NT - 04.04.1985, Side 16
Fimmtudagur 4. apríl 1985 16 Blað II
Helgin framundan
Pálsson. Árni Johnsen alþing-
ismaður heldur ræðu: {slensk
stemmning. Sr. Þórir Step-
hensen dómkirkjuprestur flyt-
ur bæn og sunginn verður sálm-
urinn Son Guðs ertu með
sanni.
Helgihald í Hallgríms-
kirkju um bænadaga og
páska
í forkirkju Hallgrímskirkju
stendur þessa daga yfir sýning
á Passíumyndum eftir Snorra
Svein Friðriksson, sem gerðar
voru 1972, og syndar í sjón-
varpinu með tónverkinu „Lítil
píslarsaga“ eftir Þorkel Sigur-
björnsson. Myndir þessar hafa
ekki sést á sýningu áður.
Á skírdagskvöld mun Sigrún
. Þorgeirsdóttir syngja einsöng
- sálm eftir norska skáldið
Svein Ellingsen í þýðingu sr.
Sigurjóns Guðjónssonar.
Við messugjörðirföstudags-
ins langa mun Halldór Vil-
helmsson syngja aríu úr Jó-
hannesarpassíu Bachs, við
undirleik Ingu Rósar Ingólfs-
dóttur og Harðar Áskeíssonar.
Einnig mun Inga Rós Ingólfs-
dóttir leika einleik á celló.
í báðum messum á páskadag
mun Mótettukór Hallgríms-
kirkju flytja kantötuna Christ
lag in Todesbanden no. 4 eftir
J.S Bach með aðstoð lítillar
hljómsveitar. Einsöngyarar
verða úr röðum kórfélaga,
Ásdís Kristmundsdóttir
sópran, Nicolas Hall tenór og
Magnús Baldvinsson bassi.
ke: „Rehabilitation of torture
victims"
Laugardaginn 6. apríl: Kl.
14.00 Peter Kemp: „Ethics and
the unjustifiability of torture“.
Verk á afmælissýningu TextOfélagsins
Sýning Textílfélagsins
Afmælissýning Textílfélags-
ins á Kjarvalsstöðum hefur nú
staðið í rúmar2 vikur. Aðsókn
að sýningunni hefur verið mjög
góð og nokkur verk selst.
Sýningin verður opin alla
daga páskavikunnar frá kl.
14.00 til 22.00. Henni lýkur á
annan í páskum, mánudaginn
8. apríl.
Sýning i Gerðubergi
Sýning á vegum íslands-
deildar Amnesty International
í tengslum við baráttuna gegn
pyntingum. Veggspjöld um
þemað Aðgengi að föngum.
Grafík eftir nemendur í MHÍ.
Opið er kl. 14.00-18.00 á
skírdag og annan í páskum
virka daga kl. 16.00-22.00.
Sýning Doru Jung
á Kjarvalsstóðum
Undanfarnar vikur hefur
staðið yfir yfirlitssýning á verk-
um finnsku textíllistakonunnar
Doru Jung á Kjarvalsstöðum.
Þetta er farandsýning frá List-
iðnaðarsafninu í Helsinki um
einn helsta frumkvöðul finnsks
listiðnaðar.
Dora Jung starfaði um ára-
tuga skeið sem hönnuður fyrir
risaiðnfyrirtækið Tampella í
Finnlandi. Það gerði textíl-
framleiðslu þessa fyrirtækis
þekkta og eftirsótta um allan
heim, og gerði jafnframt Doru
Jung fjárhagslega kleift að
reka vefstofu þar sem hún gat
unnið að tilraunum og listsköp-
un.
Sýningunni á Kjarvalsstöð-
um er skipt í tvo meginhluta. í
Kjarvalssal er myndvefnaður,
kirkjulist og ýmis listvefnaður,
en í forsal eru sýnishorn af
vefnaðarvörum, sem Dora
Jung hannaði fyrir textílfyrir-
tækið Tampella.
Sýningin verður opin dag-
lega kl. 14.00 til 22.00 fram yfir
páska.
Gallerí Borg:
Myndlistarsýning Val-
gerðar Hauksdóttur
■ Fimmtudaginn 4. apríl,
þ.e. á skírdag, opnar Valgerð-
ur Hauksdóttir sýningu á
grafíkmyndum og myndum
unnum með blandaðri tækni í
Gallerí Borg við Austurvöll.
Sýning Valgerðar verður opin
alla hátíðisdagana frá kl. 14.00
til 18.00, en virka daga kl.
12.00 til 18.00 og stendur til
16. apríl.
