NT - 14.12.1984, Qupperneq 16
Föstudagur 14. desember 1984 16
Vigfús Kr. Vigfússon, byggingarmeistari, Ólafsvík
■ Vinur minn og samherji,
Vigfús Kr. Vigfússon, bygging-
armeistari í Ólafsvík, á sextugs-
afmæli í dag.
Vigfús hefur með starfi sínu
sem byggingarmeistari og fé-
lagshyggjumaður haft mikil og
heillarík áhrif á uppbyggingu í
sínu byggðarlagi, Ólafsvík, í
rúma þrjá áratugi.
Hin öra framþróun í málefn-
um Ólafsvíkur síðustu áratugi,
sem vakið hafa athygli og blasir
við öllum sem heimsækja
staðinn, er ekki síst að þakka
athafnamönnum á borð við Vig-
fús Kr. Vigfússon sem hafa gert
það að ævistarfi að byggja upp
hús og mannvirki.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra er ég flyt Vigfúsi á
þessum tímamótum í ævi hans
bestu þakkir fyrir farsæl störf
hans á liðnum árum.
Vigfúsi hafa verið falin fjöl-
mörg trúnaðarstörf fyrir byggð-
arlagið. Hann hefur átt sæti í
sveitarstjórn, skipulagsstjórn,
hafnarnefnd, sóknarnefnd og
fleiri opinberum nefndum. Auk
þess verið í kirkjukór Ólafsvík-
urkirkju í áratugi, enda söng-
maður góöur, eins og hann á
kyn til.
Vigfús er fæddur á Hellis-
sandi og ólst þar upp foreldrar
hans voru hjónin Vigfús
Jónsson, smiður og Kristín
Jónsdóttir, heimili þeirra að
„Gimli“, Hellissandi var rómað
fyrir glaðværð og myndarskap.
Systkinahópurinn var stór, 13
talsins. Vigfús átti ekki langt að
sækja áhuga fyrirsmíðum. Fað-
ir hans, Vigfús Jónsson. var
orðlagður í þessari iðngrein.
Eftir smíðanám hjá föður sínum
fluttist Vigfús til Ólafsvíkur.
Eiginkona Vigfúsar er Herdís
Hermundsdóttir í Ólafsvík, og
eiga þau sex uppkomin börn.
Með þessum fáu orðum vilj-
um við hjónin flytja Vigfúsi
okkar bestu hamingjuóskir á
þessum tímamótum um leið og
við þökkum hlýja vináttu og
ánægjulegt samstarf á liðnum
árum. Við sendum fjölskyld-
unni bestu kveðjur.
Alexander Stefánsson
bindið af Dalalífi, hinum sér-
kennilega og skemmtilega
sagnabálki og ættarsögu Guð-
rúnar frá Lundi. Petta síðasta
bindi ber undirtitilinn Laun
syndarinnar.
Dalalíf er fyrsta skáldsaga
Guðrúnar og kom út í 5 bindum
1946-1951 og gerði höfund sinn
strax að mest lesna höfundi
íslendinga.
Þetta þriðja bindi gerist enn á
Nautaflötum og þar í grennd.
„Kynslóðin sem var ung í öðru
bindi eldist og gránar og enn er
ný að taka við. Ástir, gleði og
erfiðleikar. Fram úr sumu er
unnt að ráða, öðru ekki, eins og
gengur í lífinu," segir í umsögn
um bókina á kápu hennar.
Sögusafn
heimilanna:
Græna-
hafseyjan
_C.S.LEWIS_
UÖI5IÐ, MOKmri
ogskApurim
■ Bókin er eftir Victor
Bridges, en ekki er getið um
þýðanda. Þetta er sígild
skemmtisaga en jafnframt
spennandi og viðburðarík.
Eilífur vetur
■ Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér ævintýrabókina
Ljónið, nornin og skápurinn
eftir breska höfundinn heims-
kunna C.S. Lewis. Þýðandi er
Kristín R. Thorlacius, en myndir
eru eftir Pauline Baynes, sem
myndskreytt hefur flestar C.S.
Lewis-bækur hvar sem þær
koma út í heiminum.
Ljónið, nornin og skápurinn
er að sjaffsögðu fyrst og fremst
fyrir börn þó að lesendur á
öllum aldri hafi skemmtun af
að lesa hana. Hún segir frá
töfralandinu Narníu þar §em
alltaf er vetur, því að nornin
sem ræður þar ríkjum vill hafa
það svo. Fjögur Lundúnabörn
koma að undirlagi hennar inn í
þetta land, nornin ætlaði að
hafa gagn af þeim, en það fór
öðruvísi en hún hafði ætlað.
