NT - 31.03.1985, Side 9
M Á bókasafni Kennaraháskólans. Hörður Bergmann, fyrrum námsstjóri hjá
Menntamálaráðuneytinu og kennari um fjölda ára skeið er ekki sáttur við allt
það sem gamlir kollegar hans og yfirvöld fræðslumála telja „stórasannleik".
(NT-mynd: Ari)
eigin spýtur í samskiptum utan skólans,
er lítils metin. Það þarf að meta gildi
þeirrar reynslu sem fæst utan skólans
meira en nú er og draga úr þessum
prófskírteinakröfum fyrir alls konar
störf. og færa nám meira inn á vinnustað-
ina, - tengja það kynnum af vinnustöð-
um. Þá þarf að auka virðingu sjálfsnáms
og bæta möguleika fólks á að mennta sig
og þroskast, t.d. við íþróttaiðkanir með
því að leggja áherslu á sundlaugar og
íþróttahús og auka möguleika fólks á að
ná í þau gögn sem það vanhagar um í
námi sem það stefnir á og þá á ég við
bókasöfn fyrst ogfremst. Það eru margar
menntaleiðir til aðrar en skólinn, því
það býr dýrmæt þekking og reynsla
meðal alþýðu manna til sjávar og sveita,
verkkunnátta og andleg mennt sem hægt
er að byggja á og sýna meiri virðingu.
Almennt er hægt að segja það að þrátt
fyrir þessar hástemmdu yfirlýsingar að
undanförnu um gildi, möguleika og
nauðsyn skólagöngu, þá eru gagnrýnin
viðhorf að mínum dómi að gerjast, m.a.
með hliðsjón af þeirri reynslu sem við
höfum hér á landi í grunnskólanum af
viðleitni til þess að þoka skólastarfinu til
betri vegar. Ég á þar við starf á vegum
menntamálaráðuneytisins að endur-
skoðun námsefnis og kennslu, þar sem
að mínum dómi hefur náðst verulegur
árangur í endurnýjun námsefnisins og
að semja og gefa út auðugt, fjölþætt,
vekjandi og gott námsefni, en þar mcð
er ekki sagt að í þessu sé fólgin ný
reynsla fyrir börnin. Það sem gerist í
kennslustofunum er ekki endilega
eitthvað nýtt fyrir vikið.
Þegar ég gegndi námsstjórastarfi í
dönsku var oft verið að skamma mig
fyrir þessa nýju dönskukennslu sem
orskaði það að nemendur kynnu ekkert
í málinu þegar þeir kæmu upp á fram-
haldsskólastigið. „Hvaða nýju dönsku-
kennslu?" spurði ég. því ég hafði ferðast
um og leiðbeint og tekið þátt í kennslu
víða um land. Þar hafði ég sannfærst um
að aðferðirnar voru aldeilis ekki alltaf
eins og lagt var til í kennsluleiðbeining-
um. Það sem gerðist í kennslustofunum
hafði ekki hnikast mikið til þótt menn
hefðu fengið hið nýja námsefni og þótt
haldin hefðu verið endurmenntunar-
námskeið sem fjölda margir sóttu."
Þú liefur ritað um þessi sjónarmið i
tímarit, Hörður, og ég minnist að þar
kemur fram að „skólagagnrýnin" á tals-
verðu fylgi að fagna úti í heimi?
„Já, ég ritaði grein sem nefndist
„Krafan um afnám skóla - Aðrar mennta-
leiðir" í Tímarit Máls og menningar (4.
tbl. 1983) og get ég bent þeim sem áhuga
hafa á að kynna sér þessi efni nánar á að
nálgast hana.
Þótt þarna sé um vaxandi umræöu að
ræða ytra. hef ég þó ekki orðið þess var
að endurómur af róttækri skólagagnrýni
í Evrópu og Bandaríkjunum hafi borist
hingað. í þessari grein vitnaði ég til
manna á borð við Paul Goodman. Ivan
Illych, og John Holt (sem hingað hefur
komið og flutt fyrirlestra) en kenningar
þeirra hafa ekki enn verið hér til umræðu
að marki. Kenningar þessara manna
tengjast ekki aðeins skólagagnrýni, held-
ur stofnanagagnrýni yfirleitt og ýmsum
annmörkum á því að hægt sé að leysa
vandamál mannlegs lífs yfirleitt, (ekki
bara menntunar) með því að byggja upp
stórar og öflugar stofnanir á vegum
ríkisins. Enduróminn af skyldri umræðu
á öðrum forscndum höfum við hérna
heima einkum í málflutningi frjáls-
hyggjumanna.
