NT - 30.11.1984, Síða 15

NT - 30.11.1984, Síða 15
Hún lifir aðeins fyrir sig sjálfa en er ákaflega trú lögmálum sígauna sem hopa aldrei af hólmi heldur leggja aleiguna undir, jafnvel lífið sjálft. Alltaf uppselt á Beisk tár Petru von Kant ■ Alþýðuleikhúsiðsýnirumþess- ar mundir að Kjarvalsstöðum Beisk tár Petru von Kant eftir Fassbinder. Sýningar um helg- ina verða: Laugardag og sunnu- dag kl. 16.00, en mánudags- kvöld kl. 20.30. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar. „Þorpið“ á menningar aðventu í Gerðubergi ■ Nemendur Leiklistarskóla tslarids munu flytja „Porpið“ eftir Jón úr Vör undir stjórn Helgu Bachmann í Gerðubergi nk. sunnudag kl. 15.30. Flytj- endur eru nemar á öðru ári í skólanum. LR með Önnu Frank, Gísl og Félegt fés ■ í kvöld (föstudagskvöld) og annað kvöld sýnir Leikfélag Reykjavíkur Dabók Önnu Frank, sem byggð er á dagbók gyðingastúlkunnar Onnu Frank. Guðrún Kristmanns- dóttir leikur aðalhlutverkið, en Hallmar Sigurðsson stjórnar leiksýningunni. Gísl er sýnt á sunnudags- kvöldið, en nú fer sýningum fækkandi á því verki. Leikstjóri er Stefán Baldursson, en Sig- urður Rúnar Jónsson stjórnar tónlistinni í leikritinu. Félegt fés er í Austurbæjar- I bíói á miðnætursýningu á laug- ardagskvöld. Gísli Rúnar Jóns- son leikstýrir. Miðasala á Félegt fés er í Austurbæjarbíói. Skjaldbakan kemst þangað líka ■ Ákveðið hefur verið að hafa nokkrar aukasýningar á leikriti Egg-leikhússins, Skjaldbakan kemst þangað líka eftir Árna Ibsen. Næstu sýningar verða í kvöld, föstudag, og á sunnudag- inn og hefjast kl. 21. Þær fara fram í Nýlistasafninu. Skjaldbakan kemst þangað líka segir frá samskiptum bandarísku skáldanna Ezra Po- und og William Carlos Williams og fjallar í meginatriðum um tvo vini sem fara ólíkar leiðir að sama markinu. Verkið lýsir hvernig vináttu þeirra reiðir af gagnvart hugmyndakerfum sem stangast á, því vinátta Pounds og Williams var einstök og komst ósködduð yfir ótrúleg- ustu þrengingar. Höfundur er leikstjóri, en með hlutverkin fara Viðar Egg- ertsson og Arnór Benónýsson. Aðventuhátíð Breiðholtssóknar ■ Sunnudaginn 2. desember verður hin árlega aðventuhátíð safnaðarins og fer fram í sam- komusal Breiðholtsskóla, - því að enn er bið á, að kirkjusmíð Ijúki. Klukkan 11.00 er barna- samkoma að venju, en kl. 14.00 er „Ljósamessa", sem fermingarbörn aðstoða við. Strax að lokinni guðsþjónustu (kl. 15.00) hefst jólabasar í anddyri skólans. Kvenfélag Breiðholts selur þar ýmsa góða gripi ásamt bakkelsi. Andvirð- ið rennur allt til kirkjubygging- ar. Kl. 20.30 hefst aðventu- kvöldvaka í salnum. Þar leikur Jónas Ingimundarson einleik á píanó, kór Breiðholtskirkju syngur, lesið verður upp og samverunni lýkur með helgi- stund við kertaljós. Allir eru hjartanlega velkomir. Safnaðarnefnd Breiðholtssafn- aðar. Sunnudagsferð F.í. ■ Farin verður dagsferð á vegum Ferðafélags íslands sunnudaginn 3. desember kl. 13.00. Ekið verður í Bláfjöll og gengið á Þríhnúka (400 m). Síðan ekið sem leið liggur um nýja Bláfjallaveginn, sem ligg- ur um Dauðadali sunnan Gvendarselshæðar og tengist Krísurvíkurvegi. Ferðafélag íslands. Frá Félagi Snæfellinga- og Hnappdæla Reykjavík ■ Spila- og skemmtikvöld fé- lagsins verður haldið í Domus -Medica laugardaginn 1. des- cmber n.k. og hefst kl. 20.30. Fjölmennið og mætið stundvís- lega. Skcmmtinefndin. Jólamarkaður FEF ■ Jólamarkaður Félags ein- stæðra foreldra verður í Traðar- kotssundi 6, laugardaginn 1. des. n.k. Fólk er beðið að koma mun- um á skrifstofuna í síðasta lagi 30. nóvember. Jólamarkaðsnefnd. 