NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 30.11.1984, Qupperneq 26

NT - 30.11.1984, Qupperneq 26
Föstudagur 30. nóvember 1984 26 Úrvalsdeildin: KR-ingar unnu stórsigur á Lokatölur 99-70 ■ KR-ingar unnu öruggan og stóran sigur á IS í leik liöanna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Lokatölur urðu 99-70 og staðan í hálfleik var 39-28 fvrir KR. KR byrjaði leikinn af krafti og komst í 6-0 en Stúdentar vöknuðu til lífsins og héldu sig nærri og komust síðan yfir einu sinni í leiknum 18-17. Eftir það var jafnt, 21-20 fyrir KR en þá brunuðu KR- ingar fram úr, staðan í leikhléi 39-28 eins og áður sagði. Ef fyrri hálfleikur var jafn á köflum þá var aldeilis annað uppi á teningnum f þeim seinni. KR komst í 44-30 og síðan 56-38. Síðan skoruðu KR-ingar 13 stig í röð og staðan orðin 69-38, 31 stigs munur. Það bil hélst svo nokkurn ■ Guðni Guðnason skorar fyrir KR gegn IS í leiknum í gærkvöldi. NT-mynd: Árni Bjama Fimleikasýning í Laugardalshöll ■ Þann 2. des. n.k. kl. 16.30 verður stórkostleg fimleika- sýning í Laugardalshöll, fyrir alla fjölskylduna. Viðfangsefnið Rauðhetta og (fimleika) úlfurinn verður' sýnt með þátttöku barna og unglinga frá K.R., Stjörnunni, Gerplu, Björk, Ármanni, og Í.B.A. Skólahljómsveit Mos- fellssveitar leikur og söguntað- ur er Bessi Bjarnason. Lands- liðið leikur listir sínar. Mis- ntunandi atriöi sýninga- prógramma af öllunt gerðum eru að sjálfsögðu með. Þá verða seldir happdrættismiðar til styrktar landsliði og eru vinningar girnilegir. Sama dag kl. 9 árdegis verð- ur ársþing F.S.Í. haldið að Hamraborg 1, Kópavogi. Mörg mál liggja fyrir þ.ú.m. Norrænir fimleikar. Spjótinu breytt - kastarar þurfa að tileinka sér nýja tækni ■ Þegar A-Þjóðverjinn Uwe Hohn kastaði spjótinu 104,80m á móti í A-Berlín fyrr á árinu þá kont það niður hættulega nærri nokkrum keppendum í stangarstökki. Þetta var fyrsta kastið í heimin- um sem mældist yfir 100 m. Þetta var líka fyrsta kastið sem varð þess valdandi að menn fóru alvarlega að hugsa um hættuna sem fylgir svona löngum köstum. Hvað ef ein- hver annar keppandi eða áhorfandi yrði fyrir spjótinu? Hvað ef kastið væri fullmikið til hægri eða vinstri en ekki eftir ntiðjum kastgeiranum? Eru aðrir þátttakendur ekki orðnir í hættu fyrir köstum af þessari lengd? Þessar spurn- ingar og fleiri komu upp á fundi Alþjóðafrjálsíþrótta- sambandsins í Los Angeles stuttu síðar og þar var tckin sú ákvörðun sem mótmælt hefur verið víða, að breyta spjótinu þannig að þyngdarpunkturinn verðurnúfjærspjótsendanum. Þessi breyting á spjótinu ger- ir það að verkum að köstin með því verða mun styttri en um leið munu fleiri köst verða gild. Þá mun þurfa allt aðra tækni til að ná góðum köstum með þessu nýja spjóti og mun það geta tekiö marga kastara langan tíma að þróa með sér tækni til að þeyta nýja spjótinu svo vel verði. Margir spjótkastarar og þjálfarar eru óánægöir með þessa ákvörðun Alþjóðasam- bandsins. Segja margir þeirra að nú verði spjótkast ekki eins skemmtileg og áhrifamikil íþrótt á að horfa eftir apríl 1986 en þá mun spjótið verða tekið í notkun. Margir eru á þeirri skoðun að nú muni reyna meira á styrkleika spjótakast- arans en tækni hans. Þetta gæti orðið til þess að inntaka „ster- oid“ lyfja færi vaxandi og að áhugi manna á spjótkasti sem íþróttagrein færi þverrandi. Sumir segja að spjótkast verði nú frekar lagt niður á suntum alþjóðlegunt mótum. Einn þeirra sem hvað mest hefur barist á móti nýja spjót- inu er Bretinn David Ottley, sem vann silfurverðlaunin í spjótkasti á Ólympíuleikunum. „Ég er algjörlega á móti þess- ari ákvörðun,“ sagði Ottley, „flestir áhorfendur eru að bíða eftirstóra kastinu". Uwe Hohn sagði aftur á móti að hann myndi taka þessari ákvörðun þrátt fyrir að hann teldi ekki mikla hættu stafa af spjótkasti. „Köst