NT - 31.03.1985, Síða 10
Sunnudagur 31. mars 1985 10
ui Símadónar
/
A hverju ári leita
nokkur hundruð ein-
staklingar til Pósts og
síma í Reykjavík
vegna ónæðis sem
þeir verða lyrir í
síma. í mörgum þess-
ara tilfella beitir sá
sem ónæðinu veldur
þannig orðbragði að
það særir blygðunar-
semi fólks. Hér eru á
ferðinni hinirsvoköll-
uðu másarar eða
símadónar sem kom-
ast í stuð við það eitt
að hringja og klæm-
ast í símann, Kyn-
ferðislíH þessa fólks
hefur verið líkt við
lestsemferótafspor-
inu og kemst ekki á
áfangastað nema eftir
krókaleiðum.
NT-mynd: Ari.
Hann situr einn í íbúð sinni og hefur komið sér
þægilega fyrir við símann. Hann snýr skífunni og bíður
svo eftir því að svarað sé á hinum enda línunnar.
Símanúmerið kann hann utanbókar því þennan leik
hefur hann oft leikið áður. Þegar konan sem hann
hringdi í kemur í símann bíður hann örlitla stund rétt eins
og til að auka á spennuna en tekur síðan að anda ótt og
títt í símtólið. Þessi sérkennilegi máti að slá á þráðinn
hefur kynferðislega ertandi áhrif á þann sem hringir.
Hann tekur einnig að klæmast í símann. Allt skeður þetta
á skömmum tíma. Þegar konan skellir loks á, viti sínu
fjær af hræðslu, er tilganginum náð. Maðurinn hefur
fengið vilja sínum fram. Honum er fullnægt.
Feimnismál
Símtöl eins og þau sem að framan
greinir eru algengari en marga
grunar í Reykjavík einni saman
i koma árlega nokkur hundruð beiðnir
til Pósts og sínta þess efnis að reynt
verði að grafast fyrir um hverjir það
eru sem valda ónæði með sím-
hringingum. Að vísu er símaónæði
margs konar en hluti þess er sím-
hringingar í svipuðum dúr og að ofan
greinir. Það er einnig talið fullvíst að
einungis lítill hluti þessa ónæðis sé
kært til yfirvalda. í mörgum tilvikum
veit fólk ekki hvert það á að snúa sér
eða hvernig það á að bregðast við.
Þetta er feimnismál sem margir veigra
sér við að segja frá og vilja ekki láta
bendla sig við á einn eða annan hátt.
Lamandi áhrif
Einn af viðmælendum blaðsins er
kona á besta aldri, sem hvað eftir
annað hefur fengið símhringingar af
þessu tagi. Sagðist hún hafa orðið svo
hrædd að hún hefði til að byrja með
ekki getað sagt einum einasta manni
frá þessu. „Ég vissi ekki hvaðan á mig
stóð veðrið. Mér fannst eins og sá
sem hringdi hlyti að þekkja mig en
hver hann var gat ég ómögulega
giskað á. Það var eins og hann vissi
allt um mig og sú tilfinning hafði
lamandi áhrif á mig. Ég gérði mér
líka fljótlega grein fyrir því að hér var
um kynferðislegan öfuguggahátt að
ræða. Maðurinn var trúlega að fróa
sér á meðan hann var í símanum og
það gerði þessar hringingar enn
óhugnanlegri. Að lokum ákvað ég að
fá númerinu mínu breytt og láta ekki
birta það í skránni. Eftir það hef ég
fengið að vera í friði.“
Aðspurð sagðist viðmælandi okkar
aldrei hafa dottið í hug að reyna að
láta yfirvöld grafast fyrir um það hver
hér hefði verið að verki.
„Mér datt hreinlega ekki í hug að
það væri hægt. Einhvern tímann hef
ég reyndar séð það í bíómyndum að
samtöl væru rakin en þá hélt ég, að
halda yrði þeim sem hringdi, uppi á
snakki meðan komið væri boðum til
símstöðvarinnar en ég vissi sem var
að ég gæti aldrei komið slíku í kring.
Samtölin, ef samtöl skyldi kalla,
stóðu einnig stutt yfir og eftir að þetta
fór að koma fyrir trekk í trekk, skellti
ég á strax og ég áttaði mig á hvers
kyns var.“
Hert viðurlög
Svo virðist að nær undantekninga-
laust séu karlmenn hér að verki. Rétt
er þó að slá þann varnagla að þessi
kynhegðun, ef nota má það orð,
hefur lítið verið rannsökuð.
í samtali við Arnar Guðmundsson,
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins,
kom fram að alltaf kæmu kærur til
embættisins öðru hverju þar sem
þetta væri upp á teningnum. f ein-
staka tilfellum hefðist upp á viðkom-
andi en það færi eftir því hvernig til
tækist þegar fólk léti rekja samtölin.
