NT - 04.05.1985, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. maí 1985 9
íslandsmótið í tvímenning:
Nær Jón Baldursson að
landa þeim fimmta?
Hefur unnið mótið síðustu fjögur ár
■ Úrslit íslandsótsins í tví-
menning hefjast í dag á Hótel
Loftleiðum kl. 13.00 en þar
keppa 24 pör um íslandsmeist-
aratitilinn.
Að sjálfsögðu verður ís-
landsmeistarinn í tvímenning
Jón Baldursson, meðal þátt-
takenda en hann hefur unnið
þetta mót síðustu fjögur ár,
með þrem spilafélögum. I
þetta sinn spilar Jón við þann
fjórða, Sigurð Sverrisson og
þeir eru til alls líklegir, enda
eru þeir bæði íslands- og
Reykjavíkurmeistarar í sveita-
keppni, auk þess sem þeir
unnu tvímenningskeppni
Bridgehátíðar í vetur.
Annars eru flest bestu pör
landsins með í baráttunni og
þau ætla sjálfsagt að sjá til þess
að Jón einoki ekki þennan
titil. Áhrfendur geta því. átt
von á spennandi keppni á Loft-
leiðum um helgina, en mótið
verður spilað allan laugardag-
inn fram á nótt og fyrri part
sunnudags. Að mótinu loknu,
um kl. 17.30, verða afhent
verðlaun fyrir - öll mót sem
haldin hafa verið á vegum
Bridgesambands íslands í
sumar.
Landsliðskeppni yngri
spilara
Anton R. Gunnarsson og
Guðmundur Auðunsson unnu
forkeppni fyrir landsliðsval
yngri spilara en 10 pör kepptu
á því móti. Þeir fá rétt til að
velja með sér par og keppa við
sveit sem Ragnar Magnússon
og Valgarð Blöndal mynda en
þeir lentu í öðru sæti á mótinu.
Þessar tvær sveitir spila 128
spila einvígi um réttinn til að
spila á Norðurlandamóti yngri
spilara sem haldið verður í
Oðinsvéum í Danmörku í
sumar.
Efstu pör í mótinu urðu annars
.þessi:
Anton R. Gunnarsson -
Guðmundur Auðunss. 162
Ragnar Magnússon -
Valgarð Blöndal 151
Hermann Þ. Erlingsson -
Júlíus Sigurjónsson 151
Karl Logason -
Svavar Björnsson 145
Jakob Kristinsson -
Stefán Jóhannesson 133
Bridgefélag Reykjavíkur
Hjalti Elíasson og Þórarinn
Sigþórsson unnu butlertví-
menning félagsins sem var
jafnframt síðasta keppni
starfsársins.
Röð efstu para varð þessi:
Hjalti Elíasson-
Þórarinn Sigþórsson 145
Rúnar Magnússon -
Stefán Pálsson 142
Björn Eysteinsson -
Þorgeir Eyjólfsson 134
Bridgedeild Breiðfirðinga
Halldór Jóhannsson og
Magnús Aðalbjörnsson voru
sterkastir á lokasprettinum í
butlerkeppni félagsins sem
lauk s.I. fimmtudag. Þeirfengu
51 stig af 60 mögulegum í
síðustu umferðunum meðan
skæðustu keppinautarnir, Ali-
son Dorosh og Helgi Nielsen,
fengu aðeins 28. Röð efstu
para varð þessi:
Halldór Jóhannsson -
Magnús Aðalbjörnsson 157
Alison Dorosh -
Helgi Nielsen 149
Björn Árnason -
Daníel Jónsson 137
Guðlaugur Karlsson -
Óskar Þ. Þráinsson . . 136
Síðasta spilakvöld vetrarins
verður n.k. fimmtudagskvöld
en þá verður spilaður ein-
menningur og verður hann öll-
um opinn meðan húsrúm leyf-
ir.
Bridgeklúbbur Akraness
Sveitakeppni Bridgefélags
Akraness er nú að verða lokið
og er aðeins eftir að spila eina
umferð.
Síðasta umferðin verður
spiluð fimmtudaginn 2. maí
n.k.
Staðan í mótinu fyrir síðustu
umferð er þessi:
Sveit: st'8
1. Alfreðs Viktorssonar 205
2. Eiríks Jónssonar 209
3. Karls Ó. Alfreðssonar 177
4. Guðmundar Bjarnas. 163
5. Ólafs Guðjónssonar 155
Bridgefélag Breiðholts
Þriðjudaginn 30. apríl var
spilaður eins kvölds tvímenning-
ur. Röð efstu para varð þéssi:
1. Henning Haraldsson -
Guðmundur Magnúss. 246
2. Guðmundur Grétarsson -
Árni Már Björnsson 242
3. Friðrik Jónsson -
Þorsteinn Kristjánsson 234
4. Hermann Sigurðsson -
Jóhannes O. Bjarnason 231
5. Baldur Bjartmarsson -
Gunnlaugur Guðjónsson 224
Þriðjudaginn 7. mái hefst
Firmakeppni félagsins, sem er
jafnframt einmenningskeppni.
Öllum er heimil þátttaka með-
an riðlaskipan leyfir. Spilarar
mætið vel og tímanlega. Spilað
er í Gerðubergi kl. 19.30.
Bridgedeild Skagfirðinga
Sl. þriðjudag mættu 26 pör
til leiks í eins kvölds tví-
menningskeppni. Spilað var í
tveimur riðlum. Úrslit urðu
þessi:
A)
Björn Hermannsson -
Lárus Hermannsson 238
Steingrímur Þórisson -
Þórir Leifson 234
Arnar Ingólfsson -
Magnús Eymundsson 231
Karólína Sveinsdóttir -
Sveinn Sveinsson 229
B)
Jón Hermannsson -
Ragnar Hansen 128
Guðlaugur Sveinsson -
Magnús Sverrisson 125
Friðrik Indriðason -
Örn Þórisson 120
Meðalskor í A var 210 en
108 í B-riðli.
Eins kvölds tvímenningar
verða á dagskrá næstu þriðju-
daga í Drangey. Öllum heimil
þátttaka meðan húsrúm leyfir.
Spilað er í Drangey v/Síðu-
múla.
Bridgefélag Kópavogs
S.l. fimmtudag lauk þriggja
kvölda vortvímenning hjá fé-
laginu. Spilað var í tveim tíu
para riðlum:
Hæstu skor um kvöldið
hlutu:
A-riðill
Haukur Hannesson -
Valdimar Þórðarson 131
Þorvaldur Þórðars -
Guðm. Þórðarson 129
Þorsteinn Berg -
Bjarni Ásgeirsson 126
B-riðill:
Ragnar Björnsson -
Sævin Bjarnason 127
Óli Andreasson -
Guðm. Gunnlaugss. 120
Sigríður Möller -
Freyja Sveinsdóttir 118
Skúli Sigurðss. -
Gísli Kjartansson 118
Úrslit í keppninni urðu eftir-
farandi:
Ragnar Björnsson -
Sævin Bjarnason 376
Haukur Hannesson -
Valdimar Þórðarson 368
Þorvaldur Þórðarson -
Guðm. Þórðarson 365
Sigrún Pétursdóttir -
Þórir Sveinsson 353
Guðrún Hinriksdóttir -
Jón Andrésson 349
Næstu fimmtudaga verður
spilaður eins kvölds tví-
menningur. Allireru velkomn-
ir.
Guðmundur Sv. Hermannsson
Samtök aldraðra:
Hjálpið þeim öldruðu
til að njóta ellinnar
■ Aðalfundur Samtaka aldraðra
var haldinn á Hótel Esju fimmtudag-
inn 28. mars s.l. Fundurinn var fjöl-
sóttur og ríkti þar mikil ánægja og
einhugur með starfsemi Samtakanna.
Aðal umræðuefni fundarins voru
byggingarframkvæmdir félagsins og
þeir erfiðleikar við þær framkvæmdir
sem háir vextir og verðbólga hafa í
för með sér, og var eftirfarandi tillaga
samhljóða samþykkt:
„Aðalfundurinn samþykkir að
skora á þingmenn allra flokka að
styðja veitingu fjármagns til hjálpar
öldruðum til að geta búið, síðustu
æviárin í litlum þægilegum íbúðum
með þjónustuaðstöðu og félagslegu
öryggi, annaðhvort sem eignaríbúð-
um eða leiguíbúðum með eignar
íhlutun.
Til þess að það geti almennt orðið
þarf að opna möguleika fyrir „samtök
aldraðra" hvar á landinu sem þau
eru, til að verða aðnjótandi laga,
svipuðum og verkamannabústaðirnir
njóta, eða með hagkvæmum lánum,
þar sem íbúarnir koma til með að
kaupa sig inn í viðurkennda þjónustu-
íbúð með 20-40% verði íbúðanna, en
greiða svo húsaleigu að auki. Endur-
sala getur svo miðast við þann hluta
sem greiddur hefur verð.
Þingmenn og Alþingi: Hjálpið
þeim öldruðu, t.d. 65 ára og eldri til
að njóta ellinnar í ánægjulegu um-
hverfi og við öryggisaðstöðu.
Aðeins lítill hluti þessa fólks getur
veitt sér þetta við þær fjárhags- og
vaxta aðstæður sem nú ríkja í þessum
málum.“
Reykjavíkurborg aðstoðar samtök-
in í viðleitni þeirra við að búa öldruð-
um öryggi og félagslega þjónustu
með byggingu þeirra 66 þjónustu-
íbúða, sem nú eru í smíðum við
Bólstaðarhlíð, og sendir því aðal-
fundurinn eftirfarandi samþykkt til
stjórnar Reykjavíkurborgar.
„Aðalfundurinn samþykkir að
senda borgarstjóra, skipulagsnefnd
þjónustuíbúða Reykj avíkurborgar
svo og borgarstjórn Reykjavíkur al-
úðarþakkir fyrir veittan stuðning við
Samtök aldraðra í Reykjavík með
því að kosta uppbyggingu þjónustu-
miðstöðvar við íbúðirnar við Bólstað-
arhlíð í Reykjavík og samþykkja að
starfrækja rekstur hennar fyrir þá
íbúa Samtakanna, sem þar eiga eftir
að eyða elliárunum.
Ellilífeyrisþegum Reykjavíkur er
það mikill stuðningur, bæði andlega
og líkamlega, að geta átt von á
áframhaldandi aðstoð við lausn íbúð-
arvandamála þeirra.
Með samþykkt þessari færa 680
félagar í Samtökum aldraðra fram
þakkir sínar og von um samstarf í
þessum málum í framtíðinni.“
Rætt var einnig um hjúkrunar og
líknarmál aldraðra og samþykkt eftir-
farandi tillaga í því máli:
„Aðalfundurinn skorar á borgar-
yfirvöld og Alþingi að ljúka við
B-álmu Borgarspítalans sem fyrst.
Eins og kunnugt er, er sú álma ætluð
sjúku, öldruðu fólki, en á því sviði
ríkir vandræðaástand í borginni."
Stjórn Samtakanna skipa nú þessir
félagar:
Hans Jörgensson, Lóa Þorkelsdótt-
ir, Sigurður Gunnarsson, Agúst H.
Kristjánsson, Eysteinn Sigfússon,
Guðrún Runólfsdóttir, Jón Steins-
son, Þórarinn Þórarinsson.
F.h. stjórnar Samtaka aldraðra,
Hans Jörgensson.
Landeigendur smáir og stórir
GIRÐING ER VÖRN
FYRIR VIÐKVÆMAN GRÓDUR
Þú færð allar tegundir af
GIRÐINGAEFNI í BYKO
Járnstaurar, tréstaurar,
gaddavír og girðinganet af öllu tagi.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
KÓPAV0GS SF
SKEMMUVEGI 2 SÍMI:4100Q
BYKO