NT - 14.12.1984, Qupperneq 8
Hveitið í jólabaksturinn
fyrir 23 eða 83 krónur?
■ Kaupir þú hveitipok-
ann í jólabaksturinn á 23
eða 83 krónur? Það er
spurning dagsins eftir nýj-
ustu verðkönnun NAN
(Neytendafélags Akureyr-
ar og nágrennis). Rétt er að
taka fram þegar í upphafi
að hér er ekki um sömu
hveititegund að ræða og
vitað er að verðmunur er
töluverður á hveiti eftir teg-
undum. Ef fólki er nokk-
uð sama hver hveititegund-
in er, þá er þessi verðmunur
hins vegar meiri en svo að
hægt sé að leiða hann hjá
sér þegar innkaupin eru
gerð fyrir jólabaksturinn.
Verðkönnun NAN, scm
birt er í desember-tölublaði
NAN-frétta, náði til 8 versl-
ana á Eyjafjarðarsvæðinu,
þar af eru sex verslanir á
Akureyri , ein á Grenivík
og ein á Svalbarðseyri.
Vegið
að NS
í sjón-
varpi
■ Stjórn Neytenda-
samtakanna mótmælir
harðlega þeim ummæl-
um, sem fram komu í
sjónvarpsþættinum,
„Heilsað upp á fólk“,
laugardaginn 8. des-
ember s.l. í þættinum
var mjög ómaklega veg-
ið að forystu Neytenda-
samtakanna og hún
sökuð um andúð á
bændum, auk þess að
vera úr tengslum við
neytendur í landinu.
Stjórn Neytendasam-
takanna bendir á, að
forystumenn samtak-
anna hafa aldrei ráðist
að bændum heldur hef-
ur skipulag landbúnað-
arins verið gagnrýnt,
auk þess sem bent hefur
verið á hátt verð ýmissa
landbúnaðarvara.
Hvað varðar fullyrð-
ingar í þættinum um að
Neytendasamtökin séu
úr tengslunr við neyt-
endur, má benda á að
aldrei fyrr hafa jafn
rnargir gengið til liðs
við samtökin, eins og á
síðustu mánuðum. Tala
félagsmanna hefur á
þessum tíma vaxið um
30%.
Að lokum ítrekar
stjórn Neytendasam-
takanna mótmæii sín,
og krefst þess að hlut-
leysi sjónvarpsins verði
betur í heiðri haft í
framtíðinni.
Úr fréttatilkynningu
Að þessu sinni var kann-
að verð á bökunarvörum
og niðurstöðurnar gefa til
kynna verulegan verðmun
á þessum vörum. KSÞ á
Svalbarðseyri kemur áber-
andi verst út úr könnuninni.
Þar reyndist samanlagt verð
15 vörutegunda til baksturs
vera 36,6% hærra en í Hag-
kaupum á Akureyri þar
sem verðið var lægst.
Innan bæjarmarka Akur-
eyrar var verðmunurinn að
vísu ekki svona mikill en
engu að síður verulegur.
Þannig er verð þessara 15
vörutegunda 23,8% hærra í
Matvörumarkaðnum í
Kaupangien í Hagkaupum.
Milli tveggja verslana
sama fyrirtækis (þ.e.
KEA), er einnig talsverður
munur á verðum. Ódýrasta
KEA-búðin er í Hrísalundi
en sú dýrasta er KEA,
Brekkugötu og er verslunin
í Brekkugötu 16,7% dýrari
en KEA í Hrísalundi.
Alls var kannað verð á 33
vörutegundum og var farið
í verslanirnar á Akureyri
en hringt í verslanirnar á
Grenivík og Svalbarðseyri.
Oft var um mismunandi
vörumerki að ræða og var í
þeim tilvikum skráð verð á
ódýrustu tegundinni og
ekki tekið tillit til hugsan-
legs gæðamunar. Þeirrar
pakkastærðar sem fékkst í
versluninni er getið í skýr-
ingadálki.
Samanburður á heildar-
verði nær til þeirra 15 teg-
unda sem fengust í öllum
búðunum og eru þær
merktar með punkti í töfl-
unni. Að auki var borið
saman heildarverð á 22 teg-
undum í fjórum búðum.
