NT - 29.06.1985, Page 21
CD
Laugardagur 29. júní 1985 21
Utlönd
Frakkar fúsir til
að verja Þýskaland
París-Reuter:
■ Samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun í Frakklandi
telur meirihluti Frakka að
þeiri eigi að aðstoða við
varnir Vestur-Þýskalands
ef öryggi Þjóðverja er ógn-
að alvarlega.
Franska dagblaðið Le
Monde fékk óháða stofnun,
IFOP, til að framkvæma
könnunina fyrir sig. Le
Monde segir að 57% að-
spurðra telji að Frakkar
eigi að tryggja öryggi Vest-
ur-Þjóðverja.
Allt frá því á sjöunda ára-
tugnum hafa leiðtogar Frakk-
lands og Vestur-Þýskalands
reynt að auka samvinnu ríkja
sinna en lengst af hefur
minningin um heimsstyrjöldina
síðari dregið úr áhuga almenn-
ings fyrir nánu samstarfi.
Frakkar og Vestur-Þjóðverjar
lögðu einmitt fram í þessari
viku nýjar tillögur um aukið
samstarf ríkja Efnahags-
bandalags Evrópu með stofn-
un Bandaríkja Evrópu fyrir
augum.
Samkvæmt skoðanakönnun
Le Monde telja 58% franskra
kjósenda að einungis sé hægt
að byggja upp Evrópubanda-
lag ef Frakkar og Þjóðverjar
hafa þar höfuðfrumkvæði.
42% sögðust álíta að Vestur-
Þjóöverjar ættu að korna upp
eigin kjarnorkuvopnum til að
Iryggja öryggi sitt.
I Frakka dreymir um stórt hlutverk í vörnum Evrópu. Þeir hafa
m.a gert margar tillögur um sameiginlega smíði evrópskrar
orustuþotu. Þótt þotan sem myndin er af verði kannski aldrei að
veruleika telja Frakkar sig samt verða að hjálpa Vestur-Þjóðverjum
við varnir sínar, með kjarnavopnum ef allt annað bregst.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings:
Dauðarefsing
fyrir njósnir
á friðartímum
■ Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti
nýlega að koma aftur á fót dauðarefsingu á
friðartímum fyrir liðsmenn hersins sem gerast
sekir um njósnir.
Þessi viðaukatillaga við fjárlög til hermála á
næsta ári var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli og
án nokkurra umræðna þar eð þingmennirnir voru
enn mjög reiðir vegna nýlegs njósnamáls, en fjórir
menn eru ákærðir fyrir að hafa verið meðlimir í
njósnahring sem í 18 ár seldi hernaðarleyndarmál
til Sovétríkjanna.
En þar eð atkvæðagreiðslan var ekki skráð þótti
samþykkt tillögunnar heldur iítilvæg og öll líkindi
væru á að hún yrði felld þegar samræmingarnefnd
fulltrúardeildarinnar og öldungadeildarinnar
koma saman til að samræma breytingartillögur
deildanna við fjárlagafrumvarpið.
Dauðarefsing er eitt umdeildasta málið sem
kemur fyrir löggjafann í Bandaríkjunum.
Sri Lanka:
Blaðamanni rænt
á reiðhjólastýri
Colombo-Reuter
■ Skæruliðar tamilskra þjóðern-
issinna á Sri Lanka leystu í gær úr
haldi blaðamann sem þeir rændu á
reiðhjólastýri daginn áður.
Cecil Wikrewmanayake blaða-
maður hjá ríkisreknu dagblaði á Sri
Lanka varð á vegi hóps skæruliða
sem hjóluðu í gegnum borgina
Jaffna norðarlega á Sri Lanka þar
sem tamilskir þjóðernissinnar hafa
töluvert fylgi. Skæruliðarnir beindu
byssum að blaðamanninum og
neyddu hann til að setjast á stýri
eins reiðhjólsins. Síðan hjóluðu þeir
með hann út úr borginni
Skæruliðarnir tilheyrðu Eelam al-
þýðubyltingarfrelsisfylkingunni sem
er ein margra skæruliðasamtaka
sem berjast fyrir stofnun sjálfstæðs
ríkis Tamila á norður- og austur-
hluta Sri Lanka. Þar eru Tamilar
einna fjölmennastir en annars stað-
ar eru Shinhalesar í meirihluta.
Fimm samtök tamilskra skæruliða
samþykktu vopnahlé 18. júní síðast-
liðinn að sögn stjórnar Sri Lanka.
En vopnahléð hefur þegar verið
brotið nokkrum sinnum. Skæruliðar
hafa drepið a.m.k. einn skólastjóra,
rænt þrem mönnum og framið rán á
ýmsum stöðum undanfarna daga.
ALFA-LAVAL
MJALTAKERFf
Margra ára reynsla tryggir gæðin.
Hannað til vinnuhagræðingar.
Hagkvæmni - hreinlæti - gæði.
Vilt þú spara þér tíma við fjósstörfin?
_____ Alfa-Laval hjálpar til þess.
BUNADARDEILD
ARMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555