NT - 29.06.1985, Blaðsíða 5
Laugardagur 29. júní 1985 5
Hrossaáhugi Skagfirðinga mikill sem fyrr:
Um 40 Skagfirðingar á
hestamennskunámskeiðum
- og fjögur hestamannamót það sem af er sumri
Óhöppum fækkar
■ Starfsmenn umferðar-
deildar borgarverkfræð-
ings hafa gert miklar
breytingar á mótum
Suðurlandsbrautar og
Skeiðarvogs. í gær var þar
kveikt á nýjum umferðar-
ljósurn sem komið hafði
verið fyrir. Beygjuakrein-
ar hafa verið gerðar, mið-
eyja verið lagfærð, gang-
brautum komið fyrir og
Ijósker fyrir fótgangendur
sett upp.
Þetta hefur allt verið
gert því á þessum stað
hefur verið mikið um um-
ferðaróhöpp. Nú þegar
Ijósin eru komin upp von-
ast umferðardeildin að
sjálfsögðu til að óhöppun-
um fækki og að vegfarend-
ur eigi greiðari leið þarna
um.
Frá fréttaritara NT í Skagafírði, Ö.Þ.:
■ Samtals um 40 manns á aldrinum frá 7 til 60 ára tóku
þátt í tveim námskeiðum í hestamennsku sem Hesta-
mannafélagið Svaði gekkst fyrir á Hofsósi og í Fljótum nú
í sumar, enda áhugi á hestamennsku, sem fyrr, mikill hjá
Skagfirðingum. Þátttakendur voru jafnt konur sem karlar
og allt frá algerum byrjendum til þaulvanra hestamanna.
Að sögn kennarans, Jóhanns
Friðgeirssonar á Hofi, var
námskeiðunum skipt í tvo hópa.
Byrjendum voru kennd öll
undirstöðuatriði í meðferð, en
þó sérstaklega áseta á hrossum.
Þeim sem lengra voru komnir
var einkum kennd meðferð
hrossa í keppni. í lok námskeið-
anna gengust nemendur undir
hæfnispróf. Jóhann sagði fleiri
verkefni á döfinni, m.a. kvaðst
hann ætla að halda eitt nám-
skeið fyrir börn og unglinga
síðar í sumar.
Fjögur hestamannamót hafa
verið haldin í héraðinu það sem af
er sumri. Nú síðast úrtökumót fyr-
ir Norðurlandsmót í hestaíþrótt-
um sem haldið var á Vindheima-
melum s.l. sunnudag. Áðurhafa
verið haldin innanfélagsmót
Svaða á Hvannkotseyrum við
Hofsós og sýning á kynbóta-
hrossum Skagfirðinga.
Hestaeign færist sífellt í vöxt
á Hofsósi og Sauðárkróki og
fjölgar þar stöðugt þeim er þar
stunda útreiðar og hesta-
mennsku. Einnig virðist fjölga
reiðhrossum í sveitum og sífellt
meira lagt upp úr kynbótum og
ræktun hrossastofnsins.
■ Nokkrir þeirra Skagfirðinga
sem þátt tóku í námskeiði í
hestamennsku sem Hesta-
mannafélagið Svaði gekkst fyrir
í Fljótum fyrir nokkru.
NT-mynd: Öm Þórarinsson.
':•••:*.■ .-’■•
sK A, -
L ^ 'vii*. -ÁJxJíí
Heimsreisa
III
endurtekin
Brottför
11. október
3 vikur
Ævintýraferö Útsýnar
KENYA
HJARTA
AFRIKU
Land óviðjafnanlegrar____________
náttúrufegurðar og fjölbreytni við
miöbaug jarðar
Flogiö beint til Nairobi um London. Þessi safarihöfuðborg heimsins í um 2.000
m hæð er með fögrum byggingum, litríkum gróöri og loftslagi, sem er með því
dásamlegasta á jörðinni. Spennandi safariferð um frægustu villidýrasvæöi Af-
ríku — Amboseli og Tsavo, niöur að strönd Indlandshafsins.
ÆVINTÝRAFERÐIR ÚTSÝNAR Á FJAR-
LÆGA STAÐI — FERÐIR í ALGJÖRUM
SÉRFLOKKI
VERÐ KR. 69.50O
Gisting:
Nairobi: _ . ,
— Hótel Intercontlnental
Mombasa:
Hótel Diani Reef
Nairobi — 2 dagar — gisting og morgun-
veröur
Safari — 5 dagar um Amboseli og Tsavo —
fullt fæöi.
Mombasa — 12 dagar — hálft fæði
Aukagjald f. einbýli kr. 9.215
Viðbótarvika á Diani Reef kr. 9.300 (meö
hálfu fæöi)
Feróaskrifstofan
HEIMSREISU-
KLÚBBURINN ^
r Austurstræti 17, símar 26611 — 23510