NT


NT - 10.04.1985, Síða 11

NT - 10.04.1985, Síða 11
GC ■ { Bandaríkjunum er það auðvitað höfuðglæpur að vera leiðinlegur eða gamaldags, auk þess sem ekki þýðir fyrir neinn að koma fram sem ekki hefur tæknina fullkomlega á valdi sínu, á hvaða sviði sem vera skal. Empire Brass Quintet frá Boston, sem hér lék fyrir Tón- listarfélagið í Austurbæjarbíói 2. apríl, sýndi á tónleikum sín- um svo ekki varð um villst hvers vegna hann (kvintettinn) er svo frægur og eftirsóttur sem raun ber vitni: Þetta eru afburða hljóðfæraleikarar, og frábærir sviðsmenn. Hin prentaða efnis- skrá var þannig upp byggð, að fyrir hlé skyldu vera „klassísk" verk eða alvarleg, en eftir hlé nútímatónlist. En eftir fyrstu tvö verkin, Svítu í G-dúr eftir Tommaso Albiononi (d. 1750) og Tríósónötu nr. 2 eftir J.S, Bach (f. 1750) lók efnisskráin að riðlast: Þá stungu þeir inn kafla úr 3. hornkonsert Mózarts, léku síðan Sinfóníu fyrir málmblásara eftir Viktor Ewald (d. 1935), stungu þá inn Stúlku með hörgult hár eftir Debussy, en fluttu loks enska renaissance-svítu, samsetta úr verkum fjögurra enskra tón- skálda Í7. aldar: Adson, Purcell, Holborn og Handel. Allt nema Tríósónötu Bachs fluttu þeir blaðalaust, standandi framarlega á sviðinu, og oft með miklum (en þaulæfðum) hreyfingum um sviðið. Og af Miðvikudagur 10. apríl 1985 11 manni var send og gildir einu um höfund og viðtakanda en þar segir svo: Auðna er það: við ævinnar áttunda tug að geta glaðst við lífið með geiglausum hug, halda hörku og þreki, hugsjónum trúr, hæfa enn þungum höggum heimskunnar múr. Baldvin Þ. Kristjánsson er slíkur gæfumaður og því sam- fagna ég honum og fólki hans. H.Kr. Empire Brass Quintet afburðamikilli list, snilli og kunnáttu. Eftir hlé fór hins vegar „allt í vitleysu", því þeir tóku upp léttara hjal: Fluttu fyrst Svítu úr „West Side Story" eftir vernd- ara sinn Leonard Bernstein, þá Cole Porter, þá Carnival í Fen- eyjum, með frægri kornett-sóló úr hljómsveit lúðrakóngsins So- usa, þá Central Park Suite eftir David Chester, og loks Black Bottom Stomp - Dixieland. Ekki vildu áheyrendur una því að tónleikunum lyki þar með, og komu þá tvö aukalög, Ain’t misbehavin’ eftir Fats Waller og Stars and Stripes Forever eftir Sousa, vinsælt aukalag hjá öll- um amerískum hljómlistar- mönnum. Fyrri hluti hljómleikanna var semsagt með sæmilega hefð- bundnu sniði, að öðru leyti en því hve yfirburða snjallir og skemmtilegir þeir félagar eru, en seinni hlutinn var aðallega gamansamur, og til þess gerður að sýna kúnst hinna ýmsu hljóð- færaleikara í einleik; mátti ekki á milli sjá hver snjallastur var eða skemmtilegastur, Rolf Smedvis 1. trompet, sem „brilli- eraði" á Bach-trompet í Bach, og á Cornet í Hátíð í Feneyjum, Charles Lewis 2. trompet, sem lék einleik í jazz-lögunum, Da- vid Ohanian í Mozart-konsertn- um og víðar, básúnuleikarinn Scott Hartman, eða túbuleikar- inn James Samuel Pilafina - í höndum hans reyndist þetta stirðlega hljóðfæri vera furðu sporlétt, eins og sagt er raunar að fíllinn sé, ef mikið liggur við, og höfðu menn af hið mesta gaman. Þetta eru semsagt menn sem „geta allt", enda hefur tónleikaskrá það eftir ónefnd- um manni, að „leik Empire Brass Quintet verði ekki til neins jafnað hvað varðar fegurð, skírleika, nákvæmni, jafnvægi og samspil. Leikur þeirra er hrein upplifun frá upp- hafi til enda." Nú er eftir að sjá hvort okkar menn vilja læra af félögum Em- pire sprellfjöruga framkomu og það að spila blaðlaust - ef