Þær vörur sem þá bætast
við eru merktar með þrí-
hyrningi.
Lægsta verð er undir-
strikað í töflunni hvort sem
það er á einum eða fleiri
stöðum.
Hveiti
í bakstur og til
• matargerðar.
' 2 kg.
Verðkönnun NAN 5.12. 1984
KEA KEA KEA Matv.mark. KEA KSÞ KEA
Vara Maqn Hagkaup Hrisal. Sunnuhlið Byqqðav. Kaupanqi Brekkuq. Svalb.eyri Grenivil Skýringar
Hveiti Juvel/Finax 2 kg 2 3,80F 30,60 30,60 30,60 — 36,00 30,55 76.00
Hveiti tobin liooil 5 lbs 54,90 1) 71,00 70,90 70,95 -- 83,50 83,05 83,50 1)Pi1lsburv Hos o
• Sykur 2 kg 24,B0 24,80 24,80 24,80 29,50 24,80 33,25 34,60
• Púðursykur dökkur 500 g 11,80 14,40 14,35 14,35 17,10 17,10 17,15 15,90
• Flórsykur 500 g 9,90 12,20 12,15 12,15 17,15 14,30 16,85 14,30
A Kartöflumjöl 500 g 20,60 17,50 17,55 17,45 -- 20,50 45,15 20,50
• Kakó, Flóra 400 g 56,20 58,40 58,40 58,40 76,30 58,40 76,30 58,40
• Lyftiduft Royal 450 g 51 , 50 55,00 54,95 54,05 63,65 64,65 64,70 64,65
• Smjörlíki ód. teg. 500 g 29,90 28,60 28,60 28,60 33,60 38,10 33,60 28,60
• Uökunarsmjör1. ” 500 g 29,90 28,60 28,60 28,60 32,50 38,10 32,50 28,60
• Egg 1 kg 113,00 113,00 113,00 113,00 110,00 132,00 119,00 132,00
• Kókosmjöl ód. teg 5oo g 50,00 56,10 62,25 56,10 64,yo 1) 73,25 88,25 ) 56,10 Umroikn:1)250g 2)200y
Siróp ds. Lyle's 1 kg 89,90 105,90 110,45 1) — 134,90 l) 129,70 ‘127,90 112,50 l)Card'ia 4 50 g
ú Rúsinur ód. teg. 1 kg 69,90 65,00 84,85 72,50 -- 70,70 92,00 84,90 Yfirleitt uppvigtaó
• Kúrennur " 125 g 10,70 15,30 15,30 24,70 1) 24,00 1) 18,00 39,35 2) 18,00 Umreikn: l)100g 2)283g
Döðlur steinl. 250 g 33,80 1) 36,55 — 51,45 2) 77,50 2) — 48,45 54,75 Umreikn: l)500g 2)Ferskar i kæl
• Gráfikjur 250 g 30,60 23,40 26,00 27,60 33,30 36,40 33,50 29,85
á Valhnetukjarnar 50 g 21,90 34,20 40,20 40,20 41,25 40,20 — 27,15 1) DUmreikn. úr lOOg
A Möndluflögur 50 g 18,70 28,70 33,80 33,80 22,95 33,80 31,50 1) -- l)Umreikn. úr 40g
L Hnetuspænir 50 g 16,15 1) 16,80 19,65 19,70 • — • — 27,20 1) 19,70 l)Umreikn. úr 40g
t> Vanilludropar 1 glas 15,50 14,40 16,90 16,90 17,95 16,90 " * 16,90
Engifer,ýmsar teg. 30-50 g 25,85 28,70 — 33,50 33,85 31,00 29,40 25,00
Negull, G.P. plast 'a. 40 g 59,90 50,30 118,70 1) 77,40 78,95 77,40 79,90 2) 77,40 DGevalia gler 2)Rekord
• Kanill, Flóra 50 g 25,80 25,40 25,40 25,40 33,10 25,40 33,10 25,40
• Súkkat ód. teg. 100 g 25,90 31,20 30,90 35,80 45,70 33,70 67,8.0 1) 33,70 DUmreikn. úr 50 g
Súkkulaðidropar Móna 36,70 44,70 — 43,00 43,05 — — 43,00
• Suðusúkkul. Sirius 200 g 53,00 64,00 64,00 1) 68,00 68,00 68,00 1) 60,70 68,00 ljUmreikn. úr lOOg
• Súkkuliki/hjúpur 300 g 37,50 38,25 48,00 1) 45,00 45,15 45,00 49,70 1) 45,00 DUmreikn. úr 500g
Marsipan 200 g 39,90H/K 4 7,80H 6 3,5011 66,60K — — 63,65K —
Sveskjusulta Flóra 500 g 70,00 1) 50,00 52,80 58,65 69,00 69,00 — 52,80
L Kokteilber græn 125 g 36,90 39,20 39,40 46,05 --- 44,15 50,25 44,15
Kokteilber rauð 125 g . 5ð 49,20 -- 57,90 51,60 43,65 — 40,25
Bökunarpappir 4 fermetrar 36,40 67,95 60,75 -- 65,55 60,75 45,30 " Umreikn. veró.
