 12B. Þeir
útskrifuðust stúdentar 1919
eftir eindæma hrakninga í
skóla, þar sem kennsla
hafði verið felld niður frá
því í miðjum 4. bekk, enda
sagði Jón Ófeigsson stúd-
entana 1919 sannkallaða
dýrtíðarvandræða-, heims-
styrjaldar-, inflúensu- og
Kötlugosstúdenta. „Hann
sagði að við hefðum verið
mestu hrakfallamenn sem
hann hefði átt samleið með
í sögu skólans,” segir séra
Jón.
„Haustið 1918 geisaði hin
alræmda spánska veiki hér
á landi. Hér í Reykjavík
dóu nær því 300 manns og
allur fjöldinn var lengi að
ná sér á eftir. Jón Magnús-
son forsætisráðherra var
staddur úti í Kaupmanna-
höfn, hafði ekki komist
heim, svo að það mátti
segja að þegar þessi bless-
aði dagur rann upp, var
■ Peter Ustinov sem tölvusnillingurinn Marcus Pendleton situr við tölvuna og virðist vera í hálfgerðum vandræðum, en leikarinn
Karl Malden, - í hlutverki sínu í myndinni - horfir íbygginn á.
Sjónvarp laugardag kl. 22.10:
Tölvuvæddur svika-
hrappur í „lllur fengur“
■ Þaö eru hvorki meira né
minna en 6 frægir leikarar í
laugardagsmyndinni í sjón-
varpinu. Fyrst skal frægan telja
Peter Ustinov, sem einnig er
annar höfundur handritsins, -
en hinn höfundurinn er Ira
Wallach. Aðriraðaleikarareru
þau: Macgie Smith, Karl'
Malden, Bob Newhart, Robert
Morley og Cesar Romero.
Á íslensku nefnist myndin
Illur fengur, en á ensku „Hot
Millions". Þetta er gaman-
mynd frá árinu 1968. Peter
Usitnov leikur aðalhlutverkið,
- svikahrapp, sem ekki nennir
að vinna, en finnst þægilegra
að vinna fyrir sér með svikum
og prettum. Það getur þó
orðið býsna erfitt stundum,
jafnvel þó tölvur séu teknar til
hjálpar, en Marcus Pendleton
- en svo heitir svikahrappurin
- gefur sig út fyrir tölvufræðing
og ræður sig hjá mikilli við-
skiptasamteypu. Svo lætur
hann tölvuna vinna fyrir sig.
Leikstjóri er EricTill. Þýðandi
myndarinnar er Jón O.
Edwald.
Myndin er orðin 16 ára, en
hún er í litum og sýningartíminn
er 107 mínútur.
Sjónvarp laugardag kl. 21.10:
Laugardagur
1. desember
7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Lelkfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Halla Kjart-
ansdóttir talar
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög
sjúklinga, frh.
11.00 Stúdentamessa i kapellu
Háskóla íslands Séra Sigurður
Sigurðarson sóknarprestur á Sel-
fossi þjónar fyrir altari. Haraldur M.
Kristjánsson stud. theol. predikar.
Organleikari: Jón Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Her-
mann Gunnarsson
14.00 „Frelsi, jöfnuður og réttlæti",
hátiðardagskrá 1. desember I
Félagsstofnun stúdenta Hallf-
riður Þórarinsdóttir stúdent setur
hátiðina. Háskólakórinn flytur kafla
úr Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr
Kötlum viö tónlist Péturs Pálsson-
ar. Ögmundur Jónasson fréttam-
aður flytur hátiöarræðu. Strengja-
sveit frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík leikur. Stúdentaleikhús-
ið flytur leikþátt. Séra Baldur
Kristjánsson talar. Vísnavinir
syngja og leika.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslenskt mál Jón Hilmar Jóns-
son flytur þáttinn.
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarðvik.
17.10 íslensk tónlist
18.20 Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Veistu svarið? Umsjón: Unnur
Ólafsdóttir. Dómari: Hrafnhildur
Jónsdóttir. (RÚVAK)
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
les þýðingu Freysteins Gunnars-
sonar(7)
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Bjarni Marteinsson.
20.50 Minningar frá 1. desember
1918 Séra Jón Skagan flytur.
21.10 „Safnað í handraðann Guð-
rún Guðlaugsdóttir talar við Ragn-
ar Borg myntfræðing
21.30 Kvöldtónleikar Þættir úr sí-
gildum tónverkum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Svo margt veltur á rauðum
hjólbörum" Dagskrá um Wlliam
Carlos Williams, líf hans og Ijóð.
Árni Ibsen tekur saman og þýðir.
Flytjandi ásamt honum Viðar Egg-
ertsson.
23.15 Óperettutónlist
24.00 Miðnæturtónleikar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Laugardagur
1. desember
14.00-18.00 Rás 2 eins árs
Hlé
24:00-03:00 Næturvaktin Stjórnandí:
Margrét Blöndal
(Rásir 1 og 2 samtengdar að
lokinni dagskrá Rásar 1.
Laugardagur
1. desember
14.45 Enska knattspyrnan Everton
- Sheffield Wednesday Bein út-
sending frá 14.55-16.45. Umsjón-
armaður Bjarni Felixson.
17.15 Hildur Fimmtu þáttur Endur-
sýning. Dönskunámskeið i tíu
þáttum.
17.40 fþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
19.25 Bróðir minn Ljónshjarta Lok-
aþáttur. Sænskur framhaldsmynd-
aflokkur i fimm þáttum, gerður eftir
sögu Astrid Lindgren. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 í sælureit Fjóröi þáttur. Bresk-
ur gamanmyndaflokkur i sjö
þáttum. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.10 Reykjavík er perla Leik- og
lestrardagskrá með söngvum um
lifiö í höfuðstaðnum á þriðja áratug
aldarinnar. Vitnað er i ýmsar sam-
timaheimildir, Ijóð flutt og sungnir
söngvar úr revíum og leiksýning-
um. Stefán Baldursson tók saman
og er leikstjóri. Tónlistarumsjón og
undirleik annast Jóhann G. Jó-
hannsson. Flytjendureru nemend-
ur efsta bekkjar Leiklistarskóla
(slands. Upptöku stjórnaði: Elín
Þóra Friðfinnsdóttir.
22.10 lllur fengur...(Hot Millions)
Bresk gamanmynd frá 1968. Leik-
stjóri Eric Till. Aðalhlutverk: Peter
Ustinov, Maggie Smith, Bob New-
hart og Karl Malden. Svikahrappur
i kröggum uppgötvar nýja aðferö
til að afla skjótfengins gróða. Hann,
tekur tölvurnar í þjónustu sína.
Þýðandi Jón O. Edwald.
00.00 Dagskrárlok.