NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 20.06.1985, Qupperneq 1

NT - 20.06.1985, Qupperneq 1
■ Sakadómur Reykjavíkur dæmdi í gær Viðar Björnsson í fimm ára fangelsi, fyrir að hafa með barsmíðum orðið valdur að láti Sigurðar Breiðfjörð Ólafssonar, á heimili hans Grettisgötu 19B, þann 22. febrú- ar síðastliðinn. Brot Viðars er fólgið í stórfelldri líkamsárás sem leiddi Sigurð heitinn til dauða. Þá er Viðar einnig fund- inn sekur samkvæmt 220 gr. hegningarlaganna um að hafa látið undir höfuð leggjast að veita Sigurði aðstoð, eða gera ráðstafanir í þá veru, að honum yrði komið til hjálpar. Sólrún Elísdóttir var dæmd við sama tækifæri í fimm mán- aða fangelsi, fyrir að hafa ekki látið vita af Sigurði, þar sem hann lá í íbúð sinni, eða reynt að koma honum til hjálpar. Að afloknum réttarhöldum í málinu, er ljóst orðið að atburða- rásin föstudagskvöldið 22. febrúar síðastliðinn var á þá leið, að Viðar og Sólrún höfðu um tíma búið hjá Sigurði heitn- um á heimili hans. Umrætt kvöld sátu ákærðu og Sigurður að drykkju. Ákærðu söknuðu áfengisflösku sem átti að vera falin í íbúðinni. Sökuðu þau Sigurð um að vera valdan að hvarfi flöskunnar, en hann neit- aði. Hófust þá slagsmál og barði Viðar Sigurð í andlitið með krepptum hnefa. Sigurður féll á rúm sitt, og hélt Viðar þar áfram barsmíðinni, svo Sigurð- ur hlaut af mjög slæma áverka, aðallega í andliti. Ákærðu yfir- gáfu íbúðina, og Sigurð meðvit- undarlausan eftir barsmíðina. Ákærðu komu aftur í íbúðina um hádegi næsta dag. Þau gerðu engar ráðstafanir til þess að koma honum til hjálpar og fóru á brott aftur. Eftir að Sigurður hafði legið í rúmi sínu í um átján klukkustundir hringdi Sól- rún á sjúkrabíl. Það var um klukkan 16 á laugardag. Sigurð- ur var látinn þegar að var komið. ■ Fjölmargar konur söfnuðust sanian undir Ár- mannsfelli á Þingvöllum í gærkvöldi en þar var hald- inn hátíðafundur á vegum ’8S nefndarinnar t tilefni þess að 70 ár voru liðin frá því íslcnskar konur fengu kosningarétt. NT m>nd Svcrnr nm m Dæmt í Grettisgötumálinu í Sakadómi: Fékk I imm ára fangelsisdóm Frumvarp með röngum texta lagt fram tvisvar sama dag Vinstri og hægri hendur ósamstilltar í flýtinum á Alþingi Bjórinn féll! ■ Niðurstaðan af hring- ferð bjórfrumvarpsins í gegnum Alþingi varð sú að þingið tók hvorki til þess efnislega afstöðu né vísaði því til þjóðarinnar. Neðri deild felldi í gær- kvöldi tillögu frá Halldóri Blöndal og Ellert Schram um að breyta frumvarpinu í sama horf sem hún hafði sjálf samþykkt fyrr í vetur, þar næst tillögu Jóns Baldvins Hannibalssonar um bindandi þjóðarat- kvæði og loks frumvarpið í heild, eins og það barst deildinni frá efri deild. Nafnaköll voru viðhöfð við allar atkvæðagreiðslur og var frumvarpið að lok- um fellt með 22 atkvæðum gegn 10. Þrátefli milli þingdeild- anna varð því til þess að frumvarpið var fellt en ógerlegt er að draga af því nokkra rökræna niður- stöðu um það hver vilji meirihluta Alþingis sé í málinu. ■ Sá sjaldgæfí atburður átti sér stað á Alþingi í fyrradag að tvö frumvörp voru lögð fram með sama textanum og sama heitinu og þingfest. í gær kom svo upp úr dúrnum nokkuð sem gerir atvikið sjaldgæfara og sennilega einsdæmi. Frum- varpstextinn sem þingmenn lögöu fram var í báðum tilvikum allt annar en þeir höfðu ætlað. Frumvarpið eða frumvörpin sem um ræðir fjalla um hús- næðissamvinnufélög og búsetu- rétt. Eins og margoft hefur komið fram í þessu blaði samdi nefnd skipuð fulltrúum beggja stjórnarflokkanna frumvarp um þetta efni og skilaði hún því í apríl síðast liðnum. Síðan hefur staðið í stappi um það hvort þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins samþykkti að það yrði lagt fram sem stjórnarfrumvarp. Það gerði hann ekki, en þing- flokkur Framsóknarflokksins studdi hins vegar frumvarpið eins og það kom fram frá nefnd- inni og fyrir lá að stjórnarand- staðan gerði slíkt hið sama og þar með að þingmeirihluti væri fyrir frumvarpinu kæmi það fram á annað borð. Það var svo í fyrradag að fulltrúar allra stjórnarand- stöðuflokkanna lögðu fram frumvarp Alexanders sem þing- mannafrumvarp og sama gerðu tveir þingmenn Framsóknar- flokksins. Þannig kom sama frumvarpið tvisvar fram sama daginn á tveim þingskjölum, að öðru leyti en því að mismunandi flutningsmenn eru á hvoru þingskjali. Það uppgötvaðist hins vegar ekki fyrr en seinni partinn í gær, að frumvarpstext- inn var allt annar en viðkomandi höfðu ætlað að leggja fram, textinn var þannig tillaga að málamiðlun milli stjórnarflokk- anna en ekki frumvarp Alex- anders. Aðeins greinargerðin tilheyrði frumvarpi Alexanders, en átti þar með ekki við það frumvarp sem fram var lagt og þingfest. Þannig lauk biðinni eftir Bú- setafrumvarpinu svokallaða sem upphaflega var ætlað að verða að lögum á þessu þingi, með því að sama frumvarpið var lagt fram í röngu formi tvisvar sama daginn. Það kemur hins vegar ekki á dagskrá þessa þings vegna þess hversu áliðið er orðið. Það gefst því færi á að leiðrétta mistökin fyrir haustið. Það breytir hins vegar ekki því að ætlun flutningsmanna, Stefáns Valgeirssonar og Ste- fáns Guðmundssonar annars vegar og Steingríms J. Sigfús- sonar, Jóhönnu Sigurðardóttur, Guðmundar Einarssonar og Guðrúnar Agnarsdóttur hins vegar var sú, að lýsa yfir vilja sínum með því að þingfesta frumvarpið eins og það kom frá nefndinni sem samdi það. Mis- tökin skýrast hins vegar með því að vitlaus texti hefur verið sendur úr ráðuneytinu og flutn- ingsmenn ekki veitt því athygli í flýtinum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.