NT - 08.02.1985, Síða 5
Föstudagur 8. febrúar 1985
Fisk
eldi:
Bændur í Kelduhverfi
eignast hlut í Isnó
■ Fimm bændur í Keldu-
hverfi, sem eru aðilar að veiðifé-
lagi Lóna, hafa nú eignast 5%
af hlutafé íslensk-norska laxeld-
isfyrirtækisins ísnó, sem hefur
starfað þar nyrðra undanfarin
ár. Ákvörðun um þetta var
tekin á fundi fyrirtækisins, sem
haldinn var í Bergen í Noregi í
lok síðustu viku.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
stjórnarformaður fsnó, sagði í
samtali við NT. að þetta hefði
verið gert vegna þess, að bæði
fyrirtækið og bændur vildu hafa
gott samstarf sín í milli. Sagði
hann. að norsku meðeigendurn-
ir væru rnjög ánægðir yfir að fá
bændurna inn í fyrirtækið.
Aðspurður sagði Eyjólfur
Konráð, að á þessu stigi yrði
ekki fleiri bændum í sveitinni
veitt aðild að fyrirtækinu, þar
sem ekki væru fleiri í veiðifcMag-
inu. Hins vegar hefðu íbúar
sveitarinnar forgang að vinnu
við laxeldisstöðina.
Fyrirtækið hefur ákveðið að
efla starfsemi sína í Lónum í
Kelduhverfi og fyrsta skrefið
verður að auka framleiðsluna
úr tæpum hundrað tonnum í
fyrra í þrjú hundruð tonn á
þessu ári. Fundurinn í Bergen
frestaði aftur á móti að taka
ákvörðun urn byggingu 5 mill-
jóna seiða eldisstöðvar við Kistu
á Reykjanesi.
Sjúkrahússtarfsfólk
á Norðurlandi:
Semur um
29% kaup-
hækkun
Um 5-6% umfram
ASÍ-samninga vegna
samræmingar við BSRB
Frá frcttaritara NT í Skagafirði, Ö.Þ.:
■ Samningar hafa tekist
í kjaradeilu ófaglærðs
starfsfólks í sjúkrahúsum
norðvestanlands og vinnu-
veitenda þeirra. Mið var
tekið af samningum ASÍ í
haust, en kauphækkun til
sjúkrahúsfólksins verður
sennilega um 5-6% meiri.
Gildistími samningsins er
frá 1. jan. til 31. des. 1985.
„Mér virðist að hcildar-
prósentuhækkunin á
samningstímanum muni
verða um 29%,“ sagði Jón
Sigurbjörnsson,
framkvstj. Sjúkrahúss
Siglufjarðar. „I síðustu
samningum þessara aðila
var ákvæði urn að sam-
ræma skyldi laun þessa
starfsfólks við launaflokka
BSRB og af þeirri ástæðu
fá starfsmenn þessir held-
ur meiri hækkun en urðu í
almennu kjarasamningun-
um í haust. Kauphækkun
í þessum samningi er
nokkru minni en í samn-
ingum sem gerðir voru við
ófaglært starfsfólk á Húsa-
vík. en hins vegar nokkru
hærri en gildandi samning-
ur á Akureyri," sagði Jón.
Umræddur samningur
gildir fyrir starfsfólk
sjúkrahúsa á: Hvamms-
tanga, Blönduósi, Sauðár-
króki og Siglufirði. Hann
var undirritaður með
venjulegum fyrirvara um
samþykki starfsmannafé-
laganna og stjórna sjúkra-
húsanna.
Athuga-
semdvegna
forsíðu-
fréttar NT
■ „Réttindalausir kenn-
arar eru tvenns konar, þeir
sem ekki hafa lokið próf-
um í uppeldis- og kennslu-
fræði en hafa lokið viður-
kenndu háskólaprófi og
hinir, sem hvorugu hafa
lokið. Aðeins síðartaldi
hópurinn missir starfsald-
ur verði fallist á kröfugerð
BHM fyrir kjaradómi,"
sagði Kristján Thorlacius
formaður HÍK í gær.
Hann sagðist vilja árétta
þetta vegna fréttar á for-
síðu NT í gær um kröfu-
gerð BHM.
Hann ítrekaði að vanda
þeirra sem kenna en hafa
ekki lokið háskólaprófi
yrði að leysa þegar kæmi
að sérkjarasamningum
I fyrir kennara. Hann Sagði
| engin lífeyrisréttindi
myndu skerðast þótt fallist
ði á kröfugerðina.
Unnið að björgun bátsins, sem sökk á dögunum, í höfninni á Skagaströnd • NT-mynd: Magnús
■ Logi Sigurfinnsson formaður nemendafélagsins afhendir Davíð Oddssyni mót-
inxlaskjalið. Á bak við Loga er Vignir Sigurðsson en á milli er Árni Njálsson
íþróttakennari.
Nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti mótmæla:
Vilja íþróttahúsnæði strax!
Hlupu með mótmælaskjal á fund borgarstjóra
■ Nemendur Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti
hlupu boðhlaup frá
■ Félagsmálaráðherra
hefur skipað sjö ntanna
nefnd til þess að endur-
skoða gildandi lög um
tekjustofna sveitarfélaga.
Nefndina skipa Björn
Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjöri, Elsa Krist-
jánsdóttir, oddviti. Jón
skólanum í fyrradag að
skrifstofu borgarstjóra í
Austurstræti þar sem hon-
Gauti Jónsson, bæjar-
stjóri, Jón Kristjánsson
alþnt.. Magnús E. Guð-
jónsson. frkvstj., Ævar
ísberg, vararíkisskatt-
stjóri og Húnbogi Por-
steinsson, deildarstjóri.
sem jafnframt er formaður
nefndarinnar.
unt var afhentur undir-
skriftalisti þar sent nem-
endur krefjast þess að
hafin verði bygging íþrótta-
húss við skólann.
Mun borgarstjóri hafa
lofað því við síöustu kosn-
ingar að næsta íþróttahús
ætti að rísa við Fjölbrauta-
skólann í Breiöholti en
ekki er ætlað neitt fjár-
magn til þeirra fram-
kvæmda á fjárhagsáætlun
þessa árs.
2000 nemendur FB búa
nú við vægast sagt slæma
aðstöðu hvað leikfimiiðkun
varðar og vilja þeir fá úr-
bætur strax í þeim málum.
Tekjustofnar sveitar-
félaganna endurskoðaðir
VIÐ RÝMUM
VEGNA FLUTNINGA
m
TEPPABÚDIN
SlÐUMÚLA 31