NT - 07.06.1985, Page 19

NT - 07.06.1985, Page 19
 fílíT Föstudagur 7. júní 1985 31 lL íþróttir Drengja- og unglingalandslið: Til Svíþjóðar og Danmerkur í keppnisferð í körfubolta ■ Drengja- og unglingalands- lið íslands í körfuknattleik eru á förum til Svíþjóðar og Dan- merkur til keppni. Liðin munu keppa á svokölluðu „Stockholm Basket“-móti í Svíþjóð og eftir það fara til Danmerkur þar sem unglingalandsliðið mun leika tvo landsleiki og drengjaliðið keppa við Kaupmannahafnar- úrval og félagslið. Piltarnir sem fara þessa ferð hafa verið valdir en þjálfarar liðanna eru þeir Torfi Magnússon sem sér um unglingaliðið og Björn Leósson sem sér um drengjaliðið. Liðin líta þannig út: Unglingalandsliðið skipað pilt- um fæddum ’67 og ’68: Guðjón Skúlason, ÍBK Magnús Guðfinnsson, ÍBK Teitur Örlygsson, UMFN Kristinn Einarsson, UMFN ísak Leifsson, UMFN Guðmundur Bragason, UMFG Jón Örn Guðmundsson, ÍR Magnús Matthíasson, Val Svali Björgvinsson, Val Haraldur Leifsson, Tindastól Drengjalandsliðið skipað pilt- um fæddum ’70: Brynjar Harðarson, ÍBK Friðrik Ragnarsson, UMFN Aðalsteinn Ingólfsson, UMFG Jón Páll Haraldsson, UMFG Herbert Arnarson, ÍR Ottó Tynes, ÍR Þórir Viðar Þorgeirsson, ÍR Þórir Örn Ingólfsson, ÍR Gunnar Sverrisson, ÍR Árni Guðmundsson, KR Gauti Gunnarsson, KR Hjalti Árnason, Tindastóli Steinar Adolfsson, Víkingi Ól. ■ Drengja- og unglingalandslið íslands, sem halda á erlenda grund til keppni, ásamt Birni Leóssyni, þjálfara sínum. NT-myndir: Árni Bjama (talskur sigur ■ ítalir unnu Englendinga 2-1 í landsleik í knattspyrnu í Mex- ícó í gær, en leikurinn var liður í Mexícóborgarbikarnum, sem landslið heimamanna tekur einnig þátt í. í hálfleik hafði ekkert mark verið gert. ítalir náðu forystu með marki Salvatore Bagni á 73. mín., en Englendingar jöfnuðu metin tveimur mínútum síðar en Mark Hateley skoraði. Sigurmarkið gerði Alessandro Altobelli úr vítaspyrnu á síðustu mínútu leiksins. Jafnt í Helsinki ■ Vonir Rúmena um að komast í úrslitakeppni HM í Mexikó að ári dvínuðu verulega er liðið náði aðeins jöfnu, 1-1, gegn Finnum í 3. riðli í Helsinki í gær. Hagi skoraði fyrir gestina á 8. mín., en Mika Lipponen jafnaði á þeirri 28. Áhorfendur voru 22.000. Staöan í riðlinum er nú þessi, tvö efstu liðin komast til Mexíkó. England.................................................... 5 3 2 0 15:1 8 N-írland................................................... 5 3 0 2 7:5 6 Finnland................................................... 6 2 2 2 6:10 6 Rúmenía ................................................... 4 12 1 6:4 4 Tyrkland................................................... 4 0 0 4 1:15 0 ■ Engu er líkara en að Sigurbjörg Haraldsdóttir ætli að gefa Ástu M. Reynisdóttur spark í afturendann, en Ásta hló síðast í stórsigri UBK. j w --.ii . NT-mvnd: Árni Biarn Islandsmot 1. deildar kvenna: Létt hjá Blikastúlkum unnu KR 0*5 á útivelli og verða vandstöðvaðar í sumar ■ KR-ingar reyndust Biika- stúlkunum auðveld bráð er liðin mættust í Reykjavík í gærkvöldi í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Úrslitin urðu 0-5 og stúlkurnar úr Vesturbænum geta þakkað markverði sínum, Karólínu Jónsdóttur, að þau urðu ekki fleiri. í hálfleik var staðan 0-3. Það var aðeins rétt í byrjun, sem jafnræði var með liðunum, en eftir að Ásta B. Gunnlaugs- dóttir hafði skorað fyrsta mark leiksins um miðjan