NT - 20.06.1985, Side 23
>'
Fimmtudagur 20. júní 1985 23
ÍÞfóttir
Bikarkeppni KSÍ 3. umferð:
KAsigraði2-1
á Siglufirði
■ Selfyssingar gerðu slæma ferð að Hlíðarenda í gærkvöldi er þeir töpuðu 8-0 fyrir Valsmönnum í íslandsmóti eldra flokks í knattspyrnu.
Hér á myndinni má sjá Valsmenn þjarma að marki Selfoss í eitt af mörgum skiptunum í leiknum. Nokkrir aðrir leikir fóru fram í þessum
ilokki í gær. Guðmundur Jóhannesson skoraði sigurmark KR í Keflavík, og í A sigraði FH 3-0. Á sunnudag vann svo Fram Reyni frá
Sandgerði 5-1. ^ M'-mynd: Árni Bjam».
Þrír sigrar á tæpri viku
- Einar Vilhjálmsson vinnur enn spjótkastkeppnir erlendis. Sigurður Einarsson í þriðja sæti
■ íslensku spjótkastararnir Einarsson náðu mjög góðum
Einar Vilhjálmsson og Sigurður árangri á frjálsíþróttamóti í
Bætir Bryndís
íslandsmetið?
Keppt í sjöþraut og tugþraut á meistaramótinu
í frjálsíþróttum
■ Fyrsti hluti meistaramóts ís-
lands í frjálsíþróttum verður
um helgina, nánar til tekið á
morgun og laugardag.
Keppt verður í tugþraut karla
og sjöþraut kvenna og 4x800
metra hlaupi karla á morgun kl.
18:00 og á laugardaginn hefst
keppni kl. 14:00 í 3000 metra
hlaupi kvenna og 10.000 metra
hlaupi karla.
Búast má við mikilli og
skemmtilegri keppni. í tug-
þrautinni verður ábyggilega
hart barist og verða Gísli Sig-
urðsson og Þorvaldur Þórsson
trúlega í fremstu víglínu. Búast
má við að þeir nái báðir á milli
7500 og 7600 stigum en ef það
■ Bryndís Hólm, ÍR, verður í
cldlínunni í sjöþraut.
tækist yrði það í fyrsta sinn sem
tveir íslendingar ná þeim áfanga
á sáma mótinu. Það verður
örugglega gaman að fylgjast
með þeim.
í sjöþraut er næsta víst að
Bryndís Hólm setji íslandsmet.
Hún er í mjög góðu formi í
þraut þó árangur hennar í lang-
stökki hafi verið betri en um
þessar mundir. íslandsmet
Bryndísar er 5200 stig. í 10000
metrunum má búast við örugg-
um sigri Sigurðar P. Sigmunds-
sonar. Jón Diðriksson mun ekki
hlaupa í þeirri vegalengd en
hann verður hinsvegar með í
4x800 metra boðhlaupi.
Tvær kornungar og stórefni-
legar stúlkur munu berjast um
sigur í 3000 metra hlaupi
kvenna. Sólveig Stefánsdóttir
úr USAH og Marta Ernstdóttir
eru fyrstu langhlaupsefnin hjá
konum í langan tíma og þær
eiga örugglega eftir að ná stór-
góðum árangri í framtíðinni.
Sólveig flaug beint í landsliðið
eftir Landsmót UMFÍ í fyrra og
Marta vann 1500 metrana í
bikarkeppninni í sínu fyrsta
hlaupi.
Nokkrar aukagreinar verða á
mótinu um helgina því kepp-
endur í þrautum verða að fá
hvíld á milli. Það eru 200 metra
hlaup karla og kvenna, hástökk
karla og kvenna, kringlukast
karla og kvenna og 800 metra
hlaup kvenna. Flest af landsliðs-
fólkinu mun taka þátt í þeirri
keppni, enda ekkert annað mót
um þessar mundir. Því er þessi
æfing kærkomin.
Vaxjö í Svíþjóð í gær. Einar
sigraði á mótinu, en Sigurður
varð í þriðja sæti. Þriðji sigur
Einars í spjótkastkeppni erlend-
is á tæpri viku. A mótinu í
Vaxjö kepptu fremstu spjót-
kastarar Svía og Norðmanna og
höfðu þeir lítið í íslendingana
að gera.
