NT - 08.02.1985, Page 23
■ Guðmundur Guðmundsson Víkingur hefur hér sloppið laus og það var ekki að sökum að spyrja,
mark. NT-mynd Árni Bj.
Föstudagur 8. febrúar 1985 23
íþrottir
Handknattleikur, 1. deild:
Vantaði herslumun
- hjá Stjörnunni gegn Víkingi í gær - 20-24
■ Stjörnumenn vantaði ætíð
herslumuninn til að ná undir-
tökum gegn Víkingum, er liðin
mættust í 1. deildarkeppninni í
handknattleik í Digranesi í
gær. Eftir að hafa verið undir
allan tímann minnkuðu Garð-
bæingar muninn í eitt mark,
fyrst þegar 5 mín. voru eftir, og
aftur þegar 3 mín. voru til
leiksloka. En þá vantaði herslu-
muninn, liðið lék ekki
skynsamlega og Víkingar
stungu af á lokamínútunum,
ntéð skynsamlegunt leik og
miklum dugnaði. Lokatölur
urðu 24-20, eftir að staðan var
13-9 í hálfleik.
Raunar voru Víkingar búnir
að ná fjögurra marka forystu
strax eftir 9 mínútna leik, 6-2.
Stjörnumenn jöfnuðu, 6-6, um
leið og Víkingar slökuðu á, en
komust þó aldrei yfir. Víkingar
höfðu yfir 13-9 í hálfleik. Þeir
voru að mestu drifnir áfram af
stórleik Kristjáns Sigmunds-
sonar í ntarkinu, sem varði
hvert dauðafærið af öðru, alls 8
skot af línu í fyrri hálfleik.
Víkingar bættu við í fyrri
hluta síðari hálfleiks náðu mest
6 marka forystu, 17-11. En á
meðan Víkingarskoruðu næstu
tvö ntörk sín skoruðu Stjörnu-
menn sex, og minnkuðu svo
ntuninn enn, í 19-20. En alveg
eins og tveimur mínútum síðar,
er staðan var 20-21, misstu
Stjörnumenn mann útaf á
klaufalegan hátt. Að auki voru
Garðbæingar á þessunt tíma
seinheppnii meðdómgæslu. En
Víkingar héldu haus, og það
borgaði sig.
Auk jafnrar og mjög góðrar
ntarkvörslu allan tímann hjá
Kristjáni, var stórleikur Stein-
ars Birgissonar í síðari hálfleik
lykillinn að sigrinum. Hann
reif sig lausan og skoraði æ
ofan í æ, en Þorbergur og
Viggó voru teknir úr umferð.,
Þá lék Viggó mjög vel, og
liðsheildin vel lengst af hjá
liðinu.
Mörkin: Víkingur: Steinar 6, l*orberj>ur
5/2, Viggó 4/2, Hilmar 3, Einar 3, Karl 2,
Cuðmundur fvrirliöi 1.
Stjarnan: Sigurjón 7, Eyjólfur I og Guð-
mundur l'óröar 1/1. Kristján varöi 21 skot,
þar af 1 víti í marki Víkings, en Brynjar
Kvaran varöi 12 skot, þar af 2 víti í marki
Stjörnunnar. Óli Olsen og Rögnvaldur Erl-
ingsson dæmdu þokkalega vel.
Skíðamót
■ Á morgun fer fram i Bláfjöllum
fyrsta punktamót vetrarins i alpagrein-
um skídaíþrótta. Mót þetta átti að vera
á Húsavík um siðustu helgi en ekki var
fært. SkidadeUd Ármanns og brauð-
gerðin Myllan munu standa ad þessu
móti sera nefnist Myllumótid. Keppt
verdur í stórsvigi og svigi. Stórsvigið
verdur á laugardag og hefst kl. 10:30 en
svigid byrjar á sama tima á sunnudag-
inn.
Nær allt okkar besta skidafólk verdur
meðal þátttakenda og örugglega hart
barist. Myllan veitir öll verðlaun i mót-
inu.
Handknattleikur 1. deild:
Var naumt en þó létt
- er Valur vann Blika - KR og Þróttur gerðu jafnt í baráttuleik
■ Tveir leikir fóru fram í Höllinni í
gærkvöldi í 1. deild karla í handknatt-
leik. Valur spilaði fyrst við neðsta
liðið í deildinni, UBK, og sigraði
auðveldlega, 24-21. Síðan léku Þróttur
og KR og endaði sá leikur með
jafntefli, 25-25.
Leikur Vals og UBK var aldrei jafn
nema fram að 3-3, þá sögðu Valsarar
bæ, bæ og rúlluðu Blikunum upp fram
að hléi og höfðu þá yfir 14-8.
