NT - 16.08.1985, Blaðsíða 11
Föstudagur 16. ágúst 1985 11
LLL Utvarp — ■ sjonvarp
Sjónvarp, laugardag kl. 22.40
Frankenstein hinn ungi (Gene Wilder) og sköpunarverkið (Peter Boyle).
Sjónvarp, sunnudag kl. 21.
David Lean - líf hans og list
■ Á sunnudagskvöldið kl.
21.40 verður sýndur fyrri hluti
breskrar heimildarmyndar um
David Lean. Þessi mynd var
kósin besta heimildarmynd
ársins 1984 á Banff-kvik-
myndahátíðinni í Kanada í ár.
David Lean á að baki glæsi-
legan feril sem kvikmyndaleik-
stjóri og lætur engan bilbug á
sér finna þótt kominn sé hátt á
ættræðisaldur.
Lean er talinn kröfuharðasti
og frekasti leikstjóri sem um
getur og hefur oft verið óvin-
sæll meðal leikara sem verða
að hlíta harðstjórn hans.
Nýjasta mynd hans er Ferðin
til Indlands sem var lokið 1984,
en meðal annarra hefur Lean
leikstýrt Brúnni yfir Kwaifljót,
Zhivoago lækni, Arabíu-
Lawrence og Dóttur Ryans.
I þessari mynd er fylgst með'
David Lean að störfum og rætt
við hann um feril hans. Sýndir
eru kaflar úr myndum hans og
nokkrir samstarfsmenn hans
teknir tali.
Lean hefur unnið tvenn
Óskarsverðlaun, fyrir leik-
Franken-
stein í
útfærslu
Mel Brooks
■ Mel Brooks aðdáendur fá
skammtinn sinn á laugardags-
kvöldið, en þá verður sýnd
myndin Young Frankenstein
frá árinu 1974. Leikstjóri er
Mel Brooks en hann leikur
ekki sjálfur í myndinni. Það
gera ma.a. Gene Wilder,
Marty Feldman, Madeline
Kahn, Teri Karr, Peter Boyle,
Cloris Leachman, Gene
Hackman og Richard Haydn.
Margir muna eftir forstöðu-
konu geðspítalans í myndinni
High Anxiety, en hana lék
Cloris Leachman (f. 1926).
Færri vita hver þessi kona er
en hún hefur rn.a. fengið Ósk-
ar fyrir leik sinn í mynd Peter
Bogdanovich The Last Picture
Show.
Það sem merkilegra er að
hún er fyrrum fegurðardrottn-
ing og tók þátt í keppni um
titilinn Ungfrú Ameríka árið
1946.
Peter Boyle, sem leikur
skrímslið í myndinni, er m.a.
þekktur fyrir eftirminnilegan
leik í myndinni Joe.
Frankenstein hinn ungi er
barnabarn hins fræga vísinda-
manns frá Transylvaníu. Hann
snýr aftur til föðurleifðar sinn-
ar og kemst í skjöl afa sína.
í myndinni eru atriði sem
gætu valdið ótta hjá börnum.
Þýðandi er Stefán Jökuls-
son.
■ David Lean.
stjórn myndanna Brúin yfir
Kwai-fliót og Arabíu - Lawr-
ence, en myndir hans hafa
unnið 25 Oskarsverðiaun í allt.
Seinni hluti myndarinnar
verður á dagskrá þann 25.
ágúst næstkomandi.
Þýðandi er Kristmann Eiðs-
son.
Útvarp, sunnudag kl. 15.05:
Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur.
Utvarp, laugardag kl. 21
;M1
Pabbatíminn - smásaga eftir
Steinunni Sigurðardóttur
■ Steinunn Sigurðardóttirles
smásögu sína „Pabbatíminn",
annað kvöld kl. 21.40. Þessi
saga var í fyrra smásagnasafni
Steinunnar sem heitir Sögur til
næsta bæjar og kom út árið
1981.
„Þetta er saga um hugar-
ástand konu sem er að eiga
fyrsta barnið sitt og er einstæð
móðir. Sagan segir frá hennar
blendnu tilfinningum á fæð-
ingardeildinni. Þessar tilfinn-
ingar eru bæði „privat" og
félagslegar. Það kemur bæði
fram væntumþykja hennar á
barninu og þessi pínlegheit
sem fylgja því að vera einstæð
móðir, því að konurnar Sem
eru nteð henni á stofu eru allar
óskaplega vel giftar og miklu
eldri en hún.