Samanlagt veró á 15 teg: 560,50 588,65 606,70 616,55 693,95 687,20 765,75 653,10
Hlutfallsl. samanburóur
læqsta verð - 100 100,0 105,0 108,2 110,0 123,8 122,6 136,6 116,5
Samanlagt verð á 22 teg: 760,15 804,45 859,05 863,15
Hlutfallsl. samanburður
læqstaverð - 100 100,0 105,8 113,0 113,5
■ Verdmunur á hveiti er mikill eftir tegundum og verslunum:ódýrasta hveitið kostaði 23,80 en það dýrasta 83 50 Það hlvtnr aó
þurfa verulegan niun á gæöum innihaldsins til að vega upp á móti verömuninum. ’ '
Neytenda-
samtökin:
Verðin
sjáist
i auglýs
Vatnsrúm á markaðinn
■ Nú geta aðdáendur vatns-
rúma loksins farið að láta fara
vel um sig. Opnuð hefur verið
sérverslun, Vatnsrúm sf, sem
er til húsa að Skipholti 5, í
Reykjavík.
Vatnsdýnurnar sem verslun-
in býður upp á eru framleiddar
í Bandaríkjunum og Noregi.
Nú er liægt að fá fjórar mis-
munandi tegundir, allt frá ein-
um belg, sem sjálfsagt krefst
sjóhraustra ásofenda, og upp í
dýnur sem eru samsettar úr
níu hólkum.
Dýnur þessar kosta frá 16
upp í 24 þúsund og er þá
hltunarbúnaður, hitastillir,
hlífðarlak og öryggisbúnaöur
innifaíið í verðinu.
Vatnsdýnurnar eru í fæstum
tilvikum hægt að nota í venju-
leg rúm, vegna þess hve þær
eru þykkar, þannig að ef vel á
að vera þarf að kaupa rúm-
stæði með. Auk þess má reikna
með nokkurri rafmagnseyðslu
til vatnshitunar, en vatnið í
dýnunum mun þurfa að vera
um 28-30 gráðu heitt.
Myndin sýnir verslunarstjór-
ann, Guðbrand Jónatansson,
þar senr hann hefur tyllt sér
varlega á einn rúmgaflinn.
ingum
■ Neytendasamtökin beina
þeim tilmælum til seljenda
vöru og þjónustu, að þeir geti
um verð í auglýsingum sínum,
hvenær sem því verður við
komið. Það er ljóst, að auglýs-
ingar eru í reynd „búðar-
gluggi" fyrir stóran hóp neyt-
enda og í raun er það móðgun
við þá, að geta ekki um verð
vörunnar í auglýsingum.
Skortur á slíkum upplýsingum
liefur í för með sér óþarfa
kostnað og fyrirhöfn fyrir
fjölda fólks.
Jafnframt má á það benda,
að með auknu frjálsræði í verð-
lagsmálum er afar mikilvægt
að upplýsingar um vöruverð
séu sem allra mestar. Ljóst er
að verðupplýsingar í auglýs-
ingum eru liður í aukinni sam-
keppni og eykur möguleika á
hagkvæmari innkaupum.
Frá Neytendasaintökunum.
Föstudagur 14. desember 1984 8
Verðkönnun N-A-N: