NT - 31.03.1985, Blaðsíða 12

NT - 31.03.1985, Blaðsíða 12
12 <§> V<* tí>‘ ;>w að passa það að leggja ekki tólið á og hafa síðan samband við sjálfvirku símstöðina strax klukkan átta næsta morgun og þá ætti að vera hægt að rekja samtalið þrátt fyrir að langt væri um liðið. Starfsmenn Pósts og síma eru bundnir þagnareiði og eftir að þeir hafa rakið símtalið skrifa þeir skýrslu um málið, sem send er skrifstofu- stjóra stofnunarinnar. Ef fólk vill fara í hart með málið er eðlilegast að kæra það til Rannsóknarlögreglu ríkisins en lögreglan sækir síðan um leyfi til dómsyfirvalda um að fá nauðsynlegar upplýsingar hjá Pósti og síma. Hörður benti ennfremur á að mikill hluti kvartananna færi aldrei til lög- reglunnar heldur væru málin leyst áður en að því kæmi. Særir blygð- unarsemi Arnar Guðmundsson rannsóknar- lögregit^iaoapjaot. pjciwir'ao pau máI semTWmu til kasta lögreglunnar væru af ýmsum toga spunnin. Algengt væri að krakkar yllu ónæði með símhringingum og síðan væri töluvert um það að fullorðið fólk væri með hótanir eða ónæði í símann og undan því væri kvartað. „Því er svo heldur ekki að leyna að nokkuð er um það að menn, sem ekki láta nafns síns getið, hringja í konur og hafi uppi klúrt orðbragð. Slíkt vekur að sjálf- sögðu óhug og særir blygðunarsemi fólks. Það getur verið erfitt að taka á svona málum auk þess sem talið er að aðeins hluti þeirra komi til okkar kasta." Arnar sagði að fólk ætti þess kost að leita til Pósts og síma og láta athuga hvaðan slíkar hringingar kæmu. „Það er full ástæða að benda fólki á að notfæra sér þá þjónustu. Rann- sóknarlögreglan gerir síðan allt sem í hennar valdi stendur til að upplýsa málin.“ Tóldónar eiga í erflóleikum í upphafi þessa spjalls reyndum við að gefa örlitla lýsingu á tóldóna við iðju sína. Því miður verður að viður- kennast að fræðirit eru tiltölulega fátæk að upplýsingum um þessa teg- und öfuguggaháttar. Ekki er heldur víst að allir fræðimenn sætti sig við að orðið öfuguggaháttur sé notað í þessu sambandi og má benda á að margir telja allt í sambandi við kynlíf manns- ins eðlilegt. Ekki ætlum við okkur þá dul að hætta okkur út í deilur um þau efni og helst ekki að verða til þess að kasta fyrsta steininum. Á hinn bóginn má þó ljóst vera að sá, sem fyrir því verður að fá yfir sig hringingar af því tagi sem hér um ræðir, er ekki öfundsverður, og í mörgum tilvikum vekja árásir þessar mikinn ugg. Óruggt má telja að tóldónar eigi í erfiðleikum hvað kynlíf sitt snertir og oftast er þessi tegund útrásar sett á sama bás og exhibitionismi eða það að hafa unun af því að berrassast á almannafæri. Sá sem hringir kemst í stuð, ef svo má að orði komast, við það eitt að hringja og fá tækifæri á því að láta í sér heyra. Þessari kynhegðup hefur stundum verið líkt við járn- brautarlest sem fer út á hliðarspor og nær því ekki á áfangastað nema eftir krókaleiðum. Viðkomandi þorirekki að gefa annarri persónu hlutdeild í tilfinningalífi sínu og þá oftast vegna óttans við að verða hafnað. Þennan ótta telja svo margir að megi rekja til skorts á hlýju og umhyggju á fyrsta æviskeiði mannsins. Þeir fræðimenn, sem um þetta hafa ritað, benda einnig á að tóldónar vilji ná sér niðri á þeim sem þeir telja fyrir fram að hafi hafnað sér og því sé um aggressíft athæfi að ræða. Að öllu jöfnu láti þeir þó hringingarnar nægja og eru ekjci hættulegir eða árásar- gjarnir. Ef þú ert másari... Ef einhver sem þetta les veit upp á sig sökina í þessum efnum er þeim hinum sama bent á að leita til geðlæknis eða sálfræðings þar sem hann gæti fengið tækifæri á því að tala um hneigðir sínar. Þessar tvær starfs- stéttir eru bundnar þeim heitum að óhætt er að treysta að upplýsingarnar fari ekki lengra. Á hinn bóginn er ekki hægt að tryggja að það eitt að lei.ta aðstoðar í vandamáli sem þessu, hat'i í för með sér varanlega breyt- ingu. En hvað sem því líður verður að átta sig á því að framferðið vekur mikinn ótta og það hjá fólki sem oftast hefur ekki gert viðkomandi nokkurn skapaðan hlut. Hinum sem fyrir hringingunum verða, er lítið annað hægt að ráð- leggja annað en að láta rekja símtölin og koma þannig í veg fyrir áframhald- andi ónæði. JÁÞ

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.