Niðurstaða sögunnar er sú
að stúlkan ákveður að hefna
sín. Pabbatíminn er heimsókn-
artími feðranna á kvöldin og
nafn sögunnar vísar til ákveð-
ins atviks í sögunni, sem cr nú
kannski ekki aðalatriðið, en
kyndir samt mjög undir hennar
andúð og öfundsýki út í þá sem
eru betur settir.
Ég tek það fram að þetta er
alls ekki falleg og hugljúf saga,
hcldur þvert á móti fremur
andstyggileg" sagði Steinunn
Sigurðardóttir. „Eg er nú ekki
sérstaklega hrifin af svona
fæðingardeildarbókmenntum,
en ég held að mér hafi tekist að
finna þarna nýjan flöt."
Boðið upp í morð í síðasta sinn
■ Kl. 15.05 á sunnudag verð-
ur fluttur sjötti og síðasti þátt-
ur framhaídsleikritsins Boðið
upp í morð, sem byggt er á
skáldsögunni The Nine Wrong
Answers eftir John Dickson
Carr. Leikritsgerð er eftir Karl
Ágúst Úlfsson sem jafnframt
er þýðandi og leikstjóri.
I fimmta þætti gerði auðkýf-
ingurinn Gaylord Hurst nokicr-
ar tilraunir til að myrða Bill
Dawson en þær báru ekki
árangur. Þegar Gaylord telur
Bill sýna sér dónaskap og lítils-
virðingu verður hann æfur og
segist munu ganga af Bill dauð-
um innan sólarhrings. Margt
fer þó öðruvísi en ætlað er. I
stað Bills er það Gaylord sem
finnst myrtur og berast böndin
vitanlega að Bill Dawson.
Leikendur í lokaþætti þessa
sakamálaleikrits eru Hjalti
Rögnvaldsson, María Sigurð-
ardóttir, Sigurður Karlsson,
Aðalsteinn Bcrgdal, Eyþór
Árnason, Kristján Franklín
Magnús, Helgi Skúlason og
Sigurður Sigurjónsson. Sögu-
maður er Arnar Jónsson.
Tæknimenn eru Óskar
Heimir Ingvarsson og Ástvald-
ur Kristinsson.
eftir John Dickson Carr Sjötti og
síðasti þáttur: Svör viö níu spurn-
ingum. Þýðing, leikgerð og leik-
stjórn: Karl Ágúst Úlfsson.
Leikendur: Hjalti Rögnvaldsson,
María Sigurðardóttir, Sigurður
Karlsson, Aðalsteinn Bergdal, Ey-
þór Árnason, Kristján Franklín
Magnús, Helgi Skúlason, Sigurður
Sigurjónsson og Arnar Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir
16.20 Milli fjalls og fjöru Þáttur um
náttúru og mannlíf í ýmsum
landshlutum. Umsjón: Örn Ingi.
RÚVAK.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Síðdegistónleikar a. Kvintett í
A-dúr op. 114 eftir Franz Schubert.
Svjatoslav Rikhter og Borodin-
kvartettinn leika. b. Adagio og
allegro í As-dúr op. 70 eftir Robert
Schumann. Heinz Holliger og Al-
fred Brendel leika á óbó og píanó.
18.00 Bókaspjall Áslaug Ragnars
sér um þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynning-
ar.
19.35 Tylftarþraut Spurningaþáttur.
Stjórnandi: Hjörtur Pálsson. Dóm-
ari: Helgi Skúli Kjartansson.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins
Blandaður þáttur í umsjón Jóns
Gústafssonar og Ernu Arnardóttur.
21.00 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja
21.30 Utvarpssagan: „Theresa“
eftir Francois Mauriac Kristján
Árnason þýddi. Kristín Anna Þórar-
insdóttir lýkur lestrinum (12).
22.00 „Á rás tímans“ Kristín Bjarna-
dóttir les eigin Ijóð.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Iþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
22.50 Djassþáttur - Tómas R. Ein-
arsson
23.35 Á sunnudagskvöldi (24.00
Fréttir) Þáttur Stefáns Jökulsson-
ar.
00.50 Dagskrárlok.
Föstudagur
16. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Ásgeir Tómsson og Páll
Þorsteinsson
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00
Hlé
20.00-21.00 Lög og lausnir Spurn-
ingaþáttur um tónlist. Stjórnandí:
Adolf H. Emilsson
21.00-22.00 Bögur Stjórnandi: And-
rea Jónsdóttir
22.00-23.00 Á svörtu nótunum
Stjórnandi: Pétur Steinn Guð-
mundsson
23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1
Laugardagur
17. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Einar Gunnar Einarsson
14.00-16.00 Við rásmarkið Stjórn-
andi: Jón Ólafsson ásamt Ingólfi
Hannessyni og Samúel Erni
ErlingssynUþróttafréttamönnum
16.00-17.00 Listapopp Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson
17.00-18.00 Hringborðið Hring-
borðsumræður um músik. Stjórn-
andi: Magnús Einarsson.