Upphaf síðari hálfleiks var enn
ójafnaraog gerðu Valsmenn 8 mörk á
móti 2 á fyrstu 15 mínútum hálfleiks-
ins, staðan orðin 22-10. Þegar hér var
komið sögu þá skiptu Valsarar
öllum skiptimönnum sínum inná og
það notfærðu Blikar sér með því að
síga hægt og bítandi á og leiknum lauk
síðan 24-21, naumt hjá Val en aldrei í
hættu.
Mörk Vals gerðu Júlíus og Valdimar
6 hvor, Geir 4, Jakob 3, Steindór 2 og
þeir Þorbjörn Jensson, Þorbjörn
Guðm., og Ingvar Guðm. eitt mark
hver. Fyrir Blikana skoraði Kristján
Halldórsson og Jón Þór 5 hvor, Krist-
ján Gunnarsson 4, Björn og Einar
Magnússon 2 hvor og eitt mark gerðu
Aðalsteinn Jónsson, Brynjar og
Magnús.
Ekki má gleyma leik Einars Þor-
varðarsonar, sem varði 19 skot, þar af
4 víti. Frábær markvarsla og samt
spilaði hann ekki síðustu 10 mínútu
leiksins.
Leikur KR og Þróttar var hnífjafn
allan tímann, KR-ingar höfðu frum-
kvæðið allan fyrri hálfleik en Þróttarar
jöfnuðu rétt fyrir hlé og staðan 13-13
í leikhléinu.
Þróttarar komu síðan grimmir til
seinni hálfleiks og komust fljótlega
yfir, 17-16. Þá var Hauki Geirmunds-
syni vísað af velli, fékk rautt spjald og
tók ekki meira þátt í þessum leik.
Þróttarar gengu á lagið og komust í
18-16. Páll Björgvinsson og Haukur
Ottesen héldu þó í við Þróttara og
hleyptu þeim aldrei langt fram úr.
Þegar um tvær mínútur voru til loka
leiksins þá komast Þróttarar í 24-23 en
Ólafur Lár. jafnar með snjöllu undir-
handarskoti, 24-24. Lárus kemur
Þrótturum aftur yfir en á síðustu
mínútu jafnar Pétur Árnason fyrir KR
úr hraðupphlaupi. Tíminn sem eftir
var var of naumur fyrir Þróttara til að
vinna sigur.
Mörkin: Þróttur: Gísli, Páll og Lár-
us 5 hver, Birgir 7, Sverrir 2 og
Nikulás 1. KR: Jakob og Páll 6 hvor,
Haukur Ott 4, Ólafur og Haukur
Geirmundsson 3 hvor, Pétur Árna 2
ogJóhannesl mark.
íkvöld
■ I kvöld veröur einn leikur í 1.
deild karla á íslandsmótinu í hand-
knattleik. Þór og FH eigast viö í
Eyjum og hefst leikurinn kl. 20:00.
■ Einn leikur verður í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik í kvöld.
íslandsmeistarar Njarðvíkur fá
neðsta liðið í deildinni, ÍS, í heim-
sókn til Njarðvíkur.
■ Þá verða þrír leikir í blakinu í
kvöld. Allir verða þeir í Digranesi.
Fyrst leika HK og Þróttur í 1.
deild karla en síðan keppa HK 2
og HSK í 2. deild karla. Loks
mætast UBK og KA í 1. deild
kvenna. Fyrsti leikurinn hefst kl.
20:00 en hinir báðir kl. 21:30.
■ V-Þjóðverjinn Markus Wasmaier sigraði í stórsvigi á heimsmeistaramótinu í Bormio í gær. Hann varð á undan Zúrbriggen,
sem varð annar og Girardelli, sem varð þriðji. Hér er Wasmaier á fullri ferð. símamynd-POtFOTO
Krem og lotíon
taktu bestu kosti hvors um sig
og þá hefurdu: CREMEDAS
Jafnvel bestu lotion og bestu
hörundskrem hafa ekki eiginleika
Cremedas.
Cremedas er nefnilega „bœði-og”:
hörundskrem og bodylotion í
einu.
1 Cremedas hefur mýkjandi,
nœrandi og verndandi eiginleika
kremsins. Þá eiginleika, sem halda húðinni mjúkri og þjálU.
Cremedas er ekki feitt eins og krem og leggst þess vegna
ekki í lag utan á húðinni.
2 Cremedas er þægilegt í notkun. Það er auðvelt að bera á
sig og það hverfur fljótt inn í húðina, eins og lotion. Þaö
gefur húðinniþann raka, sem hún þarfnast til að sporna við
þurrki, ertingu og sárindum. Hin góðu áhrif haldast lengur
en af venjulegu lotion.
r og verndar eins og krem,
smýgur fljótt inn í húðina, eins og lotion.
JOPCO h.f. Vatnagörðum 14, simi39130