NT - 29.06.1985, Side 10
Laugardagur 29. júní 1985 10
Ekta þýskar og danskar pylsur
- framleiddar hjá Kjötbæ úr íslenskum hráefnum
■ Kostakaup hf. og Kjöt-
bær hf. hafa tekið að sér
umboð fyrir tvö erlend fyrir-
tæki sem vinna að þróun í
matvælaframleiðslu, og er
ætlunin að auka og gera fjöl-
breyttara úrvalið af áleggi og
fleiri kjötvörum hér á landi.
Fyrirtæki þessi eru v-þýska
fyrirtækið India og danska
fyrirtækið Aage Gregersen.
„Framleiðslan mun fara
fram hér á landi og hráefnið
er íslenskt," sagði Hákon
Sigurðsson kaupmaður í
Kostakaup og Kjötbæ, „en
við fáum nákvæmar leiðbein-
ingar og uppskriftir að utan
og einnig umbúðir sem sum-
ar hverjar eru mjög frumleg-
ar og skemmtilegar. Úrval
og framboð kjötvöru kemur
til með að aukast um helming
á íslenskum markaði þegar
framleiðsla er komin í fullan
gang allskyns spægipylsur,
smuráleggspylsur, laukpvls-
ur, kjötbúðingar og um 30
aðrar tegundir sem landinn
hefur hingað til bara gætt sér
á i útlöndum sjást nú hér á
landi.
Við leggjum áherslu á að
nota hvorki litarefni né fvll-
ingarefni eins og hveiti og
kartöflumjöl, en því miður
finnst mér hafa borið of mik-
ið á því hingað til í íslenskri
kjötvöru.“ Ennfremur sagði
Hákon að fulltrúar frá fyrir-
tækjunum tveimur hefðu
verið mjög ánægðir með og
litist vel á íslenska hráefnið
og ætti þá ekkert að vera því
til fyrirstöðu að íslensk
kjötvara jafnaðist á við
danska og þýska, sem hefur
löngum verið talin sú besta í
heimi.
msam
„Kúnnarnir vilja fjölbreytni“
- segir Gunnar Snorrason
eigandi Hólagarðs
■ Byggingarframkvæmdir á
þriðja og jafnframt síðasta
liluta verslunarmiðstöðvarinn-
ar Hólagarðs munu hefjast á
þessu ári.
Að sögn Gunnars Snorra-
sonar stofnanda og eiganda
Hólagarðs mun nýbyggingin
verða um 1900 fermetrar á
tveimur hæðum, sem er þriðj-
ungs stækkun á verslunarhús-
næðinu.
Hólagarður hefur verið
byggður í áföngum; þeim
fyrsta lauk 1975 og á því 10 ára
afmæli í ár. Annar áfanginn
var síðan tilbúinn í hitteðfyrra
og bættist þá við fjöldi versl-
ana. Segir Gunnar að þegar sé
byrjuð eftirspurn eftir verslun-
arhúsnæði í nýbyggingunni er
hún verður tilbúin. Munu þá
verslanir og þjónustufyrirtæki
eins og rakara- og snyrtistofur,
skóverslun, pósthús, veitinga-
staður o.fl. taka til starfa.
Byrjað verður á grunninum
í sumar og samkvæmt áætlun-
um ætti byggingarframkvæmd-
um að verða lokið eftir 3-4 ár.
Avaxtadrykkir f rá Coca-Cola
■ Vífilfell hf. hefur hafið
framleiðslu á ávaxta-
drykkjum frá Coca Cola,
Hi-C drykkjum, og verður
fyrst um sinn boðið upp á
tvær bragðtegundir, app-
elsínu og sítrónubragð.
Hi-C ávaxtadrykkir eru
seldir í Va lítra pappafern-
um og innihalda vatn,
hreinan sítrónu- og app-
elsínusafa (11%), sykur,
sítrónsýru, askorbinsýru,
bragðefni og rotvarnar-
efni. Þá innihalda þeir
fulla dagsþörf C-vítamíns.
Þetta er í fyrsta skiptið
sem Coca Cola setur
ávaxtadrykki á markað-
inn. Verðið á Hi-C er
svipað og á öðrum hlið-
stæðum ávaxtadrykkjum
sem hér eru á markaði.
■ Karl Kristensen hjá kjötdeild Kostakaups og hinn þekkti v-þýski markmaður Sepp Maier
virðast báðir jafn hrifnir af fótboltaspægipylsunni sem fæst brátt hér. Nt-mynd ah
■ Gunnar Snorrason eigandi Hólagarðs virðist tilbúinn í lokaáfangann. NT-mynd : ah
■ Þannig mun Hólagarður líta út cftir viðbótina. Bjarni Marteinsson arkitekt teiknaði húsið.