NT


NT - 10.04.1985, Side 3

NT - 10.04.1985, Side 3
Miðvikudagur 10. apríl 1985 Ríkisstjórn krefur bankaráð skýringa ■ Matthías Á. Mathiesen við- skiptaráðherra ritaði bankaráði ríkisbankanna bréf í gær, fyrir hönd ríkisstjórnarinnr, þar sem beðið er um tafarlausar skýring- ar og skýrslu um launaauka bankastjóranna upp á 450 þús- und krónur vegna bifreiða- kaupa. Þá var þess einnig farið á leit, að framkvæmd samþykkt- ar bankaráðanna um launaauk- ann yrði frestað. Halldór Ásgrímsson, sem gegnir störfum forsætisráðherra í fjarveru Steingríms Her- mannssonar, sagði í samtali við NT í gær, að ríkisstjórnin myndi bíða skýringa bankaráðanna áður en næstu skref hennar t málinu yrðu ákveðin. Hann Landhelgisbrot: Fimm togbát- ar að ólög- legum veiðum ■ Varðskip kom að fimm togbátum við ólög- legar veiðar um klukkan 10.30 í gærdag. Bátarnir voru að veiðum út af Stafnesi á Reykjanesi. Svæðið sem bátarnir voru á, hafði verið lokað fyrir veiðum frá miðnætti í fyrradag, samkvæmt reglugerð frá sjávarút- vegsráðuneytinu. Bátarnir sem voru að veiðum á svæðinu voru: Sigurjón GK 49, Geir Goði GK 220, Jón Gunn- laugs GK 444, Haukur Böðvarsson ÍS 847 og Guðfinna Steinsdóttir ÁR 10. Að sögn Sigurðar Árna- sonar skipherra hjá Land- helgisgæslunni fóru þrír bátanna til hafnar í Sand- gerði þar sem mál þeirra verður tekið fyrir í dag. Einn báturinn hélt til hafn- ar í Þorlákshöfn og verður mál hans einnig tekið fyrir í dag. Varðskip fylgdi ein- um bátnum til hafnar'í Reykjavík, og var mál hans tekið til meðferðar í gærkvöld. Ekki hefur fundist nein viðhlítandi skýring á hvernig stendur á ólögleg- um veiðum bátanna, en samkvæmt heimildum NT mun hafa verið um tíma- skekkju að ræða, og skip- stjórar bátanna ekki kynnt sér nægilega vel hvenær svæðinu væri lokað. sagði, að þar sem bankaráðin væru kosin af Alþingi, væri eðlilegast að um mál þetta yrði fjallað í þingflokkum, og sagðist hann eiga von á því að fram- sóknarmenn tækju það fyrir á fundi nú fyrir hádegið. Laun bankastjóra ríkisbank- anna hafa tekið mið af launum hæstaréttardómara, sent ákveð- in eru af kjaradómi. Halldór Ásgrímsson sagði, að sér fyndist lang eðlilegast, að kjaradómur fjallaði beint um laun banka- stjóranna, þar sem laun hæsta- réttardómaranna væru ákveðin án þess að við það væri miðað, að laun annarra tækju mið af þeim. ■ Matthías Á. Mathiesen, bankamálaráðherra, er hann ávarpaði Norðurlandaþing á dögunum. hvass við bankaráðin? var þungur ábrún Verður hann líka NT-mynd: Sverrir Launaaukinn: ■ í hinu nýja húsi Seðlabankans verður fjöldinn allur af bílastæðum að „parkera" launaaukanum. svo ekki ætti að reynast erfitt NT-mynd: Róbert Bílafríðindin í Búnaðarbankanum: Fulltrúi Al- þýðuflokks ámóti vísitölu- bindingu - óvíst hvort launa- aukinn verði greiddur ■ Andstaða fulltrúa Al- þýðuflokksins í bankaráði Búnaðarbankans, Hauks Helgasonar, varð til þess, að launaauki bankastjóra þess banka vegna bifreiðakaupa var ekki bundinn lánskjara- vísitölu, eins og er hjá hinum ríkisbönkunum, samkvæmt áreiðanlegum heimildum NT. Samþykkt bankaráðs Búnaðarbankans um launa- auka bankastjóranna felur í sér að bankastjórarnir fái bílafríðindin annað hvort greidd, eða þá að bankinn kaupi bílana og reki þá til afnota fyrir bankastjórana. Síðari liðurinn er ekki í sam- þykktum annarra banka- ráða, og að sögn Stefáns Valgeirssonar formanns bankaráðs Búnaðarbankans er ekki ólíklegt, að sú leið verði farin. Nokkrir banka- stjóranna hafi þegar lýst áhuga á