Höfundurinn, C.S. Lewis
(1898-1963) var prófessor í
Cambridge í Englandi. Ævin-
týrabækur hans eru komnar
víðsvegar um heiminn, enda
hefur lionum verið líkt við H.C.
Andersen vegna þess hve snjall
hann er að búa til ævintýralönd.
ALDNIR
HAFA
S:,':OF<>*m|óí!:!
Á4í<>»xs»»k
•'.u»»:pft.« | *íÁ><*»!>
Sjö sögumenn
■ Aldnir hafa orðið kemur út
fyrir þessi jól eins og undanfar-
andi. Peirsemrætterviðíþessu
bindi eru Guöni Ingimarsson,
Jóhannes Jónsson, Jónína
Steinþórsdóttir, Skarphéðinn
Ásgeirsson, Stcinþór Eiríksson,
Sveinn Einarsson og Sæmundur
Stefánsson. Viðmælendur eru í
ólíku umhverfi sprottnir en eiga
það allir sameiginlegt að hafa
nokkrum fróðleik að miðla til
þeirra sem yngri eru.
Skjaldborg:
Háski á
Hveravöllum
- bók um ástir og örlög
blaðakonunnar Mórtu
■ Blaðakonan Marta fer til
Hveravalla að kanna undarleg
afdrif blaðakonunnar Kristínar
og þar bíður hennar margskon-
ar háski, ekki einungis af manna
völdum. Alþingismaðurinn
Friðrik kemur inn í líf hennar
og það er ást við fyrstu sýn.
Einn galli er á gjöf Njarðar,
Friðrik er giftur Maríu sem ekki
er á því að sleppa honum fyrir-
varalaust.
Háski á Hveravöllum er önn-
ur bók Birgittu H. Halldórsdótt-
ur og ætti að vera kjörin lesning
fyrir fjölmiðlafólk og alþingis-
menn yfir hátíðirnar. Pað er
Skjaldborg sem gefur út.
MAH!N0 l. S.G.f'ANSSON
Færeysk
barnabók
■ Skjaldborg gefur út nú fyrir
jólin barnabókina Símon og
Pétur, eftir Færeyinginn Martin
Næs, sem starfar sem bókavörð-
ur á Akureyri, en hefur áður
hlotið barnabókaverðlaun Þórs-
hafnar.
Reykjaforlagið:
Mínir menn
■ Þetta er vertíðarsaga eftir
Stefán Jónsson fyrrverandi al-
þingismann og fréttamann.
Bókin var fyrst gefin út 1962 og
seldist upp á skömmum tíma,
enda frábær lýsing á lífi og starfi
í sjávarplássi skrifuð í þeim
góðglettna dúr sem Stefáni er
lagið, þótt alvara hörkulegra
lífshátta sjómanna gægist
greinilega milli línanna.
í^jpénbi /i;r savkfi
Þriðja og
síðasta bindi
Dalalífs
■ Komið er út hjá Almenna
bókafélaginu þriðja og síðasta
Strákarnir
sem struku
Ævintýri á erlendri grund
■ Strákarnir Halli og Nonni
eru 11 ára og eiga heima á
Sandeyri. Þegar Stapafoss kem-
ur þangað ákveða þeir að
strjúka með skipinu og komast
á erlenda grund, þar sem þeir
lenda í ýmsum ævintýrum og
erfiðleikum.
Höfundur er Marinó L.
Stefánsson sem áður hefur sent
frá sér barnabókina Manni litli
í Sólhlíð. Það er Skjaldborg
sem gefur út Strákarnir sem
struku.
t
Innilegasta þakklæti til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Vigfúsar Guðmundssonar
frá Sell, Ásahrepp.
Sérstakar þakkir til allra í Hátúni 10 A.
Guðmundur Fr. Vigfússon, Klara Andrésdóttir,
Egill G. Vigfússon, Sigríður Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
UMÐOÐSMENN
Akureyri Soffía Ásgeirsdóttir, Háalundi 7, s. 24582
og Halldór Ásgeirsson, Hjarðarlundi 4, s. 22594.
Akranes Elsa Siguröardóttir, Deildartúni 10, s. 93-1602.
Borgarnes Guðný Þorgeirsdóttir, Kveldúlfsgötu 12, s. 93-7226.
Heliissandur Víglundur Höskuldsson, Snæfellsási 15, s. 93-6737.
Rif Snædís Kristinsdóttir, Háarifi 49, s. 93-6629.
