NT


NT - 10.04.1985, Síða 27

NT - 10.04.1985, Síða 27
EM-unglinga í badminton: Tveir sigrar, eitt tap - og 15.sætið náðist - Betri árangur en áður ■ f síðustu viku lauk Evrópu- móti unglinga í badminton. Mótið var haldiö í Pressbaum í Austurríki og voru íslendingar meðal þátttökuþjóða. íslenska liðið spilaði í riðli með Frökkum og Finnum. Sigur-— vannst á Frökkum 4-1 en leikur- inn gegn Finnum tapaðist 1-4. Liðið varð því í öðru sæti í riðlinum þar eð Finnar unnu Frakka og þurfti íslenska liöið að spila við Belga um 15.-16. sæti í þriðja styrkleikahópi. ís- land vann Belga með 3 vinning- unt gegn 2 og hafnaöi því í 15. sæti. I síðustu keppni varð ís- lenska liðið í 17. sæti. Pess má geta að Finnar unnu sig upp úr 3. styrkleikaflokki. í einliðaleikjum í einstak- lingskeppninni sem fram fór eftir að liðakeppninni lauk þá duttu allir íslensku keppendurn- ir úr keppninni í fyrstu umferö nema Guðrún Júlíusdóttir en hún sigraði franska stúlku í fyrstu umferð en tapaði síðan fyrir danskri stúlku í annarri umferð. í tvíliðaleik þá sigruðu Árni Pór Hallgrímsson og Snorri Ingvarsson par frá Rússlandi í fyrstu umferð. Var það góður sigur. í næstu umferð þá lentu þeir á móti Dönunum Paulsen og Pedersen og töpuðu. Pess má geta að þeir dönsku sigruðu í tvíliðaleik á mótinu. Danir sigruðu í liðakeppninni eftir úrslitaleik við Englend- inga. Leikurinn fór 3-2. Þá sigr- uðu Danir í öllum einstaklings- greinunum nema í einliðaleik karla en þar sigraði Englend- ingur. Á Evrópuþingi badminton- sambanda sem haldið var í tengslum við badmintonkeppn- ina var samþykkt að í næstu keppni myndu sex sterkustu þjóðirnar sitja hjá í einstak- lingskeppnunum í fyrstu þrem- ur umferðunum. Gefur þetta þeim lakari fleiri leiki og meiri möguleika. Bayern gegn Bayern - Uerdingen mætir Bayern Munchen ■ Það verða Bayern Uerding- en og Bayern Múnchen sem keppa til úrslita í þýsku bikar- keppninni í knattspyrnu. Leikurinn fer fram í Berlín þann 26. maí. Bayern Mtinchen sigraði Bor- ussia Mönchengladbach með einu marki gegn engu eftir fram- lengdan leik. Það var Daninn Sören Lerby sem skoraði mark- ið eina úr vítaspyrnu eftir að Höness hafði verið felldur. Leikurinn var ferlega jafn og áttu leikmenn „Gladbach" sín færi í honum. í byrjun síðari hálfleiks bjargaði Matthaus á línu frá Bruns og á 88. mínútu átti Rahn skalla að marki Ba- yern sem Pfaff sló naumlega yfir slá. Bayern Munchen eru nú komnir í úrslit í bikarkeppninni þýsku, eru í efsta sæti deildar- innar þremur stigurn á undan næsta liði og eiga að spila í kvöld við Everton í Evrópu- keppni bikarhafa undanúrslit- um. Sannarlega frábær árangur hjá liðinu það sem af er vetri. Bayern Uerdingen lék án Lárusar Guðmundssonar er lið- ið sigraði Saarbrúcken með einu marki gegn engu. Pað var Franz Raschid sem skoraði markið eftir að markvörður Saarbrúck- en hafði varið fast skot frá Scháfer en misst knöttinn frá sér. Ef Uerdingen nær að sigra í ■ Toppliðin í