Einar kastaði slétta 85 metra
og náði því ekki alveg að sýna
sínar bestu hliðar, en eigi að
síður kastaði hann tæpum fimm
metrum lengra en næsti maður,
Dan Wennlund. Svíinn náði
best 79,76 metrum og Sigurður
kom rétt á eftir, kastaði 79,28
metra. Norðmaðurinn Reidar
Lorentzen varð fjórði með
76,20 metra kast.
Það var vart við því að búast
að Einar næði nú að kasta
jafnlangt og á mótunum í Borás
og Sviss. Þá kastaði hann um og
yfir 90 metra. En þessi árangur
hans sýnir hversu öruggur hann
er orðinn með köst sín í keppni
við helstu spjótkastara heims.
Sigurður kastaði mun lengra
en á Vesturleikunum í Sviss um
síðustu helgi. Þá kastaði hann
76,18 metra, eða rúmum þrem-
ur metrum styttra en í gær.
Sigurður tók ekki þátt í mótinu
í Borás. Hann missti af flugvél
og kom of seint til leiks.
Lorentzen sigraði í lands-
keppni Norðmanna og Svía í
írjálsíþróttum um s.l. helgi. Þá
kastaði hann 84,64 metra, en
það hefði ekki nægt honum
nema í 2. sætið í gær. Árangur
Wennlund er einnig töluvert frá
því sem hann hefur náð best í
ár. Wennlund varð einnig í
silfursætinu á mótinu í Borás.
Þá sem í gær mátti. hann horfa á
Einar Vilhjálmsson taka við
gullverðlaununum.
Þess má að lokum geta að
Wennlund stundar nám við há-
skólann í Texas (Texas Univer-
sity), þann hinn sama og Einar
var við í vetur. Naut Wennlund
þar leiðsagnar Einars svona við
og við. Svíinn hefur alveg verið
við að slá met Einars við skól-
ann og þar með bandaríska
háskólametið. Þar munar að-
eins nokkrum tugum senti-
metra. Einar gerði því réttast
að hætta að leiðbeina
Wennlund, áður en hann hrifsar
frá honum metið.
■ Það voru Akureyringar sem
hrósuðu sigri er þeir öttu kappi
við nágranna sína frá Siglufirði
í 3. umferð bikarkeppni KSÍ í
gærkvöldi. KA sigraði 2-1 eftir
að jafnt hafði verið 1-1 í hálf-
leik. Jakob Kárason skoraði
fyrir KS á fyrstu mínútu leiksins
en Akureyringar jöfnuðu er um
15 mínútur voru af leiknum.
Sigurmarkið kom snemma í síð-
ari hálfleik.
í Sandgerði sigraði Reynir ÍR
4-1. Grétar Sigurbjörnsson
skoraði tvö markanna, Ari
Haukur Arason og Þórður
Þorkelsson gerðu eitt hvor. Fyr-
ir ÍR-inga svaraði Páll Rafn
Rafnsson.
Grindvíkingar, sem Ieika í 3.
deild, töpuðu óvænt heima fyrir
4. deildarliði Árvakurs 2-3, Ár-
vakur komst í 0-2 fyrir hlé og
bætti svo þriðja markinu við.
Árni Guðmundsson skoraði eitt
þeirra en um hina markaskorar-
Hrafnkell
jók forystuna
■ Þrír leikir fóru fram í
F-riðli 4. deildar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi.
Hrafnkell Freysgoði
treysti mjög stöðu sína á
toppi riðilsins með 4-2
heimasigri á Hetti. Staðan
í hálfleik var 2-1.
Súlan hlaut sín fyrstu
stig í riðlinum er liðið
malaði Egil rauða 7-0 á
Stöðvarfirði. Jónas Ólafs-
son skoraði fjögur mörk,
Ársæll Hafsteinsson tvö
og Albert Jensson eitt.
Egill er nú neðst í riðlin-
um, hefur ekkert stig
fengið.
Þá sigraði Sindri Neista
3-0. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en í
þeim síðari skoraði Elvar
Grétarsson þrívegis.
ana vitum við eigi. Grindvíking-
ar minnkuðu muninn með
mörkum Símonar Alfreðssonar
og Pálma Ingólfssonar en tókst
ekki að jafna metin.
Loks unnu Njarðvíkingar
Víking frá Ólafsvík á útivelli
0-2.
AIK varð sænskur
bikarmeistari:
Teitur
skoraði
■ Ekki tókst Teiti Þórðarsyni
að verða bikarmeistari með Öst-
er er liöið lék við AIK frá
Gautaborg í úrslitum sænsku
bikarkeppninnar í knattspyrnu
í-gærkvöldi. AIK sigraði 4-3
eftir vítaspyrnukeppni, en eftir
framlengdan leik var staðan 1-1.
