NT - 30.11.1984, Side 13

NT - 30.11.1984, Side 13
lil'c Föstudagur 30. nóvember 1984 13 tjc Rás 2 sunnudag kl. 15.00-16. EB Tónlistar krossgátan á sínum stað ■ Nýtt form hefur nú tekið á sig mynd á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum. í stað þess að áður var einn samfelldur þáttur kl. 14-18, er hann nú þrískipt- ur. Auk þess hefur dagskráin nú verið lengd um hálftíma og hefst útsending kl. 13.30 í stað 14 áður. í fyrsta hluta dagskrárinnar, kl. 13.30—15 stýrir Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir þætti, sem hlotið hefur nafnið Krydd í tilveruna. Kl. 15-16 er svo Tónlistarkrossgátan, en hún hefur hlotið fastan sess á þess- • um tíma í dagskránni. Stjórn- andi hennar er sem kunnugt er Jón Gröndal. Síðast er svo Vinsældalisti Rásar 2 undir stjórn Ásgeirs Tómassonar og stendur hann yfir kl. 16-18. Par eru að venju leikin 20 vinsælustu lögin, sem hlust- endur Rásarinnar hafa valið. ■ Guömundur Emilsson hljómsveitarstjóri ■ Mist Þorkelsdóttir Sjónvarp sunnudagur kl. 22.35: Tónskáldin ungu og íslenska hljómsveitin ■ Guðmundur Emilsson stjórnar íslensku hljómsveit- inni í sjónvarpsþættinum „Tónskáldin ungu og íslenska hljómsveitin". íslenska hljóm- sveitin hefur pantað verk hjá ungum íslenskum tónskáldum og verða þrjú hljómsveitarverk flutt í sjónvarpinu nú í vetur. Öll verkin eiga það sameigin- legt að vera fyrsta hljómsveit- arverk höfundanna. Fyrsta hljómsveitarverkið í flutningi íslensku hljómsveit- arinnar í sjónvarpið - og samið að tilhlutan hljómsveitarinnar - er eftir Misti Þorkelsdóttur og heitir „Davíð 116“. Verkið byggist á Davíðssálmi nr. 116, einsöngvari er William H. Sharp. Textinn er sunginn á latínu. Guðmundur Emilsson hljómsveitarstjóri sagði í við- tali við NT: „Það hefur verið mjög áber- andi þáttur í okkar starfi í íslensku hljómsveitinni, að leita til yngstu kynslóðarinnar, bæði hljóðfæraleikara, tón- skálda og annarra tónlistar- manna. Við erum þeirrar skoðunar, að það sé mjög dýrmætt fyrir unga og cfnilega tónlistarmenn að fá reynslu, - því það reynist ómetanlegt síð- armeir. Viðviljum koma unga tónlistarfólkinu út í umfcrðina - ef svo má segja - þó kannski verði í fyrstu keyrt á staura, þá verði þó vegurinn framundan greiðfarnari þegar reynslan er fyrir hendi. í þessari þáttaröð eru þarna þrjú ung tónskáld og í öllum Rás 2 sunnudag kl. 13.30-15. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir setur „Krydd í tilveruna“ ■ Krydd í tilveruna nefnist sunnudagsþáttur Ástu Ragn- heiðar Jóhannesdóttur, sem verður á Rás 2 kl. hálftvö á sunnudag. í símtali við Ástu Ragnheiði kom fram, að að- ventan er henni ofarlega í huga og hún mun helga henni talsvert af tímanum í sunnu- dagsþættinum. Hún sagði m.a.: „Ég er nú (þ.e. á miðvikud.) að gera áætlun um þennan þátt minn, sem auðvitað verður eitthvað um aðventuna og ým- islegt efni henni skylt. Ég býst við gestum í þáttinn, t.d. kem- ur blómasérfræðingur til að ræða um jólablómin og að- ventukransa. Einnig má búast við því að ég fái einhvern til að hafa smáaðventutölu eða við- tal um aðventuna. Síðan verð ég með eitthvert létt efni, - músík sem notalegt er að hlusta á eftir sunnudags- steikina," sagði Ásta Ragn- heiður. í sambandi við tónlist þessa KRYDD-þáttar sagðist Ásta Ragnheiður vilja taka fram, að hún væri ekki hlynnt því, að fara strax að leika jólalög. „Það er eins og jólalögin verði þá ekki eins hátíðleg, þegar að jólunum kemur. Við megum ekki útjaska fallegu jólalögun- um í byrjun aðventunnar." ■ „Ég verð ekki mjög jólaleg í lagavali, því ég er á móti því að spila mikið af jólalögum fyrr en nær dregur jólum“. tilvikum eru þetta þeirra fyrstu hljómsveitarverk og gerð eftir pöntun frá okkur í íslensku hljómsveitinni. Við höfðum heyrt önnur tónverk eftir þessa ungu höfunda, og því leituðum við eftir hljómsveitarverkum hjá þeim. Þau stóöu sig öll með prýði og sýndu sig trausts- ins verð. Þessi verk voru öll frumflutt á tónleikum íslensku hljóm- sveitarinnar sl. vor, hvert á sínum tónleikunum. Einsöngvarinn í þessu verki er ungur söngvari, Villiam H. Sharp, sem hefur getið sér gott orð í Bandaríkjunum og unnið þar til margra verðlauna í söngkeppnum. Nú síðast í fyrra vann hann í kcppni söng- vara í Genf-fékk 1. verðlaun. Hann er reyndar gamall skóla- bróðir minn og vinur og kemur hingað fyrir mín orð. Hann hefur heimsótt mig áður. Nú kemur hann hingað til að syngja þessa sjónvarpstónleika með okkur. Annars syngur William H. Sharp í óperuhúsum út um allan heim, sérstaklega eftir að hann vann í keppninni í Genf. Mest starfar hann í New York. Verkið Davíð 116 er 12-15 mínútur í flutningi, og það er mikil ró og fegurð yfir því. Hlióðfæraleikarar eru um 20,“ sagði Guðmundur. Hin tvö hljómsveitarverkin eiga að fylgja í kjölfarið með mánaðarmillibili. Höfundar þeirra verka eru HaukurTóm- asson og Atli Ingólfsson. Sunnudagur 2. desember 8.00 Morgunandakt Séra Jón Ein- arsson flytur ritningarorö og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlögHljómsveit Helmuts Zacharias leikur. 