v-þýsku fyrstu- deildinni í knattspyrnu töpuðu flest stigum rétt fyrir páska, þegar heil umferð var leikin hér. Bayern Múnchen mátti gera sér jafntefli að góðu í Frankfurt, og mátti reyndar vel við una. Werder Bremen, í öðru sæti, tapaði í Hamborg, en Borussia Mönchengladbach lagði Bielef- eld að velli og sótti á í toppbar- úrslitaleiknum þá verður Lárus bikarmeistari í Þýskalandi en hann varð bikarmeistari með Waterschei í Belgíu áður en hann fór til Þýskalands. áttunni. Bayern Urdingen, lið Lárusar Guðmundssonar, tap- aði fyrir Schalke 0-4 á útivelli með Lárus innanborðs, en hangir þó enn í fjórða sæti. Berthold og Tobollik komu Frankfurt í 2-0 gegn Bayern, en Michael Rummenigge og Nor- bert Eder björguðu málunum rétt í lokin, 2-2. HSV vann sanngjarnan sigur á Bremen, 2-0. Felix Magath og Thomas Von Heesen skoruðu. Lárus byrjaði inná gegn Schalke, en var tekinn útaf á 70. mínútu. Thon skoraði bæði mörk Schalke. Fortuna Dússeldorf komst í bullandi fallhættu eftir tap gegn Köln, 1-2. Dusend kom Dúss- eldorf yfir, en Bein og Allofs sneru dæminu við. Frankfurt-Bayern Munchen........ 2-2 Hamborg-Bremen ................. 2-0 Mannheim-Stuttgart.............. 1-1 Dusseldorf-Köln................. 1-2 Leverkusen-Kaiserslautern....... 3-0 Karlsruher-Dortmund............. 2-4 Schalke-Uerdingen .............. 2-0 Bochum-Braunschweig............. 1-0 Gladhach-Bielefeld ............. 2-0 Grikkland: Sigurður gerði tvö ■ Sigurður Grétarsson held- ur liði sínu Iraklis í baráttunni um gríska meistaratitilinn í knattspyrnu. Sigurður skoraði bæði mörk Iraklis í sigri á Pierikos. Iraklis er nú komið í annað sætið í deildinni. Úrslit um helgina: Aek-Panathinaikos ..............1-1 Olympiakos-Athens.............. 1-1 Ethnikos-Aris...................2-2 Kalamarias-Panionios............. 1-0 Paok-Egaleo.......................3-1 , Ofi-Larisa ..................... 1-1 Pierikos-Iraklis .................0-2 Doxa-Panachaiki ..................2-0 Stada efstu liða: Paok Iraklis Pauathinaikos Olympiakos ... Aek Larisa 23 16 4 3 44 22 36 23 15 3 5 40 22 33 23 13 6 4 48 24 32 23 14 4 5 39 19 32 23 11 9 3 43 23 31 23 11 5 7 43 28 27 ■ Lerby skaut Bayern í úrslitin. í hvaða merki er hann? V-Þýskaland: Bágt hjá toppliðunum Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni NT í V-Þýskalandi: Miðvikudagur 10. apríl 1985 27 ísland*Belgía, landskeppni í fimleikum: Stúlkurnar sterkar unnu sigur á þeim belgísku - Piltarnir lágu ■ íslendingar og Belgar háðu landskeppni í fimleikum hér á landi á síðastliðinn laugardag. Keppnin var jöfn og spennandi en Islendingar gátu ekki stillt upp sínu sterkasta liði þar er Hanna Lóa, íslandsmeistari kvenna, veiktist rétt fvrir keppnina. Sigur vannst í kvennakeppn- inni og þar fékk Kristín Gísla- dóttir flest stig eða 32,85 samtals. Belgíska stúlkan Van Onckelen varð önnur með 31,55 stig og þær Fjóla Ólafsdóttir og Dóra Óskarsdóttir urðu jafnar í þriðja sæti með 30,90 