Oft væru það persónur, sem áberandi
eru í samfélaginu, sem fyrir ónæðinu
verður en það þarf þó ekki alltaf að
vera. Arnar sagði ennfremur að
hringingar sem þessar varði sektum
og varðhaldi allt að sex mánuðum og
hefðu viðurlögin verið hert árið 1976.
Þeir sem þekkja vel til mála telja
að aðeins lítið brot þeirra komi til
kasta yfirvalda. Fyrir hvert símtal,
sem reynt er að rekja, eru tíu hring-
ingar sem aldrei er gert neitt í. Fólk
Ji
veigrar sér við að gera nokkuð í
þessu.
Við þekkjum
ordbragðið
Annar viðmælandi okkar er kona í
blaðaheiminum sem orðið hefur fyrir
miklu ónæði vegna símadóna eða
másara eins og þeir eru stundum
kallaðir. Hún hefur aldrei gert tilraun
til þess að láta rekja símhringingar
þessar þrátt fyrir að þær hafi valdið
henni og fjölskyldunni miklu ónæði.
„Þetta kemur í skömmtum. Stund-
um er hringt aftur og aftur og síðan
ekki söguna meir í nokkra daga.
Þetta er örugglega alltaf sami maður-
inn. Við þekkjum orðið orðbragðið.
Ef ég svara ekki sjálf, spyr hann eftir
mér og byrjar svo að dæsa og klæmast
þegar ég kem í símann. Dóttir mín er
orðin ákaflega hvekkt á þessu en ég hef
stundum hleypt í mig kjarki og haldið
honum upp á snakki í þeirri von að
hann gæfi mér einhverjar vísbending-
ar um sig.
■ Ef þú verður fyrir ónæði vegna
símadóna, má rekja símlalið. Það
eina sem þarf að athuga er að leggja
ekki tólið á og er þá starfsmönnum
Pósts og síma eftirleikurinn auðveld-
ur. Mvndin er frá sjálfvirku símstöð-
inni í Breiðholti.
flD PIOIMŒCR
Nýjalínan ’85 ~2nganna
X-A99 Kr. 63.900.-
SA-950. 2x87 watta magnarl.
TX-950. Útvarp með FM stereo, AM-LW móttöku, ásamt föstu forvali
CT-850. Tveggja mótora kassettutæki með Dolby B og C suðminnkun. CB-989. Hátalarar 120 w hvor.
PL-750. Beint drifinn, hálfsjálfvirkur og „quartz” læstur plötuspilari meö MC hljóðdós.
X-1500 Kr. 28.400.- PL-200. Beltadrifinn, hálfsjálvirkur plötuspilari. DC-100. Sambyggður magnari (2x32 w) og kassettutæki með Dolby B suðminnkunog metal stillingu. (35-15 kHz).Tx-100. Útvarp með FM stereo, AM-LW móttöku. CS-100. 40 watta hátalarar,
X-A77 Kr. 50.200.- SA-750 2x62 watta magnari. TX-950. Útvarp með FM stereo, AM-LW móttöku ásamt föstu for vali fyrir allt að 16 stöðvar. „Quartz" læst með „digital tuning“ stafrænni stillingu. CS-787. 80 watta hátalarar.
Tveggja mótora kassettutæki með Dolby B suðminnkun og metal stillingu Beint drifinn quartz læstur plötu spilari
X-A55 Kr. 38.300.- SA-550. 2x40 Watta magnari. Útvarp með FM stereo, AM-LW móttöku. CT-350. Kassettutæki með Dolby B suöminnkun og metal. Hálfsjálfvirkur og beltadrífinn plötuspilari. CS-585. Hátalarar 60 W hvor.
X-3500 Kr. 33.380.- DC-200. Sambyggður magnari (2x50 w) og kassettutæki með Dolby B suöminnkun og Metal stillingu. „DigitaP útvarp meö FM stereo, AM-LW móttöku og föstu forvali á 12 stöðvum. PL-200. Beltadrifinn, hálfsjálfvirkur plötuspilari.
HVERFISGÖTU 103
HUQM-HEtJyUUS-SKBIFSTOaíTÆia SÍMI 25999 *17244
Þetta byrjaði fyrirfimm árum þegar
ég skildi við manninn minn og það var
engu líkara en sá sem hringir hafi haft
einhvern pata af því. Ég hélt í fyrstu
að hann væri einhver kunningja
mannsins míns af því að hann talaði
svoleiðis og sagði meira að segja til
nafns. Þegar ég tók að grennslast fyrir
um nafnið gat það ekki verið og að
öllum líkindum hefur það aðeins
verið út í bláinn. Á tímabili var ég
alveg að brotna niður undan þessu og
var orðin hrædd við að vera utan-
dyra, sérstaklega eftir að skyggja tók
á kvöldin. Hvert einasta skipti, sem
hringt var, bjóst ég við að þetta væri
þessi maður og var alltaf hrædd þegar
ég svaraði. 1 seinni tíð er ég farin að
taka þessu betur og legg bara á um
leið og ég heyri rausið í honum
blessuðum.“
Tungulipur og seg-
ist heita Gunnar
Fyrir um það bil fjórum árum fóru
að berast kvartanir vegna þess að
maður hringdi í konur í Reykjavík og
kynnti sig með nafni og sagðist vera
að vinna að kynlífskönnun á vegum
tímaritsins Samúels. Þetta athæfi var
kært en enn þann dag í dag hefur ekki
tekist að hafa upp á manni þessum.
