NT - 10.01.1985, Síða 9
Hvers eigum við að gjalda?
Erum nærri þrisvar sinn-
um lengur að vinna fyrir
matnum en Hollendingar
nfltM
■ Það tekur okkur íslend-
inga nærri þrisvar sinnum
lengri tíma að vinna fyrir matn-
um ofan í okkur. heldur en
Hollendinga. Ástæðurnar fyrir
þessu eru fyrst og fremst tvær;
maturinn er ódýrari í Hollandi
og kaupið hærra.
Sænska vikublaðið Land
birti fyrir nokkru niðurstöður
árlegrar verðkönnunar sinnar
í átta Evrópulöndum. Verðið
er kannað á Norðurlöndunum
nema íslandi og auk þess í
V-Þýskalandi, Hollandi,
Frakklandi og Englandi. Þegar
niðurstöður eru fengnar úr
þessari verðkönnun, er reikn-
að út með sérstakri aðferð,
hversu langan tíma það taki
iðnverkamenn í þessunr lönd-
um að vinna fyrir matarpakk-
anum í verðkönnuninni.
Maturinn dýrastur
í Noregi
I verðkönnuninni eru fimm-
tán tegundir algengrar mat-
vöru og reyndist heildarverðið
að þessu sinni hæst í Noregi
eða samtals nærri 2400 krónur
(ísl). Þetta verð er næstum því
tvöfalt hærra en greiða þarf
fyrir sömu matvæli í Englandi
þar sem verðið var lægst. í
Englandi kostaði matarpakk-
inn aðeins rúmar 1200 kr.
Verðmunur milli þessara
landa var í sumum tilvikum
gríðarmikill og má nefna sem
dæmi að nautavöðvi sem kost-
ar 196 kr. í Englandi, er talinn
virði 658 króna í Noregi.
Dýrt á íslandi
Til samanburðar við sænsku
könnunina, var verð athugað á
þessum fimmtán vörutegund-
um hjá dæmigerðri verslun í
Reykjavík. Þegar farið var að
leggja saman kom í ljós að
matvælapakkinn kostar hér ríf-
lega 2300 kr. og ísland lendir
þannig í öðru sæti næst á eftir
Noregi hvað dýrleika snertir.
Nokkrar vörutegundir eru
dýrastar hér og getur það í
sumum tilvikum munað all-
miklu. Þannigersmjörmiklum
rnun dýrara hér en annars
staðar, nærri þriðjungi dýrara
en í Finnlandi og þrisvar sinn-
um dýrara en í Englandi.
Mjólk og ostur kosta líka
meira hérlendis, þótt þar muni
ekki eins miklu. Sömu sögu er
að segja af svínakótelettum.
Aftur á móti njótum við
íslendingar betri kjara en aðrir
þegar við kaupum okkur kaffi
og sykur og munar það miklu,
einkum á sykri.
Ekki batnar það...
Það má segja að ástandið
væri út af fyrir sig nógu slæmt
fyrir okkur lslendinga eins og
því hefur verið lýst hér að
framan en heldur syrtir þó í
álinn þegar farið er að bera
saman tímann sem það tekur
fólk í þessum löndurn að vinna
fyrir matarpakkanum. Við ís-
lendingar erum sem sé nærri
þrisvar sinnum lengur að því
en Hollendingar, sem eru
fljótastir og meira en þremur
stundum lengur en Finnar sem
að okkur fráteknum eiga erfið-
astan vinnudag í þessu sam-
hengi.
Ef allir hefja vinnu kl. átta
að morgni dags, þá eru Hol-
lendingar búnir að rubba verk-
inu af skömmu fyrir kl. 12 á
hádegi og geta farið að næra
sig á innihaldi matarpakkans.
Þjóðverjar þurfa að halda sér
við efnið nærri klukkutíma til
viðbótar en geta farið í mat kl.
korter fyrir eitt. Englendingar,
Frakkar, Svíarog Danirhverfa
allir úr vinnunni milli eitt og
tvö, Norðmennirnir leggja frá
sér verkfærin kl. 20 mínútur
yfir tvö en Finnarnir púla
áfram til sjö mínútur yfir þrjú.
Þá hætta þeir líka og skilja
okkur íslendingana eina eftir.
Og svitinn heldur áfram að
boga af okkur allt þangað til
klukkuna vantar korter í sjö
um kvöldið, þá fyrst getum við
sest að snæðingi enda trúlega
orðnir vel soltnir um það leyti.
Reikningsaðferðin
Það er auðvitað erfitt að
gera sanngjarnan samanburð
af þessu tagi og trúlega verður
seint fundin óumdeilanleg að-
ferð til þess. Hér skal ekki
lagður neinn dómur á réttmæti
þeirrar aðferðar sem Land hef-
ur valið, en hún er í stuttu máli
fólgin í því að deilt er í heildar-
verð matarpakkans með tíma-
kaupi iðnverkamanns í við-
komandi landi að viðbættum
launatengdum gjöldum.
Land rökstyður þessa reikn-
ingsaðferð með því að hin
launatengdu gjöld komi að
lokum þjóðfélagsþegnunum til
góða á sama hátt og aðrir
skattar. Það væri auk heldur of
flókið að reikna út skattbyrði
meðaliðnverkamanna í hinum
ýmsu löndum.
Samanburðurinn við ísland
er gerður með svipuðum hætti.
Meðaltímakaup íslensks iðn-
aðarmanns er tekið úr nýjasta
fréttabréfi kjararannsóknar-
nefndar og við það bætt nýj-
ustu launahækkunum og
launatengdum gjöldum
samkv. Hagtölum iðnaðarins
1985.
Útkoman varð sú sem að
ofan greinir. Eftir stendur þá
aðeins að fórna höndum og
spyrja: hvers eigum við að
gjalda?
■ Hér má sjá verð einstakra matvörutegunda í könnuninni, allt umreiknað í íslenskar
krónur. Heildarverð innkaupakörfunnar er hæst í Noregi en lægst í Englandi. Næstdýrust
er innkaupakarfan á íslandi og munar ekki miklu á verði hennar hér og í Noregi. Við
íslendingar njótum þó góðra kjara við kaup á kaffi og sykri, enda eins gott, þvílíkir
kaffisvelgir sem við erum og svo gott sem þykir að brúka sykur út í.
2. V-Þýskaland
4 klst 44 mín.
3. England
5 klst 15mín.
4. Frakkland
5 klst 24 mín.
5. Svíþjóð
5 klst 40 mín.
6. Danmörk
5 klst 45 mín.
7. Noregur
6 klst 20 mín.
8. Finnland
7 klst 7 mín.
9. ísland 10 klst 44 mín.