20 ára afmæli Kópasteins Kópavogi ■ Kópavogsbúar! Dagheim- ilið og leiksólinn Kópasteinn við Hábraut er 20 ára á þessu ári. Af því tilefni verður opið hús á Kópasteini frá kl. 14.00 til kl. 18.00 í dag, föstudaginn 30. nóvember. Forráðamenn og stafsfólk Kópasteins vænta þess, að sem flestir bæjarbúar líti inn og gleðjist með Kópasteins- búum. Sérstaklega eru allir þeir boðnir, sem hafa einhvern tíma á þessum 20 árum starfað að Kópasteini. Eldra fólk í Háteigssókn boðið til kaffidrykkju ■ Kvenfélag Háteigssóknar bíður öllu eldra fólki í sókninni. til sanikomu og kaffidrykkju sunnudaginn 2. desember kl. 3.15 e.h. (15.15) í Domus Medica. Félagskonur mætið vel, - og munið jólafundinn þriðjudag- inn 4. desember kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Spila- og skemmtikvöld ■ Átthagafélag Stranda- manna heldur spila- og skemmtikvöld í kvöld, föstu- dagskvöld, kl. 20.30 í Domus Medica. Aðventuhátíð í Neskirkju ■ Sunnudaginn 2. desember verður Ijósamessa klukkan 14.00 í umsjá fermingarbarna. Seinni hluti hátíðarinnar hefst kl. 17.00, en þá talar Davíð Scheving Thorsteinsson fram- kvæmdastjóri, Friðbjörn G. Jónsson syngur einsöng við undirleik Jónasar Þóris Þóris- sonar, kór Melaskóla syngur undir stjórn Helgu Gunnars- dóttur og strcngjasveit Tónlist- arskóla Seltjarnarness leikur nokkur lög undir stjórn Jakobs Hallgrímssonar. Kirkjudagur Seltjarnarnessafnarðar ■ 2. descmber, 1. sunnudag í aðventu er kirkjudagur Sel- tjarnarnessafnaðar. Jafnan hefur verið mikið um að vera í söfnuðinum þann dag og gert sérstakt átak í fjáröflun til kirkjubyggingarinnar. Að þessu sinni veröur Ijósahátíð í umsjá fermingarbarnanna í Félagsheimilinu kl. 11.00. Þar munu cinnig koma fram ungir tónlistarmenn úr Tónlistar- skóla Seltjarnarness ásamt kennara sínum Skarphéðni Einarssyni. Á kvöldsamkomunni mun Andrés Björnsson útvarps- stjóri tala, Elín Sigurvinsdóttir syngja einsöng og skólakór Seltjarnarness syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. í stað hinnar hefðbundnu laufa- brauðs- og kökusölu verður nú efnt til happdrættis með mörg- um góðum vinningum, m.a. utanlandsferð. Þá verðureinn- ig nú á aðventu boðin til kaups nýja barna- og fjölskyldu- hljómplatan „Og það varst þú", sem gefin er út á vegum Skálholtsútgáfunnar, en sölu- launin munu renna óskert til kirkjubyggingarinnar, ásamt ágóða af sölu happdrættis- rniða; dregið verður þann 20. desember. Vonast er til, að á næsta ári verði mögulegt að taka hluta afsafnaðarheimilinu í notkun. Afmæli Hjarðar- holtskirkju ■ Sunnudaginn 2. descmbcr, sent er 1. sunnudagur í að- ventu, verður hátíðlegt haldið 80 ára afmæli Hjarðarholts- kirkju í Laxárdal í Dalasýslu. Hátíðarmessa verður í kirkj- unni kl. 14.00. Herra Sigur- björn Einarsson. f.v. biskup íslands predikar, en sóknar- presturinn, séra Friörik J. Hjartar þjónar fyrir altari ásamt prófastinum, séra Ingi- begi J. Hannessyni. Kirkju- gestum verður boðið upp á kaffi í Dalabúð að lokinni mcssu. Þar verður rakin saga kirkj- unnar, söngfélagið Vorboðinn syngur og f.v. kirkjumálaráð- herra og formaður sóknar- nefndar Friðjón Þórðarson, flytur ávarp. í tilefni afmælisins hcfur sóknarnefnd Hjarðarholts- kirkju látið gera veggskjöld með myndum af kirkjunni, teiknaðan af sr. Bolla Gústavs- syni í Laufási. Hjarðarholtskirkja er merkileg bygging, hún er minnsrþriggja krosskirkna í sama stíl, sem Rögnvaldur Ólafsson, fyrsti íslenski arki- tektinn teiknaði. ■ Atriði úr Dagbók Önnu Frank. ■ Þeir Amór Benónýsson og Viðar Eggertsson í hlutverkum sínum í Skjaldbakan kemst þangað líka. i 9 ö 4 ■ Veggskjöldur af Hjarðarholtskirkju, sem gefínn er út í tilefni 80 ára afmælis kirkjunnar. rfíjvaxtareikningur VÖRNGEGN VERÐBÓLGU Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. Betri kjörbjóðast varla.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.