NT - 20.06.1985, Síða 5
w
Fimmtudagur 20. júní 1985
Úlfljóti reistur bauta
steinn að Bæ í Lóni
■ „Nú 1055 árum eftir að
Ulfljótur flutti lög sín að Lög-
bergi - hamraborginni við Þing-
vallavatn árið 930 - erum við
Áskorun til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði:
Kannið hug bæjarbúa
til áfengisútsölu!
Undirskriftarlistar liggja frammi
■ Samstarfshópur fólks úr öll-
um flokkum hefur hafið undir-
skriftasöfnun í Hafnarfirði, þar
sem skorað er á bæjaryfirvöld
að láta fara fram skoðanakönn-
un á afstöðu bæjarbúa til áfeng-
isútsölu. í fréttatilkynningu sem
samstarfshópurinn hefur sent frá
sér segir m.a. að það eigi að
vera sjálfsögð þjónusta við
bæjarbúa að geta keypt sitt
áfengi á heimaslóðum.
Með því að fara til Reykja-
víkur í þeim erindum að kaupa
áfengi, þá tapast bæði tími úr
vinnu og einnig þá kostar bens-
ínið sitt. Þeir sem að áskorun-
inni standa telja að áfengisút-
sala yrði m.a. til góða fyrir
kaupmenn í Hafnarfirði, þar
sem margir freistist til þess að
gera helgarinnkaupin á meðan
farið er til Reykjavíkur í áfeng-
isútsöluna.
Hópurinn hvetur bindindis-
menn til þess að rita nöfn sín á
listann. „Með atkvæðagreiðslu
Helgarferð
fæst fram vilji meirihlutans og
hann hlýtur að bera að virða í
þessu máli sem öðrurn."
stödd hér og minnumst hans þar
sem hann áður gekk um götur
og síslaði við ær og kýr,“ sagði
oddvitinn í Lóni, Þorsteinn
Geirsson á Reyðará m.a. í ræðu
við afhjúpun minnisvarða um
Úlfljót lögsögumann sem bjó
að Bæ í Lóni. Jafnframt hefur
þar verið sett upp útsýnisskífa
gerð af Ragnari Imsland.
Það kom fram í máli Friðjóns
Guðröðarsonar, sýslumanns á
Höfn, að það að reisa Úlfljóti
bautastein í túnfætinum að Bæ
í Lóni kynni að verða það
síðasta sem sýslunefnd Austur-
Skaftafellssýslu gerði í átt til
menningarmála. „Það er nefni-
lega þannig í þessari veröld að
það þarf alltaf að vera að fremja
einhverjar byltingar, jafnvel á
íslandi - og það stendur til að
skera sýslunefndir. Þær hafa að
vísu reynst nokkuð seigar undir
hníf og gætu því þybbast eitt-
hvað við ennþá. En mér þætti
það ekki óviðeigandi og mundi
una því all vel ef þetta yrði
okkar síðasta verk til menning-
armála,“ sagði Friðjón sýslu-
maður við afhjúpun minn-
isvarðans um Úlfljót lögsögu-
mann.
Landsþing hjálparsveita skáta:
YfiréÓOmeðlimir
í tuttugu sveitum
■ Félagar í hjálparsveitum
skáta eru nú orönir yfir 800
talsins í tuttugu sveitum víös-
vegar um landið. Á lands-
þingi Landssambands hjálp-
arsveita skáta sem haldið var
í Garðabæ nú fyrir skömmu
voru Qórar sveitir boðnar
velkomnar í Landssamband-
ið. Þær eru Hjálparsveit
skáta á Akranesi, á Fjöllum,
í Reykjadal og Hjálparsveit-
in Dalbjörg í Eyjafirði.
Á landsþinginu voru rædd
drög að nýjum samstarfs-
samningi milli Almanna-
varna ríkisins og hjálpar- og
björgunaraðila. Einnig voru
rædd málefni er varða sam-
ræmda þjálfun þeirra er
sinna slíkum störfum.
í ályktun sem Landssam-
bandið samþykkti er m.a.
skorað á Álmannavarnir
ríkisins, Landssamband flug-
björgunarsveita, Rauða
kross íslands og Slysavarnafé-
lag íslands, að stofna ásamt
L.H.S. sameiginlega björg-
unar- eða þjálfunarmiðstöð.
Yrði hlutverk miðstöðvar-
innar að veita björgunar-
sveitarmönnum sérþjálfun á
ýmsum sviðum björgunar-
starfa, og rétt til að bera
einkenni um hana.
■ Húnvetningafélagið í
Reykjavík efnir til skemmti-
ferðar í Þórsmörk laugardaginn
22. júnín.k. Lagt verður afstað
frá félagsheimilinu Skeifunni 17
kl. 8 f.h. komið til baka að
kvöldi. Uppl. í síma 75211 og
74732.
■ Sá sem teljast má arftaki Úlfljóts - hreppstjórinn á Hvalnesi - afhjúpar minnisvarðann um Úlfljót
laugardag. Til vinstri sýslumaður Austur-Skaftfellinga, Friðjón Guðröðarson.
lögsögumann að Bæ í Lóni s.l.