En nú er að mínum dómi framundan
fyrir þá sem kalla sig vinstri nienn að líta
með gagnrýnum augum á það sem
komið hefur út úr starfi þeirra og
viðleitni til þess að byggja upp velferðar-
kerfi og auka jöfnuð með heilbrigðis-
kerfi og menntakerfi. Já, það er tíma-
bært orðið að líta margt gagnrýnum
augum á þessum vettvangi, að sneiða
burtu fúasprek og reita illgresið og það
sem ekki er í samræmi við hugsjónir
manna um markmið og skil þessa kcrfis
og stofnana innan þess. Það þarf að
athuga að hvaða marki þær eru orðnar
niðurlægjandi fyrir alþýðu manna og
draga úr sjálfstrausti fólks og ábyrgðar-
kennd.“
fullur meðaumkunar.) „Það verður
náttúrulega hver og einn að gera það
upp við sig með hvaða móti hann
ætlar að kála sér ef það er meiningin.“
„ Svona, svona það er óþarfi að
vera með ofstopa þó að þið hjá
krabbafélaginu þykist vera heilbrigð-
ari og betri menn en almennt gengur
og gerist. En hvað segirðu, hvað á
maður að...segjum nú að ég væri að
velta því fyrir mér að fara að hugsa
um að skipuleggja að fara hugsanlega
að hætta að reykja. Hvernig munuð
þið leiðbeina með það?“
„Ja eins og ég var að segja þá erum
við að fara af stað með þetta náms-
skeið og það mega að sjálfsögðu allir
vera með. Undirbúningurinn er að
okkar mati mikilvægur og við hvetj-
um fólk til að skoða reykingarvenjur
hjá sjálfum sér, við hvaða aðstæður
reykingar eru mestar og hvenær það
reykir ekki. Það er líka mikilvægt að
fólk geri sér grein fyrir hvaða ástæður
liggja að baki því að það vill hætta að
reykja. Þessar athuganir auðvelda
svo baráttuna sem er því samfara að
hætta. Fólk verður að hugsa eins og
vísindamenn og skoða svolítið sjálft
sig og venjur sínar.“
„ Hefur það eitthvað með reyking-
ar að gera hvernig maður hegðar sér
svona dags daglega?"
„Já það kemur í ljós að reykinga-
menn reykja meira við vissar aðstæð-
ur en aðrar. Að vísu er þetta einstakl-
ingsbundið eins og allt annað en það
að vita að þig langi alltaf í reyk eftir
góða máltíð eða um leið og þú byrjar
á einhverju nýju verkefni, þá getur
það hjálpað til þegar að baráttunni
kemur. Daglegt líf okkar er fullt af
venjubundnu atferli og í sumum til-
vikum þarf að brjóta þessar venjur
upp eða að minnsta kosti vera meðvit-
aður um þær. Við reynum einnig að
hjálpa fólki í baráttunni gegn ýmsum
fylgifiskum þess að hætta að reykja,
það er líka hægt að tala um fráhvarfs-
einkenni í þessu sambandi."
„ Hvað meinarðu með því? Erum
við ekki að tala um sígarettureyking-
ar? „Jú því er ekki að leyna að margir
þeir, sem hætta að reykja, upplifa
ýmsa vanlíðan bæði líkamlegs og
sálræns eðlis. Sumir verða jafnvel
þunglyndir og margir kvarta undan
því að þeir verði uppstökkir fyrstu
dagana á eftir að hætt er.“
- Jasso?
„Já það getur reynst mörgum erfitt
að hætta og því erum við nú að
þessu.“
„ Ég á nú ekki við það að stríða,
mér hefur alltaf reynst ákaflega auð-
velt að hætta að reykja. Mitt vanske-
lig er það að ég byrja alltaf aftur.“
„Já þú ert ekki einn um það og við
reynum að leiðbeina þeim líka.“
„ Og hvenær á ég þá ... ég meina
hvenær eiga lesendur þá að hætta?“
„ Þeir sem vilja vera með ætla að
hætta á þriðjudaginn og fólki er bent
á undirbúningsleiðbeiningarnar sem
hafa birst undanfarna daga á lesenda-
síðum NT. Þar verður fólki svo
leiðbeint næsta mánuðinn á meðan á
námskeiðinu stendur.“ ,
HUSGOGN OG
INNRÉTTINGAR
SUÐURLANDSBRAUT18
68 69 00
Finnsku
veggskápasamstæðurnar
vinsælu eru komnar aftur.
Verð 29. 850.- með ljósum.
SKÍÐASKÓLINN
IŒRLINGARFJÖLLUM
FJÖLSKYLDUNÁMSKEIÐ (5 dagar)
5. ágúst
NÁMSKEIÐ FYRIR FULLORÐNA (6 dagar)
7. júlí
ALMENNINGSNÁMSKEIÐ (5 dagar)
22. ágúst, 26. ágúst
ALMENNINGSNÁMSKEIÐ (4 dagar)
2. ágúst (verslunarmannafieigij
HELGARNÁMSKEIÐ
Föstud.-sunnud. fyrst 5. júlí
UPPLÝSINGAR OG BÓKANIR:
FERÐASKRIFSTOfíiN ÚRVAL
IURVÖLL
?6900
OG UMBOÐSMENN ÚRVALS UM LAND ALLT