NT - 22.06.1985, Blaðsíða 22

NT - 22.06.1985, Blaðsíða 22
Útboð Vegavinnuskúrar til sölu Til söiu eru ýmsar gerðir af vegavinnuskúrum og eru þeir til sýnis við áhaldahús Vegagerðar ríkisins, samkv. eftirfarandi skrá: Tilboðs nr.: Gerð: Stærð m2 Staðsetning: SK1 Eldhúsáhjólum AE1-67 20 m2 Sauðárkrókur SK2- Eldhús án Innréttinga SE1-75 17m2 Sauðárkrókur SK3 Verkstjóraskúr TV1-66 10m2 Sauðárkrókur SK4 Snyrting AS1-75 12m2 Sauðárkrókur SK5 íbúðarskúr Sl 1-65 12m2 Sauðárkrókur SK6 íbúðarskúr Sl 3-67 12 m2 Sauðárkrókur SK7 íbúðarskúráhjólum Sl 1-73 20 m2 Sauðárkrókur SK8 íbúðarskúr Sl 2-64 12m2 Sauðárkrókur SK9 Verkfæraskúr Sl 1-60 Sauðárkrókur SK10 Forstofa AF3-75 8m2 Sauðárkrókur SK11 Forstofa AF1-73 8m2 Sauðárkrókur BL 1 íbúðarskúr Sl 1-64 10m2 Blönduós BL2 Ibúðarskúr Sl 3-73 10m2 Blönduós BL3 Snyrting AS4-76 12m2 Blönduós V01 Verkstjóraskúr FV1-58 10 m2 Vopnafjörður V02 íbúðarskúr Bl 1-69 12 m2 Vopnafjörður V03 íbúðarskúr Fl 3-64 10m2 Vopnafjörður V04 Búr FB1-74 7m2 Vopnafjörður EG1 Verkstjóraskúr FV1-63 10m2 Egilsstaðir EG2 íbúðarskúr Fl 1-65 10m2 Egilsstaðir EG3 Forstofa FF2-70 7m2 Egilsstaðir RE1 Verkstjóraskúr FV1-69 12m2 Reyðarfjörður RE2 Verkstjóraskúr FV1-66 10m2 Reyðarfjörður RE3 íbúðarskúr Fl 2-64 10m2 Reyðarfjörður RE4 ibúðarskúr Fl 1-67 12m2 Reyðarfjörður RE5 íbúðarskúr Fl 2-68 12m2 Reyðarfjörður RE6 Búr FB1-73 7m2 Reyðarfjörður B011 Verkstjóraskúr NV1-66 12m2 Borgarnes B02 Verkstjóraskúr TV1-60 10m2 Borgarnes B03 íbúðarskúr Bl 1-64 10m2 Borgarnes B04 íbúðarskúr Bl 1-65 10m2 Borgarnes B05 íbúðarskúr Bl 1-63 10m2 Borgarnes ÓL1 ibúðarskúr Rl 2-60 12m2 Ólafsvík ÓL2 íbúðarskúr Tl 2-67 12m2 Ólafsvík Gera skal tilboð í skúrana í því ástandi sem þeir eru og skulu kaupendur taka við þeim á sýningarstað. í tilboðum skal tilgreina tilboðsnúmer þeirra skúra, sem boðið er í (sjá skrá, t.d. SK1 eða RE6 o.s.frv.). Tilboð skulu berast skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 11:00 fh., þriðjudaginn 2. júlí n.k., merkt: „Útboð nr. IR-3135/85 - Vinnuskúrar" og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. Til sölu límtré í skemmu 6 stk. burðarrammar úr límtré til byggingar skemmu. Stærð grunnflatar 12x25 m. fc^RARIK HK. ^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS byggingadeild Laugavegi118 105 REYKJAVÍK. Þróttarar í 2. sætið eftir sigur á Víking - unnu 1-3 á Laugardalsvellinum í gær ■ Þróttur tyllti sér í annað sæti 1. dcildar í gærkvöldi er liðið sigraði Víking 1-3 á Laugardalsvellinum. Það var varamaðurinn Sigurjón Kristins- son sem var öðrum fremur maðurinn á bak við þennan sigur liðsins. hann kom inn á í hálflcik er staðan var 1-0 fyrir Víking og skoraði tvö mörk og átti stóran leik í hinu þriðja. Eftir þessi úrslit eru Víkingar í neðsta sæti: deildarinnar, hafa einungis þrjú stig. HNOT- SKURN ■ Allgóður leikur, þótt svo skemmtilegt spil sæist alltof sjaldan. En þegar fjögur mörk eru skoruð er engin ástæða til að kvata. Andri Marteinsson skoraði mark Víkings á 30. mín. Atli Helgason jafnaði, 1-1. á 53. mín. og Sigurjón Kristinsson skoraði tvö, á 