9.00 Fréttir 9.05 Morguntónleikar 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Einar Karl Haraldsson sér um þáttinn. 11.00Messa i Félagsheimili Sel- tjarnarness Prestur: Séra Frank M. Halldórsson. Organleikari: Sig- hvatur Jónasson 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.40 Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur ur nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.15 Miðdegistónleikar Sinfóniu- hljómsveitin í Toronto leikur Sin- fóníu nr. 7 í d-moll op. 70 eftir Antonin Dvorak; Andrew Davis stj. 15.10 Með bros á vör Svavar Gests velur og kynnir efni úr gömlu spurninga- og skemmtijþáttum út- varpsins. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um vísindi og fræði Hvað gerist í hjartanu fyrir og eftir hjarta- áfall? Dr. Sigmundur Guðbjarna- son prófessor flytur sunnudags- erindi. 17.00 Frá Tónlistarhátíðinni í Salszburg s.l. sumar. Píanótón- leikar Alfreds Brendel. Tónlist eftir Franz Schubert. 18.00 Á tvist og bast Jón Hjartarson rabbar við hlustenduur. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 A bökkum Laxár Jóhanna A. St eingrimsdóttir i Árnesi segir frá (RÚVAK) 19.50 Svartlist Kristján Kristjánsson les eigin Ijóð. 20.00 Um okkur Jón Gústafsson stjórnar blönduðum þætti fyrir unglinga. 21.00 Gfsli Magnússon leikur ís- lenska píanótónlist 21.40 Að tafli Stjórnandi: Guömund- ur Arnlaugsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins Sunnudagur 2. desember 13:30-15:00 Krydd í tilveruna Stjórnandi: Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir 15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan Hlustendum er gefinn kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og tónlistarmenn og ráða krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón Gröndal. 16.00-18.00 Vinsældalisti Rásar 2 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórn- andi: Ásgeir Tómasson. Sunnudagur 2. desember 15.00 Bikarkeppni Sundsambands íslands Bein útsending frá Sund- höll Reykjavíkur. 16.00 Sunnudagshugvekja 16.10 Húsið á sléttunni 3. Vörður laganna Bandarískur framhalds- myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 17.00 ísland fullvalda 1918 Endur- sýning. Dagskrá byggð á sögu- legum heimildum um þjóðlíf og atburði á fullveldisárinu 1918 Berg- steinn Jónsson sagnfræðingur og Þorsteinn Thorarensen rithöfundur tóku saman. Þáttur þessi var fyrst sýndur í Sjónvarpinu 1. desember 1968 í tilefni af 50 ára fullveldi íslands. 18.10 Stundin okkar. Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Valdimar Leifsson. 19.00 Hlé 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón- armaður Guðmundur Ingi Kris- tjánsson 21.10 (dagsins önn Ull í fat - Mjólk í mat Lokaþáttur myndaflokks um búskaparhætti og vinnubrögð fyrri tíma, gerður að tilhlutan félags- samtaka á Suðurlandi. Handrit og umsjón: Þórður Tómasson. Kvik- myndun: Vigfús Sigurgeirsson. 21.45 Dýrasta djásnið Þriðji þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í fjórtán þáttum, gerður eftir sögum Pauls Scotts frá Indlandi. Mynda- flokkurinn gerist á árunum 1942- 1947, tímum heimsstyrjaldar og endurheimtar Indverja á sjálfstæði sinu. Kynni breskrar stúlku og indversks blaðamanns reynast hafa örlagaríkar afleiðingar fyrir þau bæði. Þýðandi Veturliði Guðnason. 22.35 Tónskáldin ungu og íslenska hljómsveitin Fyrsti þáttur af þremur. Islenska hljómsveitin flytur í sjónvarpssal Davið 116 eftir Misti Þorkelsdóttur. Einsöngv- ari William H. Sharp. Stjórnandi Guðmundur Emilsson. „Davíð 116“ er samið að tilhlutan hljóm- sveitarinnar og var frumflutt af henni í vor. Verkið er byggt á Davíðssálmi nr. 116 og er textinn sunginn á latinu. 23.00 Dagskrárlok.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.