NT - 04.05.1985, Blaðsíða 23
lV*V ? '1*4 xi'i"'V
r HT Laugardagur 4. maí 1985 23
b JJ f’ I ■1 *
Ísland-Noregur:
Yfirburðir
norska liðsins
voru verulegir
- unnu þær íslensku með 14 marka mun
■ íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik lék fyrri leik sinn
gegn því norska í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik í gærkvöldi.
Leikurinn var í Digranesi í Kópa-
vogi og lauk honum með yfir-
burðasigri norsku stúlknanna
sem gerðu 21 mark gegn 7. Já,
14 marka munur. Staðan í hléi
var 3-13 og aldrei spurning um
úrslit í þessum leik.
íslenska liðið spilaði hrein-
lega mjög illa og er næsta víst að
þetta lið getur spilað betur.
Hinsvegar þarf ekki að fela það
fyrir neinum að norska liðið er
að minnsta kosti 10 mörkum
betra lið enda eru þær með
þeim betri í kvennabolta í Vest-
ur-Evrópu. Þá spila þær norsku
álíka marga landsleiki í einni
„túrneringu“ og þær íslensku
gera á tveimur árum. Þetta kom
mjög vel í ljós í leiknum í gær.
íslenska liðið gerði sig sekt um
mjög slæm mistök svo sem
skref, töf og feilsendingar. Þá
glataði liðið þremur vítaskotum
þar af tveimur í röð er staðan
var 2-6.
Fyrir leikinn var talið að ís-
lenska liðið ætti möguleika gegn
því norska og má vera að þær
hugsanir hafi hreinlega gert
dæmið enn verra hjá íslensku
stúlkunum. Hvað um það,
leikurinn á morgun, í Selja-
skóla, vinnst varla en hagstæð
úrslit geta náðst ef spilað er
aflappað.
Mörk íslenska liðsins gerðu:
Erna 2, Guðrún, Kristín,
Kristbjörg, Erla og Margrét 1
hver. Hjá norsku stúlkunum
var Ingunn Thomassen marka-
hæst með 5 mörk. Kolbrún í
marki íslands varði vel allan
leikinn.
Dómararnir, sem voru
sænskir, dæmdu með annarri
hendinni.
■ Fjórir á förum: Sveinn, Þorbergur, Viggó og
Kristján.
■ Tveir sem voru í eldlínunni um kvöldið: Guðmund-
ur FH-þjálfari og Kristján Víkingsmarkvörður.
■ Úr landsleik íslands og Noregs í Digranesi
norsku voru þó talsverðir.
gær. Þar var hart barist en yfirburðir þeirra
NT-mynd Árni Bjarna
V
■
Hjóibarða-
þjónusta
fyrir allar stærðir og gerðir
af bílum, fólksbíla,
vörubíla og sendiferðabíla.
Höfum mikið magn af
kaldsóluðum, heilsóluðum
og radíaldekkjum á lager.
Öll hjólbarðaþjónusta
innanhúss. Komið og
reynið viðskiptin í nýju
húsnæði okkar.
Ath. Gegn framvísun
þessarar auglýsingar
veitum við 5%
kynningarafslátt.
Kaldsólunhf.
Dugguvogi 2. Sími: 84111
Sama húsi og Ökuskólinn.
■ Guðmundur Víkingsfyrirliði mætti að sjálfsögðu
með bikarinn.
island vann Holland
■ íslenska landsliðið í handknattleik karla
yngri en 21 árs spilaði í gærkvöld við Hollend-
inga í undankeppni HM sem fram fer á Ítalíu
í desember. íslendingar unnu 22-21. Leikið
var í Danmörku. Á sunnudag leika piltarnir
svo við Finna. Nánar verður greint frá leikjun-
um síðar.
Bílbeltin
hafa bjargað
mÉUMFERÐAR
Urád
★ Ruminnihald 650 kg. (13 pokar)
★ Hleðsluhæð aðeins 90 sm.
★ Er stækkanlegur í 2000 kg. (40 poka)
★ Hefur fullkominn mulningsbúnað sem
mylur köggla
★ Einn söluhæsti áburðardreyfarinn síðustu
þrjú árin.
★ Til afgreiðslu strax
★ Góð greiðslukjör
Lokahóf handknattleiksmanna á Hótel Borg
SKÚTAHRAUNI 15 - SlMI 91-54933
220 HAFNARFJÖRÐUR
VÉLASÝNING
■ Það er hægt að láta snillinga hafa sig að fí... Uppátækið vakti þó kátínu hjá öllum
og áhorfendur skemmtu sér hið besta.
Sýnum ýmsar landbúnaðarvélar frá Búnaðardeild Sambandsins
Sýndar verða: Dráttarvélar, heyvinnuvélar og jarðvinnsluvélar
Sími 99-2000
/jTX Kaupfélag Árnesinga
Guf Bifreiðasmiðja
NT-myndir Þórmundur