NT - 20.06.1985, Side 4
Vi nnuefti rljtið:
Heyrnarskemmdir algeng-
asti atvinnusjúkdómurinn
Bók um hávaðavarnir væntanleg í ágúst
■ Heyrnarskemmdir eru
langalgengasti meinti atvinnu-
sjúkdómurinn, sem tilkynntur
er til Vinnueftirlitsins. Á árun-
um 1981-1983 bárust Vinnueft-
irlitinu 1109 slíkar tilkynningar
frá Heyrnar- og talmeinastöð
íslands.
Upplýsingar þessar koma
fram í nýjasta hefti Fréttabréfs
um vinnuvernd, sem Vinnueft-
irlit ríkisins gefur út. Þar er
einkum fjallað um vinnuskil-
yrði, heilsufar og líkamsbeit-
ingu við vinnu.
I grein, sem ber yfirskriftina
„Hávaði og heyrnarskemmdir
versta vandamálið", segir m.a.
að 20% heyrnardeyfu fullorð-
inna megi rekja til hávaða. Þar
kemur fram, að hávaði á vinnu-
stöðum sé almennasta og alvar-
legasta vandamálið í aðbúnaði
starfsfólks.
Greinarhöfundur segir frá
skýrslu, sem Vinnueftirlitið gaf
út í janúar, þar sem greint er frá
hávaðamælingum í 94 fyrirtækj-
um. Samkvæmt henni urðu
77,8% starfsmanna í fisk-
vinnslu- og iðnaðarfyrirtækjum
fyrir 85 desíbela meðaltals-
hávaða að styrk yfir 8 stunda
vinnudag. Hávaði af því tagi
hefur sýnt sig valda heyrnar-
deyfu hjá 3% starfsmanna, eftir
10 ára starf. Að vísu sé þetta
ekki marktækt meðaltal fyrir
þessar atvinnugreinar, þar sem
valin hafi verið fyrirtæki og
störf þar sem grunur lék á að
hávaðinn væri vandamál. Pó
megi búast við, að um 30%
starfsmanna í iðnaði verði að
jafnaði fyrir 85 desíbela hávaða
eða meiri.
I lok greinarinnar í Frétta-
bréfi um vinnuvernd, segir að
heyrnartap sé ólæknandi og
betra sé að dempa hávaðann við
upptökin en nota heyrnarhlífar.
Vinnueftirlitið hefur ákveðið
að gefa út bók með hagnýtum
leiðbeiningum um hávaðavarnir
á vinnustöðum og er hún vænt-
anleg í ágúst.
Fimmtudagur 20. júní 1985 4
Vöruflutningamenn í Landvara:
Oánægðir með stefnu-
leysi stjórnvalda
■ Mikil óánægja með
stefnuleysi yfirvalda í flutn-
ingamálum kom fram á aðal-
fundi Landvara, landsfélags
vörubifreiðaeigenda á flutn-
ingaleiðum, sem haldinn var
fyrir nokkru. Fundarmenn
bentu á það ranglæti, sem
viðgengst „með því að gefa
Skipaútgerð ríkisins ný skip,
tæki og vöruafgreiðslur og
greiða auk þess stórfé vegna
tapreksturs, á sama tíma og
vöruflutningar á landi eru
skattpíndir eins og segir í
fréttatilkynningu frá Land-
vara.
Fundurinn gagnrýndi eig-
endur flóabáta á Norður-
landi, sem notuðu ríkisstyrki
til að kaupa vöruflutninga-
bíl, sem notaður er í sam-
keppni við Landvaramenn.
Á fundinum kom einnig
fram, að fjármálaráðuneytið
fjallar nú um beiðni Land-
vara um að söluskatti verði
aflétt af starfsemi vöruaf-
greiðslna þeirra, enda segi
lög, að vöruflutningar skuli
vera undanþegnir söluskatti.
Ragnar Haraldsson úr
Grundarfirði var kjörinn for-
maður Landvara í stað Aðal-
geirs Sigurgeirssonar frá
Húsavík, sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs.
íbúasamtök vesturbæjar:
Bera hag íbúanna
fyrir brjósti
■ íbúasamtök vesturbæjar
náðu miklum árangri í starfi
sínu á síðastliðnu starfsári.
Umferðarskiltum, götuþreng-
ingum og upphækkunum var
komið fyrir í vesturbænum,
auk þess sem hámarkshraði
bifreiða var lækkaður í 30 km
hraða. Petta kont fram á aðal-
fundi samtakanna í vor.
íbúasamtökin hyggjast
leggja meðal annars áhersíu á
málefni aldraðra vesturbæinga
í starfi sínu næsta starfsár auk
áframhaldandi baráttu í um-
ferðarmálum þessa bæjar-
hluta.
„Aldrað fólk er mjög fjöl-
mennt í vesturbænum,“ segir
Arnlaugur Guömundsson for-
maður íbúasamtakanna.