Valgerður Hauksdóttir
stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla Islands, en
lauk einnig prófum frá erlend-
um listaskólum. Hún er félagi
í félaginu íslensk grafík. Val-
gerður hefur tekið þátt í átta
samsýningum, en þetta er
fyrsta einkasýning hennar.
Myndlistarsýning á Snæ-
fellsnesi
Biarni Jónsson sýnir
í Olafsvík
Bjarni Jónsson opnar sýn-
ingu í Grunnskólanum í Ólafs-
vík fimmtudaginn 4. apríl kl.
14.00. Sýningin verður svo
opin kl. 14.00 til 22.00 daglega
fram á annan í páskum.
Á sýningunni eru teikning-
ar, vatnslitamyndir og olíumál-
verk um þjóðlegt efni.
„Úr mannheimum11
I Listmunahúsinu
í Listmunahúsinu stendur
yfir sýning Sigurðar Þóris Sig-
urðssonar. Sýningin heitir Ur
mannheimum. Á henni eru 35
olíumálverk, máluð á sl. einu
og hálfi ári. Sýningin er opin
bænadagana, laugardag fyrir
páska og báða páskadagana
kl. 14 til 18. Síðasti sýningar-
dagur annar í páskum.
Neskirkja
Á páskadag kl. 2 sýna börn
og unglingar helgileik: „Páska-
guðspjallið" í Neskirkju.
Undirleik annast Jónas Þórir
Þórisson. Þá mun Kolbrún á
Heygum syngja einsöng og
John Youong leika á fiðlu. Sr.
Frank M. Halldórsson flytur
páskahugvekju. Kór Nes-
kirkju syngur undir stjórn
Reynis Jónassonar.
Norræna húsið um
páskana:
Skírdagur: Allt opið.
Föstudagurinn langi: Allt
lokað.
Laugardagur: Kaffistofa og
sýningar opnar (bókasafn
lokað) Blásarakvintett
Reykjavíkur kl. 3.
Páskadagur: Allt lokað.
Annar í páskum: Allt opið.
Grafiksýningu lýkur.
Bræðrafélag
Dómkirkjunnar
Kirkjukvöld Bræðrafélags
Dómkirkjunnar verður haldið
á skírdag 4. apríl kl. 20.30. Á
efnisskrá er:
Orgelleikur Marteins H.
Friðrikssonar dómorganista,
ávarp sr. Hjalta Guðmunds-
sonar dómkirkjuprests. Kjart-
an Gunnarsson framkvæmda-
stjóri heldur ræðu: Trúin og
nútíminn. Karlakór Reykja-
víkur syngur tvö lög: ísland,
lag og Ijóð eftir Árna Thor-
steinson og Því er hljóðnuð
þíða raustin? lag eftir Jean
Sibelius, en Gestur þýddi ljóð.
Stjórnandi er Páll Pampichler
Málþing Félags áhuga-
manna um heimspeki
Á páskum 1985 gengst Félag
áhugamanna um heimspeki
fyrir málþingi um siðfræði,
pyntingar og þjáningu. Til
þingsins koma Inge Kemp
Genefke, læknir við Rehabilit-
eringscenter for torturofre í
Kaupmannahöfn og Peter
Kemp, heimspekingur frá
Kaupmannahafnarháskóla.
Dagskrá þingsins verður
sem hér segir:
Föstudaginn langa, 5. apríl:
Kl. 15.00 Hjördís Fiákonar-
dóttir: „Pyntingar-hvarliggja
mörkin?"
Kl. 15.30 Inge Kemp Genef-
Kl. 15.30: Páll Skúlason:
„Siðfræði, trú og þjáning“.
Málþingið verður haldið í Lög-
bergi stofu 101 og er öllum
heimill aðgangur.
Valborg og bekkurinn
Tvær sýningar verða á leik-
riti Finns Methling um gömlu
ekkjuna og garðbekkinn um
páskana, sú fyrri í dag, skírdag
og sú síðari á annan í páskum
og hefjast báðar kl. 16.00 síð-
degis.
■ Naust um vetur (olíulitir)
eftir Bjarna Jónsson.
Sýningar Þjóðleikhússins
um páskana:
Gæjar og píur
Sýningum fer nú fækkandi á
hinum vinsæla söngleik „Gæj-
um og píum“ eftir Frank
Loesser, Jo Swerling og Abe
Burrows í leikstjórn Kenn
Oldfields og Benedikts Árna-
sonar. Næsta sýning verður á
annan í páskum.
Kardemommubærinn
Uppselt hefur verið á allar
sýningar barnaleikrits Thor-
björns Egners til þessa. Verkið
verður sýnt á skírdag og á
annan í páskum, kl. 14.00
báða dagana.