NT - 22.06.1985, Qupperneq 20
Útlönd
Spaghettistríð milli
Kana og Evrópumanna
- Reagan leggur verndartolla á
hyggur á hefndir
Brussel-Reutcr.
■ Spaghettistríð hefur brotist
út milli Bandaríkjanna og Evr-
ópubandalagsins. Ásakar Evr-
ópubandalagið Bandaríkja-
menn fyrir að hafa lagt verndar-
tolla á spaghetti innflutt frá
Ítalíu, sem komi mjög illa við
ítalska spaghettiframleiðendur.
Mál þetta er aðeins viðbót við
röð annarra þar sem ásakanir
um notkun verndartolla ganga á
báða bóga.
Reagan forseti hækkaði inn-
flutningsgjöld á spaghetti frá
löndum Evrópubandalagsins og
sagðist hann vera að hefna fyrir
háa og ósanngjarna tolla á cit-
rusávexti, innflutta frá Banda-
ríkjunum.
Viðbrögð í höfuðstöðvum
Evrópubandalagsins í Brussel
létu ekki á sér standa: „Við
eigum ekki annars kost en að
grípa til hefndaraögerða," var
haft eftir einum embættismanna
bandalagsins í gær.
George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, fer til Evrópu
í næstu viku í vináttuheimsókn.
Búist er við að spaghettimálið
muni varpa skugga á heimsókn-
ina og meiri tíma muni varið í
umræður um niðurgreiðslu
landbúnaðarafurða í löndum
EB og verndartolla í Bandaríkj-
unum en til stóð upphaflega.
Tollurinn á spaghettíið mun
hækka verð til neytenda í
Bandaríkjunum um ein 40%,
sem augljóslega mjög veikir
samkeppnisstöðu ítölsku fram-
leiðendanna á markaðnum, en
þar hafa þeir haft algera yfir-
burðastöðu hvað markaðshlut-
deild snertir
lengjurnar. Evrópubandalagið
■ Nú fer spaghettíið að verða
munaðarvara í Bandaríkjunum
því að verðið á því innflutta
hækkar um 40% vegna verndar-
tolla. '
Svíþjóð:
Arkitekt velferðamkisins
■ Erlander var forsætisráðherra lands síns samfellt í 23 ár.
■ Tage Erlander, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar frá 1946
til 1969, lést í gær, 84 ára að
aldri. Margir hafa eignað Er-
lander heiðurinn af þeim gíf-
urlega hagvexti sem var í
Svíþjóð á árunum eftir stríð
og var undirstaða sænska
velferðarríkisins.
Erlander var formaður
Jafnaðarmannaflokks Sví-
þjóðar og í hans formannstíð
vann flokkurinn stóra kosn-
ingasigra, náði til dæmis
hreinum meirihluta í fyrsta
sinn í kosningunum 1968 sem
er látinn
voru þær síðustu sem Er-
lander bauð sig fram í.
Erlander var þekktur fyrir
frjálslega framkomu. Hann
lét ljósmynda sig í náttfötum
á svölum heimilis síns og
þegar hann fékk erlenda
stórhöfðingja í heimsókn
bauð hann þeim gjarnan í
bátsferð á árabát sínum.
Meðal þeirra sem réru með
Erlander voru bandaríski
öldungadeildarþingmaður-
inn, og síðar varaforseti
Bandaríkjanna, Hubert
Humphrey og Sovétleiðtog-
inn Nikita Kruschev.
Hong Kong:
Heróínkóngur
fékk 20 ár
Ho«g Rong-Keuter
■ Forsprakki eiturlyfjahrings
í Hong Kong hefur verið dæmd-
ur í tuttugu ára fangelsi í ein-
hverju stærsta eiturlyfjamáli
sem upp hefur komið í bresku
nýlendunni.
Teddy Hung Hon Ye, 36 ára
meðeigandi í næturklúbbi í
Mongkok, sem er rauða hverfi
Hong Kong. Við réttarhöldin
kom í ljós að klúbburinn hefur
verið miðstöð eiturlyfjasölu fyr-
ir um 26 milljónir doílara á sjö
ára tímabili, frá 1975 til 1982.
Eingöngu var um dreifingu og
sölu á heróíni að ræða.
Eiginkona forsprakkans fékk
tveggja ára fangelsisdóm og þrír
aðrir, sem viðriðnir eru málið,
mega dúsa í fangelsi milli 10 og
15 ár. Kviðdómur sýknaði tvo
sem grunaðir voru um að vera
viðriðnir málið.
■ Þó að lögregla í Austurlönd-
um hafl hendur í hári fjölda
eiturlyfjasala og margir þeirra
séu dæmdir flæðir heróínið yfir
hinn vestræna heini.
Laugardagur 22. júní 1985 20
Allt getur nú gerst:
Flugrán í Osló
Osló-Reuter
■ 24 ára drukkinn lögreglu-
maður rændi í gær farþega-
þotu á Fornebuflugvellinum
í Osló. Hann gafst upp eftir
þrjár klukkustundir eftir að
hafa sleppt þeim 115 farþeg-
um sem voru um borð í
flugvélinni. Farþegarnir og
áhöfn vélarinnar sluppu með
skrekkinn.
Lögreglan í Osló sagði að
flugræninginn væri atvinnu-
laus lögreglumaður og hefði
verið drukkinn.
Flugvélin var á leið frá
Þrándheimi og var lent á
Fornebuflugvelli þegar mað-
urinn tók upp byssu og rændi
vélinni. Hann krafðist þess
að fá að hitta að máli norska
dómsmálaráðherrann og Ka-
are Willock forsætisráð-
herra.
Farþegunum, sem flestir
voru Norðmenn þótt þar hafi
líka verið að finna Banda-
ríkjamenn, Breta, Frakka og
ítali, var sleppt í fjórum
hópum. Ræninginn skipaði
flugstjóranum að aka vélinni
að aðalbyggingu flugstöðvar-
innar og þar horfði fjöldi
fólks á manninn henda byss-
unni niður flugvélatröppurn-
ar og gefa sig lögreglunni á
vald.
Þetta er fyrsta flugránið
sem framið hefur verið í
Noregi. Kaare Willock sagði
blaðamönnum að hann
myndi íhuga það að herða
öryggisráðstafanir í innan-
landsflugi.
Austur-Þjóðverjar:
Vilja ná forystu
í tölvuiðnaðinum
Austur-Berlín-Reuter
■ Erich Honecker leiðtogi
Austur-Þýskalands hefur sett
fram nýjar áætlanir til að brúa
bilið milli austur-þýskrar og
vestrænnar tækni og til að mæta
auknum kröfum neytenda í
Moskvu.
Tónninn í ræðu Honeckers á
fundi stefnuskrárnefndar aust-
ur-þýska kommúnistaflokksins
í vikunni var ekki eins hvass eða
ákafur og í ræðum Mikhails
Gorbachevs á liðnum vikum.
En hann gerði mönnum ljóst að
Austur-Þjóðverjar gætu þurft
að horfast í augu við efnahags-
lega hnignun ef þeir hefðu ekki
sókn á lykilsviðum eins og í
tölvumálum.
„Við verðum að fylgja eftir
alþjóðlegum ferlum í fram-
leiðniaukningu og enginn ætti
að vera í vafa um hvers það
krefst. Austur-Þjóðverjar verða
að berjast fyrir því að ná forystu
í þessum rnálurn," sagði Hon-
ecker á fundinum.
Honecker gaf í skyn að ríkið
ætlaði sér að koma á beinu
samstarfi milli verksmiðja og
rannsóknarstofnana^ að því
er virðist til að koma í veg fyrir
að tæknileyndarmál Austur-
Þjóðverja kvisist út og á mark-
aðinn komi eftirlíkingar af aust-
ur-þýskum tölvum.
Áustur-Þjóðverjar sjá aust-
antjaldsríkjunum að mestu fyrir
tölvuþörfum þeirra en tölvurnar
eru hins vegar ekki samkeppnis-
færar á Vesturlöndum.
Honecker gagnrýndi ekki
framkvæmdastjóra verksmiðj-
anna eins og Gorbachev hefur
gert, en hins vegar telur austur-
þýski efnahagssérfræðingurinn
Gunther Mittag að gera eigi
framkvæmdastjórana ábyrga
fyrir því að bæta gæði fram-
leiðslunnar.
Mittag segir að það sé ekki
lengur nægilegt að skara fram
úr í einni framleiðslugrein held-
ur verðið að taka á allri fram-
leiðslu Austur-Þjóðverja því að
aðeins þannig verði tryggður
grundvöllur fyrir útflutningi og
þess að hægt verði að brauðfæða
alla landsmenn.
Austur-Þjóðverjar hafa feng-
ið sem svarar tveim milljörðum
dollara að láni á alþjóðlegum
mörkuðum á síðustu tveimur
árum. En höft sem Vesturlönd
hafa sett gera þeim erfiðara
með að flytja inn rafeindatækni
frá viðskiptalöndum sínum eins
og Japan.
Frökkum mein-
illa við sápu
Paró-Reater.
■ Frakkar sem framleiða
margar lyktarbestu og dýrustu
ilmsápur og ilmvötn í heimi, eru
skítugri en flestir nágrannar
þeirra í Evrópu.
Samkvæmt niðurstöðum ný-
legrar skoðanakannana fara
einungis 32% franskra kvenna
og 19% franskra karla daglega í
bað og meðaljóninn og -jónan í
Frakklandi nota aðeins 4 sápu-
stykki á ári.
Bretar eru meira en tvisvar
sinnum hreinlegri því að þeir
spæna að meðaltali 8,3 sápu-
stykki á ári, þar á eftir koma
Vestur-Þjóðverjar með 6,4
sápustykki á ári og þar næst
ítalir sem nota að meðaltali 5,5
sápustykki á ári.
En Frakkar vilja helst ekki
mæta skítugir til læknis því að
91% þeirra þvær sér vel og
vandlega fyrir slíkar heimsóknir
en hins vegar þvær ekki nema
rúmur helmingur Frakka sér
fyrir stefnumót við elskuna sína.
Umsjón: Ragnar Bjidurssan og MargrétRún Guðmundsdóttir