NT - 16.08.1985, Blaðsíða 24
Vid tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Kennaraháskólinn:
Þrisvar sinnum þríbrotin blýkringla
íslenskukennarar á endurmenntunarnámskeiði
Mikil afföll
Fyrst voru launamálin rædd
og sögðu þau útlitið svart. í
niáli þeirra kom fram að mikil
afföll hefðu orðið í skráningu
á endurmenntunarnámskeiðin
í ár. Þaö bendir til þess að
töluverður hluti kennara hafi
ákveðið að hætta kennslu,
vegna lágra launa, og bendir
fjöldi auglýsinga um lausar
kennarastöður til þess arna.
Sárt fannst þeim að fræðslu-
stjórar víða um Utnd segðu
útlitið ekki svo alvarlegt á þeim
forsendum að alltaf megi fá
ófaglært fólk í þessar stöður.
Kennslan í grunnskólunum
hefur nefnilega breyst heilmik-
ið á undanförnum árum og
sögðu þau það forkastanlegt
að láta nýstúdent kenna í
grunnskóla, þar sem þeir nota
undantekningarlítið svipaðar
kennsluaðferðir og þeir vönd-
ust í fjögurra ára menntaskóla-
námi.
Allir voru sammála um
mikilvægi endurmenntunar-
námskeiðanna, en þeim fannst
skjóta skökku við að fjárveit-
ingar til þessara hluta hefðu
minnkað á liðnum árum. Sem
dæmi var nefnt að á síðasta ári
lækkaði fjárveiting til endur-
menntunarinnar um 30% og í
ár er upphæðin sem varið er til
þessara hluta sú sama og í
Einn kennarinn nefndi að
íslenskukennari í stórum
grunnskóla kennir oft 150-200
nemendum og þarf hann að sjá
um stafsetningaræfingar, rit-
gerðakennslu, bókmenntir og
málfræðikennslu. Nokkrir
kennaranna sögðust hafa sam-
starf við aðra kennara í samb-
andi við ritgerðasmíð og sem
dæmi nefndu þeir að landa-
fræðiritgerð væri þá um leið
ritgerð í íslensku, en ekki voru
allir sammála um ágæti þeirrar
aðferðar.
Landsbyggðin
Landsbyggðarkennararnir
sögðu þessi námskeið ómetan-
leg. Parna hitta þeir kennara
sem kenna sama fag, en oft eru
þeir einu kennararnir í faginu,
á stóru svæði. Þarna sögðust
þeir geta skipst á upplýsing-
um og fengið aðgang að
kennslugagnamiðstöðinni sem
er staðsett í Reykjavík.
Pau sögðu góðan anda ríkja
á námskeiðinu og ekki leiddist
þeim að sitja á skólabekk.
Einn sagðist meira að segja
öfundá nemendur sína, því
hann sagði að ólíkt skemmti-
legra að vera hinum megin við
kennaraborðið.
■ „Beriö hverja setningu fram þrisvar sinn-
um í lotu, án þess aö ykkur fípist. Setningarnar
eru: Grilliö glamrar, Frank Zappa í svamp-
frakka og þrisvar sinnum þríbrotin blý-
kringla.“ Þetta er erfítt, en íslenskukennarar
á endurmenntunarnámskeiði í Kennarahá-
skólanum máttu gera svo vel og þrælast í
gegnum þetta og meira til. Kennararnir sitja
vikunámskeið og yfírskrift þess er talmálið í
grunnskólunum. Umsjón námskeiðsins er í
höndum Guðmundar B. Kristmundssonar
námsstjóra og Indriða Gíslasonar dósents.
„Þetta er tilraun sem við
erum að gera,“ sagði Guð-
mundur B. Kristmundsson í
samtali við NT. „Það hefur
mikið verið talaö um notkun
tungumálsíns í skólastarfinu,
en lítið verið aðhafst til þessa.
Fyrst í stað vorum við hrædd
unt að vikunámskeiö í þessu
yröi of langt, er raunin hefur
orðið önnur og ugglaust gætum
við haldið úti mánaðarlöngu
námskeiði um þetta efni. Það
skiptir líka miklu máli að við
Indriði fengum prýðis fólk til
að leiðbeina á þessu nám-
skeiði."
NT hcimsótti Kennarahá-
skólann og náði tali af nokkr-
um þátttakendunr á endur-
menntunarnámskeiðinu og
settum við upp nokkurs konar
hringborðsumræður, með
þátttöku Ragnars Inga Aðal-
steinssonar, Þóris Jónssonar,
Ragnhildar Skjaldardóttur og
Guðrúnar Sigurðardóttur.
fyrra, þrátt fyrir þá verðbólgu
sem verið hefur.
Mörgum synjað
Þetta peningaleysi verður
svo til þess að allt of fá nám-
skeið eru haldin. Við hring-
borðið kom fram að margir
kennarar sækja um þátttöku í
3-4 námskeiðum og er þeim oft
■ „Það var einu sinni strengjabrúða...“ Jón Hjartarson leikari
heldur í spottana, Sigfríður Angantýsdóttir er brúðan. Myndin
var tekin þar sem Jón var að kenna framsögn og leikræna
tjáningu. NT-mynd Róbert.
■ „Þetta námskeið er til-
raun, og okkur sýnist hún hafa
tekist vel“, sagði Guðmundur
B. Kristmundsson námsstjóri.
■ „Glamrar grilliö?'4 Þau voru oft brosleg rugiorðin sem komu frá kennurunum, þegar Margrét
Pálsdóttir kom með framsagnardæmin. NT-mynd Róbert.
synjað um þátttöku í þeim
öllum. Þetta þótti þeim for-
kastanlegt, sérstaklega þar
sem greiða þarf 600 króna
tryggingargjald þegar sótt cr
um hvert námskeið og þá er
dálítið stór biti að greiða 10%
launanna í tryggingu, þó hún
fáist endurgreidd siðar, ef við-
komandi fær ekki inni á nám-
skeiðinu.
Ekki fá kennararnir greidd
laun meðan þeir sitja á sumar-
námskeiðum, enda sögðu þeir
að í samningum væri gert ráð
fyrir 150 tímum í endurmennt-
un og það væri bara hluti af
þeirra vinnu. Kennarar sem
búa meira en 25 kílómetrum
frá námskeiðisstaðnum fá
greiddan farareyri og uppi-
hald. Þó kvörtuðu þeir sáran
yfir því að þurfa að greiða
heilar 20 krónur fyrir hvern
auka kaffibolla, því einungis
er gert ráð fyrir hefðbundnum
matar- og kaffitímum.
Allir kennarar
íslenskukennarar
Viðmælendur NT sögðust
hafa mikið gagn af þessu nám-
skeiði og sögðu þátt tungu-
málsins hafa verið mjög van-
ræktan. Þau sögðu alla grunn-
skólakennara í raun vera ís-
lenskukennara, þar sem notk-
un móðurmálsins skiptir miklu
máli við kennslu les- og samfél-
agsgreina. Þau sögðu álag á
■ Tjáskipti eru undirstaða allrar kennslu. Hér er Anna
Jeppesen að kenna framsögn. NT-mynd Róbcrt.
íslenskukennurum vera mikið
og einn viðmælandinn kvaðst
hafa kennt margar greinar og
álagið mest við íslenskukennsl-
una, og sagði hann mestu
heimavinnuna vera við það
fag. Bentu þau á að í nágranna-
löndunum hefðu móðurmáls-
kennarar mun minni kennslu-
skyldu en samkennararnir.