NT - 20.06.1985, Blaðsíða 12
Fimmtudagur 20. júní 1985 12
** * ***•,
;
■ Matt Dillon breyt-
ir sér úr „gallabuxna-
töfTara“ í sætan, stutt-
klipptan strák frá
1963.
Matt
Dillon
■ Matt Dillon er einn af
hinum ungu og upprennandi
leikurum í Hollywood, sem
spáð er frægð og frama. Hann
leikur í kvikmynd sem sýnd er
hér á landi um þessar mundir.
Myndin heitir „The Flamingo
Kid“. Þetta er áttunda mynd
Matts Dillon, - en fyrsta gam-
anmyndin, sem hann leikur í.
Venjulega hefur Matt leikið
reiðan, uppreisnargjarnan
táning, en í Flamingo Kid leik-
ur hann skapgóðan og rólynd-
an son pípulagningarmanns í
Brooklyn í New York. Ungi
maðurinn í myndinni kynnist
lifnaðarháttum hinna nýríku á
Long Island, en slíkur lífsmáti
er honum framandi, og ólíkur
þeim heimilisbrag sem var á
verkamannsheimilinu í Brook-
lyn.
Dillon sagði nýlega í blaða-
viðtali, að sér hefði líkað vel
að leika „töffara“ og reiða
unga menn í fyrri myndum,
„því það eru slík hlutverk sem
gefa manni eitthvað til að tak-
ast á við“. En Matt Dillon
þótti tími kominn til að breyta
til - og útkoman varð hin létta
og líflega mynd, „The Flam-
ingo Kid“.
Til þess að ná sem best
tíðaranda ársins 1963 - en
myndin gerist þá - blaðaði
Matt í gegnum bækur og tíma-
rit og hlustaði á plötur frá þeim
tíma. í leikarablaðinu Photo-
play fann hann hárgreiðslu sem
honum líkaði og lét klippa sig
eftir myndinni í blaðinu, svo
hann passaði sem best í hlut-
verkið. „Jeffrey (strákurinn
sem Matt leikur í myndinni) er
fínn náungi og hann hefur
áreiðanlega viljað tolla í tísk-
unni,“ sagði Matt við búninga-
hönnuðinn Ellen Mirojnick og
þau hjálpuðust að við að flnna
tískuföt frá þessum tíma.
Þegar myndin byrjar er Matt
klæddur í Ijósgræna rósótta
skyrtu, „dacron“-síðbuxur í lit
við og svart/hvíta körfubolta-
skó og með brúnan kolllágan
hatt með uppbrettum börðum!
Matt hefur nú nýlega lokið
við að leika í mynd frá stríðsár-
unum, sem tekin var upp í
Ástralíu. Hún heitir
„REBEL“ (Uppreisnarmað-
ur) og aðalleikarinn í myndinni
er Bryan Brown (sá sem lék
Luke, eiginmann hennar
Meggie í sjónvarpsmyndinni
,,Þyrnifuglarnir“). í þessari
mynd leikur Matt Dillon
bandarískan liðsforingja sem
verður ástfanginn af ástralskri
söngkonu.
Næsta mynd segir Matt að
eigi að vera „spennumynd“.
Þar leikur hann með Gene
Hackman, en leikstjóri er
Arthur Penn. Myndin heitir
„TARGETS“ og er tekin í
Evrópu og í Texas.
Flamingo
Kid"
■ í myndinni fellur
fátæki strákurinn frá
Brooklyn fyrir ríku
stelpunnj frá Kalifor-
níu. „í raunveru-
leikanum erum við
góðir vinir - en annað
ekki“ sagði Matt. Hér
eru þau að skemmta
sér í „pásu“ á milli
atriða í upptöku.