yfir 95 m eru ntjög sjaldgæf og svo hefði verið hægt að þyngja spjótið um 100 gr., það eru til þannig æfinga- spjót" Einn af stjórnarmönnum í Alþjóðafrjálsíþróttasamband- inu, Tony Rottenburg, sagði aftur á móti að þessi breyting hafi verið rædd um nokkurn tíma og hefði verið samþykkt án mótatkvæða í Los Angeles. „Eru menn að bíða eftir því að einhver verði drepinn á hlaupabrautinni," sagði Rott- enburg. Þá bætti hann við að til greina hefði komið að þyngja spjótið en það hefði getað kallað á aukna lyfjanotk- un og að ekki þyrfti eins mikla tækni vð kastið eins og áður. Breski spjótakastsþjálfarinn Max Joner sagðist hafa verið hlynntur því að stytta bara atrennuna því „það verður erfitt fyrir spjótakastara að læra nýja tækni alveg uppá nýtt“. Þrátt fyrir mótmæli margra er nokkuð víst að ákvörðun- inni um breytingar á spjótinu verður ekki haggað og að eftir apríl 1986 verða engin 100 m köst sjáanleg unt að minnsta kosti nokkur ár. veginn út leikinn sem endaði nteð 29 stiga mun 99-70. KR-liðið er gott þótt leikmenn þess séu allir ungir að árum og líklegt til afreka þó síðan verði. í gærkvöldi bar mest á Ólafi Guðmundssyni sem hefur sprottið upp nú í vetur og leikur betur með hverjum leik. Hann skoraði 27 stig og var hæstur KR-inga. Aðrir sem skoruðu fyrir KR: Guðni 17, Þorsteinn 12, Birgir Jóhannsson 11, Matthías 10, Ástþór 7, Birgir Mikaels 6, Kristján 5 og Ómar Guð- mundsson 4. Fyrir Stúdenta skoruðu: Valdimar 18, Arni 12, Guð- mundur 11, Ragnar 8, Ágúst 10, Jón Indriðason 6 og Sveinn Ólafsson 5. Dæmdur í 38 vikna bann ■ Vestur-þýska knattspyrnu- sambandið dæmdi hollenska leikmanninn Kees Bergman sem leikur með 2. deíldar-lið- inu Fortuna Köln í 38 vikna leikbann fyrir ofbeldi gagnvart dómara. Einu sinni áður hefur það komið fyrir að leikmaður hefur verið dæmdur í jafn langt bann. Atvikið sem Bergman var dæmdur fyrir gerðist í leik í Saarbrucken í síðasta mánuði. Þá var hann rekinn útaf fyrir að mótmæla marki sem and- stæðingarnir skoruðu, hélt því frani að um rangstöðu hefði verið að ræða. Um leið og hinn 37 ára gamli „sweeper“ gekk af velli, tróð hann af ásettu ráði á fæti dómarans samkvæmt dóms- niðurstöðunni. Bergman segist jafnvel hætta knattspyrnuiðkun eftir þetta áfall. ■ Einar Vilhjálmsson. Hvern ig skyldi honum ganga með nýja spjótinu? Þing KSÍ: ■ Ársþing KSÍ verður haldið uin helgina að Hótel Loftleiðum. Það hefst kl. 10.00 á laugar- dagsmorgun. Líklegt er talið að allir stjórnar- mcnn gefl kost á sér til endurkjörs. Mörg mál eru á dagskrá þingsins og fjöldi fulltrúa á þar sæti, um 180 manns með atkvæðisrétt. Kristinn í Fylki ■ Kristinn Guðmunds- son, sem spilaði með Vík- ingum í sumar í knatt- spyrnunni, hefur tilkynnt félagaskipti í Fylki. Krist- inn spilaði áður með Fylki. Hann skoraði nokkuð fyrir Víkinga í sumar og verður slæmt fyrir þá að missa hann, en að sama skapi styrkur fyrir Fylkismenn að fá hann aftur í sínar raðir. Úrvalsdeildin: Hörkuleikur í Njarðvíkum í kvöld ■ Einnleikurverðuríúrvals- deildinni í körfuknattieik í kvöld. Þá fá Njarðvíkingar Valsmenn í heimsókn í Njarð- víkur og hefst leikurinn kl. 20.00. Þetta verður örugglega hörku viðureign, Njarðvíking- ar eru efstir í deildinni, hafa bara tapað einum leik og þá einmitt fyrir Val. Sá leikur fór fram á heimavelli Vals og þeir verða að spila mjög vel ef þeir ætla að vinna UMFN í ljóna- gryfjunni. Valsmenn hafa tapað tveim- ur leikjum svo þeir geta jafnað metin við Njarðvíkinga ef þeir vinna. Ef svo fer þá verða Haukar, ásamt þessunt tveimur liðunt efst og jöfn í deildinni með tvö töp hvert. Staðan í úrvalsdeild UMFN . .8 7 1 726-574 14 Haukar. .6 4 2 530-470 8 Valur .. .6 4 2 513-477 8 KR .... .6 3 3 482-446 6 ÍR .7 1 6 504-584 2 is .7 1 6 464-667 2

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.