NT


NT - 31.03.1985, Page 24

NT - 31.03.1985, Page 24
I I Verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar ’85“ tuna Við hjá Osta- og smjörsölunni bjóðum nú öllu áhugafólki um matargerð að vera með í verðlaunasamkeppni um „Bestu uppskriftirnar ’85“. Hugmyndaflug, ostur og smjör ráða ferðinni. Keppnisreglur eru í stuttu máli þessar: Ostar og/eða smjör þurfa að skipa veglegan sess í-uppskriftunum. Uppskriftirnar þurfa að falla inn í einhvern af eftirtöldum flokkum: sjávarréttir, bakstur (brauð og kökur) eða eftirréttir. Uppskriftirnar mega ekki hafa birst áður á prenti eða annars staðar Þátttökurétt hefur allt áhugafólk um matargerð. Heimilt er að senda fleiri en eina uppskrift en ekki á sama blaði. Tilgreinið nákvæmlega öll mál í dl, matskeiðum, teskeiðum, grömmum o.s.frv. Þetta á einnig við um salt og annað krydd. Tilgreinið einnig fyrir hve marga rétturinn er og hvað hentar að bera fram með honum. HSWWWSWWliMIHIWHIII/liF • Nafn höfundar, heimilisfang og sími skal fylgja í lokuðu umslagi merktu heiti uppskriftar. Þá áskiljum við okkur rétt til að birta þær uppskriftir sem berast eða hagnýta þær á annan hátt, án endurgjalds. [ dómnefnd sitja Hilmar B. Jónsson, „Gestgjafi", Jóhanna Sveinsdóttir, „Matkráka" og Dómhildur Sigfúsdóttir, uppskrifta- og matreiðslusérfræðingur okkar. Síðasti skiladagur er 15. apríl 1985. Uppskriftir skal senda fyrir 15. apríl n.k. í umslagi merktu: „Bestu uppskriftirnar 85“ Osta- og smjörsalan, pósthólf 10100, 130 Reykjavík. Ef nánari upplýsinga er óskað, veitir Dómhildur Sigfúsdóttir þær í síma 82511. Til „Koben” á góðri uppskrift! Verðlaunin eru ekki af lakara taginu: 1. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar með kvöldverði á einu þekktasta veitingahúsi borgarinnar. 2. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Akureyrar eða Reykjavíkur. 3. verðlaun eru helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur eða Reykjavíkur. Einnig verða veittar 20 viðurkenningar í hverjum uppskriftaflokki, samtals 60. Verðlaunaafhending fer fram í lok maí. Láttu nú reyna á hugmyndaflugið, ef þú hefur áhuga á matargerð og ferðalögum. Hver veit nema þú komist þá tij „Koben"? Osta- og smjörsalan ' :\ir. , .,%s v* : - t 'x . b'&"' : AUKHF. 9.128

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.