NT - 04.05.1985, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. maí 1985 5
■ Silfurbikar eftir Berhd Janusch.
Skagfirska söngsveitin:
Afmælistónleik-
armr a morgun
Ítalíuferð framundan
■ Skagfirska söngsveitin á
15 ára afmæli á þessu ári og
minnist þess veglega. Af-
mælistónleikar verða í Aust-
urbæjarbíói á morgun kl.
14.30, og skiptist efnisskráin
í þrennt; Flutt verða verk
eftir látin íslensk tónskáld, þá
núlifandi íslensk tónskáld og
loks íslensk þjóðlög. Stærsta
verkið verður ný tónsmíð
Gunnars Reynis Sveinsson-
ar, sem sérstaklega var samin
fyrir kórinn, „Kærir bræður,
ha,“ við texta úr Brekkukots-
annál eftir Halldór Laxness.
í lok þessa ntánaðar eða
þann 28. maí leggur kórinn
síðan land undir fót og held-
ur í söngferðalag til Norður-
Ítalíu, þar sem verður sungið
á 5 stöðum. Með kórnum
koma fram tveir einsöngvar-
ar, Guðbjörn Guðbjörns-
son tenór og Halla S. Jónas-
dóttir sópran. Undirleikari
verður Ólafur Vignir Al-
bertsson. Stjórnandi Skag-
firsku söngsveitarinnar
fyrstu 13 árin var Snæbjörg
Snæbjarnardóttir, en núver-
andi stjórnandi er Björgvin
f>. Valdimarsson.
Læknafélagið og Háskólinn:
Námskeið í nýlíftækni
■ Námskeiðsnefnd Lækna-
félags íslands og endurmennt-
unarnefnd Háskólans efna til
námskeiðs um sameindaerfða-
fræði og ónæmisfræði að Hótel
Loftleiðum í dag, laugardaginn
4. maí, og á morgun. Þar verða
kynnt á aðgengilegan hátt þau
undirstöðuatriði þessara fræða,
sem mynda kjarna svokallaðrar
nýlíftækni. Telja margir, að
þessi nýja tækni sé í þann veginn
að hafa mjög afgerandi áhrif á
framkvæmd heilbrigðisþjónust-
unnar.
Námskeið þetta er hugsað
sem upphitun fyrir framhalds-
námskeið, sem haldið verður í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð dagana 12.-16. júní og er
tengt 16. þingi Norrænu
ónæmisfræðisamtakanna. Á því
námskeiði flytja erindi ýmsir af
helstu brautryðjendum nýlíf-
tækninnar.
Silfurlist í sígaunahefð
■ Rósa Táikon og Bernd
Janusch, silfursmiðirnir, sem nú
sýna verk sín í anddyri Norræna
hússins hafa átt allan sinn lista-
mannsferil í Svíþjóð, þótt hvor-
ugt þeirra sé þaðan upprunnið.
Rósa Taikon er sígauni, faðir
hennar var fæddur í Ungverja-
landi og eins og margir af hans
kynþætti fluttist hann land úr
landi, fyrst til Rússlands og
austur í Samarkand nam hann
silfursmíði. Síðan fluttist hann
vestur á bóginn til Finnlands og
síðar Svíþjóðar, þar sem Rósa
dóttir hans fæddist. Bernd Jan-
usch er hins vegar fæddur í
Austurríki og eftir að hafa lokið
námi í Austurríki í arkitektúr
fluttist hann til Svíþjóðar og þar
kynnist hann Rósu, sem varð
eiginkona hans og hún kenndi
honum list sína. Samstarf þeirra
hefur staðið í um 20 ár.
Sígaunar eiga mikla hefð í
silfursmíði, sem nær allt til
frumheimkynna þeirra austur á
Indlandi. En eins og hún segir,
„engin menningarheild stendur
ein og sér heldur blandast öðr-
um og þær hafa víxlverkanir
hver á aðra“. Hún bendir á að
víkingarnir herjuðu í austurveg
og það kann að vera skýringin á
því að sumt í austurlensku
handverki verður kunnuglegt
fyrir fólk hér á norðurslóðum,
sem finnst því hafa séð eitthvað
þessu líkt í gamalli heiðinni list.
Hún segir því að list hennar sé
ekki bara sígaunalist þótt hún
beri einkenni uppruna síns.