stig. Samtals fengu íslensku stúlk- urnar 88,30 stig en þær belgísku 84,55 stig. Hjá körlunum voru Belgar sigurvegarar fengu samtals 144.70 stig gegn 137,35 stigum Islendinga. Belgar áttu einnig fyrstu tvo menn samanlagt, þá Mortier og Leyssens en Davíð Ingason varð þriðji og Heimir Jón Gunnarsson varð fjórði. Mortier hafði yfirburði í karla- flokknum og sigraði í öllum greinunum sem kcppt var í en þær voru alls sex. Italir unnu Portúgali ■ ítalir lögðu Portúgali að velli 2-0 í vináttulands- leik í knattspyrnu fyrir páska. Conti skoraði á 41. niínútu og Rossi úr víti á 78. mínútu. Körfuknattleikur: Cibona lagði Real ■ Júgóslavneska liðið Cibona Zagreb varð um páska- helgina Evrópumeistari félagsliða í körfuknattieik er liðið sigraði Real Madrid í úrslitaleik sem fram fór í Aþenu í Grikklandi. Lokatölur urðu 87-78. Það var Drazen Petrovic, besti leikmaður Cibona, sem lagði grunninn að þessum stórgóða sigri. Ilann skoraði alls 36 stig í leiknum og gekk leikmönnum Real illa að stöðva hann. Staðan í hléi var 39-38 fyrir Júkkana en Petrovic og bróðir hans Alexander Petrovic, sem gerði 16 stig, snéru dæminu við í síðari hálfleik og tryggðu Cibona sigur. Stigahæstur Real-manna var Bandaríkjamaðurinn Wayne Robinson sem gerði 24 stig. Enska knattspyrnan: Everton vann stórleikinn ■ Everton tók stórt og ákveðið skref í átt til ineistara- titils í ensku knattspyrnunni rétt fyrir páska, er liðið lagði Tottenham að velli á White Hart Lane, 2-1. Eftir leikinn hafði liðið afgerandi forystu í deildinni, forystu sem erfítt verður að vinna upp. Um leið vann Manchest- er United Leicester 2-1, og settist í annað sæti. Andy Gray kom Everton yfir eftir aðeins 10 mínútur, en Grahant Roberts jafnaði á 23. mínútu með þrumu- langskoti. Trevor Steven gerði svo út um leikinn á 61. mínútu. Frank Stapleton og Bryan Robson skoruðu mörk Manchester United gegn Leicester. Samtímis áðurnefndum tveimur leikjum var einn, Liverpool lagði Sunderland að velli, 3-0 í Sunderland. Enska knattspyrnan: United lá í Sheffield - Everton nánast öruggur meistari ■ Manchcster United náði ekki að minnka bilið á milli sín og Everton í toppslag ensku knattspyrnunnar í gærkvöldi. Liðið fór í heimsókn til Sheffield og lék gegn Sheffíeld Wednesday. Wednesday vann 1-0 með fallegu skallamarki Lee Chapman. Hann stökk manna hæst er fyrirgjöf frá Brian Marwood kom fyrir markið og skallaði örugglega í netið. Mark þetta kom strax á 17. mínútu og eftir það þá mátti ekki á milli sjá hvort liðið væri bctra. United reyndi að sækja eins og kostur var en allt kom fyrir ekki. Vörn Sheffield var traust. Við þessi úrslit má telja næsta öruggt að Everton verður enskur meistari í ár. Tottenham á meiri mögu- leika en United á að ná Evcrton en mjög litla þó. Annar leikur var í 1. deild í gær. Southampton sigraði Leicester léttilega með þremur mörkum gegn einu. I 2. deild voru þrír leikir en enginn merkilegur. Huddersfíeld og Grimsby skildu jöfn 0-0 