NT - 20.06.1985, Síða 3
Fimmtudagur 20. júni 1985
Ný lög um jafna stöðu kynjanna
■ Efri deild Alþingis sam-
þykkti í gær ný lög um jafna
stöðu kvenna og karla. Frum-
varpið var upprunalega lagt
fram í neðri deild sem stjórnar-
frumvarp og var afgreitt þaðan
með stuðningi allra flokka, með
ýmsum breytingartillögum. Þær
breytingar fela í sér rýmkun á
málshöfðunarrétti jafnréttis-
ráðs, að gerð verði framkvæmda-
áætlun um jafnréttismálogflutt
verði skýrsla á Alþingi annað
hvert ár um þau efni, og einnig
er inni í lögunum það sem nefnt
er jákvæð tímabundin mismun-
um, sem felur í sér að sé ákveðn-
um skilyrðum fullnægt skuli
konur njóta forgangs miðað við
karla, t.d. við stöðuveitingar.
Þingmenn voru í nokkru há-
tíðaskapi í gær er þeir sam-
þykktu frumvarpið, enda voru í
gær liðin 70 ár frá því konum á
Islandi var fenginn í hendur
fullur kosningaréttur með
lögum. Ekki var þó einhugur
meðal þingmanna deildarinnar.
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir skilaði séráliti um málið. Hún
taldi frumvarpið ekki taka á því
sem mestu varðaði fyrir konur,
það tæki ekki á launamisrétti,
það lengdi ekki fæðingarorlof,
það tæki ekki á dagheimilismál-
um, svo eitthvað sé nefnt. Hún
greiddi þó atkvæði með þeim
breytingartillögum sem áður er
getið, þar sem hún taldi þær
bæta annars „meinlaust"
frumvarp.
Ölvaður maður:
„Áreitti" konu
■ Lögreglan handtók ölv-
aðan mann í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt miðviku-
dags. Maðurinn passaði við
lýsingu sem kona hafði gefið
á manni sem áreitti hana fyrr
um nóttina.
Aðdragandi þessa máls var
sá að rétt eftir klukkan eitt
um nóttina kom kona inn á
miðbæjarstöð lögreglunnar
og kvartaði undan því að
maður hefði „áreitt" sig, og
veitt sér eftirför eftir Lauga-
vegi og nærliggjandi götum.
í skýrslu lögreglu af atburð-
inum kemur fram að konan
greindi ekki nánar frá því
hvernig hún varð fyrir áreitni
ntannsins, og ekki hvort það
var í orði eða á borði. Konan
gat gefið greinagóða lýsingu
á manninum, og náðist hann
rúmum hálftíma síðar. I sam-
tali við lögreglu í gær kom
frant aö konan hefur ekki
kært atvikið.
pmsjón:
*6S«r Skúlason
Veiðidagur
fjölskyidunnar
Sunnudaginn 23. júní n.k. efnir
Landssamband stangaveiðifélaga. til
allsherjar stangaveiðidags fjölskyld-
unnar um allt land, til að auka
skilning almennings og stjórnvalda á
stangaveiðiíþróttinni. Landssam-
bandið hefur hvatt aðildarfélög sín
til þess að fá aðstöðu við silungsvatn
eða -á, til þess að geta boðið
almenningi þangað til veiða undir
leiðsögn vanra manna. Vitað er að
eftirtalin stangaveiðifélög stefna til
veiða í þessum vötnum: Stangaveiðifé-
lag Borgarness í Langavatni, Stanga-
veiðifélag Sauðárkróks í Ölversvatni,
Stangaveiðifélag Keflavíkur í
Seltjörn, Stangaveiðifélag Hafnar-
fjarðar í Kleifarvatni og Stangaveiði-
félag Reykjavíkur í Elliðavatni. Ár-
menn verða í Vífilsstaðavatni og
Flúðir á Húsavík verða við veiðar í
Kringluvatni. Þá verður boðið upp á
ókeypis veiði í Þingvallavatni í landi
þjóðgarðsins, þann 23. júní. Gylfi
Pálsson formaður Landssambands
stangaveiðifélaga mun flytja ávarp við
Vatnskot klukkan 10 um morguninn.
