NT


NT - 10.04.1985, Síða 13

NT - 10.04.1985, Síða 13
Miðvikudagur 10. apríl 1985 13 Nýja bíó: Eigin sefjun eða ytri orsakir? ■ Skammdegi. ísland 1985. Fram- leiðandi: Jón Hermannsson. Handrit: Fráinn Bertelsson og Ari kristinsson. kvikmyndataka: Ari kristinsson. Tónlist: Lárus Grímsson. Leikendur: Ragnheiður Arnardóttir, Hallmar Sigurðsson, María Sigurðardóttir, Eggert Þorleifsson, Tómas Zoéga, Valur Gíslason, Þráinn Bertelsson og fleiri. Leikstjóri: Þráinn Bertelsson. Þráinn Bertelsson og félagar hans í kvikmyndafélaginu Nýju lífi hafa nú uni stund sagt skilið við kunrpánana tvo og furðufuglana Þór og Danna, sem þjóðin hefur tekið ástfóstri við. Persónurnar, sent við fáum að kynn- ast í þessu „gæsahúðardranta" eru enn undarlegri en hinar tvær, þrjú systkini á afskekktum bæ vestur á fjörðum, og þar af einn fáviti. Þremenningarnir, tveir bræður og ein systir. búa á fjölskyldujörðinni. Hokra væri réttara orðið. A landar- eignirini er þó að finna eina af fáum auðlindum fastalandsins, sjálfan jarð- hitann, og það í töluverðum mæli. Athafnamenn að sunnan og einn fyrir vestan horfa til hans nteð dollara í augununr. En systkinin vilja ekki selja. þar sem þau eru gegnsýrð af misskilinni heimahagarómantík. Þau eru þó ekki éinir eigendur að þessum auma skika, og það vita athafna- mennirnir. 1 útlöndum býr ekkja eins bróðurins og hún á hclming jarðar- innar. Sú vill ólm selja og burgeisarnir bjóða henni í frí til íslands, svo hún nregi telja meðeigendur sína á að ganga að kaupunum. Ekkjan kemur vestur í svartasta skammdeginu, og þess vegna ekki langt að bíða. að dularfultir atburðir taka að gerast. Skammdegi var að nrestu tekin í dinimu og snjó í Arnarfirði. nærri Bíldudal, í ákjósanlegu umhverfi fyr- ir þá tegund myndar. sem hún átti að verða. Afskekkt hús hafa nefnilega löngum verið ákjósanleg sögusvið fyrir spennumyndir af ýmsu tagi. Höfundum myndarinnar tckst því miður ekki það, sem þeir ætluðu sér. og um leið tekst þeim ekki að uppfylla þær kröfur. sem áhorfendurnir liljóta að gera. Astæðan fyrir því, að svo fór sent ■ Ragnheiður Arnardóttir í hlut- verki ekkjunnar ungu í skammdeg- isverki Þráins Bertelssonar. fór. er fyrst og fremst ófuHburða handrit. Það er allt of lengi að koma sér að efninu, og stundum fær maður það óhjákvæmilega á tilfinninguna. að höfundar þess hafi ekki alltaf vitað hvað þeir voru að gera. Útúrdúrarnir voru of ntargir og of langir, eins og ýmsar senur með ekkjunni og cldri bróðurnum, eina manninunt með heilbrigðu viti á bænunt. Engu að síður örlar nokkrum sinn- um á spennu í myndinni, einkum í upphafi og undir lokin. enda þótt maður viti stundum ekki hvort sú spenna sé eigin sefjun. eða hvort það eru atburðirnir á tjaldinu, sem skapa hana. Tæknivinna í myndinni cr öll snyrtilega unnin og mörg næturatriðin eru nrjög fallcga mynduð af Ara Kristinssyni. Tekst oft að skapa lævi blandað andrúmsloft, scm handritið fylgir síðan ekki eftir. Leikararnir standa sig flestir nteð ágætum, sér- staklega þau Hallmar Sigurðsson og Ragnheiður Arnardóttir. enda líka einna mest gert úr þeim. Skammdegi er nokkur framför frá fyrri myndum Þráins Bertelssonar, en hana vantar herslumuninn til að geta kallast eftirnrinnileg mynd. Mcð ofurlítið nreiri vandvirkni og meiri yfirlegu yfir handriti, hefði hún getað orðið góð. Við skulum vona að svo verði með næstu mynd. Menn verða líka að vanda sig, þó svo að þeir ætli ekki að gera ódauðlcg listaverk. Guðlaugur Bergmundsson. Stalín er ekki hér: Risunum steypt af stalli ■ Stalín er ekki hér. Leikrit eftir Véstein Lúðvíksson. Leikstjóri: Lár- us Ýmir Óskarsson. Leikcndur: Helgi Skúlason, Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Egill Ólafsson, Vilborg Halldórsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Mynda- taka: Egill Aðalsteinsson. Hljóð: Baldur Már Arngrímsson. Leikmynd: Baldvin Björnsson. Stjórn upptöku: Elín Þóra Friðfinnsdóttir. Enn heldur sjónvarpið áfram að gleðja okkur með innlendri leikrita- gerð. Aö þessu sinni var gripið til þess ráðs að fara upp í hillu og sækja þangað margfrægt sviðsverk til að færa það heim í stofu allra lands- manna. Sjónvarpið ætti að sjálfsögðu að gera sem minnst af slíku. heldur byggja framleiðslu sína á frumsömdu efni fyrir nriðilinn, enda hefur það sýnt sig í vetur. að góð leikrit. samin fyrir sjónvarp. eru til. 1 þcssu tilviki var það þó vel réttlætanlegt að taka upp leikhússtykki. Leikrit Vésteins ■ Góður leikari i góðu hlutverki. Egill Ólafsson sem læknaneminn og tengdasonurinn í Stalín er ekki hér. Lúðvíkssonar, Stalín er ekki hér, cr einfaldlega eitt besta, ef ckki allra besta innlenda verkið, sent sjónvarp- iö hefur sýnt um langan aldur. Vésteinn leggur til atlögu gegn tveimur risum í verki sínu. kjarnafjöl- skyldunni og vofu Stalíns innan vinstri hreyfingarinnar á íslandi á því herrans ári 1957. Öll eiga þessi átök sér stað innan sömu fjölskyldunnar, hjá Þórði járnsmið. Mundu seinni konu hans, þremur börnum Þórðar af fyrra hjónabandi ogtengdasyni. Aöur en yfir lýkur er Stalín steypt af stalli og fjölskyldan splundrast í smæstu einingar sínar. Stalín er ekki hér er einkar vel skrifað leikrit, hvað svo sem mönnum kann að finnast um innihaldið og boðskapinn, sern það flytur. enda mun þaö hafa vakið miklar deilur á sínurn tíma, þegar það var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Textinn inniheldur alla þá spennu. sem nauösynlcg er til aö halda athygli áhorfandans vakandi 'allan tímann, og persónusköpunin cr í fullu samræmi viö það. Helgi Skúlason vann enn einn leiksigur sinn í hlutverki Þórðar, hins rétttrúaða Stalínsósíalista, sem horfir upp á það að heimsmynd hans hrynur smátt og smátt. Og um leið og geislabaugurinn fer af Stalín, missir Þórður smám saman tökin á heimilis- sellunni, undirstöðu liins sósíalíska þjóðskipulags. Aörir leikarar eru Helga fullkomlega samboðnir, nema þá helst Vilborg Halldórsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Þröstur vann þó verulega á, þegar líða tók á verkið, og var oft fjári skemmtilegur í hlutverki heimilisfíflsins og gal- gopans Kalla. Sjónvarpið vandaði greinilega mik- ið til verksins, sérstaklcga var mikil natni lögð í leikmyndina. Þar tókst vel að skap hið dæmigeröa basl- heimili. Litasamsetningin var einkar skemmtlleg, grámyglulcg og fátæk- leg. Enn á ný hefur veriö gert verk. sem cr öllum aðstandcndum jress til mikils sóma. Guölaugur Bergmundsson. Auglýsing frá Orlofssjóði VR ORLOFSHÚS VR Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshús VR sumariö 1985. Umsóknir á þar til gerö eyðublöð þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi Verzlunarinnar 8. hæð í síðasta lagi föstudaginn 19. apríl 1985. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: að Ölfusborgum að Húsafelli í Borgarfirði að Svignaskarði í Borgarfirði að lllugastöðum í Fnjóskadal að Laugarvatni í Vatnsfirði, Barðaströnd að Einarsstöðum Norður-Múlasýslu íbúðir á Akureyri Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsunum á tímabilinu 1. júní til 14. september sitja fyrir dvalarleyfum til 20. maí nk. Leiga verður kr. 2.500,- á viku og greiðist við úthlutun. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 3. juní nk. fellur úthlutun úrgildi. Dregiö verður milli umsækjendaef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 11. maí nk. kl. 14. og hafa umsækjendur rétt til að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu VR í síðasta lagi föstudaginn 19. apríl nk. Umsóknareyðublöö eru afhent á skrifstofu VR, Húsi Verzlunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.