því. Það mun því vera óvíst hvort launaaukinn komi nokkurn tíma til greiðslu í Búnaðarbankan- unt. Þessir sitja í bankaráðum Fjölmargir lesenda NT hafa farið fram á að upplýst verði hverjir sitji í bankaráðum ríkis- bankanna. Listi yfir bankaráðs- menn fer hér á eftir, en rétt er að benda á að síðast var kosið í bankaráð í desember, en tillög- ur að launaaukum bankastjór- anna voru lqgðar fram í desem- ber sl. En bankaráðin eru sem sé svona skipuð nú. Seðlabanki: Jónas Rafnar, fyrrv. banka- stjóri, Sjálfstæðisflokki. Ólafur B. Thors, forstjóri Al- mennra trygginga, Sjálfstæðis- flokki. Haraldur Ólafsson, dósent, Framsóknarflokki. Davíð Aðalsteinsson, bóndi og alþingismaður, Framsóknar- flokki. Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar, Al- þýðubandalagi. Útvegsbanki: Formaður: Valdimarlndriða- son, framkvæmdastjóri, Sjálf- stæðisflokki. Jóhann Einvarðsson, aðstoð- armaður félagsmálaráðherra, Framsóknarflokki. Kristmann Karlsson, útgerð- armaður, Sjálfstæðisflokki. Garðar Sigurðsson, fyrrv. kennari og sjómaður, alþingis- maður, Alþýðubándalagi. A.rinbjörn Kristinsson, for- stjóri Setbergs, Alþýðuflokki. Landsbankinn: Pétur Sigurðsson, stjórnar- formaður Hrafnistu og alþingis- maður, Sjálfstæðisflokki. Kristinn Finnbogason, Fram- sóknarflokki. Árni Vilhjálmsson, prófess- or, Sjálfstæðisflokki. Lúðvík Jósepsson, fyrrv. ráð- herra, Alþýðubandalagi. Þór Guðmundsson, hagfræð- ingur, Alþýðuflokki. Búnaðarbapki: Friðjón Þórðarson, fyrrv. sýslumaður, alþingismaður, Sjálfstæðisflokki. Stefán Valgeirsson, bóndi og alþingismaður, Framsóknar- flokki. Halldór Blöndal, fyrrv. kenn- ari, alþingismaður, Sjálfstæðis- flokki. Helgi Seljan, fyrrv. kennari, alþingismaður, Alþýðubanda- lagi. Haukur Helgason, skóla- stjóri, Alþýðuflokki. BJ lýsir vanþókn- un á launaaukanum ■ Þingflokkur Banda- lags jafnaðarmanna hefur lýst vanþóknun sinni á ákvörðunum um launa- auka til bankastjóra ríkisbankanna. Telur þingflokkur BJ, að mat á fjárþörf bankastjóranna sé í engu samræmi við launa- kjör starfsmanna ríkisins, eða lífskjör í landinu. í fréttatilkynningu frá þingflokki Bandalags jafn- aðarmanna segir, að í þessu pukri fjórflokk- anna, með þátttöku verka- lýðsflokkanna svokall- aðra, hafi bílastyrkurinn einn orðið jafngildi tvö- faldra launa fólks, senr hafi þurft að berjast fyrir afkomu sinni undir hótun- um um dómsaðgeröir. Nú sé komið tölulegt mat á þeim aðferðum, sem kerf- isflokkarnir fjórir hafi not- að til að hygla gæðingum Bílastyrkur bankastjóranna: Bankaráðsmenn segi af sér! ■ Þingflokkur Alþýðuflokksins skorar á þá bankaráðsmenn, sem stóðu að þeirri „löglausu ákvörðun" að greiða bankastjór- um ríkisbankanna vísitölubundinn launa- auka upp á 450 þúsund krónur á ári, að segja af sér þegar í stað. Þá skorar þingflokkurinn á Alþingi íslendinga að samþykkja fyrir- liggjandi lagafrumvarp Eiðs Guðnasonar um að afnema bifreiðahlunnindi ráðherra í ríkisstjórn íslands þegar á þessu þingi. Þetta kemurfram í fréttatilkynningu, sem þingflokkurinn sendi frá sér í fyrradag. Þar kemur einnig fram, að í maí 1984 hafi Alþingi samþykkt þingsályktunartillögu Al- þýðuflokksins, þar sem ríkisstjórninni var falið að fella niður bifreiðahlunnindi banka- stjóra ríkisbankanna og annarra yfirmanna stofnana. Skorar þingflokkurinn á ríkis- stjórnina að framfylgja þegar í stað sam- þykkt Alþingis i málinu, en núverandi ríkisstjórn hafi brugðist þeirri skyldu sinni.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.