NT - 20.06.1985, Qupperneq 14
__________Fimmtudagur 20. júní 1985 14
■ Eggert Þorleifsson hefur sýnt góð tilþrif á hinum og
þcssum sviðum. M.a. hefur hann énn sem komið er ruglað líf
manna til sjávar og sveita í kvikmyndum Nýs lífs, og virðist
eiga cftir að verða framhald á þeim hrellingum landsmanna.
Utvarp kl. 22.35:
Listamaðurinn fjölhæfi
Eggert Þorleifsson
■ í kvöld kl. 22.35 er þáttur
í útvarpinu sem ber nafnið í-
lcik og starfi. Þar cr rætt við
og um Eggert Þorleifsson
fjöllistamann og það er
Magnús Einarsson sem hcfur
umsjón nteð þættinum.
Eggert hefur komið víða
við á ferli sínum og ætlar
Magnús að spjalla við hann
um þær viðkomur. Hann hel'-
ur látið að sér kveða í tónlist,
stundaði nám á klarinettu í
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík, spilaði svo með hljóm-
sveitum og inn á þó nokkrar
hljómplötur, s.s. með Þokka-
bót. Þá má nefna að samstarf
hans við Stuðmenn er þekkt,
ekki síst í sambandi við kvik-
mynd þeirra Með allt á hreinu.
Og þá erum við komin að
öðru listasviði þar sem Eggert
hefur látið til sín taka, en það
er í leiklistinni. Hann hefur'
leikið í þó nokkrum kvik-
myndum, m.a. hlutverk Þórs
í kvikmyndum Nýs lífs um
klaufabárðana Danna og Þór.
Nú síðast fór hann með stórt
hlutverk í Skammdegi. En
Eggert hefur líka leikið á
sviði, t.d. nú í vor í óperett-
unni Leðurblökunni, sem syst-
ir hans Þórhildur leikstýrði.
Hann hefur líka starfað með
Alþýðuleikhúsinu, í Þjóð-
leikhúsinu og Leikfélagi Ak-
ureyrar, svo að eitthvað sé
nefnt.
Aðaláhugamál Eggerts,
sem hann stundar í tómstund-
um, er billjarðspil og segir
Magnús hann mjög snjallan
billjarðleikara.
í þættinum, sem stendur í
tæpan hálftíma, spjallar
Magnús líka við tvo þekkta
menn sem Eggert hefur starf-
að mikið með, þá Valgeir
Guðjónsson og Þráin Bertels-
son.
Rás 2, kl. 21.
„Eldra fólk hlustar mikið á Rás 2“
- segir Ragnheiður Davíðsdóttir
■ Það verður gestagangur
hjá Ragnheiði Davíðsdóttur á
Rás 2 í kvöld kl. 21-22 eins
og endranær á fimmtudögum.
Gestir Ragnheiðar í kvöld
eru þeir Guðmundur Kjærn-
ested skipherra og Kristján
Kristjánsson, sem flestir
þekkja enn þann dag í dag
best sem KK.
„Ég vil taka sérstaklega
fram að mér er það mikil
ánægja og jafnframt heiður
að fá að spjalla við þessa
menn,“ segir Ragnheiður, en
þeir hafa sem kunnugt er
ekki verið mikið gefnir fyrir
að koma fram í fjölmiölum.
Ragnheiður sagði jafnframt
að hana hefði langað til að fá
einhvcrja fulltrúa eldri kyn-
slóðarinnar í þáttinn til sín,
því að því Rásar 2 fólki væri
■ Kristján Kristjánsson
hefur snúið sér að öðru en
tónlist.
vel kunnugt um það aö niikið
væri um það að eldra fólk
hlustaði á útsendingar þeirra,
sérstaklega á fimmtudags-
kvöldum. „Við viljum endi-
lcga breyta þeirri íniynd Rás-
arinnar að hún sé eingöngu
■ Jón Viðar Jónsson er þýðandi leikritsins Algert næði
Erfiður sjúklingur
í útvarpsleikriti
■ í kvöld kl. 20 verður flutt í
útvarpinu leikritið Algert næði
eftir hinn þekkta breska leikrita-
höfund Tom Stoppard. Þýð-
andi er Jón Viðar Jónsson en
leikstjóri Karl Ágúst Úlfsson.