Leiðbeinendur verða óvönum til að-
stoðar til klukkan 18 við Þingvalla-
vatn.
Kokkur-ekki
veiðivörður
‘,,Ég er kokkur hér á svæðinu, og
held að það sé öllu betra þessa
stundina," sagði Snorri Hauksson,
kokkur í veiðihúsinu við Víðidalsá,
þegar blm. spurði hvort hann væri
veiðivörður. Snorri sagði að 7-8 laxar
hefðu veiðst frá því veiði hófst á
laugardag, og fram undir hádegi í
gær. Fyrsta daginn veiddust tveir
fiskar, og er það mun lakara en í
fyrra. Þá veiddust fjórtán fiskar á
opnunardeginum. Laxinn sem veiðst
hefur er á bilinu 8-11 pund, og sagði
Snorri hann hafa tekið maðk, flugu
og spún. Skilyrði munu vera góð í
ánni. en laxinn vantar. Stórstreymt
var í gær og vonuðu menn það besta
í veiðihúsinu.
Léleg veiði í
Miðfirði
„Það er ekki veiðihljóð í okkur,"
sagði Erna Thorsteinsen ráðskona í
Laxahvammi í Miðfirði í samtali við
Veiðihornið í gær. Veiði hófst á
mánudag, og um hádegisbilið í gær
voru sjö laxar komnir á land. Sá
stærsti vó rúm tólf pund. Erna sagði
að mest hefði veiðst í Kistunum í
Vesturá. Þá var það kærkomin til-
breytni fyrir annars vonlitla veiði-
menn, að níu bleikjur - allar þokka-
legar - veiddust í gærmorgun. Erna
sagði að ekki væri ástæða til annars
en að vera bjartsýnn þó að byrjunin
hefði verið léleg. „Þeir sáu einn lax í
morgun, sem þeir giskuðu á að væri
um 19 pund, og eru að reyna við hann
núna,“ sagði Erna.
F // A T
DRATTARVELAR
Loksins er BDOB fáanlegur á íslandi
er söluhæsta dráttarvélin í Evrópu
1984 var anaa með 16% markaðshlut og sú næsta með 9,5%
Þessar tölur sýna að bændur, verktakar og sveitarfélög velja í æ ríkara mæli
anna dráttarvélar, sem eru tæknilega fullkomnar, traustar og
á einstaklega hagstæðu kynningarverði
Til afgreiðslu nú þegar
Fjórhjóladrifnar 60 - 70 - 80 hestöfl
Standard fylgibúnaður
„Fiat comfort" hús, hljóðeinangrað á gúmmípúðum með mjög öflugri miðstöð, fullkomnu
mælaborði, hækkanlegu veltistýri, gírstöng hægramegin við ökumannssæti, mjög góðu útsýni,
opnanlegum hliðar- og afturgluggum, þurrkum á fram og afturrúðu, fjaðrandi og stillanlegu
ökumannssæti, útvarpi og segulbandi.
Alsamhæfður gírkassi 12 ganghraðastig áfram og 4 afturábak, sjálfvirk driflæsing á framhjólum.
Vökvahemlar. Hydrostatik vökvastýri, sjálfstæð tengsl á afllúttaki, lyftutengdur dráttarkrókur
og sveifludráttarbeisli. Fullkomið vökvakerfi með mikilii lyftigetu, „LIFT-O-MATIC".
Sjálfvirk innbyggð lyfti- og dýptarstilling.
12 volta rafkerfi. 540 watta riðstraumsrafall. Allur almennur Ijósabúnaður auk vinnuljósa.
VERÐ:
60 hestöfl din
kr. 621.000,-
70 hestöfl din
kr. 679.000,-
80 hestöfl din
kr. 721.000,-
Sérstakir greiðsluskilmálar á fyrstu vélunum
Einakumboð fyrír fcð fiatagri á íslandi
G/obusy
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555