NT-mynd Svenrir Adalsteinsson
Líkfundur á
Gagnheiði
■ Lík Reynis Smára Friðgeirs-
sonar, tuttugu og sjö ára gamals
Garðbæings, sem saknað hefur
verið frá því 13. apríl síðastlið-
inn, fannst um heígina. Ferða-
fólk sem var á göngu á Gagn-
heiði, sem er miðja vegu milli
Ármannsfells og Hvalvatns,
upp af Hvalfirði, gekk fram á
líkið. Ferðafólkið tilkynnti um
líkið til lögreglu á Selfossi um
klukkan 18 á sunnudag. Líkið
var sótt í fyrradag. Við rann-
sókn kom í Ijós að um var að
ræða Reynir Smára Friðgeirs-
son. Bfll Reynis hafði fundist
þann 14. apnl, sama dag og leit
hófst. Bíllinn fannst í Hvalfjarð-
arbotni, þar sem heitir Hlað-
hamar.
Reynir Smári var fæddur
þann sjöunda febrúar 1958.
Hann var til heimilis að Hrísmó-
um 4 Garðabæ.
í samtali við Hauk Bjarnason
rannsóknarlögreglumann kom
fram að svo virtist sem Reynir
Smári hefði orðið úti á göngu
sinni á Gagnheiði.
íslenskar málfreyjur
stofna landssamtök
■ íslenskar málfreyjur stofn-
uðu landssamtök á fyrsta
landsþingi samtakanna um
helgina. Landssamtökin eru
hluti af Alþjóðasamtökum
málfreyja en í þeim eru mál-
freyjur frá 24 löndum víðsveg-
ar úr heiminum.
Málfreyjur í alþjóðasamtök-
unum stefna að því að þjálfa
hæfileika til forystu, auka hæfni
sem áheyrandi og flytjandi,
þjálfa skipulagshæfileika, öðl-
ast þroska með því að byggja
upp sjálfstraust, ná meiri
viðurkenningu í starfi og sam-
félagi sem einstaklingur og að
vera þátttakandi í alþjóðlegum
félagsskap sem starfar á fræði-
legum grundvelli án gróða-
sjónarmiða.
„íslenskar ntálfreyjur eru nú
450 talsins," sagði Kristjana
Milla Thorsteinsson. „Stofnun
landssamtakanna markaði
tímamót hjá samtökunum, því
áður höfðum við ráð um land
allt, sem gaf tilefni til stofnun- ráð sem funda fjórum sinnum Þingið gekk mjög vel fyrir
ar landssamtaka. á ári. Þriðja stig innan samtak- sig og málfreyjur fengu góða
Undirstaða samtakanna eru anna er síðan nýstofnuð gesti í heimsókn, þ.ám. for-
deildir með 30 aðila í hverri. landssamtök. Efsta stigið er seta íslands og borgarstjórann
Síðan sameinast deildirnar í Alþjóðasamband málfreyja. í Reykjavík.
Útafkeyrslur aukast um 100%:
„Ekkiég“viðstýrið
■ Fyrstu fimm mánuðina á
þessu ári hafa útafkeyrslur
verið 81 á meðan þær voru
38 á sama tíma í fyrra. Þetta
kom fram í samtali NT við
Björn Björgvinsson fulllrúa
hjá Umferðarráði. Björn
sagði að hver „þriggja daga
helgi“ byði heim hættunni á
alvarlegum umferðarslysum.
„Það er eins og viss spenna
hlaðist upp hjá ferðafólki.
Menn ætla að gera svo mikið
í einu þessa þrjá daga.
„Ekki ég“-hugsunarháttur
er of ríkur hjá fólki. Það sló
mig sérstaklega þegar ég var
á ferðalagi um helgina að
fólk virtist ekki hafa neinn
beyg þrátt fyrir það að fregn-
ir af umferðarslysum glymdu
í útvarpinu," sagði Björn.
Dregið í
Happaregni
■ 17. júní var dregið um aðalvinninga í
Happaregni - happdrætti Slysavarnafélags
íslands og komu upp eftirtalin númer:
2 bifreiðir Opel Kadett GSI: 27112 114266
9 bifreiðir Opel Kadett GL: 744 26237
31760 46489
59093 74095
114751 149528
162630
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu, sem
istuddu slysavarna- og björgunarstarfið með
miðakaupum.
Slysavarnafélag íslands.
MYNDBANDASYNINGAR
Á SÖLUHROSSUM
Búvörudeild Sambandsins hefur í samvinnu viö Félag hrossa-
bænda látiö gera myndbönd með upplýsingum um nokkur hundruð
söluhross, gæöi þeirra, verðflokka o.fl.
Myndböndin verða sýnd innlendum og erlendum viðskiptavinum
á þriðjudögum og fimmtudögum. Þeir sem áhuga hafa eru beðnir
að hafa samband við Búvörudeild Sambandsins í síma 28200.
Samband islenzkra samvtnnufelaga
Búvörudeild
Sambandshusinu Rvik simi 28200