í leikritinu segir frá manni
nokkrum sem tekst að leggjast
inn á einkaspítala þrátt fyrir að
ekkert sé að honum. Þar veld-
ur hann hjúkrunarfólkinu
meiri áhyggjum en sjúkl-
ingarnir sem fyrir eru.
Leikendur eru: Bessi
Bjarnason, Lilja Þórisdóttir,
Erla B. Skúladóttir. Júlíus
Hjörleifsson, Sigríður Hagalín
og Ragnheiður Tryggvadóttir.
Tæknimenn eru Astvaldur
Kristinsson og Óskar Ingvars-
son.
■ Guðmundur Kjærnested er hættur að standa í brú varðskip-
anna og stjórna aðgerðum gegn landhelgisbrjótum.
fyrir ungt fólk," segir hún.
Og það eru litlar líkur til að
hlustendur verði fyrir von-
brigðum með þessa gesti.
Guðmund Kjærnested
þekkja allir, en hann gat sér
gott orð fyrir vasklega fram-
göngu í landhelgisstríðum við
Breta. Hann er nú hættur
sem skipherra hjá Landhelg-
isgæslunni eftir langan og
giftudrjúgan starfsferil og
sestur í helgan stein að eigin
sögn þrátt fyrir ungan aldur.
Hvað hann er að stússa þessa
dagana kemur í ljós í þættin-
um í kvöld.
Bók um hann, skráð af
Sveini Sæmundssyni, kom út
fyrir nokkrum árum.
Kristján Kristjánsson, KK,
þarf ekki heldur að kynna.
Hann átti um árabil manna
mestan þátt í því að viðhalda
dansgleði íslendinga með
ljúfri tónlist sem hreinlega
dró fólk út á dansgólfið. Nú
hefur hann fyrir löngu lagt
danstónlistina á hilluna og
eftirlátið syni sínum Pétri,
m.a., að sjá um þá hlið mála.
Hins vegar rekur hann fyrir-
tækið Litlu fluguna, en hann
er mikill sportveiðimaður og
áhugasamur um hag þeirra.
Eitthvað mun hann líka fást
við að rista túnþökur og vera
garðeigendum innan handar
um þær.
Fjallað um nýjan
kvenrithöfund
■ Á fimmtudagskvöldum
kl.22ísumarverður 15 mínút-
na langur þáttur í útvarpi sem
ber nafnið Bókaspjall. Það er
Áslaug Ragnars sem hefur um-
sjón með þessum þáttum.
„Þetta eru stuttir þættir og
það er ætlunin að fá einn gest
í hvern þátt til að segja frá
einhverri bók sem hann hefur
Iesið, eða er að lesa, og hefur
sérstakar mætur á,“ segir
Áslaug. Ætlunin er að fá hann
til að segja frá bókinni, höfund-
inum, efni bókarinnar o.s.frv.
Gestur þáttarins í kvöld er
færeyskur maður, Jónfinn
Joensen, sem lengi hefur búið
hér á landi og talar íslensku
með ágætum. Bókin sem hann
ætlar að fjalla um er eftir
færeysku konuna Oddvör Johan-
sen, Lívsins summar (Sumar
lífsins), og er þetta fyrsta bók
hennar. Hún kom út á færeysku
1983, en í danskri þýðingu á
þessu ári.
Bókin er eins konar skáld-
mynd af uppvaxtarárum ungrar
stúlku í Færeyjunt á árunum í
kring um 1950, en sjálfur er
höfundurinn fæddur 1941.
■ Jónfinn Joensen kynnir
nýjan færeyskan rithöfund í
útvarpinu í kvöld
NT-mynd: Sverrir
Fimmtudagur
20. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Morgunútvarpiö. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Málræktarþáttur. Endurt. þáttur
Ólafs Bjarnasonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir Morgunorö -
Emil Hjartarson, Flateyri, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróöir og Kalli á þakinu“
eftir Astrid Lindgren. Siguröur
Benedikt Björnsson les þýöingu
Siguröar Gunnarssonar (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
10.45 Málefni aldraöra Þáttur i umsjá
Þóris S. Guöbergssonar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liön-
um árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Út um hitt. FINNST YKKUR
ÞETTA EKKI ORKA TVÍMÆLIS
??? Létt lög af hljómplötum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Hákarlarnir“ eftir Jens
Björnebo Dagný Krisfjánsdóttir
þýddi. Kristján Jóhann Jónsson.