og einnig Shrewsbury og Cardiff Þá vann Wimbledon Oldhain 1-0. ENGLAND STADAN Hér er staðan eftir leikina í gærkvöldi: 1. DEILD: Everton 32 21 6 5 71 35 69 2. DEILD: Oxford 34 20 7 7 65 28 67 Man. Utd. 35 19 8 8 67 37 65 Portsmouth 36 17 14 5 60 42 65 Tottenham 33 18 7 8 62 35 61 Man. City 36 18 10 8 54 31 64 Liverpool 33 16 9 8 49 25 57 Birmingham 35 19 6 10 47 31 63 Southampton 35 16 9 10 47 42 57 Blackburn 35 17 10 8 55 36 61 Arsenal 35 16 7 12 53 42 55 Brighton 36 16 11 9 40 27 59 Sheff. Wed 34 14 13 7 50 36 55 Leeds 36 16 10 10 57 38 58 Nott. Forest 33 15 5 13 47 41 50 Fulham 35 16 6 13 58 57 54 Chelsea 32 13 10 9 48 36 49 Shrewsbury 35 14 11 10 58 48 53 Aston Villa 35 13 10 12 48 49 49 Bamsley 34 13 13 8 39 30 52 West Brom 35 13 6 16 46 52 45 Grimsby 35 15 7 13 60 52 52 Leicester 35 12 6 17 55 60 42 Huddersfield 34 14 9 11 46 48 51 Q.P.R. 35 11 11 13 44 55 44 Wimbledon 34 14 6 14 63 67 48 Norwich 33 11 9 13 39 48 42 Carlisle 36 13 6 17 46 54 45 Newcastle 35 10 12 13 48 62 42 Oldham 36 12 7 17 39 58 43 Watford 33 9 11 13 59 60 38 Sheff.Utd. 35 10 11 14 51 57 41 West Ham 32 9 10 13 40 53 37 Charlton 35 10 9 16 44 51 39 Ipswich 32 í 1 9 14 32 44 36 C. Palace 34 8 12 14 38 54 36 Sunderland 34 9 8 17 36 50 35 Middlesb. 36 7 9 20 35 52 30 Coventry 31 10 4 17 35 51 34 Wolverh. 36 7 8 21 32 63 29 Luton 32 9 8 15 41 53 35 Notts Co. 36 7 6 23 35 66 27 Stoke 34 3 8 23 20 71 17 Cardiff 35 6 8 21 38 70 26 Frakkar og Júgó- slavar fylgjast að ■ Frakkar og Júgóslavar gerðu jafn- tefli 0-0 í undankeppni HM í knatt- spyrnu rétt fyrir páska og fylgjast væntanlega að upp úr 4. riðli í úrslitin í Mexíkó, ef marka má stöðuna. Lcikið var í Sarajevo. Búlgarir eiga þó enn von, því þeir sigruðu Austur-Þjóðverja á laugar- dag 1-0, í Sofiu. Mladenov skoraði í síðari hálfleik. Staðan: Frakkland................ 4 3 1 0 7-0 7 Júgóslavia................4 2 2 0 4-2 6 Búlgaría...............4 2 115-1 5 A-Þýskaland... ........ 4 1 0 3 7-6 2 Luxemborg................ 4 0 0 4 4-14 0 Tvö cfstu komast til Mexíkó. Ungverjar lögðu Kýpurbúa í Búda- pest, 2-0 í 5. riöli. Nyilasi og Szokolai skoruðu. Ungverjar eru allöruggir um að komast áfram úr riðlinum. en Austurríkismcnn og Hollendingar berjast um að komast í aukaleiki um sæti. Staðan: Ungverjaland..................4 4 0 0 9-3 Holland...................... 4 2 0 2 9-4 Austurríki................... 3 2 0 1 4-4 Kýpur........................5 0 0 5 3-14 Rúmenar lögðu Tyrki 3-0 í Búka- rest. Camatranu skoraði tvö og Hagi eitt. Staöan í 3. riðli: England....................3 3 0 0 14-0 6 N.írland.................. 4 2 0 2 5-5 4 Finnland...................4 2 0 2 4-8 4 Rúmenia....................2 10 1 5-3 2 Tyrkland...................3 0 0 3 1-13 0 BIBLÍAN OG Sálmabókin Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (fjubbranÍJöðtofu Hallgrimskirkja Reykjavlk simi 17805 opi6 3-5e.h. FERMINGARGJAFIR

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.