Tímaritið hefur heitið tíu þúsund
krónum hverjum þeim, sem gæti
komið með upplýsingar sem leiða til
handtöku mannsins.
Við ræddum við Ólaf Hauksson
ritstjóra Samúels og sagði hann að
málið hefði komið blaðinu illa. Þær
konur, sem orðið hafa fyrir barðinu á
hringingum skipta tugum og það væri
langt frá því að vera skemmtilegt að
reyna að útskýra þetta fyrir fólki.
„Við erum líka ákveðnir í því að birta
nafn mannsins og mynd af honum ef
tekst að hafa upp á honurn."
Ólafur sagði að sá, sem hér væri á
ferð, kynnti sig með mismunandi
nöfnum en allt benti til þess að hér
væri sami aðilinn á ferðinni. „Hann er
mjög tungulipur og segist vera að
vinna að þessari könnun fyrir blaðið
og fer svo að spyrja konurnar ýmissa
spurninga varðandi kynlíf þeirra. Ef
honum er vel tekið heldur hann
áfram og færir sig þá gjarnan upp á
skaftið og spurningarnar verða klúr-
ari. Hann gengur lengra og lengra.
Til að byrja með eru þetta spurningar
sem eru tiltölulega saklausar eins og
hvenær viðkomandi hafi fyrst kynnst
kynlífi og svo framvegis. En spurnin-
garnar verða gjarnan áleitnari þangað
til konurnar átta sig á því að hér er
ekki allt með felldu. Þá er hann farinn
að nota klúrt orðbragð og oft hefur
hann látið þær geta upp á því hvað
hann væri með í hendinni og þá hafa
þær áttað sig á því hvað upp snéri og
niður í málinu. Maður er bara mest
hissa á því hversu langt hann kemst
og hvað konur eru ófeimnar að svara
spurningum um kynferðismál í
símann. Eftir því sem við höfum
komist næst þá er hann ákaflega
tungulipur og tekst auðveldlega að
villa á sér heimildir. Oftast kynnir
hann sig sem Gunnar en föðurnöfnin
eru mismunandi. Á tímabili bárust
kvartanir einkum frá konum sem
stundað höfðu nám í Verslunarskóla
íslands og okkur grunaði að hann
hefði einfaldlega komist yfir síma-
skrá, sem skólafélagið hefði gefið út
með nöfnum nemendanna.
Við erum allir af vilja gerðir til að
koma í veg fyrir að þessi ófögnuður
haldi áfram og höfum því heitið
þessum peningaverðlaunum. Ég vildi
líka láta þess getið að Rannsóknar-
lögregla ríkisins hefur gert allt til að
hjálpa okkur þó svo að enn hafi það
engan árangur borið."
Ólafur benti einnig á að sér findist
að í símaskránni ættu að vera upplýs-
ingar um það hvað fólk gæti gert ef
það verður fyrir ónæði í síma. „Það
ættu hreinlega að vera leiðbeiningar
um það hvað hægt sé að gera því
margir vita ekki hvert þeir eiga að
snúa sér og trúlega er miklu meira um
þetta en nú er haldið.“
Látið rekja
samtölin
En hvað er þá hægt að gera þegar
fólk er ónáðað í tíma og ótíma með
símhringingum?
Við bárum þessa spurningu undir
Hörð Bjarnason deildarstjóra hjá
Pósti og síma.
Hörður sagði að hægt væri að fara
fram á það við stofnunina að símtöl
væru rakin og þá er hægt að komast
að því hvaðan hringt er. „Númer eitt
er að leggja ekki á þegar um slík
símtöl er að ræða. Síðan þarf að
hringja í sjálfvirku símstöðina í
Reykjavík en síminn þar er 22071.
Einnig er hægt að hringja í 26000 og
biðja um . sjálfvirku símstöðina.
Tæknimenn þar geta síðan rakið
hvaðan hringt hefur verið í viðkom-
andi númer. Fyrsta reglan er því að
leggja ekki á þó svo að dóninn leggi
á sín megin. Hörður sagði að þetta
væri fólki að kostnaðarlausu ef farið
er fram á að símtal sé rakið að
deginum til. Ef kalla þarf út tækni-
menn eftir venjulegan vinnutíma þarf
að greiða sérstaklega fyrir það. Hann
benti þó á að ef fólk yrði fyrir ónæði
að kvöldi til eða að næturlagi væri nóg
Sjá næstu síðu