NT - 29.06.1985, Side 1

NT - 29.06.1985, Side 1
NEWS SUMMARYIN ENGUSH SEE P. 20 TTT stúdenta hafa síðan breyst og því telja íbúar garðanna sig ekki lengur bundna af samkomulaginu. t>ess vegna greiddu íbúar Hjónagarða 4000 krónur í leigu fyrir maímánuð, en það hefur verið fast leiguverð í vetur, en stjórn F.S. vildi meina að leigan ætti að hækka í 4400 samkvæmt áðurgreindu samkomulagi. Stjórn F.S. reiknaði síðan út nýtt leiguverð fyrir næsta leigu- tímabil sern hefst í júlí n.k. Þar er farið fram á 5280 króna leigu Ollum íbúum Hjónagarða skipað að koma sér út! ■ Framtíðin er ekki björt fyrir Qölskyldumar sem búa á Hjóna- görðunum. Félagsstofnun hefur sagt öllum upp húsnæðinu og íbúarnir neita að borga. Mögu- legt er að nokkrar fjölskyldur verði bornar út eftir helgina. NT-raynd: Ari. ' Ekið á «konu ! og barn vegna deilna um leiguupphæð ■ Allir íbúar Hjónagarða hafa fengið símskeyti frá Félags- stofnun stúdenta þar sem þeim er sagt upp húsnæðinu og sumar fjölskyldurnar fá aðcins 7 sólar- hringa frest til að koma sér í burtu með allt sitt hafurtask, haii þærekki greitt meinta skuld sína við stofnunina fyrir þann tíma. Skeytasendingar þessar eru til komnar vegna deilu íbúa Hjónagarðanna og stjórnar Félagsstofnunar stúdenta um forsendur fyrir útreikningi á leigu fyrir húsnæðið. í byrjun síðasta árs gerðu íbúar garð- anna og stjórn F.S. með sér samkomulag um leigugrunn. Forsendur þessa leigugrunns á mánuði og er þá gert ráð fyrir 20% verðbólgu yfir árið, fyrir- framgreiðslu og að leigan hækki á 3ja mánaða fresti samkvæmt byggingavísitölu. Garðbúar reiknuðu hinsvegar út 4100 króna Ieiguupphæð og bjóðast til að borga haná bundna bygg- ingarvísitölu. Arsæll Harðarson fram- ■ Fimleikastúlkurnar í Fimleikafélaginu Björk dönsuðu i takt við tónlist niðri á Torgi í gær. Ætlunin með því var að vekja athygli á fímieikahátíð sem haldin verður í Laugardalshöll 6.-12 júlí næstkomandi. kvæmdastjóri F.S. sagði að erf- itt væri að reka stofnunina og peninga vantaði til rekstursins. Hann sagði því Félagsstofnun- ina ætla standa á sínum ákvörð- unum, segja fólkinu upp og leigja fólki sem gengst að skil- málunum sem F.S. setti upp. í samtali við NT sagði Olafur Örn Ólafsson einn talsmanna garðbúa að þeir hafi alltaf verið tilbúnir til viðræðna en að Félags- stofnun vilji bara æsing. Ólafur sagði að þeirra leiguboð væri reiknað út frá sama leigugrunni og F.S. hafi reiknað út frá. í máli Ólafs kom fram að stjórn F.S. hafi boðað leigunefnd Hjónagarða á sinn fund, en sýnt þeim dónaskap með að senda á fundinn einn mann sem ckki hafði umboð til samninga viö íbúa Hjónagarðanna. ■ Tvívcgis var ekiö á gangandi vegfarendur í Reykjavík í gær. Klukkan 12.40 varð barn fyrir bíl á Snorrabraut móts við út- sölu ÁTVR og var það flutt á slysadeild. Klukkan 16.20 var ekið á konu á horni Laugavegs og Nóatúns. Konan var flutt á slysadeild. í hvor- ugu tilfellinu mun hafa verið um alvarleg meiðsl að ræða. Er ríkisstjórnin á sléttum sjó?: Samninqarnir af- stýrðu kollsteypu ■ Hvað þýða nýafstaðnir samningar fyrir framtíð ríkisstjórnarinn- ar? Hefur kollstcypunni svokölluðu verið afstýrt og sléttur sjór framundan? „Þessir samningar valda ckki kollsteypu, en hins vegar er alveg Ijóst að þeir krefjast mjög mikils aðhalds. Það þarf að fylgjast mjög vel með þróuninni og reyna að hafa áhrif á hana, þannig að þessi verðlagsmörk standist," sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, þegar þcssar spurningar voru bornar upp við hann. „Frá sjónarhóli okkar sjálfstæðismanna hafa þau mál sem landsfundurinn setti sem skilyrði fyrir áframhaldandi stjórnar- samstarfí náð fram að ganga,“ sagði Þorstcinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins og nefndi nýsköpun atvinnulífsins, útvarpsfrels- ið, breytingar á bankakerfínu, samkomulag um afstöðu til friðar- og afvopnunarmála. „Það er einnig mikilvægt og í samræmi við okkar stefnu að það hefur tekist að gera samninga sem verja kaupmátt án þess að valda verðbólgu.“ Þorsteinn sagði að á hinn bóginn væru mörg vandamál framundan. Það þyrfti að vinna að því að um næstu áramót yrði hægt að gera kjarasamninga til lengri tíma á sömu forsendum og nú. Bæði hann og forsætis- ráðherra nefndu vandamál sjávarútvegsins, sem brýnasta vandann. „Það er ljóst að þessir samningar auka vanda fisk- vinnslunnar og það verður að taka á vanda hennar eftir öllum leiðum, öðrum en mikilsháttar gengisfellingar, því slíkt myndi eyðileggja verðlagsforsendurn- ar og þar með stefna í voða möguleikunum á að ná samn- ingum án þess að allt verði vísitölutryggt." Forsætisráð- herra sagði að þegar væri verið að vinna að ýmsum aðgerðum til lausnar þessum vanda, nám- skeið fyrir fiskvinnslufólk væru hafin að frumkvæði sjávarút- vegsráðherra, en þeim væri í senn ætlað að bæta vinnslu afurðanna og kjör þess fólks sem námskeiðin sækja. Þau væru svo slæm að skortur væri á fólki til starfa sem sýndi að ekki væri allt unnið með því að halda kaupinu niðri. Þá nefndi for- sætisráðherra að hann hefði þegar um áramótin óskað eftir því við Framkvæmdastofnun að fram fari úttekt á tæknivæðingu í fiskvinnslunni, en þar óttaðist hann að íslendingar hefðu þegar dregist aftur úr Dönum til dæmis. Þorsteinn Pálsson lagði áherslu á að leysa þyrfti vanda sjávarútvegs og fiskvinnslunnar án þess að auka erlendar lántök- • ur, sem hefðu keyrt úr hófi fram. „Það eru mjög mikil og vandasöm verkefni framund- an,“ sagði Þorsteinn, „og ég minni á að sum efni hefur ekki verið gert út um á milli stjórn- arflokkanna, svo sem húsnæðis- mál, frekari sala ríkisfyrirtækja og uppstokkun í ríkiskerfinu. Það verðup að koma í ljós hvort grundvöllur verður fyrir áfram- haldi á þeirri stefnu sem fylgt hefur verið á þessum sviðum og við munum fylgja þeim hug- myndum fast eftir.“

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.