68. og 87. mín. Ámundi Sigmundsson fékk áminningu. Dómari var Sveinn Sveinsson og hefur margur oft gert betur. Áhorfendur voru tæplega 800. r Þróttarar voru sterkari framan af í leiknum í gær. Sigurður Hallvarðsson átti tvö þokkaleg marktækifæri, ann- að skot hans var varið og hitt fór framhjá. Víkingar áttu einnig sín færi en á 30. mínútu skoraði svo Andri Mart- einsson fyrsta mark leiksins eftir sendingu frá Atla Einarssyni. Skömmu síðar átti Ársæll skalla í stöng Víkingsmarksins eftir auka- spyrnu Daða. Þróttarar komu til síðari hálfleiks ákveðnir í að jafna og það tók þá aðeins átta mínútur. Sigurjón, sem kom inn á fyrir Sigurð, sendi knöttinn inn á vítateig Víkings og þar skaut Pétur Arnþórsson knettinum í Atla Helgason og í netið. Sárabót fyrir Pétur sem rétt áður hafði brennt herfilega af, skaut í innkast af mark- teig. Á 60. mínútu komst Atli Einarsson frír inn á teig Þróttara, hafði betur í baráttu við Loft Ólafsson, en er að skotinu kom var hann búinn að missa jafnvægið og það misheppnaðist al- gjörlega. Aðeins nokkrum mínútum síðar tók Þróttur forystuna. Theódór tók aukaspyrnu og sendi knöttinn að vítateig Víkings. Þar stökk Ársæll upp og framlengdi knöttinn með skalla á Sigurjón og hann klikkaði ekki, 1-2. Næstu mínúturnar sótti Víkingur mjög, en lánleysi leikmanna liðsins var algjört upp við mark andstæðing- anna. Ámundi skallaði yfir í góðu færi á 72. mínútu og rétt á eftir bjargaði Guðmundur Erlingsson vel skoti Einars í horn. Þá fengu V íkingar aukaspyrnu á 78. mínútu og Jóhann Holton skaut naumt framhjá. Lokamark leiksins var svo klaufa- legt. Daði Harðarson vann knöttinn af varnarmönnum Víkings rétt utan við teiginn, og sendi á Sigurjón. Hann skaut hnitmiðuðu skoti í blá- hornið, 1-3 og sigurinn í höfn. Á lokamínútunni skaut svo Jóhann Björnsson í stöng Þróttaramarksins. Liðin: Víkingur: Jón Otti Jónsson, ólafur ólafsson, Pórður Marelsson (Jóhann Björnsscíh 75. mín.), Magnús Jónsson, Kristinn Helgason, Einar Einars- son, Andri Marteinsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Jóhann Holton, Ámundi Sigmundsson og Atli Einars- son. f’róttur: Guðmundur Erlinesson, Arnar Friðriks- son, Kristján Jónsson, Loftur Ólafsson, Ársæll Krist- jánsson, Pétur Amþórsson, Daði Harðarson, Theódór Jóhannsson, Sverrir Pétursson, Sigurður Hallvarðs- son (Sigurjón Kristinsson 45. mín.) og Atli Helgason. sag Iveruskúrar til sölu Tilboð óskast í íveruskúra sem vinnuflokk- ar hafa notað, stærð 2,5 x 7,5 m og 2,5 x 5,5 m. Skúrarnir verða til sýnis dagana 24.-28. júní. Tilboð verði merkt: RARIK 85009 og verða þau opnuð þriðjudaginn 2. júlí ki. 14.00. fcJRARIK 1^.