fyrri hálf- leikinn var Ijóst að hverju stefndi. Skömmu síðar munaði þó ekki miklu að KR jafnaði, en Kristrún Heimisdóttir brenndi af í upplögðu færi. Á lokamínútum hálfleiksins bætti Breiðablik svo við tveimur mörkum. Fyrst ýtti Lára Ás- bergsdóttir boltanum yfir mark- línuna eftir að Ásta B. hafði sent hann fyrir markið. Síðan náði Erla Rafnsdóttir knettin- um af varnarmönnum KR og þrumuskot hennar hafnaði al- veg út við fjærstöngina. Glæsi- mark. Erla átti líka stóran þátt í fjórða marki Breiðabliks snemrna í síðari hálfleik. Hún þaut upp vinstri kantinn, gaf sendingu inn á teiginn og Ásta M. Reynisdóttir skilaði boltan- um rétta boðleið í netið. Lokaorðið átti svo Margrét Sigurðardóttir. Eftir netta þrí- hyrninga við Ástu M. upp allan völlin sendi hún knöttinn í blá- horn marksins. Hjá KR-ingum voru Ragn- hildur Rúriksdóttir og Arna K. Steinsen bestar, að ógleymdri Karólínu í markinu. Allar Blikastúlkurnar léku mjög vel, og verður erfitt að stöðva þær í sumar. Ásturnar og Erla eru stórhættulegar frammi og vörn- in virkaði örugg undir góðri stjórn Svövu Tryggvadóttur. Páll til Dankersen ■ Páll Ólafsson handknattleiksmaður hefur gert eins árs samning við v-þýska 1. deildarliðið Dankersen og mun hann því leika með því liði næsta vetur. Páll hefur verið þjálfari hjá Þrótti í vetur og er það mikill missir fyrir Þróttara að sjá á eftir Palla til Þýskalands. Tveir íslendingar hafa leikið með Dankersen, þeir Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson sem léku með liðinu á sínum tíma. Norðmenn unnu Wales ■ Norðmenn sigruðu Walesbúa í vináttuleik í knattspyrnu í fyrrakvöld með 4 mörkum gegn 2. Leikið var í Bergen. Norðmenn komust í 3-0 á fyrstu 18 mínútum leiksins. Sollied, Okland og sjálfsmark Slatters sköpuðu þessa góðu byrjun. Steve Lovell minnkaði muninn fyrir Wales fyrir leikhlé. Jacobsen skoraði 4-1 strax eftir leikhlé en Hughes skoraði annað mark Wales 10 mín. fyrir lcikslok. FIFA bannfærir Tjalla ■ Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) fylgdi í gær í fótspor Evrópska knattspyrnu- sambandsins (UFE A) og bannaði enskum liðum að keppa við lið frá öðrum löndum, þ.m.t. Skotlandi, Wales og N-írlandi. Er enskum liðum gert að snúa tafarlaust úr erlendum keppnisferðum sínum, því bannið nær jafnt til vináttuleikja sem og annarra. Bannið mun gilda í óákveðinn tíma (eitt til 10 ár), en það nær þó ekki til enska landsliðsins, áhugamannaliða og unglingaliða. Enska knattspyrnusambandið hyggst áfrýja úrskurði FIFA. Góður sigur landsliðsins ■ íslenska landsliðið vann góðan sigur 5-1 á Þór í afmælisleik hinna síðarnefndu á Akureyri í gær. í hálfleik var staðan 3-0. Pétur Pétursson skoraði fyrsta mark leiksins og Guðmundur Steinsson næstu tvö. Ómar Torfason jók muninn í 4-0, en Bjarni Svein- björnsson lagaði aðeins stöðuna fyrir Þór. Það dugði þó skammt, Guðmundur Steinsson inn- siglaði sigurinn og þrennu sína með marki úr víti. Ailir í landsliðshópnum fengu að vera með, skipt út af og inn á að vild. Áhorfendur voru um 1200. iÁHOWARD '%7r • J • g* • og seigfljótandi mykju. Aratuga reynsla á íslandi. Tvær stærdir 3,0m3 verð kr. 89.300,~ afgreiðslu strax 4,2m3 verð kr. 109.600.- (Gengi 15. w$í '85) Til afgreiðslu nú þegar. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar Gfobusn LAGMÚLI 5. SlMI 81SSS

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.