NT - 08.02.1985, Qupperneq 1
Háskólinn Yngsti Ítalía:
með útvarps- ! bæjarstjóri Fjölbýlishús
rekstur? á landinu hrundi-18dóu
-sjá bls. 2 -sjá bls.4 -sjá bls. 21
Nesjavellir:
430 milljónir til rann-
sókna á kjörtímabilinu
■ Rannsóknir og framkvæmd-
ir vegna byggingar hitaveitu á
Nesjavöilum hafa kostað
Reykjavíkurborg 207 milljónir
fram að síðustu áramótum og á
þessu ári er áætlað að verja 220
milljónum í rannsóknir. Það
hefur því verið veitt um 430
milljónum króna í Nesjavelli án
þess að úrskurðað hafí verið
hvort hagkvæmt er að virkja.
Þetta kom fram í máli Sigur-
jóns Péturssonar. fulltrúa Al-
þýðubandalagsins á borgar-
stjórnarfundi í gær. Hann sagð-
ist vona að í Ijós kæmi að
hagkvæmt væri að virkja, því
annars hefði þessum peningum
verið kastað á glæ. Benti hann
á, að á Nesjavöllum væri nú
verið að bora vinnsluholur, en
ekki tilraunaholur. Fór hann
fram á, að mál þessi yrðu tekin
til meðferðar í borgarstjórn á
næstunni og ákvarðanir teknar.
Sigurjón benti á í ræðu sinni,
að á kjörtímabili núverandi
meirihluta hefðu taxtar Hita-
veitu Reykjavíkur hækkað um
355% á meðan laun hefðu aö-
eins hækkað um 135%.
Efnahagstillögur ríkis-
stjórnarinnar að fæðast
Borgarstjórn:
Loka-
umræða
fjárhags-
áætlunar
■ Meðal breytingartil-
lagna borgarstjórnar-
meirihlutans, á fundi
borgarstjórnar í gær-
kvöld þar sem fjárhags-
áætlun borgarinnar var
til seinni uinræðu, var 10
niilljón króna fjárvciting
til undirbúnings 200 ára
afmælishátíðar borgar-
innar 1986. Þá var gert
ráö fyrir 12,5 milljón
króna hækkun á frainlagi
Hústrygginga Reykjavík-
ur, til brunavarna.
Miklar umræður urðu
á fundi borgarstjórnar.
Er NT fór í prentun var
atkvæðagreiðsla á endan-
lega fjárhagsáætlun borg-
arinnar ekki lokið, én
líkiegt þótti aö upphaf-
legt frumvarp yrði sam-
þykkt meö breytingartil-
lögum meirihlutans.
Framlaginu til afmælis-
hátíðarinnar verður var-
ið til þróunar- og skipu-
lagssýningar, hreinsunar-
átaks í borginni og til
hönnunar á afntælis-
merki borgarinnar.
- jafnvel kynntar í dag
■ Fjögurra ntanna nefnd stjórnarflokkanna vinnurnú
að því að leggja síðustu hönd á frumvarp um byggðastofn-
un, sem komi í stað Byggðasjóðs. Reiknað er með að
frumvarpið verði lagt fram innan skamms. Byggðastofnun
verður ætlað að einbeita sér að raunhæfum byggðaverk-
efnum, en vera ekki lánasjóður til atvinnulífs í öllum
byggðalögum eins og Byggðasjóður er nú.
bá eru í vinnslu tillögur um
að steypa saman sjóðum í sjáv-
arútvegi.
Ráðherranefnd stjórnar-
flokkanna fundaði í gær um
efnahagstillögur ríkisstjórnar-
innar og er jafnvel búist við að
þær verði gerðar heyrum kunn-
ar í dag. Sjálfstæðismenn sam-
þykktu tillögurnar með nokkr-
um skilyrðum í fyrrakvöld, en
áður hafði Steingrímur fengið
fullt umboð frá þingflokki
Framsóknarflokksins. Efna-
hagstillögurnar eru ekki sam-
felldur lagabálkur heldur snúast
þær einkum um að nýta þær
lagaheimildir og þau stjórntæki
sem þegar eru fyrir hendi. Gert
er ráð fyrir breytingu á vægi
ýmissa sk’atta og stórhert eftiríit
með skattsvikum. auknum
sparnaði og aðhaldi í ríkiskerf-
inu og í þeim felast hugmyndir
í kjaramálum sem ræddar verða
við samtök aðila vinnumarkað-
arins. Þá felast í tillögunum
hugmyndir til lausnar vanda
þeirra sem eru að drukkna í
húsbyggingarskuldum t.d. að
taka fé af nýbyggingariánum til
endurlána til þeirra og lengingu
lána. Pá er gert ráð fyrir því að
í samráði við bankakerfið verði
vísitölubindingu aflétt af
lánum til skemmri tíma.
Það er einkenni á þessunr
tillögum í efnahagsmálum að
línur eru lagðar en breytingar
felast lítt í lagaboðum, eins og
var t.d. í maí 1983 er stjórnin
var nýtekin viö.
■ Sveinn Björnsson listmálari lætur ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar né aðra veraldlega atburði raska stóískri
ró sinni. Sveinn sýnir nú málverk í vestursal Kjarvalsstaða og stendur sýning hans til 17. febrúar. M-mynd: au
Hveragerdi:
Brotist
inn í Kaup-
félagið
■ Brotist var inn í Kaup-
félagsútibú KÁ í Hvera-
gerði aðfaranótt mið-
vikudags og þaðan stolið
um KKlkartonumafvindl-
ingum og einhverju magni
vindla. Að sögn Selfoss-
lögreglu var plokkaður
upp hleri í hurðaropi á
húsinu bakatil og farið þar
inn. Ekki er talið að neinu
fleiru hafi verið stolið en
málið er óupplýst.
BÚR skuldar milljarð:
ÚTSALA Á TOGARA
- segja fulltrúar minnihlutans um söluna á Ingólfi Arnarsyni
■ Útsala á togara, sögðu fulltrúar minnihlutans í snörp-
um umræðum á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær,
þegar meirihlutinn samþykkti sölu á togaranum Ingólfi
Arnarsyni. Söluverðið er 77 milljónir króna, en minni-
hlutamenn bentu á, að tryggingarupphæð togarans væri
81,2 milljónir.
Fulltrúar meirihlutans sögðu,
að sala Ingólfs Arnarsonar væri
liður í að styrkja stöðu BÚR, en
í máli borgarstjóra kom fram.
að skuldir fyrirtækisins eru nú
einn milljarður.
Það kom fram hjá fulltrúum
minnihlutans, að þeir telja
ólýðræðislega að sölunni staðið,
þar sem þeir hefðu ekki fengið
að vita um hana fyrr en samn-
ingur þar um hafði verið gerður,
og skipið ekki auglýst til sölu.
Þá fullyrtu þcir, að sala togarans
myndi leiða til samdráttar í
vinnú landverkafólks vegna
skerðingar á aflakvóta.
Borgarstjóri sagði, að ekki
stæði til að selja fleiri togara
BÚR og fyrirtækið gæti staðið
undir eðlilegri vinnu með sjó-
sókn fjögurra togara.
Bjórinn gæti skiiað um milljarð í kassann
-sjábls.3
Oxnadalsheiði:
Stór bíll
veltur
■ Dráttarbíli með tengi-
vagni vait á Öxnadalsheiði
í gærdag. Engin slys urðu
á ökumanni sem var einn
á ferð en talsveröar
skemmdir urðu á bílnum.
Skýrsla hafði enn ekki
borist um atburðinn í gær-
kvöldi cn að sögn Akur-
eyrarlögreglu er talið aö
ökumaöurinn liafi þurft aö
fara út úr bifreiðinni vegna
bilunar og hann þá rúllað
af stað með fyrrgreindum
afleiðingum. Mjög bratt
er þar sem atburðurinn
átti sér stað og hátt niður
af vegkanti.