(13).
14.30 Miðdegistónleikar a. Prel-
údia, kórall og fúga eftir Cesar
Franck. Alex de Vries leikur á
píanó. b. Adagio og allegro i
As-dúr op. 70 eftir Robert
Schumann. David Geringas og
Tatjana Schatz leika á selló og
píanó. c. Sónata í Es-dúr op. 167
eftir Camille Saint-Saéns. Wilfried
Berk og Elisabeth Seiz leika á
klarinetlu og píanó.
15.15 Létt lög
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Á frívaktinni Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalóg sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Ragnheiöur Gyða Jónsdóttir.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynning-
ar. Daglegt mál. Siguröur G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Leikrit: „Algjört næði“ eftir
Tom Stoppard Þýöandi: Jón Viðar
Jónsson. Leikstjóri: Karl Ágúst
Úlfsson. Leikendur: Bessi Bjarna-
son, Lilja Þórisdóttir, Erla B. Skúla-
dóttir, Júlíus Hjörleifsson, Sigríður
Hagalin og Ragnheiður Tryggva-
dóttir.
20.40 Gestur i útvarpssal Banda-
riski pianóleikarinn Ruth Slenc-
zynska leikur. a. Carnaval op. 9
eftir Robert Schumann. b.
„Excursion" nr. 3 eftir Samuel
Barber.
21.10 Horft til himins. Umsjón: Anna
Ólafsdóttir Björnsson. Lesari meö
henni: Árni Sigurjónsson.
21.40 Einsöngur i útvarpssal Guö-
björn Guðbjörnsson syngur itölsk
lög. Guöbjörg Sigurjónsdóttir leikur
á píanó.
22.00 Bókaspjall
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.351 leik og starfi Eggert Þorleifs-
son fjöllistamaður. Umsjón: Magn-
ús Einarsson.
23.00 Kvöldstund i dúr og moll
Umsjón: Knútur R. Magnússon.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
■||gW 20. júní
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
endur: Kristján Sigurjónsson og
Sigurður Sverrisson.
14:00-15:00 Dægurflugur. Stjórn-
andi: Leópold Sveinsson.
15:00-16:00 Ótroðnar slóðir Kristi-
leg popptónlist. Stjórnendur: Andri
Már Ingólfsson og Halldór Lárus-
son.
16:00-17:00 Jazzþáttur Stjórnandi:
Vernharöur Linnet.
17:00-18:00 Gullöldin Lög frá 7.
áratugnum. Stjórnandi: Þorgeir As-
tvaldsson.
Þriggja minútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ
20:00-21:00 Vinsældalisti hlust-
enda rásar 2 10 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Gunnlaugur
Helgason.
21 :oo-22:00 Gestagangur Gestir
koma i stúdíó og velja lög ásamt
léttu spjalli. Gestir aö þessu sinni:
Guömundur Kærnested, skipstjóri
og Kristján Kristjánss, KK. Stjórn-
andi: Ragnheiöur Davíösdóttir.
22:00-23:00 Rökkurtónar Stjórn-
andi: Svavar Gests.
23:00-24:00 Orðaleikur Stjórnandi:
Andrea Jónsdóttir.
Föstudagur
21.júní
19.15 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
19.25 Krakkarnir i hverfinu. Kanad-
ískur myndaflokkur um hversdags-
leg atvik i lífi nokkurra borgar-
barna. Þýöandi Kristrún Þóröar-
dóttir.
19.50 Fréttir á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Skonrokk. Umsjónarmenn:
Haraldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.15 Nytsamir sakleysingjar.
Kanadísk heimildamynd. í mynd-
inni er dregið fram í dagsins Ijós
hverníg ýmsir kvikmyndagerðar-
menn fyrr og siöar hafa farið illa
meö dýr og beitt blekkingum til að
ná tilsettum árangri, bæði i leikn-
um bíómyndum og náttúrulifs-
myndum. ÞýöandiÓskarlngimars-
son.
22.15 Armur laganna. (The Long
Arm) Bresk sakamálamynd frá
1956. s/h. Leikstjóri Charles
. Frend. Aöalhlutverk: Jack
Hawkins, Dorothy Alison, John
Stratton og Michael Brooke.
23.50 Fréttir i dagskrárlok.