Ólafsvík Margrét Skarphéðinsdóttir, Vallarholti 24, s. 93-6306.
Grundarfjörður Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólst.15, s. 93-8669.
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir, Silfurgötu 25, s. 93-8410.
Búðardalur Sólveig Ingvadóttir, Gunnarsbraut 7, s. 93-4142.
Patreksfjörður Ingibjörg Haraldsdóttir, Túngötu 6, s. 94-1353.
Tálknafjörður Níels Ársælsson, Hamraborg, s. 94-2656 (2514).
Bíldudalur Ari Ásgrímsson, Grænabakka 8, s. 94-2124
Flateyri Guörún Kristjánsdóttir, Brimnesvegi 2, s. 94-7673.
Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir, Sætúni 2, s. 94-6170.
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 115, s. 94-7366
Isafjörður Svanfríður G. Bjarnadóttir, Pólsgötu 5, s. 94-3527.
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54, sími 94-8131
Súðavík Heiðar Guðbrandsson, Neðri Grund, s. 94-4954.
Hólmavík Guðbjörg Stefánsdóttir, Bröttugötu 4, s. 95-3149.
Hvammstangi Baldur Jessen, Kirkjuvegi, s. 95-1368.
Blönduós Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, s. 95-4581.
Skagaströnd Ingibjörg Skúladóttir, s. 95-4885.
Sauðárkrökur Guttormur Óskarsson, Skaf.braut 25, s. 95-5200.
Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir, Aðalgötu 21, s. 96-71208.
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, s. 96-62308.
Dalvík Brynjar Friðleifsson, Ásvegi 9, s. 96-61214.
Grenivík Ómar Þór Júlíusson, Túngötu 16, s. 96-33142.
Húsavík Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, s. 96-41765.
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson, Austun/egi 1, s. 96-81157.
Kópasker Þórhalla Baldvinsdóttir, Akurgerði 7, s. 96-52151.
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason, Sólvöllum, s. 96-51258.
Reynihlíð Þuríður Snæbjarnardóttir, Skútahrauni 13, s. 96-44173
Breiðdalsvík Jóhanna Guðmundsdóttir, Selnesi 36, s. 96-5688.
Borgarfjörður eystri Hallgrimur Vigfússon, Vinaminni, s. 97-2936.
Vopnafjörður Jóhanna Aðalsteinsdóttir, s. 97-3251.
Egilsstaðir Páll Pétursson, Árskógum 13, s. 97-1350.
Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson, Oddagötu 4, s. 97-2360.
Neskaupstaður Marin Árnadóttir, Víðimýri 18, s. 97-7523.
Eskifjörður Rannveig Jónsdóttir, s. 6382.
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson, Heiðavegi 12, s. 97-4119.
Fáskrúðsfjörður Sonja Andrésdóttir, Þingholti, s. 97-5148.
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon, Undralandi, s. 97-5839.
Djúpivogur Rúnar Sigurðsson, Garði, s. 97-8820.
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir, Smárabraut 13, s. 97-8255
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir, Sólheimum, s. 99-8172.
Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Geitasandi 3, s. 99-5904
Selfoss Helga Snorradóttir, Tryggvavegi 5, s. 99-1658.
Stokkseyri Sturla G. Pálsson, s. 99-3274.
Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsd, Hvammi, s. 99-3402.
Þorlákshöfn Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4, s. 99-3924.
Hveragerði Sigríður Ósk Einarsdóttir, Heiðabrún 46, s. 99-4665
Vík Guörún Árnadóttir, Mánabraut 14, s. 99-7233.
Vestmannaeyjar Ingveldur Gisladóttir, Bröttugötu 26, s. 98-2270.
Gindavík Sólveig Valdimarsdóttir, Efstahvammi 17, s. 92-8583.
Garður Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6, s. 92-7058.
Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir, Suðurgötu 18, s. 92-7455.
Keflavík Eygló Kristjánsdóttir, Dvergasteini, s. 92-1458.
Ytri Njarðvík Esther Guðlaugsdóttir, Hólagötu 25, s. 92-3299.
Innri Njarðvík Guðríður Árnadóttir, Kópabraut 16, s. 92-6074.
Hafnaiijörður María Sigþórsdóttir, Austurgötu 29, B, S. 54476.
Garðabær Sigrún Kristmannsdóttir, Hofslundi 4, s. 43956.
Mosfellssveit Jónína Ármannsdóttir, Arnartanga 57, 666481
GERIST
ÁSKRIFENDUR
HJÁ NÆSTA
i inirQÐSMI ANNI