NT - 10.04.1985, Qupperneq 23
Miðvikudagur 10. apríl 1985 23
Kalott-keppnin í sundi:
Tíu fslandsmet
þar af þrjú sveitamet- Ragnheiður með tvö í sama sundinu
Kalott-keppnin í sundi:
FRABÆR FRAMMISTAÐA
- íslenska sveitin náði 2. sæti í fyrsta sinn - lokasprettirnir tryggðu annað sætið
Svíar sigruðu - ísland sigraði í karlaflokki
bót. í sveitinni voru Ragnar
Guðmundsson, Eðvarð Eð-
varðsson, Tryggvi Helgason og
Magnús Már Olafsson.
5. Ragnar Guðmundsson
varð annar í 800 rnetra skrið-
sundi karlaá 8:25,63 sekúndum,
íslandsmet. Gamla nretið átti
hann sjálfur, 8:27,00.
6. -7. Ragnheiður Runólfs-
dóttir setti íslandsmetin sín með
„stæl", tvö í samasundinu. Hún
varðönnuri lOOmetrabaksundi
kvenna á 1:07,84 mín, sem er
íslandsmet. Um leið setti hún
íslandsmet í 50 metra baksundi,
32,79 sek. Hvorttveggja eru
miklar framfarir: Gamla metið
í 50 m. var 32,79, og í 100 m.
1:08,59 mín, en þessi met átti
Ragnheiður bæði.
8. Magnús Már Ólafsson varð
þriðji í 100 nretra skriðsundi
eftir mjög harða keppni við
Svíana Kagström og Johnson
sem urðu sjónarmun á undan
honunr í mark. Magnús synti á
52,92 sek, sem er mjög góður
tími fyrir svo ungan sundmann.
Gamla metið átti Ingi Þór
Jonsson, og það var 53,03 sek,
sett 1982. Því má við bæta, að
Magnús er bróðir Bryndísar
Ólafsdóttur, en þau eru börn
Hrafnhildar Guðmundsdóttur
sunddrottningar á árum áður.
9. Sveit íslands sigraði í 4x100
metra fjórsundi karla. Tíminn
var 3:57,38 mín, rúmum fimrn
sekúndum betri en gamla lands-
sveitarmetið, 4:02,71 nrín. í
sveitinni voru Eðvarð Eðvarðs-
son, Árni Sigurðsson, Tryggvi
Helgason og Magnús Már
Ólafsson.
.10. íslenska sveitin varð í
öðru sæti í 4x100 nretra skrið-
sundi kvenna, á 4:05,34 rnín.
Gamla metið var 4:07,69 mín. í
sveitinni voru Helga Sigurðar-
dóttir, Þorgerður Diðriksdóttir,
Ragnheiður Runólfsdóttir og
Bryndís Ólafsdóttir.
■ íslenska landsliðið í sundi
varð í öðru sæti í Kalottkeppn-
inni í sundi, sem haldin var um
helgina í Sundhöll Reykjavíkur.
Svíar sigruðu. Þetta er í fyrsta
sinn, sem landslið nær þessum
árangri, hingað til hefur þriðja
sætið verið það besta sem liðið
hefur náð. Karlasveit íslands
sigraði í stigakeppni karla-
sveita, en kvennasveitin varð í
þriðja sæti. Árangur einstakra
íslenskra keppenda varð með
miklum ágætum, tíu Íslands-
met voru sett, mörg þeirra frá-
bær afrek. Spennan var mikil í
keppninni, stigakeppnin var
spennandi til síðasta sunds, en
það var einmitt þá, sem íslenska
liðið „stal“ öðru sætinu af
norska liðinu, með frábærum
árangri í boðsundum. Þá voru
einnig sett tvö íslandsmet, í
tveimur síðustu sundunum,
boðsundunum.
Fyrir boðsundin í lokin,
4x100 metra fjórsund karla, og
4x100 metra skriðsund kvenna,
var staðan þannig að Svíþjóð
hafði 237 stig, Noregur 194
ísland 183 og Finnland 168. í
fjórsundinu náði íslenska sveit-
in toppárangri, nýtt glæsilegt
íslandsmet sett, 3:57,38 mín, en
gamla metið, sem einnig var
■ Bryndís Ólafsdóttir átti frábæran lokasprett í 4x100 metra skriðsundi. Það var síðasta sund
keppninnar, og þá náðu íslendingar loks öðru sætinu. Bryndís setti íslandsmet í 100 metra skriðsundi
í keppninni, og lokasprettur hennar mældist á enn betri tíma, þó slíkt sé ekki viðurkennt sem mct.
NT-mynd: Sverrir
■ Tíu íslandsmet féllu í sundi
um páskahelgina. Mörg þessara
meta voru hreint frábær, t.d.
skriðsundsmet systkinanna
Magnúsar og Bryndísar Ólafs-
barna frá Þorlákshöfn, og boð-
sundsmetin sem sett voru í lokin
og sagt er frá einnig hér annars
staðar. Þá má nefna met Eð-
varðs Þ. Eðvarðssonar í 200
metra fjórsundi, sem er mjög
góður árangur, samkvæmt
stigatöflu. En lítum nánar á
metin í tímaröð:
1. Bryndís Ólafsdóttir sigraði
í 100 metra skriðsundi kvenna á
59,31 sekúndu. Gamla metið
átti hún sjálf, 59,53 sekúndur
frá því um síðustu helgi.