Teitur skoraði fyrsta mark
leiksins á 52. mínútu og kom
Öster í 1-0, en AIK jafnaði
skömmu fyrir leikslok. I fram-
lengingunni var ekkert skorað
og Öster klikkaði svo á vítun-
urn. Ekki þó Teitur. Hann var
annar leikmanna liðsins sem
tókst að koma knettinum rétta
boðleið.
■ Teitur
tvisvar.
Þórðarson skoraði
Ladda fleira til lista
lagt en spila og syngja
- náði góðum árangri á Pierre Robert golfmótinu
OL í Los Angeles árið 2004
■ Það er næsta líklegt að
Los Angeles, borgin sem
hélt Ólympíuleikana á síð-
asta ári og græddi á tá og
fingri, muni sækja um að
halda leikana á ný árið 2004.
Þetta var haft eftir John
Argue formanni Ólympíu-
nefndar S-Kaliforníu.
Ef svo færi að leikarnir
yrðu í L.A.' árið 2004 þá
yrði borgin sú fyrsta til að
halda leikana þrisvar.
Nú þegar er byrjað að
selja merki með ártölunum
1932, 1984 og 2004 á 10
dollara stykkið til að safna
fyrir undirbúningi að um-
sókninni.
Svíinn bestur
■ Svíinn Pelle Lindbergh var
valinn besti markvörðurinn í
norður-amerísku atvinnu-
mannadeildinni í íshokkíi
(NHL) í ár. Lindbergh leikur
með Philadelphia Flyers og
átti hvað mestan þátt í því að
liðið komst í úrslit keppninn-
ar. Þar beið liðið hins vegar
lægri hlut fyrir Edmonton Oil-
ers. Lindbergh er fyrsti Svíinn
sem nær því að verða valinn
besti leikmaöur eða mark-
vörður NHL.
Besti leikmaðurinn v
kjörinn Wayne Gretzky og
kom það val fáum á óvart
Gretzky hlaut einnig sérstök
verðlaun fyrir að skora flest
mörk í NHL. Þetta var í sjötta
skiptið sem Gretzky var valinn
besti leikmaðurinn og hefur
aðeins einum manrii áskotnast
sá heiður svo oft. Það var
Gordie Howe, sem var upp á
sitt besta fyrir um 15 árum.
■ Hinu árlega Pierre Robert
golfmóti lauk um helgina í Nes-
velli. Þetta er 15. árið sem þetta
vinsæla mót er haldið. Ungur
Hafnflrðingur, Hörður Arnar-
son sigraði glæsilega á 73 högg-
um án forgjafar. Hér er á ferð-
inni mjög efnilegur golfari og er
öruggt að stóru nöfnin mega
vara sig í sumar á þessari nýju
golfstjörnu.
í flokki með forgjöf voru 3
Þórhallur er liðugur með kylfuna.
með sama skor, Guðlaugur
Gíslason, Þórhallur Sigurðsson
(Laddi), sem tekur golflð mjög
alvarlega núna, og Gísli Hall-
dórsson fyrrverandi formaður
Í.S.Í. sem hefur þegar stórbætt
sig með nýju Ping kylfunum.
í kvennaflokki sigraði Kristín
Eide með forgjöf, en án forgjaf-
ar varð Steinunn Sæmundsdótt-
ir í fyrsta sæti.
Annars urðu úrslit eftirfar-
andi:
Karlar:
Med forgjöf.
1. Guðlaugur Gíslason, GK íi4
2. Þórhallur Sigurðsson, GR 64
3. Gísli Halldórsson, NK 64
Án forgjafar.
1. Hörður Arnarson, GK 73
2. Sigurbjöm Sigfússon, GK 75
3. ívar Hauk8son, GR 77
Konur:
Með forgjöf.
1. Kristine Eide, NK 60
2. Áslaug Bernhöft, NK 68
3. Hrafnhildur Þórarinsd., GK 69
Án íorgjafar.
1. Steinunn Snmundsdóttir.
Þátttaka var mjög góð- eða
um 170 manns þrátt fyrir leiðin-
legt veður seinni dagana.
ÖIl verðlaun voru gefin af
Íslensk-Ameríska h.f. umboðs-
manni Pierre Robert snyrtivar-
anaá-