NT - 27.02.1985, Page 21
Útlönd
Miðvikudagur 27. f ebrúar 1985 21
■ Vörn Arne Treholts þykir
mjög ítarleg enda segist hann
nú vera aö berjast fyrir lífi sínu.
Vínfundir EBE-ráðherra:
Ghana:
Eldar eyða
uppskeru
Abidjan-Reuler
■ Að minnsta kosti
1.500 manns hafa misst
heimili sín í miklum kjarr-
eldum sem geisað hafa í
miðhéruðum Ghana sam-
kvæmt frétt í opinberu
nrálgagni stjórnarinnar í
Ghana.
Samkvæmt blaðinu hafa
eldarnir líka eyðilagt hrís-
og maísuppskeru bænda á
þessu svæði auk þess sem
fjöidi kvikfénaðar hefur
farist í eldununr. A.m.k.
fjórir menn fórust í eldun-
um.
Guðaveigar
vandamál
Brussel-Reuter:
■ Landbúnaðarráðherrar
hinna 10 aðildarlanda Efna-
Niðurgreidd-
ir klossar
Brusscl-Reutcr:
■ Stjórn Efnahags-
bandalags Evrópu hefur
ákveðið að rannsaka ásak-
anir uni að Svíar greiði
niður klossa eða tréskó
sem séu seldir í samkeppni
við hollenska og danska
klossa.
Hollenskir og danskir
klossaframleiðendur
kvarta mjög yfir miklum
innflutningi á sænskum
klossum sem séu seldir á
miklu lægra verði en sem
svari framleiðslukostnaði.
EBE hefur nú orðið við
beiðni klossaframleiðend-
anna og aðstoðar þá við
að standast innrás sænsku
klossanna.
hagsbandalags Evrópu funda nú
stíft og eru taldir nálgast sam-
komulag um leiðir til þess að
losna við einhvern hluta vínsins
í „vín-halinu" mikla.
Ráðherrarnir sitja nú á nætur-
löngum fundum urn þetta mál
og voru bjartsýnir á það í gær að
þeim tækist að komast að niður-
stöðu. Vonuðust þeir til þess að
geta hafið umræður um það í
dag hvernig halda megi mjólk-
urframleiðslunni í skefjum.
Umsjón: Ragnar Baldursson og ívar Jónsson
Arne Treholt:
Vildi auka skilning milli
Austur- og Vesturveldanna
hafa setið slíka fundi 59 sinnum
og kallað þá „vinnufundi yfir
miðdegisverði".
Treholt neitar því algjörlega
að skjölin, sem fundust á heimili
hans, hafi verið leyniskjöl.
Hann segir að aðeins örfá af
þeim 833 vélrituðu skjölum sem
fundust heima hjá honurn hafi
haft að geyma leynilegar upplýs-
ingar. Hann sagði líka af og frá
að hann ætti barn með tékk-
neskri konu eins og haldið hefur
verið fram.
í varnarræöu sinni gagnrý tdi
Treholt Lars Qvikstad, fulltrúa
ríkissaksóknara sérstaklega fyr-
ir að rifja upp ummæli sín 15
mínútum eftir að hann var
handtekinn. Treholt dró síðar
allt, sem hann sagði þá tilbaka í
október á síðasta ári. Qvikstad
heldur því frant að Treholt liafi
aðeins dregið fyrri framburð
sinn til baka þar sem hann hafi'
talið hann hættulegan sjálfum
sér. Treholt segir hins vegar að
þær játningar, sem lögreglan
hafi fengið sig til að gera fyrst
eftir að hann var handtekinn,
hafi verið knúnar franr nreð
þrýstingi.
Vestrænir sendifulltrúar í
Osló hafa lýst furðu yfir þvf
hvað Treholt er ásakaður fyrir
miklar og alvarlegar njósnir og
telja jafnvel að verði ákæru-
atriðin sönnuð kunni slíkt að
hafa alvarlegar afleiðingar í för
með sér fyrir vestræna sam-
vinnu.
Mörgum þykir það sérstak-
lega alvarlegt ábyrgðarleysi af
hálfu norskra stjórnvalda að
veita Treholt inngöngu í varn-
armálaháskóla, þar sem hann
hafi átt frjálsan aðgang að ýms-
um mikilvægum leyniskjölum
og upplýsingum, eftir að það
var farið að gruna hann um
njósnir.