2. Tryggvi Helgason sigraði í
100 metra bringusundi karla á
1:06,41 mín. Hann setti íslands-
met í 50 metra bringusundi á
fyrstu 50 metrunum, synti á
31,03 sekúndum, gamla metið
átti hann sjálfur, 31,07 sek.
3. Eðvarð Þ. Eðvarðsson sigr-
aði í 200 metra fjórsupdi karla
á 2:08,63 mín. Gamla metið átti
hann sjálfur, 2:10,19 mín, svo
hér er um umtalsverðar framfar-
ir að ræða.
4. íslenska sveitin varð í
fjórða sæti í 4x200 metra skrið-
sundi karla á 8:00,64 mínútum.
Gamla metið var 8:06,24 mínút-
ur, og því nærri 6 sekúndna
landssveitarmet var 4:02,71
mín. Þeir sem syntu voru Eð-
varð Eðvarðsson, Árni Sigurðs-
son, Tryggvi Helgason og
Magnús Már Ólafsson, og eftir
sundið höfðu Norðmenn 195
stig, íslendingar 193, en Norð-
menn ráku lestina í þessu sundi.
Nú þurfti kvenfólkið að verða
á undan norsku sveitinni, það
var nóg, þrjú stig á milli sveita í
stigagjöfinni. Þær sem syntu
voru Helga Sigurðardóttir, Þor-
gerður Diðriksdóttir, Ragn-
heiður Runólfsdóttir og Bryndís
Ólafsdóttir, íslandsmetshafi frá
deginum áður. Þegar Bryndís
fór af stað í síðasta prettinn var
hún sjónarmun á eftir norsku
stúlkunni, og nærri lengd sinni
á eftir þeirri finnsku. Sú sænska
var langfyrst, og því torveld
bráð. En Bryudís hreinlega
flaug áfram í vatninu. Á fyrstu
25 metrunum fór hún fram úr
þeirri norsku, á næstu 25 náði
hún þeirri finnsku og á síðustu
50 metrunum stakk hún þessa
keppinauta af. íslenska sveitin í
öðru sæti í þessu 4x100 metra
skriðsundi á nýju glæsilegu ís-
landsmeti, 4:05,34 mín, gamla
landssveitarmetið var 4:07,69
mín. Tími Bryndísar í loka-
sprettinum var 59,10 sek, rúm-
lega 0,2 sekúndum betra en
íslandsmet hennar daginn áður,
en náttúrulega ekki viðurkennt
þar sem hún tók ekki fyrsta
sprett. Lokamarkinu var náð,
öðru sæti í stigakeppninni.
Lokastaðan varð Svíþjóð 251,
ísland 200, Noregur 196, og
Finnland 179. Island sigraði í
karlakeppninni, hlaut 118 stig,
Svíþjóð hlaut 101, Finnland 98
og Noregur 96. í kvennakeppn-
inni hlaut Svíþjóð 150 stig, Nor-
egur 100, ísland 82 stig og
Finnland 81. Það voru því
sænsku stúlkurnar sem voru að
baki sigri Svía, sem var nánast
öruggur strax eftir fyrri dag.
■ Ragnheiður Runólfsdóttir setti fslandsmet í bæði 50 og 100
metra baksundi í sama sundinu. Hér sést hún fagna sigri á mótinu.
NT-.nynd Sverrir
Hafþór B.Guðmundsson landsliðsþjálfari:
Anægður með árangurinn
- Svíar sterkari en við bjuggumst við
■ „Ég er mjög ánægður með
þennan árangur, þetta var
hreint frábært. Annað sæti er
það besta sem íslenskt landslið
hefur náð í þessari keppni. Og
að ná því er frábær árangur því
öll hin liðin hafa sýnt miklar
framfarir líka“, sagði Hafþór
B. Guðmundsson landsliðs-
þjálfari í sundi í samtali við NT
eftir Kalottkeppnina. „Við
vissum að Svíarnir mundu
verða sterkir, en bjuggumst ekki
við þeim svona sterkum. En
það var vitað allan tímann að
keppnin yrði hörð á milli hinna
þriggja," bætti Hafþór við.
íslenska liðið var í þriðja
sæti nær allan síðari daginn, á
eftir Norðmönnum í öðru sæti
og Svíum í því fyrsta. „Norð-
mennirnir sigu fram úr okkur
fyrri daginn, og þegar við sáum
hvað verða vildi síðari daginn,
spyrntum við við fótum. Við
ræddum málin og komumst að
því að þetta var mögulegt. Það
lögðu sig allir fram, og við
náðum settu marki. Með það
er ég sérstaklega ánægður,"
sagði Hafþór.
Hafþór sagði að framundan
væru allmörg verkefni hjá
sundlandsliðinu. Fjórir kepp-
endur færu á „Litlu Ólympíu-
leikana“, sem haldnir verða í
San Marínó, og síðan yrðu
keppendur á Evrópumóti Ung-
linga og Evrópumótinu í Sofia.
„Ég vildi síðan helstað við
gætum farið í keppnisferð til
útlanda með fullt lið. Það er
spurning um peninga. Við eig-
um boð um að fara í keppni til
írlands og Færeyja, og ég vona
að úr því verði." sagði Hafþór
B. Guðmundsson landsliðs-
þjálfari í sundi.