^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS innkaupadeild Laugavegi 118 105 REYKJAVÍK VEIÐIDAGUR FJÖLSKYLDUNNAR 23. JÚNÍ ’85 1. deild Islandsmótsins í knattspyrnu: Víðir náði jöfnu Jafntefli, 1-1, á Akureyri Frá Gylfa Kristjanssyni, fréttaritara NT á Akureyri. ■ Það urðu Víðismenn sem urðu fyrstir til að taka stig af Þórsurum á heimavelli þeirra fyrir norðan, en Þór og Víðir gerðu jafntefli þar l-l í gærkvöldi í slökum leik, sem mótað- ist mjög af slæmum ytri aðstæðum og lítilli knattspynru. Víðismenn voru ánægðir í leikslok, enda útkoman nánast sigur fyrir þá. Þórsarar voru að sama skapi afar súrir, enda voru þeir betri aðili leiksins, án þess þó að sýna mikið. Þórsarar byrjuðu með látum og strax á 144. mínútu tóku þeir foryst- una. Nói Björnsson átti þá mjöggóða sendingu á Kristján Kristjánsson, sem skoraði eftir að hafa snúið af sér einn varnarmann. Mark svo snemma leiksins hefur sennilega orðið til þess að Þórsarar héldu að nú yrði eftir- leikurinn auðveldur, en svo fór ekki. Nói Björnsson átti þó skot sem fór í varnarmann og rétt framljjá, en á 38. mínútu jafnaði Víðir. Þórsvörnin galopnaðist, Guðmutidur Knútsson gaf á Guðjón Guðmundsson sem var óvaldaður og hann skoraði auðveld- lega. Þórsarar hófu síðari háifleik á sama hátt og þann síðari. Siguróli Kristjáns- son átti þrumuskot í stöngina strax á 48. mínútu eftir mikla pressu í teign- um. Svo fóru Víðismenn að komast inn í leikinn. Á 60. mínútu átti Guðjón Guðmundsson hörkuskot í þverslá Þórsmarksins. Tveimur mínútum síð- ar small bolti í slá Víðismarksins eftir skot Kristjáns Kristjánssonar. Mark- vörðurinn var þá alltof framarlega. Nokkrum mínútum fyrir leikslok fengu fjórir Þórsarar boltann í mark- teig Víðis fyrir miðju marki, mark- I ' HNOT- SKURN ■ Leikurinn slakur af beggja hálfu. Veður kalt og völlurinn blautur og háll. Kristján Kristjánsson skoraði mark Þórs á 14. mínútu, en Guðjón Guðmundsson jafnaði fyrir Víði á 38. minútu. Sigurður Magnússon, Vilberg Þorvaldsson og Guðmundur Knútsson, Víðismenn, fengu allir að sjá gula spjaldið hjá dóm- ara leiksins, Kjartani Ólafssyni og einn- ig Þórsarinn Sigurbjörn Viðarsson. vöröurinn víðs fjarri eftir skógarferð, en engum þeirra tókst að skora. Furðulegt. Llðin: Þór: Benedikt Guðmundsson, Sigurbjörn Viðarsson, Árni Stefánsson, óskar Gunnarsson, Siguróli Kristjánsson, Nói Björnsson, Jónas Róberts- son, Júlíus Tryggvason, Halldór Áskelsson, Kristján Kristjánsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Einar Arason (vm.). Víðir: Gísli Hreiðarsson, Klemen? Sæmunds- son, Daníel Einarsson, Einar Ásbjörn Ólafsson, ólafur Róbcrtsson, Sigurður Magnússon, Guðjón Guðmundsson, Vilberg Þorvaldsson, Guðmundur Knútsson, Grétar Einarsson, Gísli Eyjólfsson, Rúnar Georgsson (vm.) og Helgi Sigurbjömsson (vm.). FHsigraðií4 800m ■ Sveit FH sigraði í æsispenn- andi einvígi við sveit ÍR í 4x800 m boðhlaupi á fyrri hluta Meistaramóts íslands í frjálsum íþróttum sem hófst í Laugardalnum í gær. Það var öðrum fremur Jón Diðriksson sem tryggði FH-ingum sigurinn á lokasprettinum, en hann keppti þarna í fyrsta sinn á brautinni fyrir FH. Tími FH var 7:58,4 en ÍR hijóp á 8:00,3. í sveit FH voru auk Jóns Finn- bogi Gylfason, Magnús Har- aldsson og Viggó Þórisson. Eftir fyrri dag tugþrautarinnar var Þorsteinn Þórsson ÍR með forystu, 3807 stig. I sjöþraut leiddi Birgitta Guðjónsdóttir, HSK með 2920 stig og önnur var Bryndís Hólm, IR með 2885 stig.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.