Fró Arnþrúði Karisdóttur, frettaríUra NT í
Noregi:
■ Við réttarhöldin yfir Arne
Treholt, í Osló í gær hélt hann
því fram að hann hefði aðeins
viljað auka skilning milli þjóða
fyrir austan og vestan járntjald-
ið með öllum fundum sínum
með sovéskum aðilum
Treholt var greinilega mjög
vel undirbúinn. Hann hafði með
sér fulla skjalatösku af máls-
skjölum sem hann vitnaði óspart
í. Hann vakti m.a. athygli á
menntun sinni og uppvexti sem
hann segir að hafi haft áhrif á
áhuga hans á alþjóðastjórnmál-
urn.
Hann neitaði í gær fullyrðing-
um ákæruvaldsins um að hann
hafi setið hvorki meira né minna
en 120 fundi með sovéskum
aðilum fram til ársins 1983.
Hann viðurkennir aðeins að
■ Pakistanir telja kosningarnar á mánudag hafa verið einstaklega friðsamar.
„Aðeins“ fimm manns létust og kveikt var í nokkrum strætisvögnum.
Símamynd-POLFOTO.
Kjósendur styðja ekki herstjórnina
Islamabad-Reuter
■ Fyrstu niðurstöður þing-
kosninganna í Pakistan, sem
voru haldnar í fyrradag,
benda til lítils fylgis her-
stjórnarinnar meðal kjós-
enda. Fimm af ráðherrum
stjórnarinnar náðu ekki
kosningum til þingsins.
Stjórnvöld segja að um
52% kjósenda hafi neytt at-
kvæðisréttar síns sem þykir
góð kosningaþátttaka í Paki-
stan. Stjórnarandstæðingar
höfðu hvatt fólk til sitja
heima í kosningunum. Þrátt
fyrir það virðist sem and-
stæðingar stjórnarinnar hafi
fjölmennt á kjörstaði þar
sem margir yfirlýstir stuðn-
ingsmenn herstjórnarinnar
náðu ekki kjöri.
Niðurstaða kosninganna
hefur ekki áhrif á stjórn Zia-
ul-Haq sem hefur lýst því
yfir, að hann telji stuðning
við stjórnarskrárbreytingar
sínar í kosningum í lok síð-
asta árs, viljayfirlýsingu kjós-
enda um að hann sitji áfram
næstu fimm ár sem forseti.
Japanskur príns á Spáni
■ Akihito, krónprins Japana, og ciginkona hans, Michiko, komu í gær
í fjögurra daga opinbera heimsókn til Spánar. Juan Carlos, Spánarkon-
ungur, og drottning hans, Sofia, tóku á móti Japönunum á flugvellinum
í gær. Kannski evrópskt kóngafólk ætli nú líka að fara að læra af
Japönum á sama hátt og iðnjöfrarnir í Evrópu og Bandaríkjunum.
Símamynd-POLFOTO.
Norður-Kórea:
100 pró-
sent kosn-
ingaþátt-
taka
■ Síðastliðinn sunnudag
fóru fram bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar í Norð-
ur-Kóreu. Samkvæmt hinni
opinberu fréttastofu í
Norður-Kóreu höfðu
hvorki meira né minna en
hundrað prósent kjósenda
greitt atkvæði um hádegis-
bil á kjördeginum.
Samkvæmt fréttastof-
unni sýndu kjósendur
„byltingarsinnaðan
eldmóð“ og þegar Kim II
Sung forseti kom og greiddi
atkvæði „voru honum færð-
ir stórir blómavendir sem
sýndu takmarkalausa virð-
ingu kjósenda og allra þjóð-
arinnar fyrir honum“ eins
og fréttastofan orðaði það.
Masters-karlar 16 tegundir
Ljón - Yegdrekar - Tungldrekar
Eldflaugar 2 tegundir
Arnarhreiður m/hljómplötu
Hestar - Höll (Kastali)
Mjög takmarkað magn
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10 s. 14806
LEIKFANGAHÚSIÐ
JL Húsinu v/Hringbr. S. 621040.