þeir gerðu það gæti lúðrakvintett orðið meðal eftirsóttustu mús- ík- og skemmtiatriða á landinu. Þetta virðist nefnilega vera hefð meðal lúðrakvintetta, því fáum dögum eftir tónleika Heims- . veldiskvintettsins flutti útvarpið dagskrá frá tónleikum Kan- adíska lúðrakvintettsins í ein- hverri höll í Þýskalandi, og var þar hið sama uppi á teningnum. Sig. St. 75 ára Baldvin Þ. Kristjánsson Fyrir síðustu jól kom út bók með nafninu Jákvæður lífskraft- ur. Höfundurinn er Norman Vincent Peale en Baldvin Þ. Kristjánsson íslenskaði. Þetta er sjöunda bókin sem hann snýr á íslensku eftir þennan víðfræga Vesturheimsprest. Og nú eru 20 ár síðan fyrsta bókin birtist í þýðingu Baldvins. Sjálfur er hann nú hálf áttræður, fæddur 9. apríl 1910. Norman Vincent Peale semur bækur sínar sem hagnýtar hand- bækur í daglegu lífi. Þær eru áminning um gildi trúar og bæn- rækni, studdar mörgum dæmum frá hversdagsleikanum. Þær eru áminning um lífsgildi léttrar lundar og þann háska sem stafar af ólund og annarri myrkvun hugans. Og presturinn er ekki í vafa um ráð við hverjum vanda. Hann trúir á guð sinn og frels- ara. Grímur Thomsen orti á sinni tíð: Verst af öllu villan sú, vonar og kærleiks laust á engu að hafa æðra trú, en allt í heimi traust, fyrir sálina setja lás, en safna magakeis, ogá vel tyrfðum bundinn bás baula eftir töðumeis. Sú mynd sem skáldið dregur hér upp og telur versta af öllu er býsna algeng í dag. Svo margir eru þeir sem bundnir á básnum baula eftir töðumeisnum og sumir ærið hátt og kröftuglega. Undir þeim kringumstæðum er það ærinn velgjörningur að koma á framfæri þeim boðskap sem Norman Vincent Peale flytur. Liðinn er meira en hálfur sjötti áratugursíðan við Baldvin sátum saman á skólabekk. Á þeim tíma hefur margt gerst og vissulega hefur sumt af því kom- ið að óvörum. Ég reyndi í jólablaði ísfirðings 1980 að gera eins konar úttekt á lifsskoðun okkar jafnaldra og þróun henn- ar og verður það ekki rakið hér. Hins vil ég geta að þrátt fyrir öll þessi ár finnst mér Baldvin harla líkur því sem hann var. Ég mun ekki rekja starfsferil Baldvins í þessari stuttu grein. Það hefur hann sjálfur gert í safnritinu Aldnir hafa orðið, 12. bindi. Þess eins vil ég geta að lengstum hefur atvinna hans verið félagsleg þjónusta. Og það er í fullu samræmi við skoðun hans og lífsviðhorf eins og ég kynntist því forðum og jafnan síðan. Þegar ég hugsa um þessi svo- kölluðu tímamót á æviferli Baldvins er mér ofarlega í huga afmæliskveðja sem öðrum stórfenglegur, hann sofnaði aldrei á verðinum hvernig sem á gekk. Minni hennar var frá- bært hún mundi öll nöfn og afmælisdaga allra í fjölskyld- unni sem er ekkert lítil, 6 börn, 23 barnabörn og 22 barnabarnabörn, alls 51 af- komandi. Það má kallast yndislegt að hafa getað sinnt öllu þessu fólki og afa mínum og heimil- inu fram á síðustu stund eins og hún gerði. Aldrei kom maður í heim- sókn til ömmu og afa öðru vísi en að allt væri svo fínt og fágað að maður skammaðist sín fyrir draslið heima hjá sér. Við börnin megum vera þakklát fyrir að eiga ömmu og afa svona lengi, og fá að njóta þeirra í ríkum mæli eins og ég hef gert, amma mín. Ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir rnig, alla sláturgerðina og allar yndislegu samverustund- irnar sem við höfum átt saman. Elsku amma ég bið góðan Guð að varðveita þig og geyma, því þú ert okkur svo dýrmæt. Nú legg ég augun aftur, og Guð þinn náðar kraftur mín veri vörn í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka, þinn engil, syo ég sofi rótt. S. Egilsson. Vertu bless elsku amma rnín og hvíl þú í friði. Erla Sigurðardóttir, Sig- rún Pálsdóttir, Ágústa Harpa Kolbeinsdóttir, Sigurður Heimir Kol- beinsson, Þorsteinn Örn Kolbeinsson og Kol- beinn Þorsteinsson. Guðrún Sigurðardóttir fyrrum húsfreyja að Þóroddsstöðum Ólafsfirði Hún hefði orðið 90 ára í september ef Guð hefði lofað, eins og hún sagði alltaf ef eitthvað var, ef Guð lofar. Persónuleiki hennar var Fædd 17. september 1985. Dáin 28. mars 1985. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, ersefurhérhinn síðasta blund. Margs er að minnast, margs er hér að þakka. Guði sé lof fyrir langa tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði. Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far þú á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. V. Briem. í dag er til moldar borin á Ólafsfirði, frú Guðrún Sigurð- ardóttir fyrrum húsfreyja að Þóroddsstöðum á Ólafsfirði, síðar til heimilis að jósheimum 6, Rvík. Gift Þórði Jónssyni fyrrum bónda að Þóroddstöð- um og bæjarstjóra Ólafsfjarð- ar, síðar gjaldkera Öfna- smiðjunnar h.f. í Reykjavík. Þau áttu 6 mannvænleg börn. Þau eru: Jón Þórðarson framleiðslu- stjóri að Reykjalundi, giftur frú Jóhönnu Sveinsdóttur, eiga þau einn son Ægir Þór. Áður giftur Auðbjörgu Pétursdótt- ur. Áttu þau 4 börn þau Pétur, Sigrúnu, Guðrúnu og Guð- nýju. Sigurður Hólm Þórðarson vélsmiður, giftur frú Guðrúnu Tómasdóttur. Eiga þau 2 dætur. Þær eru Guðrún Erla og Sóley. Ármann Þórðarson kaupfé- lagsstjóri á Ólafsfirði. Giftur Þórgunni Rögnvaldsdóttur. Eiga þau 3 börn þau Auði Guðrúnu, Þórð og Sigrúnu. Þórgunnur átti einn son áður Rögnvald. María Sigríður Þórðardóttir saumakona á Akureyri. Ekkja Sigurjóns Steinssonar búfræði- ráðunauts. Börn þeirra eru Þórður Gunnar, Steinn Oddgeir, Sigmundur, Ingi Rúnar og Guðmundur. Eysteinn Gísli Þórðarson forstjóri búsettur í Los Ange- les í Californiu. Giftur Pamelu Þórðarson. Áður giftur Dóru Hjartar Rvík. Eiga þau 2 syni Gunnar Þór og Leif Egil. Búa þau öll í Californiu. Svanberg Jóhann Þórðarson húsasmiður á Akureyri giftur Önnu Halldórsdóttur. Börn þeirra eru Halldór, Gunnar, Þórður, Hulda, Kristinn Helgi og Sigurjón Már. Ingólfur Magnússon fóstur- sonur sem kom til þeirra um 10 ára og var hjá þeim í 30 ár. Búsettur í Ólafsfirði. Guðrún Sigurðardóttir var miklfengleg húsmóðir á stór- býli, gestrisin og góð heim að sækja. Hannyrðakona mikil og lét aldrei verk úr hendi sleppa. Kát var hún og hress gaman- söm og lífsgleðin í hávegum. Ekkert taldi hún eftir sér að gera þó hún væri stundum slæm af gigt. Alltaf var hún reiðubúin til að hjálpa öðrum hvernig sem á stóð, enda leit- uðu margir til hennar. Ef eitthvað bjátaði á hjá okkur var hún alltaf með góðar ráð- leggingar til handa okkur. Ég man þegar ég var lítil og meiddi mig, eða var með allt á hornum mér, þá kenndi hún mér bænir til að biðja góðan Guð um hjálp. Gaman var að fá að koma í sveitina til þeirra að Þóroddsstöðum og vera þar um tíma á sumrin, þar var líf og fjör, því gestkvæmt var mjög þar. Allir sem fóru fram eftir komu við til að spjalla og þá var nú kaffisopinn góður og kökurnar líka. Hún var greind og víðlesin kona þó hún hefði ekki haft langa skólagöngu. og litríkur vetur Vertu hlýlega klædd 1 vetur 1 falleguin og hlýjum hnésokkum eða sokkabuxum frá Fjölmargir klæðilegir litir Þér líður vel í : m .. ir ISLENZK

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.