Raunar var það ekki silfur-
smíðin sem í öndverðu virtist
eiga fyrir henni að liggja, heldur
tónlist og dans, sem hún stund-
aði frá barnsaldri. Faðir hennar
kenndi henni handverkið, en
þegar hann var allur tók hún
upp merkið. Hún er eina konan
af stofni sígauna sem stundar
silfursmíði á Norðurlöndunum
og þótt víðar væri leitað. Lýs-
ingar á gripum hennar missa
marks, en full ástæða er fyrir
forvitna að láta ekki undan
gangast að líta við í Norræna
húsinu.
Eiginmaður Rósu, Bernd
Janusch, á eins og fyrr segir allt
annan bakgrunn. Handverkið
. lærði hann af konu sinni, en
verk hans hafa yfir sér annan
blæ. Mörg þeirra eru gerð fyrir
kirkjur; kaleikar, bikarar og
stjakar, en önnur eru óður til
lífsgleði og lífsnautanar, verk
sem bera nöfn eins og „Losti“,
„Munafull gleði“, „Lífsgleði“
og „Frjósemi".
Þau hjón hafa nú farið af
landi brott til Parísar, þar sem
er að hefjast einstæður viðburð-
ur, listahátíð sem helguð er
sígaununum, og er boðið til
hennar listamönnum frá 32
löndum, en það er franska
menningarmálaráðuneytið sem
stendur að þessari hátíð. Þar
verða flestar listgreinar á
dagskrá, tónlist, dans.myndlist
og fleira og þar verður Rósa
Taikon meðal þeirra sem sýna
verk sín. Og eins og hún benti á
hafa sígaunar komið víða við
sögu og haft áhrif á fjölmarga
sem ekki teljast til þeirra, þar
má nefna ekki minni menn en
Franz List og George Bizet.
■ Bern Janusch og Rósa Taikon.
■ Brjóstmen eftir Rósu Taik-
on, gjöf til systur hennar, Katar-
inu Taikon rithöfundar.
NT-mynd Ari
Njarðvík:
Nýútskrifaður
söngvari
með tónleika
■ Símon H. ívarsson og Siegfried Kobilza halda gítartónleika á Norðurlandi í vikunni.
Gítartónleikar á Norðurlandi
■ Gítarleikararnir Símon H.
ívarsson og Siegfried Kobilza
frá Austurríki, hafa undanfarna
viku haldið tónleika víða á
Austurlandi en hafa nú flutt sig
yfir á Norðurland.
í dag kl. 17.00 munu þeir
halda tónleika í Húsavíkur-
kirkju og á morgun, sunnudag,
í sal Menntaskólans á Akureyri
kl. 20.30.
Á mánudaginn halda gítar-
leikararnir tónleika í Félags-
heimilinu á Ólafsfirði, sem hefj-
ast kl. 21.00 og daginn eftir
halda þeir tónleika í Hrísey.
Miðvikudaginn 8. maí verða
tónleikar í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki kl. 20.30.
■ Sigurður Pétur Bragason
barítónsöngvari og Þóra Fríða
Sæmundsdóttir píanóleikari
halda tónleika á vegum Tónlist-
arskóla Njarðvíkur í Ytri-Njarð-
víkurkirkju laugardaginn 4. maí
kl. 16.00.
Sigurður er nýkominn heim
frá Ítalíu þar sem hann stundaði
söngnám en hann hefur sungið
á mörgum tónleikum hérlendis
og erlendis.
Þóra Fríða hefur stundað
tónlistarnám í Þýskalandi með
ljóðaundirleik að sérfagi.
Á efnisskránni eru ítölsk lög
og óperuaríur ásamt íslenskum
lögum.
BORGARNESDACAR
j LAUGARDALSHÖU 2.-5. MAÍ
Það verður mikið um að vera í Höllinni nú um helgina. Bæði laugardag og sunnudag verða
fjölbreytt skemmtiatriði. Þingmenn Vesturlands syngja á laugardagskvöld, tískusýningar
verða bæði laugardag og sunnudag og tónleikar á sunnudagskvöld.
Tívolí, golf, tölvufótbolti, vörukynning, bragðprufur, matur á einstöku kynningarverði og
margir lukkugestir valdir. Það er sannkölluð fjölskylduhátíð í Höllinni.
Opið 13-22 laugardag og sunnudag.