NT - 12.04.1985, Blaðsíða 13
Föstudagur 12. apríl 1985
Föstudagur 12. apríl 1985
Verður Pierce Brosnan næsti
■ Brosnan og konan hans, Cassandra. Hún er leikkona
og draumur þeirra er að leika saman í góðri mvnd eða
sjónvarpsþáttum.
■ Margir hafa velt vöngum yfir því
hver myndi taka við James Bond-hlut-
verkinu, þegar Sean Connery og Roger
Moore gefa það frá sér. Þeir hafa staðið
sig vel sem spæjarinn 007 í gegnum
árin, sem eru nú orðin nokkuð mörg.
Hetjurnar segjast ekki lengur hafa það
úthald og snerpu, sem krafist er af
kappanum James Bond. Það sé því
sjálfgert að aðrir taki við.
Nú hefur einn ungur leikari, Pierce
Brosnan, verið umtalaður sem nýr
James Bond. Hann hefur getið sér gott
orð í sjónvarpsþáttum í Bandaríkjun-
um, sem heita Remington Steele, en
þar leikur hann kaldan leynilögreglu-
mann og mikið kvennagull. Þetta hvort
tveggja þykir hæfa vel hinum nýja
Bond.
Pierce Brosnan er fæddur í írlandi
fyrir rúmlega 30 árum, en foreldrar
hans skildu er hann var enn í vöggu og
hann kynntist því ekki föður sínum.
Móðir hans fluttist með barnið til
Englands og það var ekki fyrr en Pierce
var orðinn fullorðinn og farinn að leika
j kvikmyndum að hann kom aftur til
írlands. Pá langaði hann að hafa uppi
á föður sínum og tókst það eftir mikla
fyrirhöfn. Tom Brosnan hét faðir Pi-
erce og þeir feðgar ákváðu að hittast í
London, því að Pierce var á hraðferð í
írlandi.
Fyrir eins og tveimur árunt kom
Pierce Brosnan til Hollywood og var
honum tekið þar tveim höndum og
fékk hann strax hlutverk og var eftir-
sóttur leikari. Best þekktur varð hann
fyrir sjónvarpsþáttinn Remington Ste-
ele og þá var farið að nefna, að þarna
væri upprennandi nýr James Bond!
■ Fallegur hópur
stillir sér upp fyrir
Ijósmyndarann,
Arna Bjarna hjá
■ Þrír góðir vinir.
Tvær dömur ineð
herra á milli sín.
Hvort þær hafa
slegist um herrann
er ekki gott að
segja, en alla vegta
hefur hann lcngið
myndarlegt glóðar-
auga.
■ Þegar Pierce Brosnan átti að sitja fyrir hjá
Ijósmyndara í sambandi við útgáfu á „plaggati“ mætti
hann í sparifötunum, í hvítrí skyrtu og með svarta
þverslaufu. Ljósmyndarínn og aðstoðarstúlka hans
komu sér saman um, að þótt hann væri æðislega sætur
í sparífötunum, - þá værí hann ólíkt meira „sexí“ með
fráhneppta skyrtuna og jakkalaus!
■ Stephanie
Zimbalist og Pierce
Brosnan í
hlutvcrkum sínum í
sjónvarpsþáttunum
„Remington
Steele“. Þar heita
þau Laura Holt og
Remington Steele.
■ í vikunni fyrir páskafríið var haldið
grímuball í Fossvogsskólanum. Krakkarnir
dubbuðu sig upp í alls konar „furðuföt“ eins
og gengur við slík tækifæri og skemmtu sér
konunglega. Okkur virðist eftir myndum að
dæma, að þeir fullorðnu hafi skemmt sér
ágætlega líka. Við birtum hér nokkrar myndir
frá skemmtuninni til gamans.
■ Kennarinn orðinn kúreki
Þarna gengur Guðbjörn kenn-
ari um með kúrekahatt og að-
gætir að allt fari nú vel fram.
■ Litli arabadrengurinn er
alvarlegur á svip, enda er
ástandið eftir því í hans
heimshluta.
■ Tom Brosnan, faðir Pierce Brosnan. Pierce fór
sjálfur á stúfana sem leynilögreglumaður til að hafa upp
á föður sínum. „Það var Cassie, konunni minni, að
Það var Cassie, konunni minni, að
þakka, að ég lét verða af þessu,“ sagði Pierce.
tveimur
vinstúlk-
um.
■ Er
þetta hár-
greiðslu
sýning, eða
hvað?!
NT-mynd Árni
■ Hreykinn faðir með son sinn: Pierce með Sean, son
sinn, sem fæddist í sl. september.