„Þetta fólk á sumt erfitt um
gang og því höfuni við komið
tillögum okkar til borgaryfir-
valda um að bæta hag þess, til
dæmis með félagsmiðstöð.
Aldraðir vesturbæingar þyrftu
auk þess að eiga kost á að geta
keypt heitan mat af borginni
einu sinni á dag, til dæmis í
gegnum heimsendingarþjón-
ustu.“
íbúasamtök vesturbæjareru
áhugahópur fólks sem starfar
að mismunandi málaflokkum
innan hverfis síns. Samtökin
hafa mikið barist fyrir bættum
umferðarmálum innan hverfis-
ins, bættum hag íbúa þess og
áhugi félagsmanna á sögu vest-
urbæjarins fer sívaxandi, að
sögn Arnlaugs.
BSRB:
Sérkjaraviðræður
áfram
■ Sérkjaraviðræðum ein-
stakra aðildarfélaga BSRB
og samninganefndar ríkis-
ins er haldið áfram af kappi
þessa dagana. Kristján
Thorlacius formaður BSRB
sagði í samtali við NT í gær,
að hann ætti ekki von á, að
viðræðum um aðalkjara-
samning yrði haldið áfram
fyrr en eftir helgi.
Sámninganefndir BSRB
og ríkisins eru sammála um
að ljúka sérkjarasamning-
um áður en aðalkjarasamn-
ingur verður gerður.
■ Sigurður Þorsteinsson, forstöðumaður Vinnuskóla Kópavogs, stillir sér upp fyrir framan vinnandi hóp. Talið frá vinstri, Sigurður,
Björgvin Birgisson, Baldvin ísaksson, flokksstjóri, Ragnar Einarsson, Björn Áðalsteinsson.
Nýjungar hjá Vinnuskóla Kópavogs:
Tómstundastarf fyrir fatlaða
- og vinna fyrir 16-17 ára unglinga
■ Sú nýbreytni verður tekin
upp hjá Vinnuskóla Kópavogs í
sumar að boðið verður upp á
tómstundastarf fyrir fatlaða og
auk þess vinnu fyrir 16-17 ára
unglinga.
Bæði líkamlega og andlega
fötluð ungmenni á aldrinum 13-
30 ára, búsett í Kópavogi, geta
tekið þátt í tómstundastarfinu.
Það mun helst snerta útivist,
svo sem gönguferðir, fjöruferð-
ir, sund og siglingar.
Starfið verður í umsjón Lindu
Gísladóttur, eins af flokksstjór-
Iðnó:
Síðustu aukasýningar á
Draumi á Jónsmessunótt
■ Mikil aðsókn hefur verið á
sýningar á Draumi á Jónsmessu-
nótt hjá Leikfélagi Reykjavík-
■ Frá sýningu á Draumi á
Jónsmessunótt. Ungu elskend-
urnir, Hermía og Lísander
(Kolbrún Erna Pétursdóttir og
Þröstur Gunnarsson) trúa Hel-
endu (Rósu Þórsdóttur) fyrir
flÁHaófnrmum ■
ur. Því verða nú tvær al-síðustu
aukasýningar á leikritinu. Fyrri
sýningin er í kvöld (fimmtu-
dag), en hin síðari á laugardags-
kvöldið. Leikstjóri er Stefán
Baldursson, en leikmynd og
búninga gerði Grétar Reynis-
son. Þýðing er eftir Helga Hálf-
danarson, en tónlist samdi Jó-
hann G. Jóhannsson.
Þessi sýning er samsýning
Leikfélags Reykjavíkur og
Nemendaleikhúss Leiklistar-
skóla íslands.
um vinnuskólans og nema í
Þroskaþjálfaskóla íslands.
Henni til aðstoðar verða eldri
starfsmenn skólans.
„Þetta er fyrst og fremst ætlað
fyrir þá sem ekki geta bjargað
sér sjálfir," sagði Linda á blaða-
mannafundi vinnuskólans, en
hann mun kosta starfið með 60
til 70.000 krónurn.
„Það er nú bara svipað og
kostar að leggja þriggja metra
göngustíg," sagði Marteinn Sig-
urgeirsson, yfirflokksstjóri
skólans. „Það fékkst ekki við-
bótarupphæð frá bænum í þetta,
þannig að við sleppum bara
einhverju verki og notuni pen-
ingana þaðan í þetta.“
Hin nýjungin hjá vinnu-
skólanum, þátttaka 16-17 ára
unglinga í honum, er einsdæmi,
að sögn Sigurðar Þorsteinsson-
ar, forstöðumanns hans. Um
tuttugu unglingar á þeim aldri
eru nú hjá skólanum og fá þeir
verkamannakaup, 81,20 kr. Sig-
urður sagði að skólinn hefði
tekið unglingana til sín vegna
þess að bærinn gat ekki útvegað
þeim vinnu.