Hlé
20.00-21.00 Linur Stjórnandi: Heið-
björt Jóhannsdóttir
21.00-22.00 Milli stríða Stjórnandi:
Jón Gröndal.
22.00-23.00 Bárujárn Stjórnandi:
Sigurður Sverrisson
23.00-00.00 Svifflugur Stjórnandi:
Hákon Sigurjónsson
00.00-03.00 Næturvaktin Stjórnandi:
Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1
Sunnudagur
18. ágúst
13.30-15.00 Krydd i tilveruna
Stjórnandi: Helgi Már Barðason
15.00-16.00 Dæmalaus veröld Þátt-
ur um dæmalausa viðburði liðinnar
viku. Stjórnendur: Þórir Guðm-
undsson og Eiríkur Jónsson.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Föstudagur
16. ágúst
19.15 Á döfinni. Umsjónarmaður
Karl Sigtryggsson.
19.25 Ævintýri Berta (Huberts
sagor) 5. þáttur Sænskur teikni-
myndaflokkur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Skonrokk Umsjónarmenn
Haraldur Þorsteinsson og Tómas
Biarnason.
21.00 Heldri manna líf (Aristocrats)
Þriðji þáttur. Breskur heimilda-
myndaflokkur í sex þáttum um
aðalsmenn i EvrÓDU.
21.55 El Dorado (El Dorado) Banda-
riskur vestri frá árinu 1967. Leik-
stjóri Howard Hawks. Aðalhlut-
verk: John Wayne,
23.55 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
17. ágúst
17.00 íþróttir Sýndur veröur leikur
ensku meistaranna Everton og
bikarhafanna Manchester United
á Wembley-leikvangi í London.
Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
19.00 Hver er hræddur við
storkinn? (Vem ár rádd for
storken?) 1. þáttur. Nýr, finnskur
framhaldsmyndaflokkur í þremur
þáttum.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Allt í hers höndum (Allo, Allo!)
Sjötti þáttur Breskur gaman-
myndaflokkur í átta þáttum. Leik-
stjóri David Croft. Aöalhlutverk:
Gorden Kaye. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.00 Manndömur og mörgæsir
(Mr. Forbush and the Penguins)
Bresk bíómynd frá árinu 1971,
byggð á sögu eftir Graham Billey.
22.40 Frankenstein hinn ungi (Yo-
ung Frankenstein) s/h. Bandarísk
mynd fráárinu 1974. Leikstjóri Mel
Brooks.
00.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. ágúst
18.00 Sunnudagshugvekja Séra
Sigurður Sigurðarson, Selfossi
flytur.
18.10 Bláa sumarið (Verano Azul) 2.
Hnötturinn okkar eini. Spænskur
framhaldsmyndaflokkur í sex þátt-
um um vináttu nokkurra ungmenna
á eftirminnilegu sumri. Þýðandi
Áslaug Helga Pétursdóttir.
19.15 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.40 Hitlersæskan (Blut und Ehre).
Annar þáttur: Vort merki boðar
nýja tið. Þýskur framhalds-
myndaflokkur í fimm þáttum.
21.40 David Lean - líf hans og list
(David Lean - A Life in Film) Fyrri
hluti breskrar heimildamyndar sem
kosin var besta heimildamynd árs-
ins 1984 á Banff-kvikmyndahátíð-
inni i Kanada í ár. David Lean á að
baki glæsilegan feril sem kvik-
myndaleikstjóri og lætur engan
bilbug á sér finna þótt kominn sé á
áttræðisaldur. Nýjasta mynd hans
er Ferðin til Indlands sem var
lokið 1984, en meðal annarra hefur
David Lean leikstýrt Brúnni yfir
Kwaifljót, Zhivago lækni,
Arabíu-Lawrence og Dóttur
Ryans. Fylgst er með David Lean
að störfum og rætt við hann um
feril hans. Sýndir eru kaflar úr
myndum hans og nokkrir sam-
starfsmanna hans teknir tali.
Seinni hluti myndarinnar verður á
dagskrá þann 25. ágúst næstkom-
andi. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.40 Dagskrárlok.